Morgunblaðið - 22.09.2006, Side 5
þessar aðstæður
alveg ótrúlegt og
vélin hentaði mjög
vel til að glíma við
torfærur sem veg-
arslóða og ekki
spillti fyrir að
hægt er að spila
aðeins á sjálfskipt-
inguna sem er með
handskiptimöguleika, enda sú sama
og finnst í Porsche 911 í dag. Sjálf-
skipting er aukabúnaður í þessum bíl
og þó ekki hafi hann verið prófaður
með beinskiptingu er erfitt að gera
sér í hugarlund að beinskipting henti
bílnum betur.
Ótrúlega þéttur og vel útbúinn
Á vegarslóðunum breyttist Kyron í
hentugt verkfæri til að tækla þá
verstu vegi sem Ísland býður upp á.
Bíllinn reyndist ótrúlega þéttur. Það
var alveg sama hvernig slóðinn var,
gróft þvottabretti, grjóthnullungar
eða gróf möl, aldrei heyrðist svo mikið
sem smá brak eða tíst í innréttingu
bílsins. Það er reyndar í takt við þró-
unina í dag þar sem Kóreubílar hafa
tekið við af þeim japönsku með því að
bjóða upp á ódýra en vel smíðaða bíla
á meðan þeir japönsku hafa fært sig
sífellt meira í efri kreðsur markaðar-
ins.
Jeppinn er með þriðju kynslóðar
„common rail“ vél sem er hljóðlát og
þýð en þriðja kynslóðar kerfið leyfir
líka meiri túrbínuþrýsting, 1,6 bar á
móti 1,35 miðað við fyrstu kynslóðar
kerfi og skýrir það að hluta afkasta-
getu vélarinnar.
Að þessu viðbættu er Kyron svo
byggður á sjálfstæðri grind, er með
lágt drif, vél frá Mercedes Benz sem
hefur verið endurhönnuð af verk-
fræðingum Ssangyong, loftkælingu,
nóg rými fyrir 5 fullorðna og vandaðri
innréttingar og meiri staðalbúnað en
áður hefur sést í Kóreubílum. Allt
þetta fyrir um
þrjár milljónir
króna hlýtur því
að teljast góð
kaup.
Það sem helst
má telja bílnum til
lasta er lítið veg-
grip á malbikuð-
um vegum, fjöðr-
un ræður ekki vel við margbætt
malbik borgarinnar og talsvert hæg
svörun eldsneytisgjafarinnar. Kost-
irnir eru hinsvegar verðið, stærð bíls-
ins og útbúnaður, bremsurnar eru
sömuleiðis mjög góðar og síðast en
alls ekki síst – frábærir eiginleikar
bílsins þegar ekið er á torfærum veg-
arslóðum og hve vel samsettur hann
virðist vera.
ingvarorn@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 5
530 5700
www.hollin.is
Hjólbarðahöllin
Fellsmúla 24 ·108 ReykjavíkRéttarhálsi 2 · 110 Reykjavík
Gúmmívinnustofan
www.gvs.is
587 5588
327C
18"
EMR 360C
18"
635BM
18"
347C
18"
220BM
17"
324C
18"
24
76
/
TA
KT
ÍK
Allar aðrar felgur með 20% afslætti
552 3470
Hjólvest
Ægisíða 102 ·107 Reykjavík
431 1777
Hjólbarðaviðgerðin
Dalbraut 14 · 300 Akranesi
415C
16"
Stálfelgur
16"
16"
17"
17"
17"
Speed
Gildistími: Sept. - okt. 2006
13.740
22.900
14.940
24.900
14.940
24.900
14.940
24.900
14.940
24.900
11.340
18.900
10.740
17.900
10.740
17.900
11.340
18.900
11.340
18.900
9.540
15.900
4.000
Vél: Túrbódísill, línuvél,
16v, 2 ofanáliggjandi kam-
básar.
Afl: 141 hestöfl við 4.000
snúninga á mínútu.
Tog: 310 Nm við 1800 -
2750 snúninga á mínútu.
Gírskipting: 5 gíra bein-
skiptur. 5 þrepa Sidetro-
nic sjálfskipting
Hröðun: 13,9 sekúnda úr
kyrrstöðu í 100 km.
Hámarkshraði: 167 km/
klst.
Fjöðrun: Double Wishbone
front suspension (vind-
ustöng) framan,
Gormafjöðrun aftan.
Drifbúnaður: Millikassi frá
BorgWarner hátt og lágt
drif.
Hásingar frá DanaSpiser
Hemlar: Kældir diskar að
framan, diskar að aftan,
ABS.
Hjólbarðar og felgur: 16"
álfelgur TOYO Open Co-
untry 245/75 R16
Stýri: Tannstangarstýri-
vökvastýri
Lengd: 4.660 mm.
Breidd: 1.880 mm.
Hæð: 1.740 mm.
Eigin þyngd: 1956 kg.
Eyðsla: 8,4 lítri í blönd-
uðum akstri, 7,1 lítrar í
þjóðvegaakstri, 10,6
lítrar í innanbæjarakstri.
Verð: 3.190.000 kr.
Beinskiptur.
Umboð: Bílabúð Benna
ehf.
Ssangyong
Kyron
MEÐ síðustu kynslóð Porsche 911, 997, hefur nútíma útgáfa hinna frægu Fuchs
felgna litið dagsins ljós en Fuchs felgur voru eitt aðal auðkenni Porsche bíla frá
1967 allt fram til ársins 1989 þegar 964 gerðin kom á markað. Með Fuchs felg-
unum frá 1967 náði Porsche miklu forskoti á aðra bílaframleiðendur með því að
bjóða upp á felgur sem voru í senn bæði léttar og sterkar enda voru þær steyptar
í heilu lagi á meðan aðrir framleiðendur voru enn að berjast við að herða felg-
urnar í framleiðsluferlinu sjálfu. Enn í dag eru þessar felgur taldar með bestu ál-
felgum sem framleiddar hafa verið, ótrúlega sterkar en samt léttar og henta þær
því vel til kappaksturs þar sem þær hafa verið notaðar bæði á nýja bíla sem
gamla, þó að í dag séu gömlu felgurnar eingöngu notaðar í fornbílakappakstri.
19 tommu og póleraðar
Nýju felgurnar eru þó mjög ólíkar þeim gömlu en þó nokkuð sérstakar og fara
nýju 911 bílunum sérlega vel og eru staðalbúnaður á Turbo bílnum. Nýju felg-
urnar eru póleraðar á lóðréttum flötum, en málaðar annarsstaðar. Þær eru 19"
og búnar 235/35 ZR 19 dekkjum að framan og 305/30 ZR 19 dekkjum að aftan.
Felgurnar eru búnar loftþrýstings skynjurum og veita líka góða kælingu fyrir
bremsurnar – þær eru því ekki bara fallegar.
Nýjar Fuchs felgur
Fuchs Porsche er kominn á nýj-
ar Fuchs felgur.