Fréttablaðið - 02.04.2009, Page 55
FIMMTUDAGUR 2. apríl 2009 31
UMRÆÐAN
Arndís Soffía Sigurðar-
dóttir skrifar um sj úkra -
flutninga
Í kjölfarið á því að grein mín sem bar titilinn
Lifi Rangæingar? birtist á
fréttavef Suðurgluggans,
mbl.is og í Morgunblaðinu
og eftir að opið bréf Sveins Kr.
Rúnarssonar, yfirlögregluþjóns á
Hvolsvelli, til heilbrigðisráðherra
birtist í Dagskránni og Morgun-
blaðinu var birt umfjöllun um
sjúkraflutninga í Rangárvalla-
sýslu m.a. á vef Heilbrigðisstofn-
unar Suðurlands (hsu.is). Ekki
kemur fram hver ritar heldur er
vísað til þess að framkvæmda-
stjórn HSU vilji koma ákveðnum
atriðum á framfæri til að bregð-
ast við framkominni gagnrýni á
fyrirhugaðar breytingar á sjúkra-
flutningum í Rangárvallasýslu.
Þar kom fram að til þess að
tryggja sem mest gæði heilbrigðis-
þjónustunnar og sjúkraflutninga-
manna væri lögð áhersla á að sem
flestir sjúkraflutningamenn hafi
það að aðalstarfi og fái þar af
leiðandi sem mesta menntun og
þjálfun og verði öruggari í sínu
starfi. Í umfjölluninni á vef HSU
er talað um atvinnusjúkraflutn-
ingamenn í þessu samhengi. Þessi
umfjöllun vekur undrun mína í
fyrsta lagi vegna þess að ég hef
aldrei áður orðið vör við það að
sjúkraflutningamenn séu flokk-
aðir í atvinnusjúkraflutninga-
menn sérstaklega og ég velti
því fyrir mér hver hinn flokk-
urinn sé. Allir sjúkraflutninga-
menn í Rangárvallasýslu hafa
hlotið þá menntun sem sjúkra-
flutningamenn þurfa að búa yfir.
Í öðru lagi skiptir sú staðreynd
að sjúkraflutningamenn séu það
að aðalstarfi litlu máli þegar
þeir þurfa að sinna hjartastoppi
við Seljalandsfoss svo dæmi sé
tekið. Þeir verða að öllum lík-
indum ekki komnir á vettvang í
tæka tíð til að reynsla þeirra fái
að njóta sín. Í þriðja lagi hafa
komið fram staðfestar heimild-
ir fyrir því að af hálfu HSU hafi
verið leitað til björgunarsveita
á Hellu og Hvolsvelli til að veita
fyrstu hjálp á slysavettvangi þar
til sjúkrabílar koma á vettvang.
Þetta vekur ótal spurningar. Hvað
með atvinnumennskuna? Hver er
ábyrgð og staða björgunarsveit-
armanna ef eitthvað fer úrskeið-
is? Hvaða búnað munu björgunar-
sveitarmenn hafa? Hvaða þjálfun
munu þeir hljóta? Hver er þá hinn
raunverulegi sparnaður?
Í umfjöllun fram-
kvæmdastjórnar HSU
kom einnig fram að
öryggi þeirra íbúa sem
búa í Vestur-Rangárvalla-
sýslu myndi aukast eða
a.m.k. yrði það jafn gott
þar sem tímalend í útkalli
myndi ekki lengjast á því
svæði. Þá spyr maður sig
við hvað sé miðað þegar
vísað er til vesturhluta
sýslunnar. Sá þéttbýliskjarni
í Rangárvallasýslu sem telur
flesta íbúa, vestan við Hvolsvöll,
er Hella. Milli Hellu og Hvolsvall-
ar eru 13 km en milli Selfoss og
Hellu eru 36 km. Við þurfum aug-
ljóslega að vera staðsett 12 km
vestan við Hellu eða vestar til að
öryggi manna geti talist aukið eða
jafn gott. Það myndi vera á móts
við Áshól eða vestar. Austan við
Áshól búa hins vegar 95% íbúa
Rangárvallasýslu.
Á vef HSU er útlistað hver sé
fjöldi útkalla í Árnes- og Rangár-
vallasýslu eftir klukkan 16.00.
Komist er að þeirri niðurstöðu
að sjúkraflutningar í báðum sýsl-
unum til samans eftir dagvinnu-
tíma sé að meðaltali 1 flutningur
á sólarhring á bíl en miðað er við
2 sjúkrabíla. Það getur verið gott
og gilt að reikna út meðaltal en
hafa verður í huga að tilfelli slysa
og veikinda dreifast ekki með
svona jöfnum hætti yfir daga árs-
ins. Þetta sýnir glögglega að ekki
er um sérhagsmunamál Rang-
æinga að ræða heldur snertir
þetta líka alla Árnesinga því svo
virðist sem framkvæmdastjórn
HSU geri ekki ráð fyrir að fjölga
sjúkraflutningamönnum á vakt til
að mæta auknum útkallsfjölda. Í
þeim tilfellum sem sjúkrabíl-
ar á Selfossi eru uppteknir þarf
næsti sjúkrabíll að koma frá
höfuðborgarsvæðinu.
Framkvæmdastjórn HSU held-
ur því að lokum fram á vef sínum
að útgjöld stofnunarinnar lækki
um 14 milljónir króna á ársgrund-
velli með fyrirhuguðum breyting-
um. Ég og fleiri Sunnlendingar
myndum gjarnan vilja fá að sjá
nákvæma útlistun á því hvern-
ig HSU nær að spara þá upphæð
með umræddum breytingum.
Höfundur skipar 2. sæti á lista
VG í Suðurkjördæmi.
ARNDÍS SOFFÍA
SIGURÐARDÓTTIR
Vandi Rangæinga verður vandi Árnesinga
Hver er ábyrgð og staða björg-
unarsveitarmanna ef eitthvað
fer úrskeiðis? Hvaða búnað
munu björgunarsveitarmenn
hafa? Hvaða þjálfun munu
þeir hljóta? Hver er þá hinn
raunverulegi sparnaður?
Kaupaukinn* þinn þegar þú kaupir 2 Helena Rubinstein vörur
- Snyrtibudda
- Prodigy dagkrem 5 ml
- Prodigy næturkrem 5 ml
- Life Ritual Peeling gel-lotion 50 ml
- Kinnalita / púðurbursti
- Augnskuggabursti
- Varapensill með loki
Verðmæti kaupaukans 15.500 krónur
Einnig aðrar gerðir kaupauka.
HR DAGAR Í DEBENHAMS 2. TIL 8. MARS
KATTARAUGU
ÁHRIFARÍKT AUGNARÁÐ
FELINE BEAUTY
VORLITIR 2009
- Lash Queen Feline Blacks maskari
- Tvöfaldir Wanted augnskuggar Feline blacks
- Augnblýantar Feline blacks
www.helenarubinstein.com
*
G
ild
ir
á
ky
nn
in
gu
m
eð
an
b
irg
ði
r e
nd
as
t.
G
ild
ir
ek
ki
m
eð
2
b
lý
ön
tu
m
. E
in
n
ka
up
au
ki
á
v
ið
sk
ip
ta
vi
n.
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Auglýsingasími
Arndís Sig