Fréttablaðið - 02.04.2009, Side 62
2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 2. apríl 2009
➜ Tónleikar
12.00 Þóra Einars-
dóttir sópran og
Antonía Heversi
píanóleikari verða
með hádegistónleika
í Hafnarborg við
Strandgötu í Hafnar-
firði. Á efnisskránni
verða aríur eftir Moz-
art. Aðgangur ókeypis.
21.00 Kvintett Þorvaldar Þórs Þorvalds-
sonar spilar á tónleikum sem Djass-
klúbburinn Múlinn stendur fyrir í kjall-
ara Café Cultura við Hverfisgötu 18.
21.00 Tónlistarmennirnir Magnús
Skarphéðinsson og Mikael Lind verða
með tónleika á Kaffibarnum við Berg-
staðastræti 1 þar sem þeir munu flytja
raftónlist. Aðgangur er ókeypis.
21.00 Stefán Hilmarsson og Eyjólfur
Kristjánsson spila á Café Mörk við
Skólabraut á Akranesi. Á efnisskránni
verða lög eftir þá félaga í bland við
annað efni.
21.00 Trommutónleikarnir „Reykjavík
Heartbeat“ verða á Sódómu Reykjavík
við Tryggvagötu 22. Fram koma Gulli
Falk, Gísli Brynjar, Sigtryggur Baldursson,
Kristján Heiðarsson, hljómsveitin Dark
Havest o.fl. Húsið opnað kl. 20.
22.00 Hljómsveitin Leo verður á veit-
ingastaðnum Classic Rock við Ármúla
5 þar sem hún mun leika öll helstu lög
Deep Purple. Aðgangur er ókeypis.
➜ Fyrirlestrar
13.20 Hr. Katsuhiro Natsume flytur
erindi um samskipti Íslands og Japans
í Árnagarði við Sturlugötu, stofu 201.
Fyrirlesturinn er hluti af námskeiði í
japönsku í HÍ.
20.00 Dr. Haukur Ingi Jónasson flytur
erindið „Um innri og ytri skynjun“ í
Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
➜ Sýningar
Hildur Soffía Vignisdóttir hefur opnað
sýningu í Sýningarsalnum Hurðir við
Laugaveg 170. Sýningin er opin alla
virka daga frá 9-17.
Sævar Karl Ólason hefur opnað sýn-
ingu á rúmlega 40 akrýlmyndum á
Mokka við Skólavörðustíg 3a. Opið alla
daga kl. 9-18.30.
➜ Söngleikir
19.00 KFUM og KFUK sýna Rokk-
óperuna „Hero“ í Loftkastalanum við
Seljaveg.
➜ Hönnun og tíska
Norræni tískutvíæringurinn í Norræna
húsinu við Sturlugötu 19.3-5.4. Aðgang-
ur er ókeypis og allir velkomnir. Nánari
upplýsingar á www.nordice.is
16.00 Hljómsveitin Skakkamanage
spilar.
➜ Pub quiz
21.00 Pub Quiz
verður haldið á
Dillon Sportbar
við Trönuhraun
10 í Hafnarfirði.
Upplýsingar um viðburði
sendist á hvar@frettabladid.is.
Völlurinn, sýning Byggðasafns
Reykjanesbæjar, var í gær opnað-
ur að viðstöddu margmenni í Gryfj-
unni, Duushúsum í Reykjanesbæ.
Sýningin fjallar um starfsemi
bandarísku herstöðvarinnar og
þau áhrif sem hún hafði sem vinnu-
staður og nágranni á byggðarlögin
í kring. Sýningin er liður í viðleitni
safnsins til að varðveita og sinna
þessari sérstöku sögu og er upphaf
að stóru verkefni. Saga vallarins
er nú orðinn afmarkaður og liðinn
hluti af Íslandssögunni. Völlurinn
var festur á filmu á meðan þar var
allt iðandi af amerísku þjóðlífi og
líka eftir að fólkið var allt horfið
á braut. Um hann hafa verið gerð-
ar heimildarmyndir og hlutur hans
í íslenskri samfélagsgerð um nær
hálfrar aldar skeið verður seint
útskýrður til fulls.
Við opnunina fluttu erindi for-
stöðumaður Byggðasafnsins,
Sigrún Ásta Jónsdóttir, og Árni
Sigfússon bæjarstjóri og lék létt-
sveit Tónlistarskóla Reykjanesbæj-
ar ameríska músík íklædd banda-
rískum herbúningi.
Í hugum flestra Íslendinga var
Keflavíkurflugvöllur fyrst og
fremst pólitískt bitbein. Fyrir Suður-
nesjamenn var hann stór vinnuveit-
andi og nágranni innan girðingar.
Völlurinn var ekki aðeins herstöð,
heldur heilt byggðarlag með skól-
um, kirkju, sjúkrahúsi, verslunum,
kvikmyndahúsi, skemmtistöðum,
útvarpi, sjónvarpi, blaðaútgáfu og
öðrum fylgifiskum daglegs lífs,
verkstæðum og vinnustöðum. Allt
var þar með öðrum brag, hvort
heldur það var rafmagn, bygging-
ar, húsbúnaður eða gjaldmiðill, þar
var allt upp á ameríska vísu.
Sýningin er opin virka daga frá
11-17 og frá 13- 17 um helgar. - pbb
Sýning um Völlinn
MENNING Frá sýningaropnun í Byggða-
safni Reykjanesbæjar.
Ballettinn Salka Valka eftir
Auði Bjarnadóttur fékk mikið
lof gagnrýnenda þegar verkið
var sýnt á alþjóðlegu danshátíð-
inni Tanzwelten í Braunschweig
í Þýskalandi hinn 8. mars síð-
astliðinn. Í dómi dansmiðilsins
Tanznetz segir Jochen Schmidt,
einn virtasti dansgagnrýnandi
þar í landi, meðal annars:
„Auður Bjarnadóttir, sem hlaut
menntun sína í Reykjavík og
dansaði síðan meðal annars í
München, Basel og Stokkhólmi
á sínum alþjóðlega dansferli,
hún kann að semja dans. Hún
býður dönsurum sínum, konum
og körlum, upp á tjáningarrík-
ar hreyfingar, þar sem áhersla
er lögð á sterka túlkun til-
finninga og andlegrar líðanar.
Maður horfir á þegar Lára
Stefánsdóttir, Unnur Elísa-
bet Gunnarsdóttir og Pontus
Pettersson vefjast hvert um
annað – og það er meira en
hægt er að segja um mörg
önnur verk og aðra dansara.
Þannig bjargaði Ísland, alveg
óvænt, upphafi hátíðarinnar
Tanzwelten, sem nú er haldin í
annað sinn í Braunschweig.“
Salka Valka
NÝJAR BÆKUR
Út er komin bókin Saga fatagerðar og fatahönnunar á Íslandi frá
lokum 19. aldar til byrjunar 21. aldar
eftir Ásdísi Jóels-
dóttur. Bókin er
byggð á meist-
araritgerð henn-
ar í mennta- og
menningarstjórn-
un frá Háskól-
anum á Bifröst.
Innihaldið er
mjög yfirgrips-
mikið og nýtist
vel sem fræðirit, kennslubók og sem
almennur fróðleikur auk þess að vera
hentug sem gjafabók. Í stórum drátt-
um er fjallað um fatagerð sem heimil-
isiðnað, upphaf fataframleiðslu og
fataverksmiðjur SÍS á Akureyri og Ála-
fossi. Einnig er fjallað um kreppuna á
4. áratugnum, seinni heimsstyrjöldina
og inngönguna í EFTA og áhrif þeirra
á iðnframleiðslu og útflutning á fatn-
aði. Farið er inn á þróun menntunar
á sviði fatagerðar og fatahönnunar,
heimilis- og listiðnað, tískusýningar,
kaupstefnur o.fl. Að lokum er skoðuð
staða fatahönnunar á síðustu árum
og safngildi greinarinnar. Bókin er
246 blaðsíður, ríkulega myndskreytt í
lit og fæst í verslunum Eymundsson.
Höfundur gefur sjálfur út bókina.
Miðasala í síma 555 2222 og á
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Hart í bak
Þrettándakvöld
Sædýrasafnið
Skoppa og Skrítla í söng-leik
Eterinn
Kardemommubærinn
Apríl er spennandi
í Borgarleikhúsinu
Nú styttist í að við ljúkum sýningum á nokkrum öndvegis
leikverkum. Enn er þó hægt að tryggja sér miða á þær
sýningar sem kveðja í apríl.
Skelltur þér á sýningu í apríl og vertu viðbúinn í maí!
Tryggðu þér miða strax
í síma 568 8000 og á borgarleikhus.is
EL CORR
dóttir
G
Milljarðamærin snýr aftur
Leikhúsveisla í leikstjórn
Kjartans Ragnarssonar.
Fló á skinni
– Vinsælasta sýning leikársins,
yfir 140 uppseldar sýningar að baki
Þú ert hér
Rómuð sýning, rifin beint
úr íslenskum veruleika.
Söngvaseiður
Söngleikurinn sem allur
heimurinn elskar.
Allt að seljast upp!
Ökutímar
Magnað verðlaunaverk.
Forsala hefst 14. apríl.
Djúpið
Einleikur eftir Jón Atla Jónasson
leikinn af Ingvari E. Sigurðssyni.
Nýjar sýningar í maí:
Sýningum lýkur í apríl
Frumsýning
8. maí
Frumsýning
2. maí
Frumsýning
30. maí
Einleikir á litla sviðinu
Ég heiti Rachel Corrie
Óskar og bleikklædda konan
Sannleikurinn