Fréttablaðið - 02.04.2009, Blaðsíða 29
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég hef unnið í Gyllta kettinum
í rúmt ár og á þeim tíma hefur
bæst töluvert í fataskápinn,“ segir
Viktoría Hermannsdóttir, háskóla-
nemi og afgreiðslustúlka, og held-
ur áfram: „Minn fatastíll er frekar
einfaldur, ég er mikið í svörtu, en
annars klæði ég mig svolítið eftir
veðri. Hversdags er ég í þægileg-
um fötum en klæði mig stundum
upp um helgar, eins og gengur og
gerist.“
Viktoría viðurkennir þó að með
hækkandi sól og blómum í haga
muni hún eflaust klæða sig meira í
liti. „Gaman er að blanda litum við
svörtu flíkurnar en í sumar verða
litir meira áberandi. Alls konar
kjólar í öllum litum eru vinsælir
og stór mynstur, til dæmis blóma-
mynstur, og bjartir litir. Síðan er
mikið af blúndum og gamaldags
rómantík í bland við fölbleikan og
pastelliti,“ segir hún áhugasöm en
nefnir að í raun sé margt í gangi
og ekkert bannað. „Ég er hrifin af
öllu gömlu og þykir fortíð og saga
heillandi. Í svona vintage-búð er
allt leyfilegt og hér má finna ein-
stakar flíkur sem oft eru vandaðri
en þær fjöldaframleiddu. Hingað
kemur fólk í fjársjóðsleit,“ segir
Viktoría, sem á forláta kjólasafn.
Kjóllinn sem Viktoría klæðist
á myndinni er úr Gyllta kettinum
en upphaflega var hann dragsíður
galakjóll. „Dísa, eigandi búðarinn-
ar, tók hann og stytti og beið hann
mín eitt sinn hér á lagernum og
fangaði þá augun. Síðan þá hefur
hann verið í miklu uppáhaldi hjá
mér, enda stórglæsilegur og þægi-
legur,“ segir hún og brosir. Kjóll-
inn er frá diskótímabilinu og seg-
ist Viktoría vera hrifin af þeim
tíma. „Ég vil hafa smá gleði í föt-
unum og er hrifin af glamúr. Þó
svo að fötin séu svört er hægt að
hafa skemmtileg smáatriði, pallí-
ettur og glimmer til að poppa upp
þennan gráa veruleika sem við
búum stundum við hér,“ útskýrir
Viktoría íbyggin.
hrefna@frettbladid.is
Innblástur úr fortíðinni
Viktoría Hermannsdóttir vinnur í fjársjóðskistu því meðfram námi við Háskóla Íslands sinnir hún af-
greiðslustörfum í Gyllta kettinum þar sem flíkur fortíðar öðlast framhaldslíf í meðförum nýrra eigenda.
Viktoría klæðist hér glæsilegum kvöldkjól frá diskótímabilinu en hann fékk hún í Gyllta kettinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
OPIÐ HÚS verður í versluninni Laura Ashley í kvöld frá klukk-
an 19 til 22. Full búð af gjafavöru og fatnaði og þrjátíu prósenta
afsláttur af öllum vörum. Allir eru velkomnir.
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti Húsgögn
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
verðhrun
mikið úrval af sófum og sófasettum
10-50% afsláttur
af völdum vörum
bfo.is
Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar ehf
SMIÐJUVEGI 22 (GRÆN GATA) · 200 KÓPAVOGI · SÍMI: 567 7360
bfo@bfo.is
BGS VOTTUÐ ÞJÓNU
STA
BGS
VOTTUÐ ÞJÓNUSTA
Þjónustuverkstæði fyrir
eftirtaldar bifreiðar
reynsla – þekking – góð þjónusta