Fréttablaðið - 02.04.2009, Page 60
36 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Annað kvöld verður ný íslensk
ópera frumsýnd í Gamla bíói. Það
er Tónlistarskólinn í Reykjavík í
samvinnu við Íslensku óperuna
sem stendur að sýningunni en nýja
verkið byggir á hinni kunnu þjóð-
sögu um Gilitrutt og er eftir Þór-
unni Guðmundsdóttur. Með henni
er á efnisskránni stutt gamanóp-
era eftir Rossetti sem er frum-
flutt hér á landi: La cambiale di
matrimonio, sem var fyrsta verk
fyrir svið sem hann samdi, átján
ára gamall.
Leikstjórnin er í höndum Þór-
unnar Guðmundsdóttur og hljóm-
sveitarstjóri er Kjartan Óskarsson.
Hljómsveitin er skipuð tæplega 20
nemendum úr Tónlistarskólanum í
Reykjavík. Sýningar verða aðeins
tvær, föstudagskvöld og laugar-
dagskvöld kl. 20.00.
La cambiale di matrimonio
eða Hjúskaparsamningurinn
var samin af Gioachino Ross-
ini (1792 –1868) á örfáum dögum
árið 1810. Þetta er gamanópera í
einum þætti, en þetta æskuverk
sýnir strax það sem koma skal
hjá Rossini. Hann hafði afar gott
vald á gamansömum hliðum óper-
unnar og hafði mikil áhrif á þróun
óperunnar á Ítalíu á 19. öldinni.
Rossini var snillingur í að byggja
upp tónlistarlega spennu og fékk
viðurnefnið „Signor Crescendo“
vegna þess. Óperan er sungin á
ítölsku en verður flutt í töluðu
máli á íslensku.
Gilitrutt er gamanópera í einum
þætti. Hún var samin á þessu ári,
gagngert til að vera félagi Hjóna-
bandssamningsins í þessari
uppfærslu.
Þetta er önnur óperan sem Þór-
unn Guðmundsdóttir semur fyrir
Tónlistarskólann í Reykjavík, en
hin var Mærþöll sem sett var upp
árið 2006.
Gilitrutt er byggð á hinu vel
þekkta íslenska ævintýri um hús-
freyjuna lötu sem freistast til þess
að ganga til samninga við ókunna
konu, sem reynist illu heilli vera
tröllskessa. Bóndinn er afar ósátt-
ur við vinnufælni konu sinnar,
en það er samt hann sem bjarg-
ar henni að lokum. Húsfreyja sér
að sér og upp frá þessu er mesta
ánægja hennar fólgin í því að
vinna. Hlutverkin eru því þrjú,
auk þess sem kór gegnir veiga-
miklu hlutverki sögumanns. Gili-
trutt er sýning fyrir alla fjölskyld-
una, bæði börn og fullorðna.
Þórunn semur bæði libretto og
tónlist, en hún hefur getið sér gott
orð sem höfundur leikrita og söng-
leikja sem sett hafa verið upp af
leikfélaginu Hugleik.
pbb@frettabladid.is
Ný gamanópera frumsýnd
TÓNLIST Þórunn Guðmundsdóttir óperuhöfundur og leikskáld, leikstjóri og söng-
kona. MYND FRETTABLADID/HEIÐA
> Ekki missa af
Halla Helgadóttir grafískur
hönnuður og framkvæmda-
stjóri Hönnunarmiðstöðvar
Íslands heldur fyrirlestur í
Ketilhúsinu á Akureyri í dag
kl. 14.50. Fyrirlesturinn mun
fjalla um óvissuferðina sem
vinna hönnuðarins er og
hverju hönnun og hugvit getur
áorkað. Halla mun tala um
starf sitt sem hönnuður og
nýstofnaða Hönnunarmiðstöð
Íslands sem hún stýrir.
Þegar kvikmyndafyrirtæki
sækja út á land í tökur
eru hæg heimatökin að
leita til áhugamanna-
félaganna á svæðinu.
Skagafjörður státar af
elsta leikfélagi lands-
ins á Króknum. Tvær
kvikmyndir í fullri lengd
verða að hluta teknar
upp nyrðra á þessu
vori. Kvikmyndafélagið
Pegasus hefur verið á
Sauðárkróki síðustu daga við æfingar og undirbún-
ing vegna kvikmyndarinnar Roklands, sem byggir
á samnefndri skáldsögu Hallgríms Helgasonar.
Leikfélag Sauðárkróks hefur verið framleiðendum
myndarinnar innan handar og lagt til leikara í ýmis
aukahlutverk.
Það var éljagangur og norðangarri sem mætti
leikurum og kvikmyndafólki á Nöfum ofan við
Krókinn um hádegisbil á
mánudag þegar fram fóru
æfingar vegna jarðarfarar
móður aðalsögupersónunn-
ar Bödda, sem Ólafur Darri
leikur. Leikfélag Sauðár-
króks, sem heldur upp á
120 ára afmæli sitt í ár,
útvegaði til jarðarfararinnar
allnokkurn fjölda eldri leik-
ara. Nokkrir þeirra leikara
sem þar voru eiga að baki
áratuga leikferil með LS,
en hafa lítið leikið síðustu misserin. Þeir stíga nú
aftur á svið eftir alllangt hlé, en auk þess að leika
í Roklandi munu nokkur þeirra leika í afmælis-
leikriti LS Frá okkar fyrstu kynnum – 120 ár í sögu
leikfélags. Það er Jón Ormar Ormsson sem leikstýrir
leikritinu, sem verður frumsýnt á Sæluviku 26. apríl
næstkomandi. Og í júní verða atriði úr nýrri mynd
Friðriks Þórs, Mömmu Gógó tekin í Skagafirðinum.
Leikfélag Sauðárkróks í kvikmyndum
Miðasala hófst á þrítugustu
og níundu Listahátíð í
Reykjavík í gær. Þá kynntu
forráðakonur hátíðarinnar
dagskrána í heild sinni en
áður hafa birst nokkrar
fréttir af atburðum á há-
tíðinni; tónleikum Deboruh
Voight sem nú er uppselt á
og Húslestra og Stofutón-
leikaröðum, viðburðum sem
fara fram í heimahúsum.
Hrefna Haraldsdóttir, listrænn
stjórnandi Listahátíðar í Reykja-
vík, og Jóhann Vigdís Guðmunds-
dóttir framkvæmdastjóri tóku
báðar við störfum sínum í þann
mund sem kreppti að. Þær hafa því
haft minna úr að moða og því eins
og Hrefna kallaði það, snúið inn á
við. Þrátt fyrir þrengri stakk er
dagskrá hátíðarinnar ótrúlega viða-
mikil: tvær óperur verða frumflutt-
ar, athyglisverð og öðruvísi atriði
verða í boði fyrir unga áhorfendur:
Hjaltalín í sparifötum, Tiger Lillies
og Lhasa del Sela: myndlistarvið-
burðir verða tólf að tölu og standa
margir fram eftir sumri. Sinfónían,
Kammersveitin og Stórsveit Reykja-
víkur skila sínu framlagi með glæsi-
lega og spennandi stjórnendur yfir
nýjum efnisskrám. Og er þá ekki
allt talið: nauðsynlegt er að skanna
dagskrána í heild á vef á www.lista-
hatið.is en þar er nú opið fyrir miða-
kaup á alla viðburði hátíðarinnar
sem stendur frá 15.-31. maí.
Eins og var afráðið fyrir löngu
verða á hátíðinni gestir sem leggja
út á strætin: Götuleikhúsið For-
boðnir ávextir kemur frá Ástralíu
og mun spranga um götur borgar-
innar opnunarhelgina 15. og 16. maí.
Fimm hjólhýsi í kvennalíki verða á
ferð um borgina og myndlistarsýn-
ing verður í fjórum vitum, hverjum
í sínu landshorni.
Óperurnar tvær sem fluttar
verða á Listahátíð eru Í óðamans-
garði eftir Sunleif Rasmussen og
byggir á sögu Heinesen, Fjand-
inn hleypur í Gamalíel eins og hún
nefnist í þýðingu Þorgeirs Þorgeir-
sonar. Sviðsetningin er samstarfs-
verkefni Þjóðleikhúsa Íslands og
Færeyja, en meðal söngvara sem
þar koma fram eru Eyjólfur Eyj-
ólfsson, Þóra Einarsdóttir og Bjarni
Thor Kristinsson. Hin óperan er
líka byggð á bókmenntaverki, Heli
eftir Sigurð Nordal, en höfund-
ur hennar er Sigurður Sævarsson.
Caput leikur undir en söngvarar eru
þau Ágúst Ólafsson, Jóhann Smári
Sævarsson og Hulda Björk Garð-
arsdóttir. Hr. Níels setur verkið
upp í Íslensku óperunni. Þá verður
í Landnámssetri í Borgarnesi flutt
verkið Vöpuspál. Höfundar og flytj-
endur eru Sten Sandell og Sverrir
Guðjónsson.
Einsleikstónleikar Listahátíð-
ar verða að teljast einn hápunkta
hennar en þann 17. maí verður Vík-
ingur Heiðar Ólafsson með tón-
leika í Háskólabíó þar sem hann
flytur umskriftir sínar á þekktum
íslenskum lögum í bland við verk
meistaranna.
Auk Reykjavíkurborgar og
Menntamálaráðuneytis sem eru
helstu styrktaraðilar Listahá-
tíðar í Reykjavík hafa fyrirtæk-
in Iceland Express, Radisson SAS
og Samskip lagt henni lið sem
aðalsamstarfsaðilar. Veggspjald
hátíðarinnar í ár er hannað af Katr-
ínu Ólínu Pétursdóttur. Nánari grein
verður gerð fyrir einstaka dag-
skrárliðum á hátíðinni hér í blaðinu
á næstu dögum. pbb@frettabladid.is
Listahátíð kynnt
TÓNLIST Víkingur Heiðar er með
einleikstónleika á Listahátíð í Reykjavík
sem stendur í tvær vikur og hefst 15.
maí.
Ólafur Davíðsson, sendiherra,
og Anna Hildur Hildibrands-
dóttir, framkvæmdastjóri Útón,
opnuðu formlega tónleikaröðina
Norðrið í Admiralspalast í Berlín
10. mars síðastliðinn. Kom það í
hlut tónlistarmannsins Lay Low
að koma fram á þessum fyrstu
tónleikum Norðursins og kom
hún einnig fram kvöldið eftir á
tónleikum í Köln.
Norðrið er heitið á tónleika-
röð sem Útón hefur skipulagt í
Þýskalandi nú á árinu
2009 með það fyrir
augum að styðja við
sókn íslenskra tón-
listarmanna inn á
þýskan tónlistar-
markað og nýta
þau tækifæri og þann áhuga
sem til staðar er í Þýskalandi.
Með þessu er enn frekar byggt
á því sem þegar hefur áunnist
með þátttöku íslenskra tónlist-
armanna á Popkomm kaupstefn-
unni sem haldin er árlega í Berlín
og er ein af stærri tónlistar kaup-
stefnum í Evrópu.
Útón hefur þegar auglýst eftir
listamönnum sem áhuga hafa á
að koma fram innan verkefnis-
ins og eru listamennirnir valdir
í samvinnu við tónleikahaldara
og samstarfsaðila í Þýskalandi.
Næstu tónleikar verða í apríl og
verður hljómsveitin Mammút
kynnt í það skiptið. Verkefnið
er unnið með stuðningi Iceland
Express, Admiralspalast,
Útflutningsráðs, Visit Reykja-
vik, menntamála ráðuneytis,
utanríkisráðuneytis, sendiráðs
Íslands í Berlín og verkefnisins
Sagenhaftes Island. - pbb
Innrás í Þýskaland
TÓNLIST Lay Low
hóf íslenska tón-
leikaröð í Berlín
um miðjan mars.
kl. 20
Í fyrirlestri sínum í Listasafni
Reykjavíkur – Hafnarhúsi í kvöld
skoðar Dr. Haukur Jónasson hvernig
við skynjum umhverfi okkar og sýnir
fram á hvernig ímyndunaraflið vinn-
ur á mörkum þess innra og ytra.
Hann ræðir um mótsstað listamanns-
ins, listarinnar og þess sem skynjar
og setur listina í samhengi við ímynd-
unarveiki og mannlegt heilbrigði.
Fyrirlesturinn byggir Haukur Ingi á
doktorsritgerð sinni frá árinu 2005.