Morgunblaðið - 13.03.2006, Page 2

Morgunblaðið - 13.03.2006, Page 2
ÍÞRÓTTIR 2 B MÁNUDAGUR 13. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Íþróttir Morgunblaðsins Kringlunni 1 , 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins GUÐLAUG Jónsdóttir, landsliðskona í knatt- spyrnu, skoraði fimm mörk fyrir Breiðablik gegn sínu gamla félagi, KR, þegar liðin mættust í deildabikarnum í Reykjaneshöllinni í gær. Blikakonur unnu stór- sigur, 7:3, en staðan var reyndar 3:3 um miðjan síðari hálfleik. Þrjú mörk á þremur mín- útum skömmu síðar gerðu út um leikinn. Fjóla Dröfn Friðriksdóttir skoraði tvö marka KR sem lauk leiknum með 10 menn eftir að Embla Grétarsdóttir fékk rauða spjaldið stundarfjórðungi fyrir leikslok. Guðlaug með fimm gegn KR Guðlaug ■ Úrslit / B6 LOKEREN og Standard gerðu markalaust jafntefli í belgísku deildinni í gær. Arnar Þór Viðarsson var hylltur fyrir leikinn og afhenti forseti fé- lagsins honum gjöf enda kapp- inn búinn að leika með Loker- en síðan 1997 og á að baki 240 leiki. Hann hefur verið fyr- irliði liðsins síðustu fjögur ár- in. Rúnar Kristinsson var í byrj- unarliði Lokeren og lék hann allan leikinn og átti ágætis leik, en hann var jafnframt eini Íslendingurinn sem þátt tók í leiknum þar sem Arnar Grétarsson er ekki orðinn góð- ur af meiðslum sínum. Standard var betra liðið í gær en þrátt fyrir að liðið fengi fullt af færum tókst því ekki að skora og var það fyrst og fremst frábær markvarsla Milovejvic sem kom í veg fyrir það því hann varði allt sem kom að markinu og var valinn maður leiksins.  Indriði Sigurðsson lék all- an leikinn með Genk sem vann Germinal Beerschot 1:0 á heimavelli og verður Genk að teljast heppið að hafa náð því. Genk er í fimmta sætinu, átta stigum á eftir toppliði And- erlecht. Arnar Þór var hylltur fyrir leik í Lokeren Eftir Kristján Bernburg VALSMENN lentu í kröppum dansi gegn Aftureldingu að Varmá á laugardag og var ekki á leik liðanna að sjá að annað væri í þriðja sæti og hitt á meðal þeirra neðstu í DHL-deildinni. Mosfellingar voru í forystu í hálf- leik, 13:12. Þegar fram í síðari hálfleik kom náðu leikmenn Vals að komast fram úr en Mosfell- ingar voru aldrei langt undan. Undir lokin var það aðeins fyrir fljótfærni og óheppni að leik- mönnum Aftureldingar tókst ekki að jafna metin, þeir fengu svo sannarlega tækifæri til þess. Valsmenn héldu sjó og fögnuðu sigri sem tryggði þeim áfram- haldandi veru í þriðja sæti. Leik- menn Aftureldingar virðast hins vegar vera að missa af lestinni inn í hóp átta efstu liða eftir slæm úrslit í flestum leikjum síð- ustu vikurnar. Valsmenn í kröppum dansi að Varmá Stjörnumenn léku í gærkvöld sinntólfta leik í röð án ósigurs en eft- ir að þeir töpuðu á heimavelli fyrir nýliðum Fylkis í byrjun nóvember hefur Garðabæjarliðið unnið níu leiki og gert þrjú jafntefli í síðustu tólf leikjum og er til alls líklegt í barátt- unni um titilinn sem Fram, Haukar, Valur og Stjarnan koma til með að slást um á lokasprettinum. Stjörnumenn mættu til leiks í Kaplakrikann án stórskyttunnar Tite Kalandadze og hornamannsins knáa David Kekelia en það kom ekki niður á leik liðsins. Eftir jafnar fyrstu tíu mínútur leiksins tóku Stjörnumenn völdin og héldu þeim allt til leiksloka. Eins og oft áður í vetur lagði vörnin og markvarslan grunninn að sigri Stjörnumanna. 6:0 vörn Garðbæinga var feikilega öflug sem Patrekur Jóhannesson stjórnaði af mikilli röggsemi og fyrir aftan hana fór Roland Valur Eradze ham- förum en hann varði 24 skot í leikn- um, mörg þeirra úr opnum færum Hafnfirðinga. Elvar Guðmundsson, markvörður FH-inga, stóð Roland ekki langt að baki. Elvar varði 22 skot, þar af 2 víti, en það sem varð FH-ingum að falli var sóknarleikur- inn. FH-ingum gekk illa að brjóta á bak aftur vörn Stjörnunnar og bæði hornin voru óvirk í sóknarleik liðsins sem og línuspilið. Eftir að Stjarnan náði þriggja marka forskoti um miðj- an fyrri hálfleik héldu bikarmeistar- arnir FH-ingum í hæfilegri fjarlægð og sigur þeirra var bæði öruggur og sanngjarn. Vörn og markvarsla ,,Þetta voru tvö góð stig og leikur okkar hefur verið upp á við frá síð- asta tapleik. Við vorum í meiðsla- vandræðum í byrjun tímabilsins en eftir að við endurheimtum allan mannskapinn þá hefur þetta gengið sérlega vel hjá okkur. Til að ná góð- um árangri í handbolta þarf vörn og markvarsla að vera góð og þessir hlutir hafa ásamt hraðaupphlaupun- um virkað vel hjá okkur. Sjálfs- traustið hefur líka mikið að segja og eftir gott gengi liðsins þá eru menn með mikið sjálfstraust, sagði Magnús Teitsson, þjálfari Stjörnunnar, í sam- tali við Morgunblaðið eftir leikinn. Spurður út í möguleika liðsins á að hampa Íslandsmeistaratitlinum í vor sagði Magnús: ,,Ég nota gamla góða klisju. Við tökum einn leik fyrir í einu og síðan sjáum við til í lokin hvar við endum. Við erum vissulega með í baráttunni um titilinn og ef við höld- um áfram að bæta okkur þá veit mað- ur aldrei hvað gerist,“ sagði Magnús. Roland Eradze átti frábæran leik í markinu og hefur greinilega hrist af sér meiðslin sem voru að plaga hann á Evrópumótinu í Sviss. Patrekur Jó- hannesson átti einnig skínandi leik. Hann stjórnaði vörn sinna manna eins og hershöfðingi, dró vagninn í sóknarleiknum og eins og hann spil- aði í gær þá er hann í landsliðsklassa. Arnar Theódórsson átti fínan leik gegn sínum gömlu félögum og Stjörnuliðið lék heilt yfir vel í vörn og sókn og vann verðskuldaðan sigur. Eftir góða sigra á ÍBV og KA í síð- ustu leikjum töpuðu FH-ingar dýr- mætum stigum í baráttunni um að komast í hóp átta efstu liða. FH-ing- ar virtust einfaldlega ekki hafa trú á sjálfum sér og þeir áttu á brattann að sækja gegn vörn Stjörnunnar og ekki síst Roland markverði sem lék þá grátt hvað eftir annað. Elvar Guð- mundsson markvörður var langbest- ur í liði FH og Valur Örn Arnarson átti ágæta spretti. Stjarnan heldur sínu striki STJÖRNUMENN héldu sigurgöngu sinni áfram í DHL-deildinni í handknattleik í gærkvöldi en bikarmeistararnir gerðu góða ferð í Hafnarfjörðinn og lögðu FH-inga, 31:26, í Kaplakrika. Stjörnumenn eru í fjórða sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Fram, en Garðbæingar geta blandað sér enn frekar í baráttuna um Íslands- meistaratitilinn takist þeim að leggja Framara á heimavelli sínum um næstu helgi. Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is Í upphafi leiks benti þó ekkert tilþess að Akureyringar yrðu Frömurum auðvelt bráð, því KA byrjaði leikinn af krafti og skoraði fyrstu þrjú mörkin. Það kom því verulega á óvart þegar Reynir Stef- ánsson, þjálfari KA og fyrrum Framari, kippti landsliðsmarkverð- inum Hreiðari Guðmundssyni út af eftir örfáar mínútur. Inn á kom Elmar Kristjánsson sem enn er í 3. flokki og sýndi hann skemmtilega takta á köflum. Framan af leik var jafnt á með lið- unum, þar sem varnarleikur beggja liða var í fínu lagi. KA-liðið stillti upp vel mannaðri 6-0 vörn með þá Hörð Fannar Sigþórsson og Þorvald Þorvaldsson fyrir miðju. Undir lok fyrri hálfleiks fóru hins vegar mis- tök að gera vart við sig í sóknarleik þeirra. Til að mynda gekk þeim ótrúlega illa að nýta sér liðsmun þegar Fram var með menn í kæl- ingu. Í hálfleik hafði Fram yfir 16:13 og allt útlit fyrir jafnan síðari hálf- leik. Framarar gáfu hins vegar engin færi á sér í síðari hálfleik og í sundur dró með liðunum jafnt og þétt. Sókn- arleikur KA skánaði ekkert og varn- arleikur þeirra datt jafnframt niður á lægra plan. Til að bæta gráu ofan á svart varð fyrirliði þeirra, Jónatan Magnússon, fyrir handarmeiðslum og varð að fara af leikvelli. Síðustu tíu mínútur leiksins var öll spenna horfin úr leiknum og leikurinn leyst- ist upp á lokakaflanum. Bestu leikmenn Framara í þess- um leik voru þeir Sverrir Björnsson og Björgvin Björgvinsson, en þeir urðu Íslandsmeistarar með KA fyrir níu árum síðan. Þeir fóru fyrir heimamönnum í vörninni sem hefur verið aðall Fram-liðsins í allan vet- ur. Jafnframt lék Björgvin vel í skyttustöðunni vinstra megin í fjar- veru Rússans, Sergiy Serenko. Auk þess voru þeir Stefán Stefánsson, Sigfús Sigfússon og Haraldur Þor- varðarson hættulegir í sóknarað- gerðum sínum. Útlitið er gott hjá Fram fyrir lokasprettinn í deildinni. Vörnin er traust, sóknarleikurinn agaður og liðið bjargar sér furðu- lega vel þegar það leikur með fimm menn á móti sex. Það hníga öll rök að því að þeir séu líklegir til þess að hampa Íslandsmeistaratitlinum. Sömu sögu er ekki hægt að segja af KA-mönnum þar sem sjálfstraust virðist vera af skornum skammti eft- ir mikið mótlæti á útivöllum í vetur. Jafnframt virðist vanta þá stemn- ingu og þann anda sem einkennt hefur leikmenn KA í gegnum tíðina. Hjá þeim er hins vegar enginn hörg- ull á efnilegum leikmönnum og í sjálfu sér jákvætt að þeir fái sína eldskírn. Áður hefur verið minnst á Elmar markvörð í þessari grein og einnig má benda á leikstjórnandann Elfar Halldórsson sem er mikið efni. Auk þess virðist sem að leikmenn á borð við Hörð Fannar og Ragnar Njálsson skorti einungis herslumun- inn til þess að verða virkilega góðir. Reyndir leikmenn eins og Þorvaldur Þorvaldsson, Sævar Árnason, Goran Gusic og Rögnvaldur Johnsen ættu svo að geta stutt við þá. Reynir Stef- ánsson er hins vegar ekki að finna réttu blönduna í augnablikinu, en hefur sex umferðir til þess að tryggja liðinu sæti í efri hlutanum. Framarar tróna áfram á toppnum FRAMARAR halda sínu striki í baráttunni um Íslandsmeistaratit- ilinn í handknattleik karla. KA-menn reyndust engin hindrun fyrir þá í Safamýrinni í gær þar sem Fram vann stórsigur, 37:27. Með sigrinum heldur Fram toppsætinu í deildinni þegar sex umferðir eru eftir af mótinu. KA bíður hins vegar það erfiða verkefni að halda sér á meðal átta efstu liðanna. Eftir Kristján Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.