Morgunblaðið - 21.07.2006, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 21.07.2006, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 B 7 bílar 23 29 / Ta kt ik nr .1 1 Akureyri • Egilsstöðum • Hafnarfirði • Höfn • Keflavík • Kópavogi •Reykjavík •Selfossi VINNUSKÓR -margar gerðir Þau mistök urðu í síðasta bílablaði að rangt nafn birtist með mynd ogfrétt um stækkun hús- næðis samgöngu- minjasafnsins að Ystafelli. Hið rétta er að eiginkona Sverris Ingólfs- sonar heitir Guð- rún Petrea Gunn- arsdóttir. Á myndinni er einnig sonur þeirra Frið- geir Andri Sverr- isson. Beðist er velvirðingar á þessu. Leiðrétting Morgunblaðið/ Hafþór Hreiðarsson Sverrir Ingólfsson, Guðrún Petrea Gunnarsdóttir og sonur þeirra Friðgeir Andri Sverrisson. MAN-fyrirtækið þýska kynnir nýja lúxusrútu í haust á alþjóðlegri at- vinnubíla- og tækjasýningu í Hann- over. Framleiðandinn er eitt fyr- irtækjanna í MAN-samsteypunni, NEOMAN Bus Group, og heitir gripurinn Neoplan Cityliner. Neopl- an hefur um árabil framleitt rútur í ýmsum gerðum til styttri og lengri ferða svo og strætisvagna. Cityliner-rútan er háþekja, 3,70 m há, og verður fáanleg tveggja öxla eða 12,24 metra löng og þriggja öxla rúta sem er 12,9 metra löng. Síðar kemur á markað 13,9 metra útgáfa sem einnig er þriggja öxla. Hjólhaf stystu gerð- arinnar er 6 metrar. Með þessari endurnýjuðu Cityliner heldur Neopl- an áfram þeirri þróun sem hófst á alþjóðlegri rútuviku í Mónakó árið 1971 þegar fyrsta Cityliner-útgáfan var kynnt en síðan hafa selst um 7 þúsund rútur af þessari gerð. Aðaleinkenni nýju rútunnar eru voldugar framrúður, sú neðri lóð- rétt en innan við hana sitja bílstjóri og fararstjóri en ofan hennar, þar sem farþegarýmið er að finna, er hallandi og bogadregin rúða, jafn- stór eða stærri, og í línu aftur af henni eru hliðarrúðurnar og þannig leika rúðurnar má segja aðal- hlutverkið í öllu útliti bílsins. Þann- ig er bíllinn í senn blanda af fyrri gerðum og nýtískulegum línum. Línurnar eru líka lagðar þannig að loftmótstaða verði sem minnst hindrun sem forráðamenn MAN segja að skipti mjög miklu máli varðandi eldsneytiseyðslu á löngum leiðum sem slíkir bílar eru ætlaðir til. Nýja rútan er búin svonefndri einbunudísilvél, D2066, sem getur verið allt milli 400 og 480 hestöfl og uppfyllir skilyrði Euro 5 staðla um mengun og útblástursefni og þannig er fyrirtækið þegar búið að uppfylla staðla sem taka ekki gildi fyrr en eftir tæp tvö ár. Gírkassi er tólf gíra sjálfskiptur og bíllinn er búinn rafeindastýrðri skrikvörn og akreinaviðvörun, þ.e. búnaði sem vekur athygli ökumanns ef hann virðist til dæmis á leið útaf hrað- braut. Að innan er rútan einnig hin glæsilegasta, hæðin er 2,05 metrar og því geta hæstu menn þar um frjálst höfuð strokið. Hillur ofan við sætin eru opnar en með góðum brúnum til að varna því að dót hristist úr þeim. Hægt er að fá skjái við hvert sæti og hægt er að breyta halla sætisbakanna. Þá er hægt að fá rútuna útbúna með venjulegri miðstöð og loftkælingu en einnig öflugri kælingu sem hent- ar heitum löndum. Cityliner er voldugur bíll sem tekur 44 farþega auk bílstjóra og fararstjóra. MAN kynnir nýja rútu Cityliner verður fáanlegur ýmis tveggja eða þriggja öxla. Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.