Fréttablaðið - 02.04.2009, Síða 68
44 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> ÓVÆNT ENDURKOMA
Hljómsveitin Destiny‘s Child verður
endurvakin til að gefa út eina plötu,
að því er fjölmiðlar vestanhafs
greina frá. Þær stöllur Beyoncé
Knowles, Kelly Rowland og
Michelle Williams leystu
upp bandið árið 2005,
aðdáendum til mikillar
mæðu. Slúðurbloggarinn
Perez Hilton heldur því fram
að sveitin skuldi útgáfufyrirtæki
sínu eina plötu og því sé von á
endurkomu innan tíðar.
„Nei, þeir voru ekki marg-
ir sem bitu á agnið, það komu
kannski fimm og annar eins
fjöldi spurðist fyrir um
þetta í gegnum síma,“
segir Gísli Einarsson,
eigandi myndasögu-
verslunarinnar Nexus.
Verslunin var í aðalhlut-
verki í aprílgabbi Fréttablaðs-
ins í gær en þar var greint frá
því að til stæði að taka upp
hópsenu fyrir kvikmyndina
Iron Man 2 sem skartar Robert
Downey Jr. í aðalhlutverki.
Hópsenan átti að vera tekin
upp við rætur Svínafellsjökuls,
á svipuðum slóðum og Batman
Begins og var auglýst eftir
hundrað statistum. Enginn
hafði greinilega brennandi
áhuga á að leika í kvikmynd
með Downey, Mickey Rourke
og Scarlett Johansson.
Gísli segir ástæðuna kannski
vera þá að þjóðin er farin að
vera á varðbergi gagnvart
aprílgöbbum fjölmiðlanna. Og
menn setji varúðarnagla á nán-
ast allar fréttir á þessum degi.
En hrekkjalómar létu gamminn
geisa á síðum blaðanna í gær.
Morgunblaðið greindi frá því
að selja ætti muni gömlu bank-
anna og DV sagði frá áheyrn-
arprufum fyrir myndband
sem stúlknasveitin Girls Aloud
ætlaði að taka upp í nýopnuð-
um Officera-klúbbi Einars
Bárðarsonar. - fgg
Fáir létu glepjast af aprílgabbi
ENGAR BIÐRAÐIR Fleiri höfðu áhuga á að taka þátt í áheyrnaprufum fyrir
Astrópíu en Iron Man 2 enda reyndist síðarnefnda myndin aprílgabb.
Hljómsveitin Buff er þessa
dagana að taka upp nýjan
sumarsmell sem nefnist
Prinsessan. Höfundur lags
og texta er Dr. Gunni.
„Gunni lét okkur fá lagið og bar
undir okkur fyrir löngu síðan. Við
vorum hrifnir af því strax,“ segir
Hannes Friðbjarnarson. trommari
í Buff um nýtt sumarlag sveitar-
innar.
Til stóð að hafa lagið á síðustu
plötu Buffsins sem kom út fyrir
jól en af því að svo mörg lög voru
farin í spilun af henni ákváðu þeir
að bíða aðeins með það. Lagið
kemur líklega út um páskana.
„Þetta er mjög hressandi slagari.
Það er kannski ekki við öðru að
búast af Gunna, hann semur ekki
mikið af ballöðum. Okkur fannst
virðingarvert að hann skyldi vilja
að við tækjum lag fyrir sig,“ segir
Hannes.
Fram undan hjá Buffinu er spila-
mennska í Vestmannaeyjum og á
Sauðárkróki um páskahelgina en
um síðustu helgi spilaði sveitin á
árshátíð Íslandsbanka í Vodafone-
höllinni. Skemmst er að minnast
þess er sveitin spilaði á árshátíð
Seðlabankans þegar bankinn var
hvað mest í umræðunni. „Það voru
næstum því þúsund manns. Þetta
var eins og hver önnur árshátíð,
bara allir í stuði,“ segir Hannes.
Auk Prinsessunnar eru fleiri
lög væntanleg með Buffinu síðar
á árinu. Ný plata er þó ekki vænt-
anleg fyrr en á næsta ári.
freyr@frettabladid.is
PRINSESSAN NÝR
SUMARSMELLUR
NÝR SMELLUR Í FÆÐINGU Buffið við upptökur á nýja laginu Prinsessunni í hljóðveri
sínu í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
H
R
EY
FI
N
G
•
K
R
A
FT
U
R
•
Á
N
Æ
G
JA
AFMÆLISTILBOÐ
TAKMARKAÐ MAGN!
Mikið af góðum
afmælistilboðum
ALPARNIR
Íslensku
Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • Sími 534 2727 • e-mail: alparnir@alparnir.is • www.alparnir.is
VI
Ð ER
UM5ÁRA
• GÖNGUSKÓR
Cook og Colorado
• GÖNGUSKÍÐI
• GÖNGUSKÍÐASKÓR
TILBOÐ 4995 kr.
50% afsl.
50%
afsláttur af
skíða- og
snjóbrettafatnaði
HREYFING • KRAFTUR • ÁNÆGJA