Morgunblaðið - 27.06.2006, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Colombo. AFP. | Parami Kulatunga,
einn æðsti yfirmaður stjórnarhers-
ins á Sri Lanka, féll í gær í sprengju-
árás í höfuðborginni Colombo en
grunur leikur á að uppreisnarmaður
úr röðum Frelsishreyfingar tamíla
(LTTE) hafi verið að verki. Árásin
kann að grafa enn frekar undan
vopnahléinu frá 2002, en Kulatunga
er hæst setti herforingi stjórnarinn-
ar til að falla í átökum fylkinganna
tveggja allt frá árinu 1972.
„Við höfum nú sönnunargögn sem
benda til að sprengingunni hafi verið
komið af stað í sjálfsmorðsárás liðs-
manns LTTE sem ók mótorhjólinu,“
sagði Prasad Samarasinghe, tals-
maður hersins. „Hann ók á bifreiðina
og setti sprengiefnið af stað.“
Mahinda Rajapakse, forseti Sri
Lanka, fordæmdi árásina og sagði
hana tilraun LTTE til að spilla frið-
arferlinu. Þá sagði forsetinn hana
sýna að uppreisnarmenn úr röðum
tamílsku Tígranna „virtu að vettugi
ítrekaðar tilraunir alþjóðasam-
félagsins til að binda enda á ofbeldið
og hryðjuverk“ í landinu.
Kulatunga var myrtur aðeins
þremur dögum áður en fyrirhugaður
fundur Norðmanna, sem leiða frið-
arferlið á eyjunni, og talsmanna fylk-
inganna tveggja átti að fara fram. Á
þeim fundi átti að ræða framtíðar-
hlutverk norrænu eftirlitssveitanna
(SLMM) eftir að talsmenn Tígranna
lýstu því yfir að þeir myndu ekki
starfa með þeim eftirlitsmönnum
sem kæmu frá Finnlandi, Svíþjóð og
Danmörku. Sú yfirlýsing kom í kjöl-
far þess að Evrópusambandið skil-
greindi LTTE sem hryðjuverkasam-
tök í maí, en þjóðirnar þrjár eru sem
kunnugt er aðildarríki sambandsins.
Vara við allsherjarstríði
Alls hafa 37 af 57 eftirlitsmönnum
SLMM komið frá þessum þjóðum en
hinir 20 frá Íslandi og Noregi. Má
segja að starfsemi eftirlitssveitanna
sé nú í uppnámi en Tígrarnir hafa
hótað því að allsherjarstríð kunni að
brjótast út í landinu hætti Norð-
menn að leiða friðarferlið á eyjunni.
Þannig sagði S.P. Thamilselvan,
talsmaður Tígranna, að stríð væri
„óhjákvæmilegt“ drægju Norðmenn
sig út úr friðarviðræðunum eftir fyr-
irhugaðan fund með fylkingunum
tveimur fimmtudaginn 29. júní.
Myrtu háttsettan
herforingja á Sri Lanka
AP
Hermenn virða fyrir sér flak
bifreiðarinnar í gær.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
WARREN Buffett, næstríkasti maður heims,
hefur ákveðið að láta meirihluta eigna sinna
renna til Bill og Melinda Gates-stofnunarinnar,
en hún sérhæfir sig í góðgerðarmálum víða um
heim. Mun Buffett árlega gefa stofnuninni um
1,5 milljarða dollara, eða sem svarar 113,625
milljörðum króna, en það mun ríflega tvöfalda
árleg útgjöld hennar.
Þetta varð ljóst þegar Buffett tilkynnti á
sunnudag að hann myndi byrja að gefa frá sér
85 prósent eigna sinna í júlí, en verðmæti þeirra
er áætlað um 44 milljarðar dollara, sem jafn-
gilda um 3.333 milljörðum króna.
Alls mun Buffett gefa að jafnvirði 37,4 millj-
arða dollara til góðgerðarmála og kemur 31
milljarður dollara í hlut Gates-stofnunarinnar,
en afgangurinn rennur til fjögurra sjóða í eigu
fjölskyldu hans sem starfa að góðgerðarmálum.
Bill Gates, stofnandi Microsoft, og Melinda
eiginkona hans komu stofnuninni á legg sem við
þau er kennd, en meginmarkmið hennar er að
„draga úr hinum blygðunarlausa mismun á því
hvernig við lifum og hvernig fólk í þróunarlönd-
unum lifir“. Þannig leggur hún áherslu á bar-
áttuna gegn fátækt og aðgang að heilbrigð-
isþjónustu og tækni í þróunarlöndunum.
Heildarverðmæti sjóðs hennar er um 30 millj-
arðar dollara, eða um 2.204 milljarðar króna, en
hún sinnir einnig góðgerðarmálum vestanhafs.
Einn áttundi af útgjöldum SÞ
Robert Peston, viðskiptaritstjóri breska rík-
isútvarpsins, BBC, setti sjóð Gates-hjónanna í
samhengi í umfjöllun sinni um gjöfina og benti á
til samanburðar að árleg útgjöld Sameinuðu
þjóðanna væru um 900 milljarðar króna. Því má
segja að árlegt framlag Buffetts nemi um ein-
um áttunda hluta árlegra útgjalda SÞ.
Einn böggull fylgir skammrifi, því að Buffett,
sem er 75 ára, gerir þá kröfu að fénu verði varið
jafnóðum. Þá þurfa annaðhvort Bill eða Mel-
inda persónulega að ráðstafa fénu, en ferlið við
úthlutun þess gæti breyst falli Buffett frá áður
en öll upphæðin hefur verið greidd.
Aðspurður um gjöfina sagði Buffett að hann
hefði valið Gates-hjónin vegna þess að þau
væru mun betur fær um að sinna góðgerð-
armálum en hann sjálfur. „Hver myndi ekki
velja kylfinginn Tiger Woods sem staðgengil í
golfmóti þar sem mikið lægi undir?“ sagði Buf-
fett í viðtali í nýjustu útgáfu tímaritsins For-
tune. „Þannig lít ég á ákvörðun mína.“
Óhætt er að segja að Buffett sé goðsögn í
bandarísku viðskiptalífi en hann þykir hafa átt
einstaklega giftusaman feril sem fjárfestir.
Þrátt fyrir mikil auðæfi er hann þekktur fyrir
látlausan lífstíl og dálæti á hamborgurum, en
hann býr ennþá í húsinu sem hann keypti í
heimabæ sínum Omaha í Nebraska-ríki árið
1957. Eiginkona hans, Susan, lést árið 2004 en
að sögn Buffetts hafði lát hennar áhrif á þá
ákvörðun hans sem hefur nú verið kunngerð.
Aðrir auðmenn fylgjast með
Diana Aviv, sem er forseti stofnunarinnar In-
dependent Sector, hóps 550 góðgerðarsamtaka,
sagði gjöf Buffetts afar mikilvæga.
„Ég er viss um að margir ungir, efnaðir ein-
staklingar sem hafa komist yfir mikil auðæfi
fylgjast grannt með þessu,“ sagði Aviv.
Þá sagði Stacy Palmer, ritstjóri tímaritsins
Chronicle of Philanthropy, að gjöf Buffetts til
góðgerðarmála væri sú stærsta í sögunni og
stærri en fjárframlög auðmannanna John D.
Rockefeller og Andrew Carnegie, en þeir voru á
meðal ríkustu manna heims fyrir 100 árum.
Sögulegt framlag Warrens Buffetts, næstríkasta manns heims, til góðgerðarstofnunar Gates-hjónanna
Gefur á þriðja þúsund milljarða
Buffett og Gates-hjónin eftir að tilkynnt
var um framlag hans til góðgerðarmála.
New York. AFP. | Ópíumframleiðslan í
heiminum minnkaði um fimm pró-
sent á síðasta ári og kókaínfram-
leiðslan var álíka mikil og árið áður,
að því er fram kemur í nýrri skýrslu
Sameinuðu þjóðanna um baráttuna
gegn fíkniefnum. Skýrsluhöfundarn-
ir segja þó að það sé mikið áhyggju-
efni að eftirspurnin eftir kókaíni hafi
stóraukist í Vestur-Evrópu.
Antonio Maria Costa, fram-
kvæmdastjóri UNODC, sagði að yf-
irvöld hefðu aldrei áður gert eins
mikið magn af kókaíni og ópíumi
upptækt. Neysla á kannabisefnum
ykist enn, svo og smygl á kókaíni og
heróíni um Afríku frá Rómönsku
Ameríku til Evrópu.
Ræktun ópíumvalmúa minnkaði
um 72% í Laos og um 21% í Afganist-
an. Óttast er þó að ræktunin aukist
að nýju í Afganistan í ár þar sem
þarlend yfirvöld þykja of veik til að
geta tekist á við vandamálið og einn-
ig vegna fátæktar í sveitum landsins.
Costa hvatti einnig Evrópulönd til
að takast á við hættuna sem stafaði
af aukinni kókaíneftirspurn. „Of
margir sérmenntaðir Evrópubúar
nota kókaín og reyna oft að afneita
fíkn sinni, og í fjölmiðlunum er oft
fjallað á ógagnrýninn hátt um fíkni-
efnaneyslu fræga fólksins þannig að
ungt fólk er ráðvillt og berskjaldað.“
Kókaín-
neysla eykst
í V-Evrópu
BANDARÍSKIR og breskir
vísindamenn vinna nú að þróun
búnaðar sem gerir tölvum
kleift að lesa svipbrigði og til-
finningar úr andlitum manna.
Þróun búnaðarins er raunar
svo langt komin að gestum vís-
indasýningar Royal Society í
Bretlandi í næstu viku verður
boðið að taka þátt í tilraun með
frumgerð „tilfinningalega með-
vitaðrar“ tölvu sem Cam-
bridge-háskóli hefur smíðað.
Vonast aðstandendur búnað-
arins til að þessi tækni muni
m.a. nýtast við gerð miðla sem
geti sérsniðið auglýsingar að
neytendum. Þá gæti höfuðbún-
aður sem hefði slíka tölvu inn-
byggða nýst sjúklingum sem
þjást af einhverfu og hjálpað
þeim að lesa tilfinningar ann-
arra.
Í sem stystu máli les búnað-
urinn 24 „andlitspunkta“ með
þeim ávinningi sem að framan
er lýst.
Tölva sem
les svipbrigði
Dili. AFP, AP. | Mari Alkatiri, for-
sætisráðherra Austur-Tímors, sagði
af sér í gær og líklegt þykir að af-
sögnin dragi úr pólitísku spennunni í
landinu eftir blóðugar óeirðir í síð-
asta mánuði.
Mikill fögnuður var á götum Dili,
höfuðborgar Austur-Tímors, eftir að
Alkatiri tilkynnti afsögn sína.
Margir telja að hann hafi valdið
blóðsúthellingunum og forseti lands-
ins, Xanana Gusmao, sem nýtur mik-
illa vinsælda í landinu, hótaði í vik-
unni sem leið að láta af embætti
segði forsætisráðherrann ekki af
sér.
Alkatiri hefur verið sakaður um að
hafa myndað morðsveitir til að
þagga niður í andstæðingum sínum.
Margir rekja einnig blóðsúthelling-
arnar til þess að hann rak um 600
hermenn – nær helming liðsmanna
hersins – í mars eftir að þeir mót-
mæltu misrétti sem þeir sögðu að
hermenn frá vesturhluta landsins
hefðu verið beittir. Að minnsta kosti
30 manns biðu bana í átökum á göt-
um Dili og um 150.000 manns urðu
að flýja heimili sín. Voru þetta mann-
skæðustu átök í landinu frá því að
sjálfstæði Austur-Tímors var sam-
þykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir
sjö árum.
Tekur Ramos-Horta
við forsætisráðuneytinu?
Alkatiri neitaði í fyrstu að verða
við þeirri kröfu Gusmaos forseta að
hann segði af sér. Flokkur hans,
Fretelin, lýsti yfir stuðningi við Alk-
atiri á sunnudag og það varð til þess
að þrír ráðherrar sögðu af sér, þeirra
á meðal Jose Ramos-Horta, utanrík-
is- og varnarmálaráðherra.
Ramos-Horta sagði eftir afsögn
Alkatiris að hann hefði ekki í hyggju
að taka við embætti forsætisráð-
herra. Hann bætti þó við að hann
kynni að gefa kost á sér ef samkomu-
lag næðist ekki um annan mann í
embættið.
Ramos-Horta ávarpaði síðar mik-
inn mannfjölda sem fagnaði afsögn
Alkatiris í miðborg Dili. „Þið hafið
unnið mjög mikinn sigur með aga
ykkar og friðsamlegu aðgerðum,“
sagði hann.
Afsögn fagnað á Austur-Tímor
Reuters
Ungir Austur-Tímorar fagna afsögn Maris Alkatiris, forsætisráðherra Austur-Tímors, í höfuðborginni, Dili, í gær.