Fréttablaðið - 02.04.2009, Side 18
18 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
4
10
4
0
0
0
|
l
an
ds
ba
nk
in
n.
is
L AU S N I R F Y R I R H E I M I L I Ð
Við vinnum með þér
að lausnum fyrir heimilið.
Greiðslujöfnun lána er
ein af þeim.
Pantaðu ráðgjöf á landsbankinn.is,
í útibúinu þínu eða í síma 410 4000
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
7
4
6
7
Landsbankinn býður upp á nokkur úrræði fyrir heimili sem eiga við greiðsluerfiðleika
að etja. Við aðstoðum þig við að velja lausn sem kemur til móts við þínar þarfir.
Útgjöldin
> Verð á einu kílói af eggjum í krónum
Heimild: Hagstofa Íslands
1998 2000 2002 2004 2006 2008
358
353 352
377
429
455
Ágústa vill deila sparnaðarráði með okkur hinum:
Þannig er að dýnurnar okkar, sem eru um 10 ára
gamlar, voru farnar að gefa sig (eðlilega).
Þetta eru dýnur frá Ragnari Björnssyni, Hafnarfirði,
svo ég fór inn á heimasíðu þeirra til að kynna mér
verð á nýjum dýnum.
Þar rak ég augun í það að RB rúm bjóða endur-
hönnun á springdýnum eftir áralanga notkun. Ég
hringdi til að panta tíma fyrir dýnurnar mínar,
mætti síðan með þrjár dýnur kl. 8.00 að morgni og
náði í þær aftur sama dag rétt fyrir lokun.
Þá var búið að stífa þær allar upp og skipta um
áklæði á tveimur þeirra, og þær voru því eins og
nýjar. Það kostar 8.900 að stífa upp hverja dýnu.
Ég var farin að sjá fyrir mér mikil útgjöld í nýjum
dýnum, þar sem góður nætursvefn og hvíld skiptir jú
miklu máli.
Vildi því benda á þessa þjónustu hjá Ragnari
Björnssyni.
Ásta hjá RB Rúmum í Hafnarfirði segir
þessa stífingarþjónustu einungis gilda
fyrir dýnur frá RB. Verðið á stífingunni
sé 8.990 krónur, en verðið á nýjum
áklæðum sé mismunandi. Hún
bætir við að fyrir 2.990 krónur
aukalega sé dýnan sótt heim
til viðskiptavina að morgni
og skilað aftur að kvöldi.
Fyrirtækið leggi auk þess
mikla áherslu á að um leið
og dýna sé keypt sé fjárfest
í svokölluðum dýnuhlífum,
því svo mikill kostnaður
liggi í áklæðunum.
Neytendur: Sparnaðarráð hjá RB rúmum
Stífaði rúmdýnurnar
og sparaði pening
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
KJARTAN
GUÐMUNDSSON
neytendur@
frettabladid.is
„Bestu kaupin gerði ég þegar ég var hjá
Útlendingastofnun,“ segir Georg en hann
var forstjóri þeirrar stofnunar frá 1999 til
2005. „Þar unnu nær eingöngu konur
og ég brá mér á námskeið sem hét
„Samskipti á kvennavinnustað“. Þetta
námskeið nýttist mér alveg sérstaklega
vel en þar lærði ég margar lexíur sem
reynast mér vel þegar ég er að eiga við
hrútana á þessum karlavinnustað
hér í Landhelgisgæslunni,“ segir
hann og skellir upp úr.
Svona getur gildi þess sem
maður kaupir komið í ljós
seint og um síðir. En oft vill
það vera þannig með slæmu
kaupin að brotalamirnar
koma tiltölulega fljótt í ljós.
Þannig var það með verstu
kaup Georgs en nokkuð langt er liðið síðan
hann gerði þau. „Ég var í námi á þeim
árum og hafði nokkrum sinnum leigt
mér sjóbretti en ákvað síðan að spara
til þess að festa kaup á einu slíku. Það
tókst eftir langan tíma og ég keypti
bretti sem auglýst var í Dagblaðinu.
Þegar átti að fara að nota það reyndist
það ekki betur en svo að það
sökk en það eiga sjóbretti
alls ekki að gera. Ég
hef aldrei séð þennan
náunga síðan sem
seldi mér brettið
en ég hefði mikinn
áhuga á því. Það er
kannski að ég grípi
hann einhvern tím-
ann í landhelgi.“
NEYTANDINN: GEORG LÁRUSSON FORSTJÓRI LANDHELGISGÆSLUNNAR
Kvennanámskeið reyndist best
„Ég nota klakabox á ýmsan hátt. Ef ég
á til dæmis afgang af líkjörum, rauðvíni
eða hvítvíni þá
frysti ég hann og
nota svo út í sósur,“
segir Matthildur
Jóhannsdóttir iðn-
hönnuður. „Ég set
líka afganga af djúsi
í klakabox, sting
tannstönglum í og
gef svo krökkunum lítinn klakapinna ef
þau eru dugleg að borða grænmetið
sitt. Þetta drýgir matarpeningana,“ segir
hún og bætir við að upplagt sé að
frysta kreditkortið því maður sé búinn
að skipta um skoðun um kaupin þegar
það er þiðnað.
GÓÐ HÚSRÁÐ
GEFUR KRÖKKUM
KLAKAPINNA
■ Matthildur Jóhannsdóttir iðnhönn-
uður nýtir klakaboxin á ýmsan hátt
Auglýsingasími
– Mest lesið