Morgunblaðið - 21.07.2006, Page 5

Morgunblaðið - 21.07.2006, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 B 5 NÝTT! Söluaðilar um land allt Árið 1967, þegar The Graduate með Dustin Hoffman og Anne Bancroft birtist á hvíta tjaldinu og 300.000 blómabörn hittust í San Francisco ást- arsumarið mikla, hófst nýtt skeið hjá Cadillac með tilkomu fyrsta fram- hjóladrifna Cadillac-bílsins, Cadillac Fleetwood Eldorado. Bíll þessi markaði tímamót hjá Cadillac að tvennu leyti, í fyrsta lagi var Eldorado fyrsti fram- hjóladrifsbíll Cadillac eins og áður hef- ur verið nefnt og í öðru lagi var þetta fyrsti sportlegi Cadillac-bíllinn um langt skeið. Bíll þessi, hannaður af Bill Mitchell, hefur þótt með þeim fallegri og hefur heillað Atla Jarl Martin það mikið að hann ákvað að flytja inn vel með farið eintak frá Kanada til eigin nota. Rúntað um á draumaskýi Blaðamaður bílablaðsins hitti Atla Jarl og Cadillac Eldorado á fallegu sumarkvöldi og sveif á draumaskýi mjúkrar fjöðrunar og endalauss togs aftur til fortíðar. Svona bílar eru tilkomumiklir og líða áfram, hljóðlausir og tignarlegir. Húdd- ið er ótrúlega langt á svona bíl og end- ar í vígalegu grilli úr ál-prófílum, um- vafið miklu krómi. Á svona bíl er ekkert plast sjáanlegt, bara alvöru króm, málmur og gler. Þetta er þannig bíll að það er nauðsynlegt að ganga hring í kringum hann áður en sest er inn í bíl- inn, formin eru svo ólík því sem flestir bílaframleiðendur senda frá sér í dag og bílar sem skera sig út úr eru kær- komin hvíld frá vísitölubílunum. Þegar sest er inn í bílinn tekur mað- ur betur eftir því hvað hann er ótrúlega stór. Þetta er 2,5 tonna, tveggja dyra, sex manna bíll og búinn sjö lítra V8 vél sem skilar öllu aflinu beint í götuna í gegnum framhjóladrif. „Hann liggur eins og tyggjóklessa,“ segir Atli Jarl og eru þær lýsingar í takt við skoðanir bílapressunnar á sínum tíma en bíllinn þótti einn besti akstursbíll Cadillac, nokkuð sem fæstir hefðu búist við af framhjóladrifnum „pramma“ eins og margir kalla svona stóra bíla. Afl vélarinnar er mikið en því er skil- að á mjúkan hátt. 250 kílówatta vélin, sem er um það bil 335 hestöfl, er gíf- urlega togmikil og segir Atli Jarl að togið sé svo mikið að það „snúi upp á allan bílinn þegar gefið er í“. Það finnst líka og er eiginlega eina teikn þess afls sem vélin býr yfir því hún er hönnuð til að snúast á lágum snúningi og skila mesta toginu í kringum 2800 snún- inga. Það eru því ekki mikil læti í vél- inni þó gefið sé hressilega inn og ekki skrítið að bíllinn sé einungis 10 sek- úndur í 100 kílómetra þrátt fyrir að vera 2,5 tonn þegar allt aflið er haft í huga. Atli Jarl segir Cadillac henta sér sérlega vel, hann sé rokkari og kunni að meta umhverfið sem bíllinn bjóði upp á, „smá meira króm, smá meira afl, lengri bílar“ segir Atli Jarl þegar hann telur upp helstu kosti Cadillac og útlistar af hverju þetta tiltekna merki höfði svona mikið til hans, reyndar var rokkarinn Elvis mjög svo hrifinn af Ca- dillac segir Atli en sá frægi mjaðm- ahnykkir átti víst 200 Cadillac-bíla yf- ir ævina. Það hefur líka verið lögð talsverð natni í smáatriðin, stenslað stálið í umgjörðinni um mælana er í stíl við þennan bandaríska fulltrúa járns og stáls, í bílnum er kortaljós sem gefur þvílíka lýsingu að það myndi duga á hvaða skrifborð sem er, afturrúðumið- stöð er nokkuð sem ekki er algengt í bílum og blaðamaður kunni sér- staklega vel að meta gangstéttarljósin sem eru falin í frambrettunum en þeim er ætlað að lýsa upp gangstéttina þeg- ar teknar eru beygjur. Blaðamaður var svo heppinn að fá að taka bílinn til kostanna og þó langt sé um liðið frá því að svipuðum bíl var ekið þá rifjaðist fljótlega upp hve ofur létt stýrið er í bílum frá þessum tíma og allt gert til að gera aksturinn sem auðveldastan fyrir bílstjórann. Þriggja gíra sjálfskiptingin er þýð og maður merkir varla skiptingarnar því þær gerast á svo lágum snúningi. Í fljótu bragði minnir aksturinn á svona bíl dálítið á siglingar. Ökumað- urinn þarf t.d. að vita nokkru áður en hann kemur í beygju hvernig hann ætl- ar að taka hana og bíllinn er ekki að flýta sér neitt að bregðast við, enda á allt að gerast í rólegheitum í svona bíl. Notar bílinn daglega Margir verða kannski hvumsa þegar þeir heyra um að einhver noti næstum fertugan bíl í og úr vinnu, í innkaup, ferðalög og hvaðeina. En það er í raun- inni ekki svo skrýtið. Þó bíllinn sé með sjö lítra vél þá er eyðslan alls ekki eins slæm og ætla mætti. Bíllinn „notar“ aðeins 23 lítra af bensíni að meðaltali áhverja hundrað kílómetra í innanbæj- arakstri. Það verður að teljast nokkuð gott fyrir bíl af þessari stærðargráðu. Margir nýir bílar og mun léttari skila svipaðri eyðslu þrátt fyrir að vera bæði með minni vélar og minna afl. Til viðbótar eru tryggingar hagstæðar af bílum sem eru orðnir 25 ára eða eldri, engin eru bifreiðagjöldin og það sem mest um munar er að engin eru afföllin því svona bílar eru líklegir til að haldast íverði svo lengi sem um þá er vel hugsað. Það er því kannski engin furða að það sé „huggulegt að krúsa fram úr svefndrukknum og furðulostnum Ís- lendingum“ á morgnana á leið í vinnu eins og Atli Jarl orðar það svo skemmtilega. Ekkert dollaragrín, bara bíladella Innréttingin er glæsileg, liturinn passar vel við „Maroon“ litinn sem bíllinn var sprautaður í. Bíllinn var inn- fluttur frá Kanada og allar uppruna- legar bækur fylgja með bílnum. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Atli Jarl Martin við Cadillac Fleetwood Eldorado 1967 árgerð. Tilkomumikið útlit bílsins vekur við- brögð hjá vegfar- endum, margir sýna þakklætið með þumalinn upp. Eftir Ingvar Örn Ingvarsson ingvarorn@mbl.is sekúndur í 100 km/klst. samkvæmt upplýsingum frá umboðinu og verð- ur það að teljast nokkuð gott fyrir ekki stærri vél. Stífari fjöðrun bílsins hefur haft mjög góð áhrif á aksturs- eiginleikana og er bíllinn nú bæði ná- kvæmari og kvikari t.d. í þjóðvega- akstri þó án þess að fórna þægindum á borð við lítið veghljóð. Það má reyndar minnast á það sérstaklega að bíllinn er með afburðum hljóðlát- ur, bæði er veghljóð með minnsta móti og þó greitt sé ekið í hávaðaroki var vindgnauð ekkert – það þýddi sömuleiðis að ágæt hljómtækin fengu að njóta sín mun betur. Þetta er reyndar einkennandi fyrir Toyota Avensis, hann er góður, jafnvel mjög góður á flestum þeim sviðum sem venjulegt fólk lætur sig mestu varða. Eins og áður sagði er þess helst saknað að bíllinn skuli ekki fá hina öflugu dísilvél frá Toyota því bíllinn ræður vel við mun öflugri vél. 1,8 lítra vélin mun þó duga flestum. Eyðslan er lítil með þeirri vél – nokk- uð sem skiptir orðið talsverðu máli eins og staðan er í dag með tilliti til þróunar bensínverðs. Rúmgóður en lipur Bíllinn er sérlega rúmgóður – reyndar svo rúmgóður að færa mætti rök fyrir því að fótarými fyrir aftursætisfarþega sé óþarflega mik- ið. Farangursrýmið er yfirdrifið og bíllinn er uppfullur af geymsluhólf- um, glasabökkum og hinum ýmsa búnaði sem talinn er orðinn nauðsyn- legur í fjölskyldubíl. Í innanbæjarumferð leynir bíllinn stærð sinni vel, er lipur og þægilegur í meðförum. Lipurleikinn kemur þó talsvert niður á stýriseiginleikum, það kemur ekki að sök að stýrið er mjög létt – en öllu verra er að öku- maður hefur litla sem enga tilfinn- ingu fyrir yfirborði vegar í gegnum stýrið. Stífari fjöðrun bílsins bætir þetta þó upp að nokkru leyti. Best er að keyra bílinn í rólegheit- um og nota tog vélarinnar þar sem það hefur lítið upp á sig að vera að snúa henni á háum snúningi. Togið er ágætt í kringum 3.000 snúninga og vélin þýð og hljóðlát á því vinnslu- sviði. Nú er það ljóst að Íslendingar eru mjög hrifnir af Avensis og kunna að meta það áhyggjuleysi sem fylgir því að eiga bíl frá Toyota. Það er lítið hægt að setja út á bílinn annað en það að hann mætti fá stærri og öfl- ugri vélar og þá helst hina feikna öfl- ugu dísilvél sem er mjög vinsæl á meginlandinu. Flestir gera sér þó 1,8 lítra eða 2,0 lítra vélina að góðu enda aflið ekki lykilatriði við kaup á Avensis. Það mætti líkja kaupum á Avensis við tryggingar, möguleikarnir eru tveir – annarsvegar að taka sjálfs- áhættu og fá ódýrari tryggingar, eða sleppa sjálfsáhættunni, taka enga áhættu og borga dýrari tryggingar. En það er akkúrat það sem fólk þarf að velta fyrir sér þegar Avensis er skoðaður því áhyggjuleysið kostar – Avensis er nefnilega dýrari en allir samkeppnisbílarnir á markaðnum og talsvert dýrari en sumir þeirra. bílar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.