Morgunblaðið - 21.07.2006, Side 11

Morgunblaðið - 21.07.2006, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 B 11 bílar TIL SÖLU TOYOTA YARIS 1,3 SOL Sjálfskiptur, árg. 2003, ekinn 25 þús. 5 dyra, blágrár. Engin skipti. Verð 1.290.000. Upplýsingar í síma 893 4443. Mitsubishi Galant árg. '00, 2,5 6 cyl, sjálfsk., álfelgur, krúskontról, sóllúga, spoiler. Rafmagn í öllu. Ek. 88 þús. Verð 1.350 þús. Uppl. í síma 860 1180. Bílasmáauglýsingar 569 1100 MMC LANCER EVOLUTION VIII ´04 Glæsilegur, kraftmikill sportbíll! Gott verð! S. 896 3038. Nýr bíll! Toyota Landcruiser 120 Árg. 05-2006, ekinn 80 km. Dísel, sjsk., 5 manna. 38" breyting m/færslu. Driflæs- ingar fr/aft. Aukatankur samt. 180 ltr. Mikið af aukabúnaði. Verð: 7,3 milljónir Uppl. í síma 698 6487. Renault árg. '02 ek. 60 þús. km Renault Clio 1,2 2002, eyðir litlu sem engu. 76 hö, smurbók fylgir, glænýjar 16" álfelgur og low profile dekk, vetradekk og felgur fylgja. Nýjar græjur og bassab- ox. S: 847 0765, Jóhann.  Leó M. Jónsson vélatæknifræð- ingur svarar fyrirspurnum um bíla og tækni sem sendar eru á leoemm@simnet.is (Ath.: Bréf geta verið stytt.) Spurt: Ég er að huga að jeppa- kaupum og eru 2 bílar sem ég hef augastað á. Annar er MMC Paj- ero, árgerð 2000, með nýja laginu 3,2 dísil, sjálfskiptur, ekinn 130 þús. km og breyttur fyrir 33" en hinn er Land Cruiser 100, árgerð 1998, 4,2 dísil, sjálfskiptur, ekinn 144 þús. km og breyttur fyrir 36" (en er á 35“). Ég er svona að velta fyrir mér kostum og göllum þess- ara bíla og eyðslu. Hvaða álit hef- ur þú á þessum bílum? Svar: Ég tel Pajero einhvern besta ferðabíl sem völ er á – þ.e. á öllum venjulegum vegum og samt lipran í þéttbýli. Valið fer talsvert eftir því hvers konar notkun þú ætlar bílinn fyrir: Sértu ferðamað- ur og leggir leið þína á hálendið er Land Cruiser 100 á 35"/36" mjög traust og öflugt tæki. Það er nán- ast vonlaust að gefa upp eyðslu á breyttum jeppum – enginn þeirra er eins breyttur og munur á eyðslu getur verið verulegur á milli tveggja bíla sem líta nánast eins út. Ég myndi giska á að eyðsla svona breytts Land Cruiser 100 dísil gæti verið nálægt 17 lítr- um í borgarakstri en ef til vill 13– 16 í lengri akstri sé hann í góðu lagi. Pajero 3,2 er talsvert spar- neytnari óbreyttur – spurningin er hvort þessi sé breyttur (hlutföll) fyrir 33" eða bara settur á 33". En ég gæti giskað á að hann væri 14 lítra bíll í borgarakstri en 11–12 lítrar í lengri akstri – sé hann í góðu lagi. Varðandi eyðsluna þá er sennilega öruggasta aðferðin að mæla hana með því að aka bíl- unum lengri leið, t.d. í Borgarnes eða á Selfoss. Skoda eða Toyota? Spurt: Dóttir mín er að leita að notuðum bíl til að kaupa. Við erum að reyna að velja á milli þessara tveggja: Skoda Fabia Comfort 1400, árg. 2000, ekinn 61 þús. Toyota Corolla S/D Terra 1300, árg. 1999, ekinn 82 þús. Hvaða skoðun hefur þú á þessum bílum varðandi áreiðanleika/endingu? Svar: Endursöluvirði Toyota- bílsins er meira. Corolla með 1300 -vél er hvorki sérlega spennandi né skemmtilegur bíll í akstri (ég kann betur við 1600-bílinn) og hann er heldur ekki eins laus við bilanir og margir virðast álíta en þjónustan þykir hins vegar góð. Skoda Fabia er þægilegri bíll og jafnframt bráð- skemmtilegur í akstri; – gæði Skoda eru meiri en margur hyggur - en endursöluvirði er (enn) tals- vert minna en á Toyota. ABS-vandamál í Land Crusier Spurt: Ég er nýbúinn að kaupa Land Cruiser 80, árg. ’94. ABS- kerfið er að einhverju leyti ofvirkt því það kemur inn (pedallinn titr- ar) rétt áður en bíllinn stöðvast og er þá sama þótt bremsað sé rólega. Þetta virðist þó eingöngu gerast þegar bíllinn er í vinstri beygju. Ég hef ekki getað fengið neinar skýringar hjá sérfræðingum í Toyota á því hvað geti valdið þessu. Bíllinn er nýkominn úr að- alskoðun og ekkert fannst að bremsukerfinu; hann bremsar jafnt og eðlilega og ABS-ið virtist virka eðlilega á prófunarvölsunum. Þessi ofvirkni kemur hins vegar fram á þurru malbikinu. Kannt þú einhverja skýringu á þessu? Svar: Toyota-sérfræðingar, eins og aðrir eru tregir til að veita ókeypis upplýsingar enda skapa upplýsingar litlar tekjur. Af lýs- ingu þinni að dæma get ég giskað á eftirfarandi: ABS-kerfið á að virka frá og með ákveðnum hraða þegar dregið er úr hraða með bremsun. Ástæða svona ,,ofvirkni“ er að öllum líkindum sú að skynj- ari eins hjólsins er, af einhverjum ástæðum óvirkur eða hættir að telja áður en þessum hraðamörk- um er náð; – kerfið túlkar það sem læst hjól og bregst við – jafnvel á þann hátt sem þú lýsir. Gefðu þér að einn nemi sé bilaður, sam- bandslaus, laus í festingunni eða virki ekki vegna skemmds tann- hrings – ef engin merki eru sjáan- leg um skemmdir og ekki greining- arbúnaður fyrir ABS við hendina er bara að kaupa ABS-nema og prófa með útskiptum. Spurt og svarað... Land Cruiser eða Pajero Eldsneytiseyðsla getur verið verulega mismunandi á milli breyttra jeppa þótt þeir líti út fyrir að vera eins breyttir. Nú er ekki lengur þörf á því að skíta fjölskyldujepp- ann út á hinn hefðbundna hátt þar sem breskt fyr- irtæki býður nú upp á lausn fyrir borgarbörnin í formi drullu á úðabrúsa. Úðinn hefur notið talsverðs frama sem tækifærisgjöf og kviknaði hugmyndin yfir ölkrús hjá tveimur félögum í Bretlandi. Drullan, sem er 100% ekta drulla en reyndar síuð til að hreinsa frá smásteina og fleira sem gæti rispað bílana, er tilvalin fyrir utanvegaþyrsta ökumenn og hafa íbúar London tekið vörunni sérlega vel. Í Bandaríkjunum hefur drulluúði hins vegar átt frekar vafasaman vöxt enda er varan ætluð til þess að hylja númeraplötur bifreiða svo ekki sé hægt að góma ökumenn fyrir umferð- arlagabrot. Af dæmigerðum tvískinnungshætti er sér- staklega tekið fram á heimasíðu fyrirtækisins að ólög- legt sé að hylja ljós og númeraplötur bifreiða og um leið er sérstaklega tekið fram að fleiri vörur til að verjast rauðljósa- og hraðamyndavélum séu fáan- legar. Í sjálfu sér er það merkilegt að til skuli vera markhópur fyrir vöru af þessu tagi – sem eigi að auð- velda fólki það stórhættulega athæfi sem það er að aka yfir á rauðu ljósi. Sem tækifærisgjöf fyrir eigendur malbiksjeppa er þetta þó ekki alslæm hugmynd. Drulluúði nýtur vinsælda í Evrópu Drulluspreyið er búið til úr ekta drullu sem þó er sér- hreinsuð til að valda ekki skemmdun á bílum. Morgunblaðið/Ingveldur Nú er engin þörf á því lengur að óhreinka bílinn á gamla mátann - með því að nota hann. Fyrir skömmu var slegið hraðamet í London á löglegan hátt og heims- metabók Guinnes var á staðnum til að staðfesta metið en McLaren SLR var sá bíll sem náði mestum hraða. London City Airport var lok- að á meðan prófunin fór fram en þarna voru samankomnir flestir af hraðskreiðustu bílum heims en þó vekur sérstaka athygli að Koenig- segg, Ferrari Enzo, Porsche Car- rera GT og fleiri slíkra bíla var saknað. Ekki er langt síðan Ford GT var ekið við sams konar aðstæður á Akureyrarflugvelli og líklegt er að hægt sé að ná svipuðum hraða eða meiri þar. Flugbrautin á Akureyr- arflugvelli er 1940 metrar en flug- brautin í London er talsvert styttri og því getur verið að Ford GT hafi náð talsverðum hraða fyrir norðan þegar hann var sýndur blaðamönn- um því bíllinn náði 278,88 km/klst hraða í London og má leiða að því líkum að Ford GT eigi óstaðfest hraðamet á Íslandi þó ekki hafi hann borið sigur úr býtum í Lond- on. En eins og áður sagði fór McLa- ren SLR hraðast þó ekki hafi mun- að nema rúmlega 2 km/klst á endahraðanum. Það verður því að teljast talsvert afrek þar sem McLaren SLR, sem einnig hefur komið til Íslands, kostar rúmlega 44 milljónir í Bretlandi á meðan Ford GT kostar einungis einn þriðja af verði SLR. Hér er hraðinn sem þátttökubíl- arnir náðu á flugbrautinni.  Mercedes McLaren SLR – 281,12 km/klst  Ford GT – 278,88 km/klst  Corvette Z06 – 267,2 km/klst  Porsche Turbo – 260,16 km7klst  BMW M6 – 260 km/klst  Shelby Daytona Cobra – 255,52  Alpina B5 – 248,64 km/klst  Bentley Flying Spur – 251,84 km/klst  Vauxhall Maloo – 257,28 km/ klst Það má til gamans minnast á það að nokkrir þessara bíla eru til á Ís- landi eða hafa heimsótt landið, þó ólíklegt að sé að þeir setji formleg – og lögleg – hraðamet hér á landi. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Arngrímur Jóhannsson flugstjóri fékk að keyra Ford GT á flugbrautinni, og flaug svo á listflugvél sinni yfir bílinn á fullri ferð á vellinum! Hraðamet slegið í London – á flugvelli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.