Morgunblaðið - 13.03.2006, Síða 8
FÓLK
JÓN Arnór Stefánsson gerði 7 stig
í þær 31 mínútu sem hann lék með
Carpisa Napolí í ítölsku deildinni í
gær en þá vann liðið Livorno 89:82.
Jón Arnór varð að venju í byrjunar-
liði Carpisa.
LOGI Gunnarsson stóð fyrir sínu
þegar Bayreuth vann Crailsheim
Merlins 89:74 á útivelli í suðurriðli
þýsku 2. deildarinnar. Logi gerði 28
stig í leiknum.
JAKOB Sigurðsson kom ekkert
við sögu þegar Leverkusen vann
Oldenburg 78:74 á útivelli í þýsku
úrvalsdeildinni.
KA verður bæði með karla- og
kvennalið í úrslitum Brosbikar-
keppni Blaksambands Íslands, en
undanúrslitaleikirnir fóru fram um
helgina. KA mætir Þrótti úr Reykja-
vík í kvennaflokki en bikarmeistur-
um Stjörnunnar í karlaflokki.
AUSTURRÍSKI skíðamaðurinn
Benjamin Raich tryggði sér heims-
bikarinn í alpagreinum skíðaíþrótta
um helgina þegar hann varð í fjórða
sæti í svigi í Japan. Finninn Kalle
Palander og Reinfried Herbs frá
Austurríki urðu jafnir í fyrsta sæti,
þriðjungi úr sekúndu á undan Thom-
as Grandi frá Kanada. Raich varð
síðan fjórði og þar með var heims-
bikarinn í samanlögðu í höfn hjá hon-
um.
KEPPNIN á HM í frjálsíþróttum
sem fram fór í Moskvu um helgina
var jöfn og spennandi í mörgum
greinum. Sem dæmi má nefna að í 60
metra grindahlaupi karla komu þrír
keppendur jafnir í mark á 7,52 sek-
úndum. Þetta voru Dominique Arn-
old frá Bandaríkjunum, sem var úr-
skurðaður í þriðja sæti, Maurice
Wignall frá Jamaíku sem varð fjórði
á sínum besta árangri í ár og Stan-
islavs Olijars frá Lettlandi sem náði
einnig sínum besta tíma í ár.
TERRENCE Trammell frá
Bandaríkjunum sigraði í greininni,
hljóp á 7,43 sekúndum sem er besti
tími ársins og Dayron Robles frá
Kúbu varð annar á 7,46 og er það
besti tími sem hann hefur náð í
greininni.
ÞÝSKI þrautarmaðurinn André
Niklaus sigraði í sjöþraut eftir æsi-
spennandi keppni við Bryan Clay frá
Bandaríkjunum og Roman Sebrle
frá Tékklandi. Niklaus skaust fram-
úr þeim í síðustu tveimur greinun-
um, stökk 5,30 í stangarstökki og
fékk 1.004 stig fyrir það á meðan
Clay stökk 4,60 og fékk 439 stig fyrir
það og Sebrle 849 stig fyrir 4,80.
NIKLAUS kom síðan fyrstu í
mark í 1.000 metra hlaupinu og nógu
langt á undan Clay til að sigra, fékk
alls 6.192 stig eða fimm stigum meira
en Clay.
ÁGÚSTA Jóna Heiðdal, fyrirliði
Keflavíkurliðsins í kvennaknatt-
spyrnunni, er hætt að spila með lið-
inu en verður þess í stað aðstoðar-
þjálfari þess. Ásdís Þorgilsdóttir er
sem fyrr spilandi þjálfari liðsins.
JÓHANNES Gíslason, knatt-
spyrnumaður frá Akranesi, er geng-
inn í raðir 1. deildarliðs Þróttar. Jó-
hannes, sem er 23 ára, hefur verið í
röðum Valsmanna undanfarin tvö ár
en lék ekkert á síðasta tímabili vegna
meiðsla. Hann hefur spilað 18 leiki
með ÍA í efstu deild.
HJÁLMAR Þórarinsson skoraði
eitt mark og lagði annað upp fyrir
varalið Hearts í skosku knattspyrn-
unni sem vann Livingston, 4:1. Hann
var ekki í aðalliðshópi Hearts þegar
sömu félög gerðu markalaust jafn-
tefli í úrvalsdeildinni á laugardaginn.
GARÐAR B. Gunnlaugsson var
ekki í leikmannahópi Dunfermline
sem vann Aberdeen, 1:0, í skosku úr-
valsdeildinni. Allt bendir til þess að
hann snúi aftur í raðir Valsmanna í
vor en hann hefur engin tækifæri
fengið með aðalliði Dunfermline eft-
ir að hann kom þangað um áramótin.
Heldur voru gestirnir frá Svisshressari í upphafi síðari leiks-
ins á laugardaginn, þeir skoruðu 1
mark á fyrstu 15 mínútum fyrri leik-
ins en fjögur mörk á jafnmörgum
mínútum í byrjun þess síðari enda
varði Berglind Hansdóttir í marki
Vals sitt fyrsta skot á 11. mínútu.
Það dugði samt engan veginn til að
slá á baráttuþrek Valsara sem náðu
að slökkva á gestunum í 11 mínútur,
skora 6 mörk í röð og 15:10 forystu í
hálfleik. Í síðari hálfleik héldu þær í
horfinu, gáfu engin færi á sér og
náðu mest 8 marka forystu en slógu
af í lokin þegar allir á varamanna-
bekknum fengu að spreyta sig.
Valskonur eru vel að sigrinum
komnar, voru einbeittar og misstu
dampinn sjaldan. Í fyrri leiknum
var vörnin mjög öflug en alltof mikið
af mistökum, það tókst að fækka
þeim verulega og þegar við bættist
að góð vörnin skilaði hraðaupp-
hlaupum áttu þær svissnesku aldrei
möguleika. Gestirnir kunnu vissu-
lega handbolta, sterkar með góða
tækni en það skipti sköpum að Vals-
konur höfðu neistann og hungur í
sigur.
Einvígið búið í hálfleik
„Við lögðum upp með að hafa
þriggja marka forskot í hálfleik og
gerðum gott betur svo að einvígið
var í raun búið í hálfleik,“ sagði
Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals eftir
leikinn. „Þetta byrjaði hálfilla en við
komum sterk til baka og lékum góð-
an varnarleik, sem skóp sigurinn í
dag. Við lékum góða vörn í fyrri
leiknum en fengum því miður ekki
mikið af hraðaupphlaupum í kjölfar-
ið. Í dag lékum við aftur góða vörn
en nú skorum við mikið eftir hraða-
upphlaup og þau mörk vógu þungt.
Sóknin var frekar stirð í fyrri leikn-
um en við lögðum á ráðin með það
og það gekk upp, sérstaklega var
sóknin góð í fyrri hálfleik og Drífa
Skúladóttir spilaði frábærlega,“
bætti Ágúst við, stoltur með sitt lið
sem staðið hefur í ströngu síðustu
vikuna. „Ég var ekkert hræddur um
að það yrði eitthvert spennufall eftir
fjögurra marka sigur í fyrri leikn-
um, það er svo lítið og fljótt að fara í
handbolta. Við þurftum virkilega að
vera á tánum og náðum að spila 3-3
vörn. Þetta er fjórði leikur liðsins á
sjö dögum, stelpurnar eru í topp-
standi og ég er virkilega stoltur af
þeim. Þær eru öflugar með mikinn
metnað, við erum í toppbaráttu í
deildinni og næsta verkefni er að
reyna að gera góða hluti þar. Svo er
komið að undanúrslitum og við ætl-
um okkur lengra, eins langt og við
mögulega komumst.“
Held að Valur eigi möguleika
Vroni Keller þjálfari svissneska
liðsins var raunsæ eftir leikinn. „Til
hamingju Valur með að komast í
undanúrslit. Rétta liðið vann því
okkur tókst ekki að finna neitt svar
við leik þess. Við byrjuðum vel og ég
vonaðist eftir framhaldi á því en það
gerðist ekki, við gerðum of mörg
mistök. Ég bjóst við leikirnir við Val
yrðu jafnir og það þyrfti að hafa
mikið fyrir sigri en okkur tókst ekki
að sýna okkar besta leik,“ sagði
þjálfarinn og telur Val eiga mögu-
leika á að komast áfram. „Ég þekki
aðeins liðin sem eru enn í keppninni,
þau eru góð en ég held að Valur eigi
möguleika gegn þeim.“
Morgunblaðið/ÞÖK
Valsstúlkur fögnuðu sigri og eru komnar í undanúrslit Áskorendakeppni Evrópu.
Valsstúlkur í
undanúrslit
VILJINN var til staðar þegar Valur lék seinni leikinn við svissneska
liðið LC Bruhl í 8-liða úrslitum Áskorendakeppni Evrópu í Höllinni á
laugardaginn. Fjögurra marka forskot eftir fyrri leikinn deginum áður
var gott mál en Valskonur vissu að það dygði skammt og fóru í síðari
leikinn af krafti, sem skilaði 32:27 sigri og sæti í undanúrslitum. Það
verður ekki ljóst fyrr en í næstu viku hvaða mótherja þær fá.
Eftir Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
„ÉG átti frekar von á jafnari leikjum
en við græddum mest á að við vorum
á heimavelli,“ sagði Drífa Skúladótt-
ir, sem átti góðan leik á laugardag-
inn. Valsliðið hefur staðið í ströngu,
leikið fjóra leiki á sjö dögum en hélt
þó út leikinn á laugardaginn. „Við
hugsum til leiksins í Aþenu, fyrr í
keppninni þegar við töpum með fjór-
um en unnum svo seinni leikinn
stærra. Það er ekki laust við að mað-
ur sé orðinn þreyttur, en hungrið
var til staðar og við fórum áfram á
því. Svisslendingar sýndu góðan
handbolta en hættu svo. Það er æð-
islegt að vera komin í undanúrslit en
erfitt að segja með framhaldið. Ég
lék gegn franska landsliðinu, sem er
gott en ég veit ekki hvort við erum
að fara að mæta góðu liði þaðan.“
Fann að við vorum sterkari
Ágústa Edda Björnsdóttir lék
stóra rullu í Valsliðinu, stýrði sókn-
inni og stóð vaktina framarlega í
vörninni. „Við fundum í fyrri leikn-
um að við vorum sterkari og ef við
myndum spila okkar leik ynnum við,
þótt við hefðum fjögur mörk í for-
skot úr fyrri leiknum ætluðum við
ekki bara að halda því heldur vinna
þennan leik. Við hefðum getað unnið
stærra en leyfðum öllum að spila og
þá riðlast oft leikskipulagið. Það er
samt ekkert frá þeim sem komu síð-
ar inn á tekið,“ sagði Ágústa Edda
eftir leikinn á laugardaginn og sagði
heimavöllinn mikilvægan. „Sviss-
neska liðið er mjög gott en við vor-
um sterkari. Þetta voru tveir
skemmtilegir leikir, mikill hraði og
skemmtilegt að spila þá. Við vorum
ekki búnar að hugsa mikið hvað
langt við kæmust áfram í þessari
keppni, tökum bara einn leik fyrir í
einu og vissum að þessi tvö lið væru
álíka góð en með heimavöllinn okk-
ar megin áttum við góða möguleika.
Við ætluðum okkur þetta allan tím-
ann og það er frábært að vera komin
í undanúrslit í þessari keppni.“
„Græddum
á heima-
vellinum“