Morgunblaðið - 13.03.2006, Blaðsíða 1
2006 MÁNUDAGUR 13. MARS BLAÐ B
DÝRKEYPT MISTÖK HJÁ STEVEN GERRARD / B5
GRÉTAR Rafn Steinsson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, skoraði eitt mark og lagði annað
upp í gær þegar lið hans, AZ Alkmaar, vann
góðan útisigur á Willem II, 3:1, í hollensku úr-
valsdeildinni í gær.
Strax á 7. mínútu skoraði Bosníumaðurinn
Haris Medunjanin fyrir Alkmaar eftir sendingu
frá Grétari. Willem II náði að jafna metin en
það var síðan Siglfirðingurinn kraftmikli sem
skoraði og kom liði sínu yfir á nýjan leik á 59.
mínútu með hörkuskalla eftir hornspyrnu. Stein
Huysegems skoraði þriðja mark Alkmaar og
tryggði sigur liðsins.
Alkmaar er áfram í þriðja sæti deildarinnar
og er nú með 61 stig en Feyenoord er fyrir of-
an með 63. PSV Eindhoven er með góða stöðu á
toppnum, 70 stig, og stefnir hraðbyri á meist-
aratitilinn.
Grétar skoraði og
lagði upp mark
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÁRNI Thor Guðmundsson,
knattspyrnumaður úr HK, er á
leið til úrvalsdeildarliðs Skaga-
manna og gengur að öllu
óbreyttu frá samningi við þá á
næstu dögum. ÍA og HK hafa
komist að samkomulagi um fé-
lagaskiptin en hann var samn-
ingsbundinn Kópavogsfélaginu
út þetta ár.
Árni Thor, sem er 25 ára
gamall varnarmaður, hefur leik-
ið stórt hlutverk hjá Kópavogs-
liðinu í 1. deildinni undanfarin
tvö ár og hefur verið í hópi
bestu leikmanna deildarinnar.
Þar á undan lék hann með
Leiftri/Dalvík í 1. deildinni um
tveggja ára skeið. Hann skoraði
4 mörk í 16 leikjum fyrir HK í
1. deild í fyrra.
Skagamenn ætla Árna Thor
að leysa vandamál sín í varn-
arleiknum eftir að þeir misstu
báða miðverði sína í vetur.
Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði
þeirra um árabil, gekk til liðs
við KR og Reynir Leósson fór
til Svíþjóðar og leikur þar með
Trelleborg í ár.
Árni Thor til Skagamanna
SADIO Ba, belgískur knatt-
spyrnumaður, er kominn til
reynslu hjá Valsmönnum. Ba er
nýorðinn 33 ára og leikur sem
varnarmaður en hann hefur spilað
með Westerlo í efstu deild í Belgíu
frá árinu 1999 þar til hann var
leystur undan samningi þar fyrr á
þessu tímabili. Þar áður lék hann
með nokkrum liðum í neðri deild-
um í Belgíu en var þó einnig um
skeið í röðum Lokeren.
Ba verður við æfingar hjá Val
fram að næstu helgi en hann spil-
ar tvo æfingaleiki með Hlíð-
arendaliðinu, gegn Fram í kvöld
og gegn HK á laugardaginn.
Ætlum að fá einn til þrjá
erlenda leikmenn
„Við skoðum hann vel í vikunni
og tökum síðan ákvörðun um
framhaldið eftir þessa tvo leiki.
Þetta á að vera öflugur leikmaður
og hann valdi frekar að koma til
okkar en til Noregs, þar sem úr-
valsdeildarlið vildi fá hann. Þar
gerði það útslagið að við tökum
þátt í Evrópukeppni í sumar,“
sagði Börkur Edvardsson, formað-
ur knattspyrnudeildar Vals, við
Morgunblaðið í gær. Hann sagði
jafnframt að Valsmenn ætluðu að
ná í einn til þrjá leikmenn í sinn
hóp fyrir tímabilið og væntanlega
yrðu það allt erlendir leikmenn.
Reyndur Belgi hjá Val
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Stefán Stefánsson, leikmaður Fram, sækir hér að vörn KA þar sem Magnús Stefánsson er til varnar.
Hörður kom Silkeborg yfir á 29.mínútu og aftur á 64. mínútu en
Viborg jafnaði í tvígang. Allt stefndi í
jafntefli þegar Dennis Flinta skoraði
sigurmark Silkeborg á síðustu mín-
útu leiksins.
Hörður var óheppinn að ná ekki
þrennu í leiknum því hann var þríveg-
is nálægt því að skora eitt mark til
viðbótar og var stöðugt ógnandi við
mark Viborg. Danskir netmiðlar fjöll-
uðu mikið um Hörð í gær og sögðu
m.a. að miðað við frammistöðu hans í
þessum fyrsta leik ætti hann vera
mjög áhugaverð viðbót við úrvals-
deildina þar í landi.
Bjarni Ólafur Eiríksson Valsmaður
lék líka sinn fyrsta deildaleik með
Silkeborg en þeir
gengu báðir til liðs
við félagið í vetur.
Bjarni Ólafur lék
sína vanalegu
stöðu sem vinstri
bakvörður en
hann og Hörður
spiluðu báðir allan
tímann.
Sigurinn var óvæntur því Viborg er
í þriðja sæti deildarinnar, á eftir FC
Köbenhavn og Bröndby. Silkeborg er
hins vegar í áttunda sæti af 12 liðum
og komst með sigrinum í sex stiga
fjarlægð frá fallsæti.
Tvö mörk
Harðar í
fyrsta leik
HÖRÐUR Sveinsson, knattspyrnumaður frá Keflavík, byrjaði fer-
ilinn með Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á glæsi-
legan hátt í gær. Hörður skoraði tvö marka liðsins þegar það vann
góðan útisigur á Viborg, 3:2, en keppni í Danmörku hófst á ný um
helgina eftir vetrarfrí.
■ Úrslit / B7
Hörður
HRAFNHILDUR Skúladóttir,
landsliðskona í handknattleik,
og félagar hennar í danska lið-
inu SK Århus tryggðu sér í gær
sæti í úrvalsdeildinni á ný eftir
eins árs fjarveru. SK Århus
burstaði botnliðið VRI, 47:20, á
heimavelli í gær og þar með
getur ekkert lið náð Hrafnhildi
og félögum að stigum þótt
tveimur umferðum sé ólokið.
SK Århus hefur unnið 23 af 24
leikjum sínum og stefnir að því
að verða fyrsta liðið í sögu
deildarinnar sem nær að skora
eitt þúsund mörk á tímabilinu.
SK Århus í úrvalsdeild