Fréttablaðið - 02.04.2009, Page 12
12 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
VINNUMARKAÐUR Sjö fyrirtæki til-
kynntu Vinnumálastofnun um
hópuppsagnir í mars. Þetta eru
fjármálafyrirtækin SPRON,
Straumur-Burðarás og Spari-
sjóðabankinn, bílaumboðin Ingvar
Helgason og B&L og tvö fyrirtæki
úr byggingageiranum og þjónustu-
starfsemi. Samtals segja þessi
fyrirtæki upp 200-300 mönnum.
Karl Sigurðsson, sérfræðing-
ur hjá Vinnumálastofnun, segir
erfitt að áætla nákvæmlega hvað
hópuppsagnirnar ná til mikils
fjölda starfsmanna. Uppsögnin
hjá SPRON nái til allra 160 starfs-
mannanna en ljóst sé að ekki verði
öllum sagt upp. Væntanlega haldi
einhverjir starfsmenn áfram í
útibúum og því sé erfitt að segja
nákvæmlega hversu margir missa
vinnuna þegar upp er staðið.
Hópuppsagnir hafa átt sér stað
í nánast hverjum mánuði frá því
í haust. Í október bárust Vinnu-
málastofnun 65 uppsagnir vegna
tæplega 3.000 einstaklinga. Í nóv-
ember voru tilkynningarnar tólf,
í desember fjórar, tíu í janúar og
engin í febrúar. Uppsagnirnar
snerta einkum fólk í byggingar-
iðnaði, verslun og flutningastarf-
semi og útgáfustarfsemi. - ghs
Straumur var á skrifstofu Vinnumálastofnunar í gær:
Sjö hópuppsagnir
HÓPUPPSAGNIR
Október 2008 - mars 2009
Fjöldi uppsagna Nær til
Október 65 3.000
Nóvember 12 560
Desember 4 94
Janúar 10 167
Febrúar 0 0
Mars 7 200-300
fyrir börn og unglinga
Fjárhagslegar aðstæður margra heimila hafa breyst verulega til hins verra
á síðustu mánuðum. Því miður sýnir reynslan að eitt af því sem foreldrar
neyðast til að spara þegar þrengir að eru tannviðgerðir og eftirlit hjá
börnum og unglingum. Dregið hefur stórlega úr þáttöku íslenskra
stórnvalda í kostnaði vegna tannheilsu barna og við blasir gífurleg hætta
á tannskemmdum og jafnvel vanlíðan barna og unglinga um þessar
mundir. Í sumum tilfellum bíður fólk þess aldrei bætur.
Tannlæknar hafa ákveðið að koma til móts við þau heimili sem erfiðast
eiga uppdráttar með sjálfboðavinnu við skoðun og viðgerðir tanna hjá
börnum og unglingum. Skorað er á barnafjölskyldur sem búa við kröpp
kjör að nýta sér þetta tækifæri til ókeypis tannlæknaþjónustu fyrir börn
og unglinga 18 ára og yngri.
Hjálparvakt tannlækna er samstarfsverkefni Tannlæknafélags Íslands
og Tannlæknadeildar Háskóla Íslands. Þjónustan er veitt í húsnæði
Tannlæknadeildar Háskóla Íslands, Tanngarði, laugardagana 4. apríl,
18. apríl, 9. maí og 23. maí frá kl. 10.00 – 13.00.
Ekki er tekið við tímapöntunum en ráðstafanir eru gerðar til þess
að biðtími verði ávallt hóflegur. Nánari upplýsingar eru veittar hjá
Tannlæknadeild Háskóla Íslands í síma 525 4850.
g y j
Innritun í allar deildir skólans
fyrir næsta skólaár stendur yfir
HÁSKÓLADEILDIR
Nám til burtfararprófs í einsöng
Söngkennaranám.
SÖNGDEILDIR
Nemendur frá 16 ára aldri
grunn-, mið- og framhaldsnám
UNGLINGADEILDIR
Nemendur 11-13 ára og 14-15 ára
skipt í stúlknadeildir og ungmennadeildir
Áríðandi:
Umsækjendur með lögheimili utan
Reykjavíkur þurfa að leggja inn beiðni til
sveitarfélags síns fyrir 15. apríl n.k.
Umsóknir og upplýsingar:
sími 552 7366 / songskolinn.is / rafraen.reykjavik.is
Söngskólinn í Reykjavík
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Hjólafestingar
EFNAHAGSMÁL Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra segir að
engar ákvarðanir hafi verið tekn-
ar um sölu ríkisbankanna; það sé
þó ljóst að við einkavæðingu þeirra
verði viðhöfð önnur aðferðafræði en
árið 2002. Hann segir að ákvarðan-
ir um hugsanlegar skattahækkan-
ir verði kynntar um mánaðamótin
maí/júní.
Þetta kom fram á opnum fundi
fjárlaganefndar í gær þar sem rætt
var um framvindu samkomulags
íslenskra stjórnvalda við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn (AGS) og stöðu
efnahagsmála.
Í umræðum um samskipti stjórn-
valda við AGS kom fram í máli
Steingríms að sjóðurinn hefði
ekki gert athugasemdir við breytt-
ar áherslur nýrrar ríkisstjórnar í
efnahagsmálum. Sagði Steingrím-
ur að héldu stjórnvöld sig innan
ramma þess samkomulags sem
gert hefði verið myndi sjóðurinn
halda sig til hlés. Áætlunin væri í
þeim skilningi sveigjanleg. Sjálf-
stæðismenn inntu Steingrím eftir
því hvaða upplýsingar um stöðu
efnahagsmála sjóðurinn hefði
fengið í nýlegri heimsókn, og gagn-
rýndu að fjárlaganefnd og Alþingi
fengju ekki aðgang að sömu gögn-
um. Steingrímur sagði það á hendi
AGS að gefa téðar upplýsingar, en
„engin stór leyndarmál væri þar að
finna“.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
í fjárlaganefnd lögðu hart að
Steingrími að svara því hvort
ákvarðanir um skattahækkanir
hefðu verið teknar, en fjármála-
ráðherra hefur sagt að blönduð leið
niðurskurðar og tekjuöflunar með
skattahækkunum sé eina færa leið-
in til að loka fjárlagagati upp á 150
til 170 milljarða á næstu tveimur til
þremur árum. Steingrímur sagði
að tillögurnar yrðu kynntar þegar
tekju- og gjaldahlið fjárlaga næsta
árs yrðu ræddar. Kom fram að nið-
urskurður á næsta ári gæti numið
35 til 55 milljörðum króna.
Steingrímur sagði að ákvarðanir
um hugsanlegt söluferli bankanna
lægju ekki fyrir enda væru efna-
hagsreikningar þeirra enn viðfangs-
efnið. Engin leið hefði verið útilokuð
við hugsanlega sölu bankanna og til
greina kæmi að kröfuhafar eignuð-
ust hluta í þeim.
Nokkuð var rætt um Icesave-deil-
una á fundinum og dró Steingrímur
þar til baka þau orð sín að „glæsi-
leg niðurstaða“ væri möguleg, sem
hann viðhafði í fréttaviðtali. Sagði
hann orðalag sitt hafa verið óheppi-
legt og „bærileg niðurstaða“ væri
nær sannleikanum. Hann sagði sam-
skipti við Hollendinga og Breta hafa
batnað mikið. svavar@frettabladid.is
Ákvörðun um skatta
kynnt í sumarbyrjun
Engin ákvörðun hefur verið tekin um sölu ríkisbankanna, segir fjármálaráð-
herra. Niðurskurður næsta árs vegna fjárlagagatsins verður 35 til 55 milljarðar.
Samskipti við Hollendinga og Breta vegna Icesave hafa batnað.
FUNDURINN Indriði H. Þorláksson ráðuneytisstjóri, Steingrímur fjármálaráðherra
og Nökkvi Bragason, skrifstofustjóri fjárlagaskrifstofu, svöruðu spurningum fjárlaga-
nefndar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON