Fréttablaðið - 02.04.2009, Side 8
8 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
1 Hver segist vera lifandi sönn-
un þess að hamborgarar séu
ekki fitandi?
2 Hvað heitir þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokksins?
3 Hver annast útgáfu blaðsins
Húsfreyjan í 60 ár?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 54
LÖGREGLUMÁL Hægt verður að ljúka
fleiri og alvarlegri málum með lög-
reglustjórasátt eftir að breyting á
reglugerðum tók gildi. Breyting-
in ætti að leiða til þess að álag á
dómstóla vegna minni háttar brota
verði minna, segir Valtýr Sigurðs-
son ríkissaksóknari.
Það eru einkum umferðarlaga-
brot sem lögreglustjórar ljúka með
sátt, og eingöngu ef sá sem brotið
fremur samþykkir að fara þá leið,
segir Valtýr. Brotin eru yfirleitt
þannig að viðkomandi hefur verið
staðinn að verki, til dæmis af lög-
reglumönnum í umferðareftirliti.
Fyrir breytinguna var hámarks-
sekt sem heimilt var að beita 300
þúsund krónur og hámarkstími
ökuleyfissviptingar eitt ár. Eftir
breytingarnar hafa hámörkin
hækkað í 500 þúsund krónur og
fjögurra ára sviptingu.
Það þýðir að hægt verður að
ljúka til dæmis málum einstakl-
inga sem aka endurtekið, eða
verulega, undir áhrifum áfengis
eða undir áhrifum fíkniefna, án
atbeina dómstóla. Þetta ætti einn-
ig að stytta þann tíma sem tekur
að ljúka málunum verulega og
minnka kostnað þess sem brotið
fremur.
Auk umferðarlagabrota er til
dæmis hægt að ljúka minni hátt-
ar þjófnaðar- og auðgunarbrot-
um með lögreglustjórasátt, sem
og minni háttar eignaspjöllum og
minni háttar fíkniefnabrotum. - bj
Breytingum á reglugerð um lögreglustjórasátt ætlað að létta álagi af dómstólum:
Ljúka fleiri málum með sátt
EFTIRLIT Breytingarnar hafa mest áhrif
á þá sem staðnir eru að alvarlegri
umferðarlagabrotum. Myndin tengist
efni fréttarinnar ekki beint.
STJÓRNSÝSLA Kosið verður um
sameiningu Akureyrarbæjar
og Grímseyjarhrepps samhliða
alþingiskosningunum sem
haldnar verða 25. apríl.
Samstarfsnefnd um sameining-
una lagði kosninguna til og var
hún samþykkt í sveitarstjórnum
beggja sveitarfélaga. Reynist
fleiri kjósendur í báðum sveitar-
félögunum fylgjandi sameiningu
tekur hún gildi 1. júní í sumar.
Fyrir fimm árum sameinuðust
Akureyri og Hrísey. - bþs
Akureyri og Grímsey:
Sameiningar-
kosning í apríl
Vídeóleiga að pitsustað
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur
samþykkt að innréttaður verði pitsu-
staður þar sem áður var söluturn og
myndbandaleiga í Grímsbæ.
ÞJÓNUSTA
SRÍ LANKA, AP Meira en 23 þús-
und borgurum tókst að flýja
stríðshrjáð svæði í norðurhluta
Srí Lanka í mars en talið er að
stjórnarherinn sé við það að
vinna sigur á Tamíltígrunum á
þessu svæði.
Tugir þúsunda óbreyttra borg-
ara hafa verið tepptir meðan
stjórnarhernum hefur tekist að
króa Tamíltígra af á aðeins 21
ferkílómetra svæði á norðaustur-
strönd Srí Lanka.
Í febrúar tókst nærri 33 þús-
undum manna að flýja átaka-
svæðið. Átökin í mars áttu sér
stað á minna svæði og því var
erfiðara að flýja. - ghs
Átökin á Srí Lanka:
Um 23 þúsund
flúðu svæðið
1.499
SPARIÐ 1.500
HEIMUR
LEIKJA
OPNUNART
ÍMAR
GRAFARVO
GUR
KÓPAVOGU
R
MÁNUDA
GA-FÖST
UDAGA
11 - 19
LAUGARD
AGA 10 -
18
SUNNUD
AGA
12 - 18OPNUNARTÍMARAKUREYRIMÁNUDAGA-FÖSTUDAGA 10 - 18.30LAUGARDAGA 10 - 17SUNNUDAGA 13 - 17
4.499
SPARIÐ 4.500
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
ti
l o
g
m
eð
0
8.
04
.2
00
9.
Í
ve
rð
un
um
e
r
in
ni
fa
lin
n
vi
rð
is
au
ka
sk
at
tu
r.
Þ
að
e
r
te
ki
nn
f
yr
ir
va
ri
á
p
re
nt
vi
llu
m
o
g
u
p
p
se
ld
um
v
ö
ru
m
.
470836
RAFMAGNAÐ
REGNBOGA-SIPPUBAND
Búðu til þrívíða ljóshringi
þegar þú hoppar. 25
litasamsetningar.
Þarf 4 C-rafhlöður.
Verð 2.999
Kópavogur Smáratorg 3 sími 550 0800 Grafarvogur Blikastaðarvegur 2-8 sími 585 0600 Akureyri Glerártorg sími 461 4500
211135
ATLANTA HLAUPAHJÓL
LÖGREGLUMÁL Fíkniefnadeild lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu handtók 27 manns
í síðasta mánuði vegna kannabisræktana.
Á landsvísu hafa um fimmtíu manns verið
handteknir í tengslum við kannabisræktanir
sem stöðvaðar hafa verið frá áramótum.
Fíkniefnadeildin á höfuðborgarsvæðinu
hefur tekið 25 ræktanir frá áramótum sem í
voru nær 6.000 plöntur. Í janúar og febrúar
voru teknar tíu kannabisræktanir í umdæm-
inu en fimmtán í síðasta mánuði.
Í fyrrinótt stöðvaði lögreglan umfangs-
mikla kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði.
Við húsleit fundust um 220 kannabisplöntur.
Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn.
Um miðjan dag í gær tók fíkniefnalögregl-
an svo ræktun á Norðurbakkanum í Hafnar-
firði, þar sem á áttunda tug plantna voru á
lokastigi ræktunar. Einn var handtekinn.
Þyngd þeirra plantna sem hafa verið teknar
á höfuðborgarsvæðinu einu er samtals um
530 kíló. Ef gert er ráð fyrir að um fimmtán
prósent af þyngd hverrar plöntu fari í sölu á
götunni, sem er varlega áætlað, gerir það um
áttatíu kíló af seljanlegum kannabisefnum.
Götuverðmæti þeirra er um 270 milljónir.
Séu teknar allar þær plöntur sem fíkniefna-
deild hefur lagt hald á frá áramótum, gert
ráð fyrir að þær hefðu náð fullum þroska og
miðað við fimmtíu grömm af nýtanlegu efni í
hverri plöntu má gera ráð fyrir fíkniefnasölu
á götunni upp á 920 milljónir króna.
Ef reiknaður er saman sá fjöldi þær plantna
sem öll lögregluembætti á landinu hafa lagt
hald á frá áramótum er hann nærri 7.000
talsins.
Þá hefur fíkniefnalögreglan gert upptæk
um 6,6 kíló af maríjúana á árinu. Andvirði
þess er um 22,4 milljónir. Umrætt efni var
framleitt hér á landi. Flest málanna 25 sem
komið hafa upp á höfuðborgarsvæðinu frá
áramótum eru upplýst, samkvæmt upplýs-
ingum Fréttablaðsins. Nokkur mál eru þó til
rannsóknar. jss@frettabladid.is
50 teknir í kannabismálum
Lögreglan hefur frá áramótum handtekið nær fimmtíu einstaklinga fyrir kannabisræktun í hinum ýmsu
umdæmum landsins. Á höfuðborgarsvæðinu voru 27 manns teknir í síðasta mánuði.
KANNABISR Fíkniefnalögreglan tók um miðjan dag í
gær enn eina ræktunina, nú í Hafnarfirði.
VEISTU SVARIÐ?