Fréttablaðið - 02.04.2009, Síða 22
22 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 37 Velta: 124 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
212 -2,48% 625 -2,14%
MESTA HÆKKUN
BAKKAVÖR 3,7%
MESTA LÆKKUN
MAREL 3,56%
ATLANTIC PETR. 3,46%
FØROYA BANKI 1,65%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,30 +0,00% ... Atlantic
Airways 171,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 251,00 +3,46% ...
Bakkavör 1,40 +3,70% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +0,00% ... Føroya Banki 119,00 -1,65% ... Icelandair Group 7,00
+0,00% ... Marel Food Systems 43,40 -3,56% ... Össur 88,80 -1,00%
AT P-Arbejdmarkedets Ti l-
lægspens, lífeyrissjóður ríkis-
starfsmanna í Danmörku og einn
sá stærsti þar í landi, gekk í fyrra-
kvöld frá kaupum á öllum eftir-
standandi eignarhlut Jóns Sigurðs-
sonar, forstjóra félagsins, fyrir
643,5 milljónir króna.
Jón seldi megnið af hlut sínum í
fyrirtækinu í síðustu viku en átti
eftir 7,5 milljónir hluta.
Lífeyrissjóðurinn hefur verið í
hluthafahópi Össurar frá því í nóv-
ember 2007 og hefur lítið hreyft
sig þar síðan þá.
Sjóðurinn átti fyrir 3,47 pró-
senta hlut en jók hann í 5,24 pró-
sent og er orðinn fjórði stærsti
hluthafinn á eftir Össuri Kristins-
syni, frumkvöðli og stofnanda
fyrirtækisins. Forstjóri Össurar
er hins vegar horfinn úr hluthafa-
hópi fyrirtækisins. - jab
FORSTJÓRINN SKOÐAR GERVIFÓT Einn
stærsti lífeyrissjóður Danmerkur er nú
orðinn fjórði stærsti hluthafinn í stoð-
tækjafyrirtækinu Össuri.
Danir kaupa í Össuri
„Við höldum okkur á floti og höfum
ekki leitað til lánastofnana síðan í
júní. Afkoman er yfir vænting-
um þótt róðurinn sé erfiður,“
segir Gylfi Sigfússon, forstjóri
Eimskips.
Félagið tapaði 40,2 milljónum
evra á síðasta ársfjórðungi, þeim
fyrsta í bókum skipaflutninga-
félagsins. Þetta jafngildir tapi
upp á 6,6 milljarða króna. Til
samanburðar tapaði fyrirtæk-
ið 38,9 milljónum evra á sama
tíma í fyrra. Sex milljónir evra af
tapi félagsins liggja í neikvæðum
gengisáhrifum.
Gylfi segir fyrirtækið nú ein-
beita sér að markaðnum hér, í Fær-
eyjum og Noregi og sé þar í góðum
málum þrátt fyrir fjármála-
kreppuna. Öðru máli gegni
um starfsemina í Eystra-
saltslöndunum, sem skilaði
7,1 milljóna evra rekstrar-
tapi á fjórðungnum. Tíu til
fimmtán prósent flutningaskipa-
flotans í Evrópu liggur við land-
festar, sem er lýsandi fyrir stöð-
una, að mati Gylfa. Staða félagsins
sé hins vegar viðunandi.
Stjórnendur Eimskips hafa síð-
asta árið unnið að því hörðum
höndum að vinda ofan af skulda-
hít fyrri ára en stefnt er að því að
láta þrjú til fimm skip ganga upp
í skuldir. Sama máli gegnir um 65
prósenta hlut í Containership sem
sinnir skipaflutningum á milli
Eystrasaltsríkjanna og
Rússlands.
Gylfi segir viðræð-
ur við bandaríska og
kanadíska fjárfesta
um sölu á frysti-
og kæligeymsl-
um Verscold á
góðu skriði og
sé stefnt að
því að ljúka
henni
fyrir
júnílok.
- jab
Eimskip enn á floti
Auknar skuldir bankaráðsmanna
Landsbankans og félaga tengdra
þeim í hálfsársuppgjöri bankans
í fyrra eru að nær öllu leyti til-
komnar vegna kaupa Björgólfs
Guðmundssonar, formanns banka-
ráðsins, á helmingshlut Sunds í
fjárfestingarfélaginu Gretti fyrir
tveimur árum.
Fram kom í Markaðnum í gær
að skuldir bankaráðsmanna
Landsbankans og félaga tengdra
þeim jukust úr 9,9 milljörðum
króna árið 2007 í tæpa fimmtíu
milljarða í fyrra. Kaup Björgólfs
skýra 37 milljarða en gengisáhrif
þrjá milljarða króna.
Grettir átti 33 prósent í Eim-
skipi og rúm 28 prósent í Ice-
landic Group og færðust skuld-
bindingar félaganna gagnvart
bankanum frá fyrri árum yfir
á félög tengd bankaráðsfor-
manninum. Ekki var um nýjar
lánveitingar að ræða.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins gekk Björgólfur sjálfur
í ábyrgð fyrir skuldbindingum
auk þess sem bankinn hafði veð
í eignarhlut Björgólfs í Gretti.
Grænt ljós var gefið á viðskiptin
í bankaráðinu enda talið að þau
gætu styrkt félög í eigu Grettis.
Unnið er að innheimtu krafna
á hendur bankaráðsmönnum og
félögum þeim tengdum. Óvíst er
með heimtur þar sem mörg félög
tengd bankaráðsmönnum standa
illa. „Því miður hefur þróunin
verið til verri vegar hjá mörgum,“
sagði einn viðmælenda Frétta-
blaðsins í gær. - jab
BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON Kaup
félags í eigu formanns bankaráðs Lands-
bankans árið 2007 skýra tugmilljarða
lánafærslu til félaga tengdra bankaráð-
inu í fyrra. Ekki var um nýja lánveitingu
að ræða.
Milljarðarnir skrifast á Björgólf
GYLFI SIGFÚSSON Forstjóri
Eimskips segir fyrirtækið vinna
að því hörðum höndum að
bæta afkomuna, þrátt fyrir erfitt
árferði, og lækka skuldir með sölu
óarðbærra eigna.
4
10
4
0
0
0
|
l
an
d
sb
an
ki
nn
.is
162 / AKUREYRI
Hertari gjaldeyrisreglur
styrkja gengi krónunnar.
Stutt síðan LÍÚ heyrði af
leiðum framhjá gjaldeyris-
höftum. Íslandsbanki segir
erfitt að girða fyrir allar
hjáleiðir.
„Það er mikilvægt að sömu reglur
gildi fyrir alla. Við styðjum gjald-
eyrishöftin ef þau styrkja gengið
og ná vöxtum og verðbólgu niður,“
segir Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri Landssambands
útgerðarmanna (LÍÚ).
Alþingi samþykkti í fyrrakvöld
að breytingu á gjaldeyrisreglum
sem fela í sér að útflutningsvið-
skipti verða að fara fram í erlendri
mynt.
Fyrir breytinguna tíðkaðist í ein-
hverjum mæli að erlendir fjárfestar
keyptu krónur á erlendum mörkuð-
um, sem voru allt að þrjátíu prósent
lægri en skráð miðgengi Seðlabank-
ans. Greitt var fyrir með íslenskum
krónum og upp-
skáru erlend-
ir kaupendur
því umtalsverð-
an gengishagn-
að. Erlendur
gjaldeyrir skil-
aði sér því ekki
hei m veg n a
útflutnings. Við-
skipti sem þessi
voru ekki brot
á reglum um
gjaldeyris viðskipti.
Friðrik segir það hafa komið sér
á óvart að hægt var að fara framhjá
skilaskyldu á gjaldeyri með þessum
hætti. Ekki liggja fyrir upplýsingar
um það hversu háar upphæðir hafi
farið framhjá gjaldeyrishöftunum í
viðskiptunum. Ótrúlegt er að ekki
hafi verið gert ráð fyrir þessum
möguleika, að sögn Friðriks.
Gengi krónunnar styrktist um
2,11 prósent í mjög litlum viðskipt-
um í gær og endaði gengisvísital-
an í 208,50 stigum. Hún hafði áður
veikst viðstöðulaust um tæp tólf
prósent á þremur vikum.
Greining Íslandsbanka segir
að með viðbótinni sé barið í aug-
ljósasta brest gjaldeyrishaftanna.
Líkur séu á að gengi krónunn-
ar styrkist fyrsta kastið. Þó sýni
reynslan að ávallt sé reynt að fara
fram hjá slíkum höftum og erfitt að
girða fyrir allar hjáleiðir. Þó gætu
snör viðbrögð yfirvalda við þeim
misbresti sem einkenndi mark-
aðinn á síðustu vikum latt menn í
leitinni að nýjum leiðum fram hjá
reglunum. jonab@markadurinn.is
Hertar reglur loka hjáleið
FRIÐRIK J.
ARNGRÍMSSON
„Enginn gerir svona langað, enginn,“ fullyrti Sveinn Hjörtur Hjartarson,
hagfræðingur LÍÚ, í kjölfar þess að Fréttablaðið sagði frá því í byrjun mars
að íslensk útflutningsfyrirtæki hafi samið við erlenda kaupendur um sölu á
vörum í íslenskum krónum í stað erlends gjaldeyris.
ÞETTA SAGÐI LÍÚ 6. MARS 2009
Laust fé deCode, móðurfélags
Íslenskrar erfðagreiningar, dugar í
mesta lagi næstu þrjá mánuði. Þetta
kemur fram í uppgjöri fyrirtækis-
ins sem birt var í fyrrakvöld. Óvíst
er hvað tekur við en unnið er að fjár-
mögnun félagsins.
Fyrirtækið tapaði 80,9 milljónum
Bandaríkjadala, jafnvirði 9,7 millj-
arða íslenskra króna í fyrra. Þetta er
14,6 milljónum dala betri afkoma en í
hittiðfyrra. Tap á fjórða ársfjórðungi
nam átján milljónum dala samanborið
við 32,4 milljóna dala tap ári fyrr.
Laust fé og innistæður fyrirtækis-
ins námu 3,7 milljónum dala, tæpum
hálfum milljarði króna, um áramótin.
Ári fyrr átti það 64,2 milljónir dala.
Fyrirtækið seldi Landsbankanum
safn skuldabréfa fyrir ellefu milljón-
ir dala í janúar og hefur nýtt andvirð-
ið til rekstrar. Ljóst er að fjármunir
hafa brunnið hratt upp og að fyrir-
tækið hafi aðeins fjármagn fram á
yfirstandandi fjórðung.
Haft er eftir Kára í uppgjörinu að
stjórn fyrirtækisins hafi unnið að
uppstokkun, svo sem eignasölu og við-
ræðum við lánardrottna til að tryggja
fjármögnun félagsins. Ekki náðist í
Kára þegar eftir því var leitað í gær.
- jab
DeCode glímir við
alvarlegan fjárskort
KÁRI STEFÁNSSON DeCode átti 3,7 milljónir dala um
áramótin en seldi skuldabréf fyrir ellefu til viðbótar í
janúar. Unnið er að fjármögnun fyrirtækisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN