Morgunblaðið - 01.10.2006, Page 66
66 SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Alfanámskeið
Tíunda námskeiðið
í Neskirkju
hefst 10. október
Kynning þriðjudaginn 3. október kl. 20.00
Nánari upplýsingar á www.neskirkja.is
og í síma 511 1560
Umsjón: Sigurvin Jónsson,
Sr. Örn Bárður Jónsson,
Úrsula Árnadóttir og
Rúnar Reynisson.
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÉG ELSKA
TEIKNIMYNDIR
ER ÞETTA
JÓÐLANDI
BRAUÐRIST?
ÉG HEF
ALDREI ÁÐUR
SÉÐ ELDHÚS-
TÆKI MEÐ SVONA
FALLEGA RÖDD
ÞAÐ ER
GOTT AÐ
VERA EKKI
EÐLA...
MAÐUR ER BARA Í
SÓLBAÐI AÐ SLAPPA AF OG
LÁTA HUGANN REIKA OG
ALLT Í EINU...
ER MAÐUR
FASTUR Í FLÖSKU
ÉG ÞOLI EKKI
AÐ VERA BARN!
FÓLK ER ALLTAF
AÐ SEGJA MANNI HVAÐ
MAÐUR MÁ GERA OG
HVAÐ MAÐUR MÁ
EKKI GERA
AÐ VERA TÍGRISDÝR
ER ÖRUGGLEGA ÆÐI!
VIÐ GERUM
NÚ EKKI MIKIÐ
ÚR ÞVÍ, EN ÞAÐ
ER SATT
ÉG VONA
AÐ ÉG FÁI
VÍGTENNUR
ÞEGAR ÉG
MISSI
BARNA-
TENNURNAR
KONAN MÍN
ER AÐ GERA MIG
BRJÁLAÐAN!
AF HVERJU
FERÐU ÞÁ EKKI
FRÁ HENNI?
ÞAÐ VÆRI EKKI
RÉTT AF MÉR
Á MEÐAN
KRAKKARNIR BÚA
ENNÞÁ HEIMA
HVAÐ
ERU
ÞEIR
ORÐNIR
GAMLIR?
SÁ ELDRI ER
ÞRJÁTÍU OG ÁTTA OG
SÁ YNGRI
ÞRJÁTÍU OG FIMM
„VOFF“... HVAÐ
HÉLSTU EIGINLEGA
AÐ ÉG HEFÐI SAGT?
ÉG ER ALVEG
AÐ KOMA Í
VINNUNA
STUNDIN ER RUNNIN
UPP. VINNFÉLAGARNIR FÁ
AÐ SJÁ Á MÉR HÁRIÐ...
ÉG ER VIÐBÚIN ÖLLU...
DAUÐAÞÖGN...
ÖSKRUM OG ÓPUM
GÓÐAN
DAGINN!
ADDA,
TÍU
FUNDINUM
HEFUR
VERIÐ
FRESTAÐ
ÉG ER BÚINN
AÐ ÁKVEÐA MIG.
ÉG ÆTLA EKKI AÐ
HÆTTA
Í
ÞESSARI
MYND
ÞETTA FÆ
ÉG FYRIR
AÐ GIFTAST
OFURHETJU
EN ÉG GET
LÍTIÐ GERT MEÐ
MARIÐ RIF
ÞÍNAR SENUR
VERÐA ÞÁ BARA Í
AÐ BÍÐA AÐEINS
ÉG GET EKKI
BRUGÐIST M.J. ÞESSI
MYND SKIPTIR HANA OF
MIKLU MÁLI
Dagana 1. til 7. októberverður kynningarvikaeTwinning-áætlunar-innar. Umsjón eTwinn-
ing á Íslandi er í höndum Al-
þjóðaskrifstofu háskólastigsins, en
Guðmundur Ingi Markússon, verk-
efnisstjóri hjá Alþjóðaskrifstofunni,
er landsfulltrúi eTwinning á Íslandi:
„eTwinning er áætlun á vegum Evr-
ópusambandsins með það að mark-
miði að auka vægi upplýsingatækni
í kennslu á grunn- og framhalds-
skólastigi og þannig veita nem-
endum aukin tækifæri til náms,“ út-
skýrir Guðmundur. „Áætlunin er öll
hin einfaldasta í framkvæmd og
kennurum og skólum að kostn-
aðarlausu að taka þátt.“
Í kynningarvikunni verður at-
hygli vakin á eTwinning-áætluninni
með ýmsum hætti: „Meðal þess sem
við gerum er að veita skólum fyrstu
20 kennaranna sem skrá sig í verk-
efnið tveggja ára áskrift að vefbóka-
öskju Eddu-útgáfu. Allir kennarar
sem skráðir eru með eTwinning-
verkefni fá senda vefmyndavél og
við opnum bloggsíðu þar sem kenn-
ararnir geta skipst á skoðunum og
deilt reynslu sinni af eTwinning. Við
hleypum einnig af stokkunum
landskeppni fyrir skólaárið 2006–
2007, annars vegar í flokki grunn-
skóla og hins vegar á framhalds-
skólastigi, þar sem verðlaun fyrir
besta eTwinning-verkefnið er öflug
Acer-fartölva og fyrir næstbesta
verkefnið háhraða-nettenging frá
Hive.“
Skipst á hugmyndum
Með skráningu í eTwinning fá
kennarar aðgang að sérstöku
heimasvæði á Netinu þar sem þeir
geta skráð upplýsingar um sinn
skóla, og sjálfa sig, kennslusvið sitt
og áhugasvið, og ekki hvað síst sett
inn hugmyndir að verkefnum sem
kennarar og nemendur þeirra geta
unnið í sameiningu gegnum Netið:
„Vefsvæði eTwinning gerir kenn-
urum kleift að stofna til tengsla sín
á milli og í kjölfarið koma sér sam-
an um sameiginlegt verkefni sem
getur verið hvort heldur stórt eða
smátt, svo fremi sem það er innan
ramma kennsluskrár og samræmist
uppeldismarkmiðum skólans,“ segir
Guðmundur. „Sem dæmi um góðan
árangur af eTwinning er verkefnið
Ancient Paths of Europe sem var
samstarfsverkefni skóla á Spáni og
unglingadeildar Varmárskóla í Mos-
fellsbæ sem unnið var að frumkvæði
Guðlaugar Óskar Gunnarsdóttur.
Í verkefninu skiptust nemendur
skólanna á aldrinum 13 til 18 ára á
upplýsingum um fornan menningar-
arf þjóða sinna.“
Guðlaug og samstarfskennari
hennar sóttu í kjölfarið um gæða-
viðurkenningu hjá landsskrifstofum
eTwinning-verkefnisins á Spáni og
á Íslandi og fengu í kjölfarið sér-
staka viðurkenningu frá mið-
stöðvum eTwinning-verkefnisins í
Brussel. „Viðurkenningin er í formi
rafræns skjals sem skólinn getur
státað af og hefur Varmárskóli með-
al annars skreytt heimasíðu sína
með viðurkenningunni, til marks
um þann árangur sem skólinn hefur
náð.“
Nánari upplýsingar eru á slóðinni
www.ask.hi.is/page/etwinning-vika.
Menntun | Kynningarvika evrópska eTwinn-
ing-menntaáætlunarinnar 1. til 7. október.
Aðgengilegt
skólasamstarf
Guðmundur
Ingi Markússon
fæddist í Reykja-
vík 1969. Hann
lauk stúdents-
prófi frá Fjöl-
brautaskólanum
í Breiðholti 1998,
B.A. gráðu í
trúarbragða-
fræði frá Árósaháskóla 2002 og
cand. Mag. gráðu frá sama skóla
2003. Guðmundur starfaði um langt
skeið hjá Bóksölu stúdenta en hefur
starfað sem verkefnisstjóri hjá Al-
þjóðaskrifstofu háskólastigsins frá
júlí sl. Guðmundur er kvæntur Ástu
Vigdísi Jónsdóttur bókmennta-
fræðingi og eiga þau þrjú börn.
Breska rappstjarnan Megaman,réttu nafni Dwayne Vincent,
úr hinni farsælu So Solid Crew, var
á fimmtudaginn hreinsaður af morð-
ákæru. Í kjölfarið lýsti hinn 27 ára
gamli rappari því yfir að hann hygð-
ist hvíla tónlist-
ina um óákveðinn
tíma en snúa sér
þess í stað að
öðrum verk-
efnum. Nefndi
hann í því sam-
hengi kvik-
myndagerð og framleiðslu tískulínu.
Vincent mátti dúsa í varðhaldi í tvö
ár.
Fólk folk@mbl.is