Morgunblaðið - 09.04.2006, Qupperneq 23
9.4.2006 | 23
Ég ók norður á Akureyri á dögunum og til baka aftur.Á leiðinni til baka ókum við í hvössum norðanvindigegnum Skagafjörð og Húnaþing. Skafrenningur lá
eins og þykkur hvítur straumur yfir veginum svo með köfl-
um varð að reiða sig á vegstikur einar til aksturs. Í Skagafirði
tók ég eftir stórum og stæðilegum bíl sem ók rétt á undan
mér. Þetta var amerískur pallbíll af gerðinni Ford-350, grár
að lit en bifreiðar eins og þessar hafa flætt í þúsundatali inn í
landið undanfarin misseri vegna hagstæðs gengis dollarans.
Ford-350 er stór bíll, þungur og kraftmikill og hélt uppi
þægilegum ferðahraða svo við höfðum samflot yfir Vatns-
skarð, niður Langadal og svo eins og leið lá vestur eftir
Húnaþingi. Eins og oftast er á ferðalögum bar fátt til stórra
tíðinda en skammt vestan við Blönduós hægði Fordinn svo-
lítið á sér og síðan fóru að fjúka frá honum skrýtnar send-
ingar. Ljóst var að mikil tiltekt stóð yfir í bifreiðinni því all-
margar tómar flöskur og síðan
samanvöðlaðar umbúðir utan af ein-
hvers konar nesti voru tíndar út um
afturglugga og sleppt út í veður og
vind. Norðanvindurinn tók herfangið
fegins hendi og snakkpokar og gos-
flöskur flugu framhjá okkur á svip-
stundu og hurfu út í húnvetnska bit-
haga.
Ég get játað á mig þá fordóma að ég
taldi að sennilega væru þarna á ferð
einhverjir kærulausir krakkagemlingar
sem hefðu gert þetta í einhverju ógáti. Ég taldi víst að full-
orðið og alminlegt fólk léti ekki svona hroðalegan sóðaskap
viðgangast eða tæki þátt í honum.
Við gatnamótin hjá Hvammstanga hægði Fordinn á sér
og beygði út í kant og ég ók rólega framhjá honum og sá að
tvær ungar og fallegar konur sátu frammí. Þær voru vel
snyrtar og klæddar eftir útbreiddri tísku.
Ég tók þær ekki tali þótt ég hefði sennilega átt að gera það
en í mínum augum var skaðinn skeður og litlar líkur á að
þær færu að elta rusl um tún bænda. Ég skrifaði hjá mér
númerið á bílnum og komst að því að gripurinn er í eigu fyr-
irtækis sem er með lögheimili og varnarþing í Seláshverfi í
Reykjavík.
Þetta var semsagt venjulegur bíll í eigu venjulegra Íslend-
inga sem búa í venjulegu hverfi og hafa rúmlega meðaltekjur
ef marka má umræddan bíl sem var nýskráður 2004 og er
líklega metinn á rúmlega 3 milljónir.
Ég veit ekkert hvort það voru nákvæmlega eigendur bíls-
ins sem voru að ferðast á honum í þetta tiltekna skipti en
konurnar sem augljóslega stýrðu leiðangrinum litu út eins
og venjulegt fólk.
Þetta var semsagt almenningur á ferð.
Íslendingar sem aka um á amerískum pallbílum graðg-
andi í sig gosdrykki og skyndibita og treður svo ruslinu rop-
andi út um gluggann og lætur vindinn taka það.
Þetta hljómar ekki sérstaklega vel.
Hvernig gengur þetta fólk um heima hjá sér?
Veður það rusl og tómar umbúðir í ökkla á stofugólfinu?
Er garðurinn fullur af tómum gosflöskum og sælgætisbréf-
um?
Er sumarbústaðurinn þeirra eins og ruslakompa í fjöl-
býlishúsi angandi af gömlum matarleifum, sígarettustubb-
um og notuðum dömubindum?
Ég held ekki.
Ég er næstum viss um að parketið er glansandi og garð-
urinn flekklaus. Bíllinn var fallegur og vel hirtur og farþeg-
arnir hreinir, brosmildir og vel klæddir.
Ég varð semsagt fyrir verulegum vonbrigðum á þjóðvegi
1. Ég hélt að venjulegt fólk hegðaði sér ekki svona.
En sennilega er útlitið ekki allt. | lysandi@internet.is
Þjóð í rusli
Pistill
Páll Ásgeir
Ásgeirsson
Konurnar sem aug-
ljóslega stýrðu leið-
angrinum litu út eins
og venjulegt fólk.
SMÁMUNIR…
Sensai Silk heitir ný húðsnyrtilína sem Kanebo hefur sett á
markað og er sérstaklega hugsuð fyrir ungar konur sem búa
við streitu og áreiti. Húðlínunni er ætlað að sporna gegn
ótímabærri öldrun húðarinnar og er sögð örva náttúrulega
getu hennar til að viðhalda heilbrigði sínu og fegurð.
Vörurnar innihalda m.a. silkiþykkni sem eins og nafnið bendir
til er fengið úr silki. Það hefur spilað lykilhlutverk í snyrti-
vöruframleiðslu Kanebo, allt frá því fyrirtækið setti sína
fyrstu snyrtivöru á markað árið 1939, silkisápuna Savon de
Soie.
Sensai Silk línan inniheldur m.a. rakakrem af ýmsum toga,
slökunarmaska, augnmaska, milt andlitskrem og frískandi
andlitsvökva sem ætlað er að „vekja“ húðina.
Gegn streitu og áreiti
Ilmvísindi léku lykilhlutverk í þróun nýs
krems fyrir barm og brjóst sem Shiseido
hefur nýverið sett á markað. Kreminu er
ætlað að styrkja húðina á barm- og
bringusvæðinu og halda henni stinnri.
Virku efnin í kreminu eru m.a. unnin úr
soyabaunum og olíum en anganin ber með
sér snert af rósum, jasmínu, vatnaliljum
og ferskju.
Blómaangan fyrir barminn