Morgunblaðið - 01.10.2006, Blaðsíða 54
54 SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Karla-boltinn
Það er allt að gerast hjá Skaga-mönnum. Guðjón Þórðarson
hefur verið ráðinn þjálfari ÍA og ætlar sér stóra hluti.
„Mark-miðin eru skýr. Ég ætla að koma Akranes-liðinu í
fremstu röð á ný,“ sagði Guðjón. Tvíbur-arnir Arnar og Bjarki
Guðjóns-synir léku með liðinu í sumar og tóku við þjálfun þess
30. júní af Ólafi Þórðarsyni. Liðið var þá í fall-sæti en endaði í
6. sæti í Landbanka-deildinni.
Ólafur tók við þjálfun Fram í vikunni, og samdi til þriggja ára.
Kvenna-boltinn
Margrét Lára Viðars-dóttir skoraði 4 mörk í stór-sigri Íslands,
6:0, gegn Portúgal í undan-keppni HM. Margrét Lára er þriðja
landsliðs-konan til að skora 4 mörk í lands-leik. Það gerði
Ásthildur Helgadóttir árið 1994 gegn Tékkum og Rakel
Ögmundsdóttir árið 2000 gegn Rúmeníu.
Eftir sigurinn sæta til-kynnti Guðlaug Jónsdóttir að hún hefði
á-kveðið að ljúka glæstum ferli sínum með lands-liðinu. Þetta
var 54. lands-leikur Guðlaugar sem leikur með Breiða-bliki.
Íþróttir
Slökkt var á götu-ljósum í
Reykja-vík og mörgum
sveitar-félögum á
lands-byggðinni milli klukkan
22 og 22.30 á
fimmtudags-kvöld. Þetta var
gert til að marka upp-haf
Alþjóð-legrar
kvikmynda-hátíðar í Reykja-vík.
Rit-höfundurinn Andri Snær
Magnason átti hug-myndina að
myrkvuninni og lítur á hana
sem stóran gjörn-ing.
Vana-lega kemur ljós-mengun í
veg fyrir að fólk í þétt-býli sjái
stjörnur himinsins og
norður-ljósin. Lítið sást þó til
stjarna á mest-öllu
höfuð-borgar-svæðinu vegna
skýja, en mikil ró og fegurð
færðist yfir borgina.
Ljósin slökkt
Morgunblaðið/ÞÖK
Stjörnu-áhugamenn horfa til
himins í Perlunni.
Ólafur fékk krónprins-verðlaun
Ólafur Elíasson
myndlistar-maður hlaut fyrir
viku Menningar-verðlaun
dönsku krónprins-hjónanna,
Friðriks og Mary. Þau voru
veitt í annað sinn. Ólafur
hannaði sjálfur
verðlauna-styttuna sem
hann fékk ásamt á-vísun
upp á um 6 milljónir
ís-lenskra króna.
Abe tekur við Japan
Japanska þingið kaus í
vikunni Shinzo Abe,
forsætis-ráðherra landsins.
Junichiro Koizumi lætur nú
af störfum. Abe, sem er 52
ára, verður yngsti
forsætis-ráðherra Japans frá
því í seinni heimsstyrjöld.
Abe skipaði strax konu í
em-bætti ráð-herra
efnahags-mála og lækkaði
laun sín og annarra
ráð-herra í ríkis-stjórninni um
30%.
ÍE höfðar mál
Ís-lensk erfða-greining
hefur höfðað mál í
Banda-ríkjunum gegn 5
fyrr-verandi starfs-mönnum
fyrir-tækisins og
Barna-spítala
Fíladelfíu-borgar fyrir stuld
og mis-notkun á eigum
fé-lagsins og brot á
ráðningar-samningum.
Starfs-mennirnir og spítalinn
segjast sak-laus af
ásökunum.
Stutt
Þorgerður Katrín
Gunnars-dóttir
menntamála-ráðherra og Páll
Magnússon útvarps-stjóri
kynntu á fimmtu-daginn
samning til 5 ára á milli
menntamála-ráðuneytisins
og RÚV. Sam-kvæmt honum
á Ríkis-útvarpið að styrkja
og efla sjónvarpsþátta-,
kvikmynda- og
heimildarmyndagerð með því
að kaupa og sýna efni frá
sjálf-stæðum
fram-leiðendum. RÚV
skuldbindur sig til að verja
til þess minnst 150
milljónum kr. á ári frá og
með árinu 2008, og síðan
hækkar upp-hæðin næstu 5
árin.
Hlutfall ís-lensks efnis á
svo-nefndum kjörtíma, frá kl.
19 til kl. 23, á að aukast
um helming á
samnings-tímanum, og
verður í lok hans um 65% af
dagskrár-efni.
Aukið ís-lenskt
sjónvarps-efni
Alríkis-dómari í New York
hefur leyft hóp-málshöfðun á
hendur tóbaks-fyrirtækjum
fyrir að blekkja
reykinga-menn og fá þá til að
halda að „léttar“ sígar-ettur
væru hættu-minni en aðrar
sígar-ettur.
Dómarinn leyfði
sækjendunum að höfða mál
gegn tóbaks-fyrir-tækjunum
fyrir hönd hóps
reykinga-manna, hugsan-lega
tuga milljóna manna.
Máls-höfðunin gæti kostað
tóbaks-fyrirtækin allt að 200
milljarða dollara, eða um
14.000 milljarða króna.
Tóbaks-fyrirtækin ætla að
á-frýja úr-skurði dómarans.
Tóbaksfyrir-tækin hafa vitað
frá því á 7. ára-tugnum að
„léttar“ eða „mjög léttar“
sígar-ettur eru jafn
hættu-legar heilsunni og
aðrar sígar-ettur.
Í mál við
tóbaks-
fyrirtæki
Forystu-menn
stjórnar-flokkanna hafa kynnt
sam-komulagið um
varnar-áætlun fyrir Ísland,
sem ís-lensk og banda-rísk
stjórn-völd hafa komist að.
Geir H. Haarde
forsætis-ráðherra og Jón
Sigurðsson, starfandi
utanríkis-ráðherra, segja að
varnir Íslands verði tryggðar
með svo-kölluðum
hreyfan-legum her-styrk. Hann
kemur í stað fastrar við-veru
Bandaríkja-hers hér á landi.
„Það mikil-væga í þessu er,
og það er stað-fest og
undir-strikað, að Banda-ríkin
muni verja Ísland ef á þarf að
halda. Á bak við það stendur
allur hernaðar-máttur
Banda-ríkjanna,“ sagði Geir.
Þeir Jón telja að
samkomu-lagið sé mjög
viðunandi.
„Ég fagna þeim sögu-legu
tíma-mótum, sem eru að
verða með brott-för er-lends
hers úr landinu,“sagði
Steingrímur J. Sigfússon,
for-maður VG, sem telur enga
þörf á áfram-haldandi
varnar-samstarfi . „Ég tel að
það væri nær að leita
samkomu-lags um að
varnar-samningurinn yrði
einfald-lega felldur úr gildi og
Ísland tæki sér í fram-haldinu
ó-háða stöðu og tryggði öryggi
sitt á slíkum grunni í
fram-tíðinni,“ sagði
Steingrímur.
Ísland varið með hreyfan-legum her-styrk
Morgunblaðið/Kristinn
Jón og Geir á blaðamanna-fundi.
Á milli 10 og 12 þúsund manns
mót-mæltiu Kárahnjúka-virkjun á
þriðjudags-kvöld. Þá var gengið niður
Lauga-veg og safnast saman á
Austur-velli. Mót-mælendur báru kyndla
og hvít bönd til merkis um frið og sátt við
sam-viskuna og kyn-slóðir fram-tíðar.
Þátt-takan fór fram úr öllum vonum
skipu-leggjandans Ómars
Ragnarssonar. Hann segir að mikinn
sam-hug hafi verið í fólki. Göngur voru
einnig haldnar víðar um land og alls
staðar margt um manninn. Þá var bréf
með á-kalli til þings og ríkis-stjórnar um
þjóðar-sátt af-hent embættis-manni
Al-þingis.
Á fimmtu-daginn hófst síðan fylling
Háls-lóns. Það mun að öllum líkindum
fyllast til hálfs í vetur en að fullu næsta
sumar. „Það eru 8 mánuðir til kosninga
þannig að bar-daginn er aðeins
hálfnaður,“ sagði Ómar sem telur að á
þeim tíma megi enn hleypa úr Háls-lóni
án þess að varan-legar skemmdir
hljótist af.
Jökuls-á á Dal er nú horfin austan við
Kárahnjúka-stíflu og jökul-vatn mun ekki
framar streyma um hana.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Háls-lón byrjar að myndast.
Kárahnjúka-
virkjun mót-mælt
Netfang: auefni@mbl.is