Fréttablaðið - 02.04.2009, Síða 72
48 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
HAUKAR-KR 69-64
Stig Hauka: Slavica Dimovska 27 (8
frák.), Moneka Knight 15 (8 stoðs.),
Kristrún Sigurjónsdóttir 11, Ragna
Margrét Brynjarsdóttir 6 (9 frák., 6
varin), Guðbjörg Sverrisdóttir 4, Telma
Fjalarsdóttir 4 , Sara Pálmadóttir 2
Stig KR: Margrét Kara Sturludóttir 18,
Hildur Sigurðardóttir 16 (6 stoðs.),
Sigrún Ámundadóttir 13 (10 frák.),
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 7 (10
frák.), Guðrún Ámundadóttir 4, Helga
Einarsdóttir 2, Heiðrún Kristmunds-
dóttir 2, Guðrún Sigurðardóttir 2.
> Leikdagar klárir hjá strákunum
Það styttist í að draumaúrslitaviðureign margra körfu-
boltaáhugamanna hefjist. Þá mætast KR og Grindavík í
úrslitum Iceland Express-deildar karla en þessi félög hafa
verið í nokkrum sérflokki í vetur. Fyrsti
leikur liðanna fer fram í Vesturbænum
á laugardaginn og hefst leikurinn kl.
16.00. Á mánudagskvöldið verður
svo farið yfir í Röstina í Grindavík. Sá
leikur hefst kl. 19.15. Þriðji leikurinn er
fimmtudaginn 9. apríl í Vesturbænum.
Þurfi að spila fjóra eða fimm leiki fara
þeir leikir fram laugardaginn 11. apríl
og mánudaginn 13. apríl.
SENDU SMS EST GFV Á NÚMERIÐ 1900
- ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA EÐA TÖLVULEIK!
9. HVER VINNUR!
199 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
FRUMSÝND 3. APRÍL
SJÁÐU MYNDINA · SPILAÐU LEIKINN!
FULLT AF AUKAVINNINGUM!
IPOD VÖGGUR, INNISKÓR MEÐ LJÓSI, HOPPUBLÖÐRUR,
TÖLVULEIKIR, DVD MYNDIR, GOS OG MARGT FLEIRA!
KOMIN
N Í
ELKO!
SÝND Í 3D Í VÖLDUM
KVIKMYNDAHÚSUM
Yngvi Gunnlaugsson, þjálfari Hauka, var glaður í leikslok alveg
eins og Slavica Dimovska sem skoraði 27 stig í gær og var
kosin besti leikmaður úrslitakeppninnar.
„Þetta er búin að vera ótrúleg sería. Þetta
KR-lið er svo seigt, ég hélt að við værum
komin með þetta þegar við komin níu
stigum yfir en þær komu aftur. Mínar
stelpur sýndu samt karakter að
klára þetta eins og við gerðum.
Þetta var erfitt en það hafðist
og er þeim mun sætara fyrir
vikið,” sagði Yngvi Gunnlaugs-
son, þjálfari Hauka.
„Ég er rosalega stoltur af stelp-
unum og þetta er alveg æðislegur
hópur til að vinna með. Ég vil sérstaklega
hrósa Kristrúnu og Telmu. Kristrún þraukaði og
hafði trú á klúbbnum og Telma kom þegar aðrir
voru að fara því hún hafði trú á þjálfaranum.
Það er meiri háttar að hafa þessa atvinnumenn sem við
höfum og þessar ungu stelpur,” sagði Yngvi en hann átti líka
nægt hrós eftir handa manni leiksins.
„Við vissum að Slavica og Kristrún þurftu að eiga góðan
leik. Þær eru búnar að bera þetta lið í allan vetur. Slavica
svaraði kallinu og ætlaði ekki að láta Guðrún Gróu fara illa
með sig í kvöld. Ég er ekkert smá ánægður fyrir hennar hönd,”
sagði Yngvi og ekki var minni gleðin hjá Slavicu sem hopp-
aði um í fagnaðarlátunum. Þetta er í fyrsta sinn sem
hún verður meistari á ferlinum.
„Ég er svo ánægð. Ég kom til Hauka til að vinna
titilinn og þetta er frábært,” sagði Slavica. Hún
sagði að það hefði skipt miklu máli að hún vissi að
foreldrar hennar voru að horfa á leikinn á KRTV.
„Ég náði að hvíla mig vel fyrir leikinn og ég talaði
við foreldra mína og það gaf mér kraft í leikinn,”
sagði Slavica.
YNGVI GUNNLAUGSSON OG SLAVICA DIMOVSKA: HRÓSUÐU LIÐSHEILDINNI HJÁ HAUKALIÐINU
Þetta var erfitt en þeim mun sætara fyrir vikið
KÖRFUBOLTI Jóhannes Árnason,
þjálfari KR, tilkynnti eftir leik-
inn í gær að hann væri hættur
þjálfun KR-liðsins en hann hefur
náð fínum árangri með liðið. - bb
Þjálfari KR-liðsins:
Er hættur
KÖRFUBOLTI Haukastúlkur hafa
endurheimt Íslandsmeistaratitilinn
í körfubolta kvenna eftir baráttu-
sigur á KR í oddaleik í lokaúrslit-
um Iceland Express-deildarinnar
í gær. Haukaliðið hafði lengst af
frumkvæðið í leiknum en baráttu-
glaðar KR-stúlkur gáfust þó ekki
upp fyrr en í fulla hnefana.
Það var deginum ljósara að
mikið var í húfi strax í byrjun leiks
í gær. Slavica Dimovska opnaði
leikinn með þriggja stiga skoti á
hlaupum og kom Haukaliðinu yfir,
en það sem eftir lifði hálfleiksins
var það baráttan sem var í for-
grunni. Haukakonur voru skref-
inu á undan framan af og höfðu
yfir 14-12 eftir fyrsta leikhlut-
ann. Liðin skiptust svo á að taka
litlar rispur í öðrum leikhlutanum
en þar fór Hildur Sigurðardóttir
í gang hjá KR og hélt gestunum
inni í leiknum. Staðan var jöfn í
hálfleik 30-30.
Sama baráttan var uppi á ten-
ingnum í síðari hálfleik og það
var ekki fyrr en undir lok þriðja
leikhluta sem fyrst dró í sundur
með liðunum af einhverju ráði.
Varnarleikur Haukaliðsins var
þá mjög grimmur og á sama tíma
gekk KR illa í sóknaraðgerðum
sínum. Haukar voru yfir 48-41
eftir þriðja leikhluta eftir að hafa
haldið KR í aðeins 11 stigum í leik-
hlutanum.
Í fjórða og síðasta leikhluta
gerðu Haukastúlkur svo tvær
góðar tilraunir til að stinga KR
af, en seigla gestanna kom í veg
fyrir að það tækist. Margrét Kara
Sturludóttir skaut KR inn í leik-
inn í upphafi fjórða leikhlutans
þegar hún setti þrjá þrista í röð á
skömmum tíma. Haukaliðið bætti
þá aftur í forskotið undir stjórn
Slavicu Dimovsku, en taugatitring-
ur Haukastúlkna í blálokin varð til
þess að þær köstuðu næstum því
frá sér sigrinum. Haukaliðið var
þó vel að titlinum komið.
Slavica Dimovska dró sem fyrr
segir vagninn hjá Haukum allan
tímann og skoraði 27 stig og hirti
8 fráköst og sýndi stáltaugar á
vítalínunni. Þá átti Kristrún Sig-
urjónsdóttir fína spretti og sýndi
mikla hugdirfsku, enda spilaði
hún meidd alla úrslitakeppnina.
Margrét Kara, Hildur og Sigrún
Ámundadóttir voru atkvæðamest-
ar hjá liði KR. baldur@frettabladid.is
Dimovska tryggði titilinn
Haukastúlkur tryggðu sér í gær Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta kvenna
eftir sigur á KR í æsilegum oddaleik að Ásvöllum.
MEISTARI Yngvi Gunnlaugsson, þjálfari
Hauka, var sáttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SIGURHRINGURINN Haukastúlkur hlaupa hér hinn hefðbundna sigurhring með bikarinn eftirsótta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI „Þetta munaði mjög
litlu en við vorum alltaf að lenda
aðeins undir, vorum að elta og það
er erfitt,” sagði Hildur Sigurðar-
dóttir, fyrirliði KR.
„Slavica átti stórleik og þar er
góður atvinnumaður á ferð og við
þurftum að leggja allt í að reyna
að stoppa hana. Haukar eru með
gott lið og þegar þær eru með
hana í stuði þá er erfitt að stöðva
þær,“ sagði Hildur sem er ánægð
með tímabilið.
„Við getum verið ágætlega sátt-
ir með þetta tímabil, við unnum
einn titil og komumst þetta langt
án þess að styrkja liðið okkar eitt-
hvað frekar. Maður er ósáttur
núna en liðið okkar er ungt ennþá
og við erum með meistaralið í
höndunum,“ sagði Hildur. - óój
Hildur Sigurðardóttir:
Með meistara-
lið í höndunum
BROS OG GLEÐI Haukastúlkur fögnuðu vel og lengi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI