Fréttablaðið - 02.04.2009, Qupperneq 26
2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
Draumur eða martröð?
UMRÆÐAN
Signý og Sigyn Eiríksdæt-
ur skrifa um fjárfestingar
lífeyrissjóða í sprotafyrir-
tækjum
Nú þegar bankarnir eru flestir farnir á hausinn
og mörg fyrirtæki á Íslandi
í kröggum eða gjaldþrota
hefur umræða um sprota-
fyrirtæki og frumkvöðla
verið áberandi. Þau eru von
hins nýja Íslands. Nú á að
styðja við bakið á þessum fyrirtækjum og fjár-
festa í þeim. En er það alltaf til góðs að fá inn
stóra fagfjárfesta í sprotafyrirtæki? Er ekki
ýmislegt sem ber að varast þegar slík tímamót
verða hjá fyrirtækjum sem ætla að stækka sig
og efla?
Hvað ber að varast?
Af eigin reynslu og eftir að hafa rætt við for-
svarsmenn nokkurra frumkvöðlafyrirtækja
höfum við komist að því að margt ber að varast
þegar fagfjárfestar koma inn í sprotafyrirtæki.
Eitt af því sem þarf að gæta að er að gleyma
sér ekki í gleði og trausti þegar draumurinn
um aukið fjármagn verður að veruleika. Frum-
kvöðlar hafa í flestum tilvikum vini og vanda-
menn á bak við sig sem fjárfesta og hafa því
byggt fyrirtæki sitt á trausti og samvinnu sam-
heldins hóps. Þeir gera sér oft ekki grein fyrir
því að fagfjárfestarnir hafa gríðarlegan fjölda
lögfræðinga og annarra aðila á sínum snærum.
Þeir eru oft hópur fólks sem hikar ekki við að
beita alls kyns klækjum í viðskipum. Aðstand-
endur sprotafyrirtækja eru því í fæstum tilvik-
um viðbúnir því viðskiptasiðferði sem beitt er
strax í upphafi samstarfs, eða í raun frá þeim
degi sem skrifað er undir.
Nokkur dæmi um vinnubrögð fagfjárfesta
eru t.d. að hafa samninga á mjög flókinni ensku
þannig að sem fæstir skilji þá. Hlutabréfin eru
höfð í nokkrum flokkum til að auka flækjustig,
þeir koma því þannig fyrir að þeir hafi í raun
algjör yfirráð yfir fyrirtækjum jafnvel þótt
eignahluti þeirra sé innan við 20%, menn eru
þvingaðir til að skrifa undir íþyngjandi auka-
samninga þegar breytingar verða á rekstri og
sem minnst er bókað á stjórnarfundum þannig
að ekki sé hægt að vitna í ágreining. Þeir
tryggja líka að helst allir sem koma að fyrir-
tækinu komi úr þeirra röðum (endurskoðendur,
stjórnarmenn, lögfræðingar o.s.frv.). Frjóu fólki
er ýtt út úr rekstrinum, jafnvel sjálfum frum-
kvöðlunum, og fjárfestarnir laga fyrirtækin að
eigin hugmyndafræði, í stað þess að nýta áfram
þann kraft sem kom fyrirtækinu á laggirnar í
upphafi. Þeir krefjast ákvæða í hluthafasam-
komulagi um að geta gengið út úr fyrirtækinu
eftir vissan tíma og geta krafist þess að fyrir-
tækið kaupi þá út á forsendum sem þeir hafa
sjálfir mest um að segja, þannig að frumkvöðl-
ar og fyrri eigendur geti jafnvel lent í þeirri
stöðu að missa fyrirtækið úr höndum sér til
fagfjárfestisins.
Þannig getur fagfjárfestir sem gefur sig út
fyrir að koma inn í þessi fyrirtæki með sér-
þekkingu til að styrkja þau og hraða vexti
þeirra haldið þeim í heljargreipum og valdið
þvílíkum glundroða og ósætti að fyrirtækið
ber þess jafnvel aldrei bætur. Og þetta eru því
miður ekki bara vangaveltur, heldur raunveru-
leg dæmi.
Hverjir eru fagfjárfestar og
hvaðan kemur fjármagnið?
Það eru nokkrir sjóðir sem
koma með fjármagn inn
í sprotafyrirtæki. Sumir
hafa aðgang að peningum
frá stærstu lífeyrisjóð-
um landsins ásamt öðrum
fjárfestum. Eins merkilegt
og það er þá hafa lífeyris-
sjóðirnir í mörgum tilfell-
um afsalað sér öllu valdi
og rétti til afskipta af því
sem fagfjárfestar gera í
krafti peninganna sem þeir
leggja til. Þótt lífeyrissjóð-
irnir leggi jafnvel fram 70% af fjármagninu
eiga þeir engan fulltrúa í stjórn þess sjóðs sem
ákveður hvernig unnið er með hverju og einu
sprotafyrirtæki. Það að lífeyrissjóðir komi að
þeim sjóði sem fjárfestir í fyrirtækinu þínu er
þar af leiðandi ekki trygging fyrir því að eðli-
legir viðskiptahættir séu stundaðir, því miður.
Lífeyrissjóðunum virðist þannig í raun standa
á sama um hvernig sjóðsverðir þeirra standa
að samningagerð og rekstri þeirra fyrirtækja
sem fjárfest er í. Það virðast ekki vera lagðar
línur um hvernig standa skuli að fjárfestingum
og þeir beita sér ekki fyrir því að sanngirni
og gagnsæi sé haft að leiðarljósi. Allt virðist
vera leyfilegt fyrir hrægamma viðskiptalífs-
ins, meira að segja núna árið 2009. Lítið hefur
breyst. Sömu gömlu græðgisgildin eru enn í
hávegum höfð.
Hvernig er hægt að varast klæki?
Því miður sýnir reynsla allt of margra frum-
kvöðla að engu er hægt að treysta um að þeir
verði meðhöndlaðir af réttsýni og sanngirni
þegar stórir fjárfestar koma að fyrirtækjum
þeirra. En málið er í raun einfalt. Ef fjárfest-
ir er ekki tilbúinn að taka neina áhættu þegar
hann kemur inn í fyrirtæki en krefst þess að
hafa allt sitt á þurru og ætlar að tryggja að
hann fái alltaf sitt hvað sem gengur á, þá er
einfaldlega betra að sleppa því að taka hann
inn. Innganga í fyrirtæki á slíkum forsendum
er aðeins til að slökkva alla gleði og samstarf-
sanda innan hluthafahóps og verður í raun
til þess að fyrirtæki missa flugið og starfs-
orkan fer meira og minna í lögfræðiálit og
þras um rétt hluthafa. Stjórnarfundir verða
pínlega leiðinlegir og hluthafafundir leysast
upp í rifrildi þar sem lögfræðingar sitja á
rökstólum.
Slík staða er martröð hvers frumkvöðuls og
því er brýnt að hann kynni sér allar þær gildr-
ur sem hægt er að leggja fyrir hann í sam-
starfinu. Báðir aðilar verða að standa jafnfæt-
is þegar kemur að samningaborðinu og í raun
þyrftu frumkvöðlar að hafa aðgang að færum
aðilum á þessu sviði í upphafi viðræðna og vera
tilbúnir að eyða miklum tíma og fé í samninga-
gerðina til að draga úr líkum á að komið verði
aftan að þeim eftir að búið er að ganga frá
öllum pappírum.
Ef frumkvöðlar eru ekki á varðbergi frá byrj-
un er mikil hætta á að réttur þeirra verði fyrir
borð borinn og að sanngirni og góðum siðum
verði kastað fyrir róða. Það breytir engu þótt
fagfjárfestarnir séu tilbúnir að koma fram í
hvaða gervi sem er til að ná fram vilja sínum,
jafnvel sem göfugir aðstoðarmenn frumkvöðla-
fyrirtækja sem vonast til að geta vaxið og
dafnað.
Höfundar eru frumkvöðlar og hluthafar.
SIGNÝ EIRÍKSDÓTTIR SIGYN EIRÍKSDÓTTIR
Faxafeni 12 (2. hæð), 108 Reykjavík
Opnunartímar
LAGERSALA
2.- 8.apríl
Fl
ís
pe
ys
ur
1.
50
0
-
Pollabuxur Pollajakkar
Bolir 2 fyrir
Fl
ís
pe
ys
ur
4.
00
0
-
Stuttbuxur
Regnkápur/jakkar
V
in
ds
ta
kk
ur
V
in
db
ux
ur
Ö
nd
un
ar
ja
kk
ar
0
-
Öndunarbuxur
Buxur