Morgunblaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 33
DAGBÓK
Ídag taka gildi hér á landi lög um breytinguá lagaákvæðum er varða réttarstöðu sam-kynhneigðra. Hrafnhildur Gunnarsdóttirer formaður Samtakanna ’78 – félags
homma og lesbía á Íslandi:
„Lögin leiðrétta nær allt það lagalega misrétti
sem viðgengist hefur gagnvart samkynhneigðum
á Íslandi og mikið ánægjuefni er að þessum
áfanga hafi verið náð. Með þessu skipar Ísland
sér í fremstu röð þjóða heims hvað varðar rétt-
indi samkynhneigðra,“ segir Hrafnhildur. „Þá á
aðeins eftir að huga að reglum er varða leyfi
vígslumanna trúfélaga til að gefa saman samkyn-
hneigð pör og hef ég fulla trú á að Alþingi vinni
að þeim málum á næsta starfsári.“
Árið 1992 var þingsályktunartillaga flutt af
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Kvennalista,
ásamt þingmönnum úr öllum þingflokkum. Á
grundvelli þessarar samþykktar skipaði Davíð
Oddson nefnd 1993 til að kanna stöðu samkyn-
hneigðra hérlendis og 1994 kom út skýrsla sem
síðar myndaði grundvöll laga sem tóku gildi 27.
júní 1996 og gáfu samkynhneigðum meðal annars
rétt til að ganga í staðfesta samvist. Þá var sam-
ræðisaldur fyrir samkynhneigða einstaklinga
ákvarðaður hinn sami og fyrir gagnkynhneigða
og verndarákvæði vegna mismununar gegn sam-
kynhneigðum bætt í hegningarlög.
„Mikilvægum áfanga var náð árið 2000 þegar
réttur erlendra ríkisborgara búsettra á Íslandi
var rýmkaður og þeim var heimilað að ganga í
staðfesta samvist. Enn frekar var ættleiðing
stjúpbarna fólks í staðfestri samvist heimiluð
með vissum skilyrðum,“ segir Hrafnhildur.
„Þann 11. mars 2003 var samþykkt einróma á
Alþingi þingsályktunartillaga um skipun nefndar
sem ætlað var að kanna réttarstöðu samkyn-
hneigðs fólks og gera tillögur um úrbætur. Fyrsti
flutningsmaður tillögunnar var Guðrún Ög-
mundsdóttir í Samfylkingunni, en allir stjórn-
málaflokkar á Alþingi stóðu að henni. Nefndin
sendi frá sér skýrslu nokkrum mánuðum síðar og
er hún grunnurinn að frumvarpi því sem rík-
isstjórn Halldórs Ásgrímssonar hefur nú flutt á
Alþingi og hefur verið samþykkt. Meginefni
frumvarpsins snýst um það að jafna fjölskyldu-
rétt án tillits til kynhneigðar og tekur það til um
40 liða í lögum landsins,“ segir Hrafnhildur.
„Meðal merkilegustu framfara er að samkyn-
hneigðir hafa nú réttindi til að skrá sig í sambúð,
en þurftu áður að gifta sig til að öðlast réttindi
sambýlinga. Þá er mjög mikilvægt atriði að rétt-
indi samkynhneigðra til frumættleiðingar eru nú
jöfn á við réttindi gagnkynhneigðra. Eins er ekki
lengur mismunað á grundvelli kynhneigðar í lög-
um um tæknifrjóvgun.“
Í tilefni dagsins bjóða Samtökin ’78 til fagn-
aðar í Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17. Þar flytja
stutt erindi, auk Hrafnhildar, Geir H. Haarde
forsætisráðherra og Guðrún Ögmundsdóttir
þingkona. Flutt verður skemmtidagskrá á léttum
nótum og boðið upp á veitingar. Hefst dagskráin
kl. 17 og stendur til 19 og eru allir velkomnir í
fögnuðinn.
Mannréttindi | Nýjum lögum um réttarstöðu samkynhneigðra fagnað í Hafnarhúsinu
Réttarbætur fyrir samkynhneigða
Hrafnhildur Gunn-
arsdóttir fæddist í
Reykjavík 1964. Hún
lauk stúdentsprófi frá
MH 1984 og lauk bak-
kalárnámi í listum og
kvikmyndagerð frá San
Francisco Art Insti-
tute. Hrafnhildur hefur
starfað sem kvik-
myndagerðarmaður og
starfrækir Krumma-
kvikmyndir. Hafa verk hennar hlotið fjölda
verðlauna hérlendis sem erlendis. Hrafnhildur
var kosin formaður Samtakanna ’78 árið
2005. Unnusta Hrafnhildar er Anita Bowen.
HM í Veróna.
Norður
♠Á8742
♥D942 V/AV
♦7
♣K75
Vestur Austur
♠G5 ♠K
♥K53 ♥ÁG10876
♦D106543 ♦K8
♣103 ♣ÁD86
Suður
♠D10963
♥--
♦ÁG92
♣G942
Magnús Magnússon og Matthías
Þorvaldsson komust í 72 para úr-
slitakeppni HM í tvímenningi og end-
uðu þar í 19. sæti. Félagar þeirra,
Bjarni Einarsson og Sigurbjörn Har-
aldsson, féllu úr keppni í undan-
úrslitum. Par frá Kína hampaði gull-
inu, Zhong Fu og Jie Zhao, silfrið kom
í hlut Levin og Weinstein frá Banda-
ríkjunum, en bronsið hlutu Ítalirnir
Fantoni og Nunes.
Magnús og Matthías voru í AV í
spili dagsins, gegn Jeff Meckstroth og
Perry Johnson:
Vestur Norður Austur Suður
Matthías Johnson Magnús Meckstroth
Pass Pass 1 hjarta 1 spaði
2 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu 5 spaðar
Pass Pass Dobl Allir pass
Meckstroth sagði fimm spaða til
fórnar, en spilið liggur til NS og með
hittingi má fá ellefu slagi. En vörnin
stóð sig vel. Útspilið var hjarta, sem
Meckstroth trompaði og spilaði spaða
á ásinn. Kóngurinn féll og Meckstroth
tók líka á spaðadrottningu. Hann lagði
niður tígulás og trompaði tígul til að
spila svo litlu laufi úr borði undan Kxx.
En Magnús var við öllu búinn og
dúkkaði hiklaust. Meckstroth lét þá
níuna og Matthías fékk slaginn á
tíuna. Vörnin hamraði á hjartanu
þannig að fjórða laufið nýttist sagn-
hafa ekkert og spilið fór tvo niður: 300
í AV, sem gaf okkar mönnum 94%
skor.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 Rf6 4.
Bb5 Rd4 5. Ba4 c6 6. Rxe5 d5 7. d3
Bd6 8. f4 Bc5 9. exd5 O-O 10. Re4
Rxe4 11. dxe4 Dh4+ 12. g3 Dh3 13.
Be3 Dg2 14. Hg1 Dxe4 15. Kf2 He8
16. Dd3
Staðan kom upp á Aerosvit-mótinu
sem fer senn að ljúka í Foros/Jalta í
Úkraínu. Aserski stórmeistarinn
Shakhriyar Mamedyarov (2699)
hafði svart gegn rússneskum kollega
sínum Sergei Rublevsky (2687).
16… Hxe5! 17. fxe5 Df3+ 18. Ke1
Bf5 19. Hf1 Bb4+! 20. c3 Bxd3 21.
Hxf3 Rxf3+ 22. Kf2 Rxh2 23. cxb4
Rg4+ 24. Kf3 Rxe5+ 25. Kf4 Rg6+
26. Kf3 cxd5. Svartur er nú tveimur
peðum yfir og með unnið tafl. Hvítur
barðist um á hæl og hnakka en það
dugði ekki til að forða tapi. 27. Hc1
Re5+ 28. Kf4 Rg6+ 29. Kf3 b5 30.
Bb3 Bc4 31. Bc2 Re5+ 32. Kf4 f6
33. Hd1 Bxa2 34. b3 Hc8 35. Bc5 a5
36. Bf5 Bxb3 37. Hb1 Bc2 38. Be6+
Kh8 39. Ha1 He8 40. bxa5 Rd3+ 41.
Kf3 Rxc5 42. Bxd5 b4 43. a6 Rxa6
og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Félagsstarf
Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað, kl. 8–16
handavinna, kl. 9–16.30 smíði/
útskurður, kl. 9–16.30 leikfimi, kl. 9
boccia, kl. 13.30 gönguhópur, kl. 10–
16 púttvöllurinn.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, út að
pútta, dagblöðin liggja frammi.
Dalbraut 18-20 | Bridds mánudaga
kl. 14. Félagsvist þriðjudaga kl. 14.
Bónus miðvikudaga kl. 14. Hádeg-
isverður og síðdegiskaffi. Heitt á
könnunni og dagblöðin liggja
frammi. Opið kl. 9–16. Allir velkomn-
ir. Sími 588 9533.
Félag eldri borgara í Kópavogi,
ferðanefnd | Júlíferðir FEBK. Uppl.
og skráningarlistar eru í fé-
lagsheimilunum í Gullsmára og Gjá-
bakka í júlíferðir FEBK. A) 14.–15. júlí:
Fjallabaksleið nyrðri/Eldgjá/
Lakagígar. B) 25.–28. júlí: Sprengi-
sandur/Norðurland/Flateyjardalur.
Skráningu lýkur nk. mánaðamót.
Símaskráning: 560 4255, Bogi Þór-
ir/554 0999, Þráinn.
Félag eldri borgara í Reykjavík |
Miðvikudagur: Göngu-Hrólfar ganga
frá Stangarhyl 4 kl. 10. Haukadals-
skógur, dagsferð 28. júní. Ekið verð-
ur til Þingvalla og þaðan um Gjá-
bakkaveg til Laugarvatns og Geysis.
Gengið um Haukadalsskóg. Kaffi-
hlaðborð í Brattholti. Uppl. og skrán-
ing í síma 588 2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, leiðbeinandi á
staðnum kl. 10–17. Þriðjudagsgangan
kl. 14 eins og venjulega. Alltaf heitt á
könnunni og heimabakað meðlæti.
Félagsstarf eldri borgara í Mos-
fellsbæ | Ferð verður í Fljótshlíð
fimmtudaginn 29. júní kl. 16. Upplýs-
ingar og skráning hjá Svanhildi í
síma 692 0814 og 586 8014 e.h.
Hafnarfjörður | Í sumar verður pútt-
að á Vallavelli á Ásvöllum á laug-
ardögum frá 10–11.30 og á fimmtu-
dögum frá kl. 14–16. Mætum vel og
njótum hverrar stundar.
Hraunbær 105 | Kl. 9 opin vinnu-
stofa, kaffi, spjall, dagblöðin og hár-
greiðsla. Boccia kl. 10 og hádeg-
ismatur kl. 12. Ferð í Bónus kl. 12.15
og kaffi kl. 15.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga með
Björgu Fríði kl. 9 og 10. Böðun fyrir
hádegi. Hársnyrting, sími
849 8029.
Hæðargarður 31 | Opið öllum kl. 9–
16. Listasmiðjan opin. Félagsvist
mánudaga kl. 13.30. Ganga leikfimi-
hóps á þriðjudag og fimmtudag kl.
10. Gönuhlaup á föstudag kl. 9.30.
Út í bláinn á laugardag kl. 10. Bónus
á þriðjudag kl. 12.40. Frjáls spilahóp-
ur á miðvikudögum kl. 13.30. Nánari
uppl. í s. 568 3132.
Norðurbrún 1 | Kl. 10 boccia, kl. 14
leikfimi, kl. 9 opin hárgreiðslustofa,
sími 588 1288.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9–15.30 handa-
vinna. Kl. 11.45–12.45 hádegisverður.
Kl. 13–16 frjáls spil. Kl. 14.30–15.45
kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9–12.30, morgunstund kl. 9.30, hár-
greiðslu- og fótaaðgerðarstofa opin,
leikfimi kl. 10, almenn handmennt kl.
10–14.30, félagsvist kl. 14. Allir vel-
komnir.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl.
9.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjón-
usta kl. 18.30.
Garðasókn | Opið hús í sumar í
Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju á þriðju-
dögum, kl. 13 til 16. Við spilum lom-
ber, vist og bridds. Röbbum saman
og njótum samverunnar. Kaffi á
könnunni. Vettvangsferðir mán-
aðarlega, auglýstar hverju sinni.
Akstur fyrir þá sem vilja, upplýs-
ingar í síma 895 0169. Allir vel-
komnir.
Garðasókn | Í dag fer Opið hús Ví-
dalínskirkju í vettvangsferð til Sand-
gerðis og skoðar kertasmiðjuna
Jöklaljós og Listasmiðjuna. Kaffi
drukkið á staðnum. Farið frá Vídal-
ínskirkju kl. 13, komið til baka um kl.
17. Upplýsingar í síma 565 6380
eða 895 0169.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs-
þjónusta alla þriðjudaga kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum.
Hjallakirkja | Bæna- og kyrrð-
arstund er í Hjallakirkju á þriðjudög-
um kl. 18.
Kristniboðssalurinn | Samkoma
verður í Kristniboðssalnum á Háa-
leitisbraut 58–60 miðvikudaginn
28. júní kl. 20. „Þú ert Kristur!“
Helgi Hróbjartsson talar og sér um
efni. Kaffi eftir samkomuna. Allir eru
velkomnir. Á samkomunni kl. 20
munu kristniboðarnir Ragnar
Schram og Kristbjörg Gísladóttir
flytja kveðju. Allir velkomnir.
Ósómi og óvirðing Strætó
EINU sinni voru bekkir í biðstöð-
inni við Lækjartorg. Þetta var bara
þokkalegt og ekki man ég eftir nein-
um vandræðum í húsinu er beðið var
eftir næsta bíl.
Þá þóttust þeir hjá Strætó ætla að
bæta þjónustuna. Útikamar var sett-
ur upp í staðinn fyrir snyrtingu. Svo
var ein helsta biðstöðin fyrir bíla á
austurleið sett upp í Hverfisgötu.
Menn máttu þá hlaupa yfir tvær tvö-
faldar akreinar og stilla sér upp í
norðanvindinum. Þar voru sæti fyrir
tvo í opnu skýlinu. Vindurinn kemur
sjaldnast ofan af himninum á Ís-
landi. Tylla mátti rassinum ofan á
grjót- og moldargarð Stjórnarráðs-
ins. Þá var lokað og klætt fyrir sætin
og sett þar auglýsingaskilti. Enn
stendur þarna fjórum vikum eftir
kosningar X-D, X-F svo og S með
myndum popphópa.
Þetta er sóðalegt og hreint ekki
aðlaðandi. Svo segjast menn ætla
fjölga farþegum í almennings-
vögnum!! Heyr á endemi! Svipað er
þetta á Hlemmi. Þar er líka útikam-
ar. Mér er sagt að þetta sé ekkert
betra í Mjóddinni, en þangað á ég
sjaldan erindi. Óvirðing sú sem
Strætó sýnir okkur viðskiptavin-
unum er yfirgengileg.
Sveinn Guðmundsson.
Í sambandi við
ríkissjónvarpið
ÉG vil leggja fram kvörtun yfir því
hvað ríkissjónvarpið sýnir orðið
ógeðslegar myndir þar sem konur
eru bæði lítilsvirtar og beittar of-
beldi.
Þetta er ekki gott fyrir yngri kyn-
slóðina og hvet ég þá til að bæta sig í
þessu. Með von um að það verði
sýndar öðruvísi myndir en glæpa-
myndir.
Ásrún.
Kettlingar fást gefins
ÞESSIR
átta vikna
kettlingar
óska eftir að
komast á
kærleiksríkt
heimili sem
fyrst. Eru
kassavanir og hvers manns hugljúfi.
Uppplýsingar í síma 897 8663.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Fréttir á SMS
Í NÝRRI og glæsilegri viðbyggingu Þjórsárvers var opnuð sýning í hinu
nýja „Listakaffi“ á verkum hinnar góðkunnu listakonu Siggu á Grund.
Sigga er hér á heimaslóð. Grund er næsti bær sunnan Þjórsárvers, en
norðan Þjórsárvers eru uppeldisslóðir Siggu, höfuðbólið Villingaholt.
Sigga á Grund sýnir hér mörg af sínum bestu verkum. Hér má meðal
annars sjá „Ófrísku konuna“, „Tölthestinn“ og fjölda annarra dýrgripa,
bæði í eigu Siggu og annarra. Nýjasta verkið er þó kannski athyglisverð-
ast. Það er portrett af konu, gert á nýliðnum vetri og nefnist „Kristólína
Rós“.
Sýning Siggu stendur til 9. júlí nk. Jafnframt því að njóta listar á sýn-
ingum geta gestir Þjórsárvers keypt sér hressingu í Menningarmiðstöðinni
Þjórsárveri.
Sýning Siggu á Grund í
Listakaffi Þjórsárvers