Morgunblaðið - 31.03.2006, Page 4
4 C FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
SAAB er hluti af GM-keðjunni en
nýtur ennþá nokkurs sjálfstæðis og
virðingar vegna sögu sinnar. Saab
hefur nefnilega látið meira að sér
kveða en margur heldur. Fyrirtæk-
ið hefur í marga áratugi framleitt
herþotur en er þekktast fyrir
fólksbílana og túrbó-tækni sína. Í
fyrsta sinn er nú farið að bjóða Sa-
ab-jeppa en þar er ekki um eig-
inlega Saab-hönnun að ræða þótt
vissulega sé Saab 9-7X, eins og
jeppinn heitir, með hinu sígilda
Saab-grilli og bláa lógóinu. En
flest annað kemur úr hillum GM
því 9-7X er byggður að stórum
hluta á Chevrolet Trailblazer- og
Buick Ranier-borgarjeppunum
bandarísku.
Slekkur á fjórum strokkum
Saab er með seinni skipum að
láta að sér kveða á jeppamarkaði.
Flestir framleiðendur hafa þegar
mjólkað þá kú um langt skeið með
góðum árangri. Markaðsmenn Sa-
ab komust að því að 40% Saab-
eigenda í Bandaríkjunum eiga einn
jeppa að auki fyrir utan húsin sín.
Þá skipta 30% þeirra sem losa sig
við Saab sinn upp í borgarjeppa.
Þarna er því eftir nokkru að slægj-
ast og Saab ætlar að lokka til sín
kaupendahóp með 9-7X og ekki
nema bara líklegt að það takist,
eins skemmtilegur og bíllinn er í
notkun.
9-7X er millistór borgarjeppi
með sítengdu aldrifi og fjögurra
þrepa sjálfskiptingu. Hann lætur
frekar lítið yfir sér en er laglegri
að sjá að framan, þar sem Saab-
ættarsvipurinn skín í gegn í grill-
inu og Xenon-lugtirnir eru nútíma-
legar og setja svip á bílinn. Að aft-
an er hleri sem opnast hátt upp en
það er líka hægt að opna á einfald-
an hátt eingöngu afturrúðuna ef
ætlunin er að skutla inn minni
pökkum.
Bíllinn var tekinn til prófunar í
byrjun viku og er búinn að vera
eins og hugur prófara, að því und-
anskildu að honum hryllti við
eyðslunni. Undir vélarhlífinni er
vissulega 5,3 lítra, V8-vél sem skil-
ar einum 300 hestöflum og eyðslan
innanbæjar er eftir því, eða um 23
lítrar á hundraðið í prófunarakstr-
inum. Það má bóka það að hægt er
að ná eyðslunni verulega niður með
hefðbundnari akstri en hjá prófara
því um verulega tæknivædda vél er
að ræða. Hún er sem fyrr segir
átta strokka en slekkur á fjórum
strokkum sé ekki þörf fyrir allt afl-
ið. Tæknin kallast DOD (Displace-
ment on Demand). Líklegt má þó
telja að þeir sem á annað borð
kaupa bíl í þessum verðflokki þurfi
síður að hafa áhyggjur af bens-
ínreikningum. En þetta er vél sem
bragð er að. Hljómurinn í henni er
djúpur og hrár og aflið með þeim
hætti að prófari þurfti að hafa sig
allan við til að halda sér innan lög-
legra hraðamarka. Hröðunin er
mikil og ljúf og millihröðun við
framúrtökur unaðsleg, þótt á
stundum vilji bíllinn hanga nokkuð
í gírum og það þurfi þess vegna að
„pikka“ inngjöfina dálítið til að fá
bílinn til að skipta sér niður.
Það sem kom á óvart, fyrir utan
mikið afl, eru frábærir aksturseig-
inleikar bílsins. Hann virkar meira
eins og fólksbíll í akstri en jeppi og
tekur beygjur með traustvekjandi
stöðugleika, en þar er ekki síst að
þakka breiðum hjólbörðunum og
mátulega stífri fjöðrun. Stýringin
er nákvæm og bíllinn leggur meira
á en búast hefði mátt við.
Fjórhjóladrifið er alsjálfvirkt og
deilir aflinu milli aftur- og framása
eftir þörfum hverju sinni, alveg frá
því að 100% aflsins fari til aft-
urhjólanna til þess að 95% aflsins
fari til framhjólanna. Þá er bún-
aður í bílnum sem kallast StabiliT-
rak og felur í sér stöðugleikastýr-
ingu og spólvörn.
Frágangur og efnisval kemur
minna á óvart, enda Saab verið í
flokki framleiðenda sem er ann-
aðhvort rétt utan við eða innan lúx-
usbílaflokksins.
Sportlegir taktar
9-7X lætur frekar lítið yfir sér í
ytra útliti. Nokkuð hefðbundinn að
flestu leyti að því undanskildu að
hann skartar breiðum 18 tommu
dekkjum á álfelgum, 255/55, og
hann er með lægra þaki en menn
eiga yfirleitt að venjast í þessari
gerð bíla. Fyrir vikið virkar hann
sportlegur fyrir augað og ekki
dregur úr þeirri upplifun þegar
sest er inn í hann.
Prófunarbíllinn var klæddur
ljósu og frekar mjúku leðri með
dökku leðri í köntum og á hurð-
arspjöldum. Svo er skreytt líka
með harðvið og krómi þar sem við
á. Mælaborðið er kannski ekki
beinlínis sportlegt heldur frekar í
ætt við einhvers konar tækni-
hyggju eða minnir jafnvel á stjórn-
klefa lítillar flugvélar. Ekki að of
margir stjórnrofar séu að flækjast
fyrir heldur er mælaborðið hátt og
snýr að ökumanni og mælarnir
sjálfir fleiri en menn eiga að venj-
ast. Traustvekjandi er að sjá að
Saab víkur ekki frá hefðinni og
hefur svissinn á milli sætanna en
Farangursrýmið er allstórt og stækkanlegt í 2.268 lítra.Miðstöð og hljómtæki.
Fyrsti Saab-jeppinn
með amerískum genum
REYNSLUAKSTUR
S -7X
Guðjón Guðmundsson
Morgunblaðið/Eyþór
9-7X er feiknarlega aflmikill og skemmtilegur bíll í akstri.
Vél: V8, 5.328 rúmsenti-
metrar, DOD, 16 ventlar.
Afl: 300 hestöfl við
5.200 snúninga á mínútu.
Tog: 447 Nm við 4.000
snúninga á mínútu.
Gírskipting: Fjögurra
þrepa sjálfskipting.
Drif: Sítengt aldrif.
Lengd: 4.907 mm.
Breidd: 1.915 mm.
Hæð: 1.740 mm.
Farangursrými:
1.127–2.268 lítrar.
Veghæð: 196 mm.
Hjólhaf: 2.870 mm.
Eigin þyngd: 2.169 kg.
Hjólbarðar:
255/55R, 18" álfelgur.
Verð: 6.300.000 kr.
Umboð: Ingvar Helgason hf.
Saab 9-7X