Fréttablaðið - 02.04.2009, Page 56
32 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Guðmundur Ólafur
Finnbjörnsson
Bugðulæk 18, Reykjavík,
sem andaðist laugardaginn 28. mars, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 7. apríl kl. 13.00.
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir Haukur Garðarsson
Laufey Guðmundsdóttir Gylfi Georgsson
Sigríður Guðmundsdóttir Brynjólfur N. Jónsson
Helga Guðmundsdóttir Sigurður Einar Einarsson
afabörn og langafabarn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Hörður Eiríksson,
fyrrverandi flugvélstjóri,
Blönduhlíð 10, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild LHS þriðjudaginn 31. mars.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Helga Steffensen
Björn S. Harðarson
Helga Sigríður Harðardóttir
Steffensen Guðmundur E. Jónsson
Valdimar Harðarson Steffensen Guðrún Ægisdóttir
Baldur Þ. Harðarson Birna E. Björnsdóttir
Eiríkur B. Harðarson
og barnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Guðjón Jóhannesson
bifvélavirki, Sóleyjarrima 7,
áður Bogahlíð 14,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Eir þann 27. mars,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn
3. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkað, en þeim sem vildu minnast hans er bent á
Hjúkrunarheimilið Eir.
Jörgen Pétur Lange Guðjónsson Ásta Steinsdóttir
Guðrún Erla Guðjónsdóttir Emil Örn Kristjánsson
Ásta Björg Guðjónsdóttir Sigurður Björn Reynisson
Jóhanna Helga Guðjónsdóttir Ragnar Marinó
Kristjánsson
barnabörn og langafabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Helga Björg Ólafsdóttir
frá Kvíum, Böðvarsgötu 2, Borgarnesi,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Akraness 23. mars sl., verður
jarðsungin frá Borgarneskirkju laugardaginn 4. apríl
kl. 14.00.
Þorgeir Ólafsson
Ólafur Þorgeirsson Auður Ásta Þorsteinsdóttir
Sigrún Björg Þorgeirsdóttir Birna Gunnarsdóttir
Þóra Þorgeirsdóttir Hilmar Sigurðsson
Gretar Þorgeirsson Sigrún Arna Hafsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku faðir okkar, sonur, bróðir, mágur,
frændi og vinur,
Konráð Þór Snorrason
Holtagerði 22,
lést 30. mars á Líknardeild Landspítalans.
Útför hans verður gerð frá Langholtskirkju mánudag-
inn 6. apríl kl. 15.00.
Snorri Sævar Konráðsson Katrín Magdalena
Konráðsdóttir
Snorri S. Konráðsson Soffía H. Bjarnleifsdóttir
Kolbrún Björk Snorradóttir Ellert Jónsson
Snorri Birkir Snorrason
Eyþór Ellertsson
Bjarki Ellertsson
Svanhildur Ásta Haig Gunnarsdóttir
og aðrir vandamenn.
Okkar elskulegi faðir, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Hákon Þorsteinsson
Lindargötu 57, Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum Landakoti deild K2
fimmtudaginn 26. mars. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 3. apríl kl. 13.00. Blóm
og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Umhyggju, Félag lang-
veikra barna, s. 552 4242.
Guðrún R. Ingibergsdóttir Baldvin Einarsson
Sigþór Hákonarson Lilja Bragadóttir
Hákon Hákonarson Kristín Kristjánsdóttir
Margrét Hákonardóttir Eyjólfur Jóhannsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Eggert Ísaksson
Arnarhrauni 39, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn
30. mars. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mið-
vikudaginn 8. apríl kl. 15.00.
Ellert Eggertsson Júlíana Guðmundsdóttir
Erla María Eggertsdóttir Steindór Guðjónsson
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir Eyjólfur Þ. Haraldsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Margrét Halldóra
Hallgrímsdóttir
Ásgarði 139, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 25. mars.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
3. apríl kl. 13.00.
Hallgrímur Ingvaldsson Kristbjörg Gunnarsdóttir
Hans Jón Björnsson Lykke Björnsson
Emil Sæmar Björnsson Alda Snæbjörnsdóttir
María Ingunn Björnsdóttir Frans Jensen
Björn Elías Björnsson
Sveinn Lúðvík Björnsson Margrét S. Pétursdóttir
Jón Hafberg Björnsson Valgerður Björnsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Föstudaginn 27. mars síðastliðinn útskrifuðust 65 nemend-
ur með diplómagráðu frá Prisma, sem er nýtt þverfaglegt
diplómanám sem Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Bif-
röst hafa skipulagt í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna.
Anna Margrét Sigurðardóttir er ein þeirra sem útskrifuð-
ust og telur hún námið hafa breytt lífi sínu.
„Þetta er í fyrsta sinn sem nemendur útskrifast úr Prisma
og held ég að við höfum í raun verið eins konar tilraunadýr,“
segir Anna Margrét og hlær. „Námið er sextán ECTS-eining-
ar á háskólastigi og byggir á skapandi og gagnrýnni hugsun.
Námið er til þess gert að fá mann til að hugsa út fyrir kass-
ann. Í raun er verið að fá okkur til að sýna hugrekki og fara
út fyrir okkar þægindasvæði,“ segir hún.
Burðarfögin í Prisma eru heimspeki og fræðigreinar lista
en fjölmörg fög fléttast inn í kennsluna. „Þarna leiða saman
hesta sína listaháskóli og viðskiptaháskóli þannig að námið
tengist listum, stjórnun, markaðsfræði og félagsvísindum.
Í náminu eru fastir kennarar en auk þeirra koma margir
fyrirlesarar sem segja okkur sínar árangurssögur og gefa
góð ráð. Þannig áttar maður sig smám saman á því að í raun
geti maður ýmislegt sjálfur án mikillar fyrirhafnar,“ segir
Anna Margrét áhugasöm.
Prisma-nemar eru með fjölbreyttan bakgrunn og að sögn
Önnu Margrétar hefur stór hluti þeirra lent í að missa vinn-
una. „Námið gengur allt út á hópavinnu í verkefnum og allir
koma jafnir að borðinu. Smám saman skýrist hvaða bak-
grunn hver og einn hefur og kemur það oft skemmtilega á
óvart og myndast gott tengslanet. Þarna blandast því alls
konar þekking á jafningjagrundvelli. Ég er grafískur hönn-
uður og var níu ár í bransanum á mjög stórri stofu í hring-
iðu alls sem því fylgir. Þegar ég hætti þar þurfti ég í raun að
hugsa mín gildi upp á nýtt,“ útskýrir hún einlæg og nefnir
að tíðarandinn hafi þar haft sín áhrif.
Anna Margrét er sannfærð um að Prisma-námið hvetji til
nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi. „Fyrst um sinn verð-
ur maður ringlaður enda margt að taka inn. Námið er þó
tilvalið til að hrista upp í manni og víst er að ég verð ekki
söm aftur. Námið hefur gefið mér byr undir báða vængi og
hvatningu til að fylgja minni sannfæringu og trúa á mínar
hugmyndir,“ segir hún ánægð. hrefna@frettabladid.is
ANNA MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR:
NÝÚTSKRIFUÐ ÚR PRISMA-DIPLÓMANÁMI
Opnar víddir
ÖÐLAÐIST HUGREKKI Anna Margrét segir Prisma-námið hafa veitt sér
hugrekki og kraft til að fylgja hugmyndum eftir. Opnað hefur verið á
ný fyrir skráningu í Prisma vegna mikillar eftirspurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
AFMÆLI
SIGURÐUR
H. RICHTER
fyrrverandi
sjónvarps-
maður og
dýrafræð-
ingur er 66
ára.
TORFI
JÓNSSON
kennari og
myndlistar-
maður er
74 ára.
SVAVAR HRAFN SVAVARSSON,
DÓSENT Í HEIMSPEKI VIÐ HÁSKÓLA
ÍSLANDS, ER 44 ÁRA.
„Skírnir er nú orðinn að glans-
tímariti. Kápan sem hingað til
hefur verið úr möttum pappír
er nú með glanshúð.“
Svavar Hrafn er heimspekingur
og fornfræðingur. Hann stund-
aði framhaldsnám í fornaldar-
heimspeki við Harvard-háskóla
í Cambridge í Massachusetts og
lauk doktorsgráðu frá Harvard í
heimspeki og klassískum fræð-
um árið 1998.
Á þessum degi fyrir
sjötíu og níu árum
var Haile Selassie
lýstur keisari
Eþíópíu. Hann var
ríkisstjóri Eþíópíu
frá árinu 1916 til
ársins 1930 og Eþ-
íópíukeisari frá árinu
1930 til ársins 1974.
Hann átti þátt í að
nútímavæða land-
ið og var gríðar-
lega vinsæll leiðtogi,
bæði heima fyrir og á alþjóðavettvangi.
Selassie var í eþíópísku rétttrúnaðarkirkjunni en innan rasta-
farahreyfingarinnar, sem stofnuð var á Jamaíku snemma á fjórða
áratugnum, er hann talinn Kristur endurfæddur.
ÞETTA GERÐIST: 2. APRÍL 1930
Haile Selassie keisari