Morgunblaðið - 01.10.2006, Síða 52
52 SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030
johann@eignaborg.is
564 1500
25 ára
EIGNABORG
FASTEIGNASALA
Álfhólsvegur 86 - Kóp.
Opið hús mánudag kl. 18-19
143 fm neðri sérhæð ásamt 22,5
fm bílskúr. Fjögur svefnherb., stofa með
arni, úr stofu er gengið út á sólpall, fal-
legur garður, laus við undirr. kaup-
samnings.
Sumarbústaður í Snæfoksstaðalandi við Vaðnes
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Glæsilegt útsýni – Mikill gróður
Þessi fallegi sumarbústaður er til sölu. Bústaðurinn
stendur í landi Skógræktarfélags Árnessýslu við Vaðnes í
um 45 mín. akstursfjarlægð frá Reykjavík. Hann er að
mestu leyti á einni hæð en auk þess er steyptur kjallari
undir hluta bústaðarins. Á 1. hæð er m.a. stór stofa, eld-
hús, bað, 3 herbergi, forstofa o.fl. Í kjallara er inntak fyrir
hitaveitu, geymslurými o.fl. Við bústaðinn er sólpallur
(sólpallar) um 150 fm að stærð og þar er heitur pottur og
dúkkuhús. Öll húsgögn í bústaðnum fylgja. Bústaðurinn
stendur á 11.000 fm gróinni lóð sem er vaxin miklum
birkigróðri, grenitrjám, öspum, furu, lerki o.fl. Glæsilegt útsýni m.a. yfir Hvítá og land
Skógræktarinnar. (Bústaðurinn stendur milli 2ja golfvalla í um 5-15 mín. akstursfjar-
lægð). Stjörnuskoðunarturn við bústaðinn getur fylgt. Þessi sumarbústaður stendur á
einu eftirsóttasta sumarbústaðasvæði sunnanlands.
Nýtt og glæsilegt 184,9 fm EINBÝLI á einni hæð ásamt 33,5 fm
BÍLSKÚR, samtals 218,4 fm á góðum stað innst í botnlanga
(JAÐARLÓÐ) á Ásvöllum. Húsið afhendist fullbúið að utan
steinað og fokhelt að innan. Til afhendingar við kaupsamning.
Verð 33 millj.
FLÉTTUVELLIR 45 - HAFNARFIRÐI
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Sími 533 4800
– Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! –
Höfum fengið til sölu tvo glæsilega veitingastaði í hjarta borgarinnar. Annar á Laugavegi og hinn
við Austurvöll. Staðirnir eru báðir mjög vel búnir innréttingum og tækjum. Mikil velta. Frábært
tækifæri til að eignast veitingastaði með mikla möguleika. 7927.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Miðborgar í síma 533 4800.
Til sölu veitingastaðir í
hjarta borgarinnar
Til sölu nýtt á skrá
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson, símar 588 4477 og 822 8242.
Akralind
153 fm atvinnuhúsn.
Er í dag nýtt í einu lagi,
mögul. er að skipta
rýminu upp í tvær
einingar. Búið er að
klæða loft, góð lýsing,
eldhús, skrifst. og salerni.
Góð staðsetning, góð
aðkoma. Húsnæði í mjög
góðu standi.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Sími 588 4477
KATÓLIKKAR hafa fengið á
páfastól mann sem þorir að segja
sannleikann og það jafnvel um
múslima. Hinn 12.
september síðastliðinn
hélt páfinn Benedikt
XVI (Joseph Alois
Ratzinger) ræðu við
háskólann í Regens-
burg. Í ræðunni held-
ur páfinn því fram að
trúin á kristinn Guð
byggist á rökrænum
grunni. Þetta viðhorf
hlýtur að koma ýms-
um á óvart, en rök
páfans eru sannfær-
andi og ræðan öll hin
vandaðasta. Í máli
sínu kemur páfinn
víða við og meðal annars hefur eftir
orð býsanska keisarans Manuels II
Palaiologus, sem talin eru vera frá
árinu 1391. Ummæli Manuels um
múhameðstrú voru jafn sönn á fjór-
tándu öld og þau eru enn þann dag
í dag. Hins vegar er múslimum
annað betur gefið en að sýna um-
burðarlyndi og því ekki við öðru að
búast en þeir bregðist illa við og
noti tækifærið til að drepa fáein
börn og gamalmenni, til dýrðar Al-
lah.
Þegar ræða páfans er lesin kem-
ur í ljós að hún fjallar að mjög litlu
leyti um múslima. Meginefni ræð-
unnar er sambúð og sameining trú-
ar og rökhyggju (reason, vernunft)
í kristinni trú. Páfinn rekur þetta
samband frá upphafi og færir sterk
rök fyrir þeirri skoðun að sérstaða
kristinnar trúar sé einmitt fólgin í
þessu sambandi. Það
sem felst í þessu sam-
bandi trúar og rök-
hyggju er að sam-
bandið „orsök –
afleiðing“ er gilt fyrir
Guði, sem tryggir
samstarf kristni og
vísinda. Til sam-
anburðar er Allah
duttlungafullur, órökv-
ís og oft illgjarn. Vísan
páfans til ummæla
keisarans Manuels II
(1350–1425) er
skemmtileg. Manuel II
segir:
„Blóðsúthellingar eru ekki þókn-
anlegar Guði og órökvís hegðun
stingur í stúf við eðli Guðs. Guðstrú
er afkvæmi sálarinnar, en ekki lík-
amlegt afkvæmi. Þeir sem vilja
stunda trúboð verða að vera vel
máli farnir og færa góð rök fyrir
skoðunum sínum. Ofbeldi og hót-
anir eiga ekki erindi í þessu sam-
bandi … til að sannfæra manneskju
sem lýtur rökhugsun er ekki væn-
legt að beita harðneskju, vopna-
valdi, né heldur morðhótunum …“
Páfinn vitnar einnig til umsagnar
fræðimannsins Theodore Khoury,
sem ritstýrði útgáfu um skrif
Manuels II:
„Fyrir keisaranum í Miklagarði,
sem mótaður var af grikkneskri
heimspeki, eru þetta augljós sann-
indi. Samkvæmt múslimskum fræð-
um er Allah hins vegar fullkomlega
órökrænn (transcendent). Vilji hans
er ekki háður neinum takmörk-
unum, sem okkur er kunnugt um,
ekki einu sinni vitrænum.“
Í þessu samhengi er bent á, að
einn þekktasti kennimaður múham-
eðstrúar, Ibn Hazm (994–1064),
gekk svo langt að lýsa yfir:
„að Allah er ekki einu sinni
bundinn af eigin orðum og að hann
hefur engar skuldbindingar um að
opinbera okkur sannleikann. Ef það
væri Allahs vilji yrðum við jafnvel
að ástunda villutrú“.
Páfinn fylgir þessu eftir:
„Skilningur okkar á Guði og þar
af leiðandi hvernig við iðkum trú
okkar veldur því að við stöndum
frammi fyrir erfiðu vali, sem er sér-
staklega ögrandi á okkar tímum.
Er sú sannfæring eingöngu grikk-
nesk hugmynd, að órökrétt hegðun
brjóti í bága við eðli Guðs, eða er
um að ræða eilífan og ófrávíkj-
anlegan sannleika? Ég tel, að hér
getum við fundið djúpstætt sam-
ræmi á milli grikkneskrar heim-
speki og skilnings Biblíunnar á
guðstrú. Guðspjallamaðurinn Jó-
hannes umorðaði fyrsta vers fyrstu
Mósebókar, þegar hann byrjaði
inngang guðspjalls síns með orð-
unum: Í upphafi var „logos“. Þetta
er einmitt orðið sem keisarinn not-
aði: Guð framkvæmir „með logos“.
Logos merkir samtímis „rök-
semd“ og „orð“ – röksemd sem er
skapandi og fær um að deila með
sér, en jafnframt sem röksemd
(reason, vernunft). Jóhannes felldi
þannig endanlegan úrskurð um
hugtakið Guð, í skilningi Biblíunn-
ar. Í þessu orði (logos) ná allir
þættir biblíutrúarinnar saman og
mynda samræmi, þótt þeir séu oft
erfiðir viðfangs og samanflæktir.
Guðspjallamaðurinn segir: Í upp-
hafi var „logos“ og „logos“ er Guð.
Síðar í ræðu sinni fjallar páfi um
tilraunir til að afmá rökhyggjuna úr
kristinni trú og færa hana til þess
horfs sem þekkt er í trú múslima.
John Duns Scotus (1265–1308) er
talinn fulltrúi viðhorfa af þessu tagi
og hann mun hafa komið fram með
hugtakið „voluntas ordinata“, sem
felur í sér alræði duttlungafulls
Guðs, sem væri fullkomlega órökv-
ís. Þannig gæti hann hafa sett
þyngdarlögmálið í gær og afnumið
það á morgun. Við sjáum hvað yrði
um vísindin, ef raunveruleikinn
væri svona.
Hægt er að taka undir orð páf-
ans fram að þessu, en þegar hann
fer að fjalla um siðbótina virðist
vanta skilning á orsökum hennar.
Hann virðist telja að þar hafi guð-
fræðingar ráðið ferð, ég er ann-
arrar skoðunar. Það er rétt að mót-
mælendur vilja leita trúarinnar
milliliðalaust í Biblíunni og hafna
ofvaldi prestanna í guðlegum efn-
um. Hins vegar má ekki gleymast,
að orsaka siðbótarinnar var fremur
að leita í veraldlegum umsvifum
katólsku kirkjunnar en guð-
fræðilegum ágreiningi. Katólska
kirkjan hafði gróflega misnotað að-
stöðu sína og barðist villimannlega
gegn siðbótarkröfum. Að því er ég
best veit byggist lúterstrú ekki síð-
ur en katólsk á rökvísum Guði, sem
stendur við þau lögmál sem Hann
hefur búið náttúrunni.
Páfinn þorir – stórmerk
ræða í Regensburg
Loftur Altice Þorsteinsson
fjallar um trúarbrögð
og ræðu páfa við háskólann
í Regensburg
»Ummæli Manuelsum múhameðstrú
voru jafn sönn á fjór-
tándu öld og þau eru
enn þann dag í dag.
Loftur Altice
Þorsteinsson
Höfundur er verkfræðingur
og framhaldsskólakennari.
smáauglýsingar
mbl.is
Fáðu úrslitin
send í símann þinn