Fréttablaðið - 02.04.2009, Síða 74
50 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
Hampden P., áhorf.: 45.000
Skotland Ísland
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 15–7 (7–4)
Varin skot Gordon 2 – Gunnleifur 6
Horn 6–8
Aukaspyrnur fengnar 18–12
Rangstöður 4–2
1-0 Ross McCormack (39.)
1-1 Indriði Sigurðsson (54.)
2-1 Steven Fletcher (65.)
2-1
Thomas Einvaller (7)
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður. 7
Virtist öruggur í sínum aðgerðum og var ekki að sjá að hann væri í lítilli leikæfingu. Varði mjög vel í
síðari hálfleik.
Grétar Rafn Steinsson, hægri bakvörður. 5
Gerði margt ágætt en átti líka sín mistök. Gleymdi McCormack þegar hann skoraði mark Skota.
Hermann Hreiðarsson, miðvörður. 7
Hóf sóknina sem skapaði mark Íslands og var afar öruggur á boltanum. Verður lítið við hann sakast
vegna marka Skotanna.
Kristján Örn Sigurðsson, miðvörður. 7
Sem fyrr einn traustasti leikmaður íslenska landsliðsins. Gerði fáein mistök í síðari hálfleik sem reyndust
þó ekki dýrkeypt.
Bjarni Ólafur Eiríksson, vinstri bakvörður. 3
Átti ekki góðan dag. Fyrra mark Skota skrifast alfarið á hann. Hornspyrnan sem gaf Skotum síðara mark-
ið var svo hálfgerð gjöf frá Bjarna þó svo að dómurinn hafi verið rangur.
Aron Einar Gunnarsson, tengiliður. 4
Barðist eins og ljón allan leikinn og ekkert hægt að kvarta undan því. Átti þó gríðarlega erfitt með að
skila af sér boltanum og kom lítið sem ekkert út úr hans spili.
Helgi Valur Daníelsson, tengiliður. 7
Einn besti maður íslenska liðsins. Var afar duglegur að sinna sínu og átti í fullu tré við þá Darren Flet-
cher og Scott Brown og rúmlega það.
Pálmi Rafn Pálmason, hægri kantmaður. 6
Sýndi glæsilega takta í marki Íslands en missti Steven Fletcher fram hjá sér í síðara marki Skotanna. Átti
erfitt uppdráttar í varnarleiknum þegar á heildina er litið.
Indriði Sigurðsson, vinstri kantmaður. 6
Markaskorari Íslands en annars stafaði lítil hætta af honum í íslenska sóknarleiknum. Var afar upptekinn
við að aðstoða Bjarna Ólaf í varnarskyldunni.
Eiður Smári Guðjohnsen, vinstri kantmaður. 6
Átti slakan fyrri hálfleik. Lifnaði yfir honum eftir markið en það stóð stutt yfir. Hann er hættulegasti
leikmaður íslenska liðsins á pappírnum en það skapaðist lítil hætta í kringum hann í gær fyrr en undir
lokin. Fékk litla hjálp frá félögum sínum.
Arnór Smárason, framherji. 6
Besti maður Íslands í fyrri hálfleik. Kappsfullur en gaf ódýrar aukaspyrnur. Var næstum búinn að gefa
Skotum þriðja markið sitt í leiknum.
VARAMENN:
Eggert Gunnþór Jónsson, kom inn á fyrir Aron Einar Gunnarsson á 70. mínútu. 7
Sýndi nokkuð lipra takta og nýtti sínar mínútur ágætlega.
Ármann Smári Björnsson kom inn á fyrir Indriða Sigurðsson á 81. mínútu. -
FRAMMISTAÐA LEIKMANNA
Undankeppni HM 2010:
1. RIÐILL:
Ungverjaland-Malta 3-0
Danmörk-Albanía 3-0
Leon Andreasen, Soren Larsen, Christian
Poulsen.
2. RIÐILL:
Lettland-Lúxemborg 2-0
Grikkland-Ísrael 2-1
Sviss-Moldavía 2-0
3. RIÐILL:
Tékkland-Slóvakía 1-1
Zdenek Grygera - Stanislav Sestak.
Pólland-San Marínó 10-0
Norður Írland-Slóvenía 1-0
4. RIÐILL:
Liechtenstein-Rússland 0-1
Wales-Þýskaland 0-2
- Michael Ballack, Ashley Williams (sjm)
5. RIÐILL:
Eistland-Armenía 1-0
Tyrkland-Spánn 1-2
Semih Senturk - Xabi Alonso, Alberto Riera.
Bosnía-Belgía 2-1
6. RIÐILL:
Kasakstan-Hvíta Rússland 1-5
Andorra-Króatía 0-2
Ivan Klansic, Eduardo.
England-Úkraína 2-1
1-0 Peter Crouch (29.), 1-1 Andriy Shevchenko
(74.), 2-1 John Terry (85.)
7. RIÐILL:
Austurríki-Rúmenía 2-1
Frakkland-Litháen 1-0
Franck Ribery.
8. RIÐILL:
Búlgaría-Kýpur 2-0
Georgía-Svartfjallaland 0-0
Ítalía-Írland 1-1
Vincenzo Iaquinta - Robbie Keane. Giampaolo
Pazzini rekinn af velli hjá Ítölum eftir aðeins
fjögurra mínútna leik.
9. RIÐILL:
Holland-Makedónía 4-0
Dirk Kuyt 2, Klaas-Jan Huntelaar, Rafael Van
Der Vaart.
Skotland-Ísland 2-1
STAÐAN Í RIÐLINUM:
1. Holland 5 5 0 0 12:1 15
2. Skotland 5 2 1 2 4:6 7
3. Ísland 5 1 1 3 5:7 4
4. Makedónía 3 1 0 2 2:3 3
5. Noregur 3 0 2 1 2:3 2
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Nýr kafli í sorgarsögu
landsleikja Íslands og Skotlands
var skrifaður í gær. Skotar hafa
ávallt borið sigur af hólmi í leikj-
um sínum gegn Íslandi og breytt-
ist það ekki í gær, þó svo að
heimamenn væru í miðri hringiðu
hneykslismáls og neyddust til að
stilla upp miðlungsliði vegna aga-
brota og meiðsla.
Hafi tækifæri verið til að vinna
bug á Skotagrýlunni gerðust þau
vart betri en á Hampden Park í
gær.
Ross McCormack, leikmaður
Cardiff í ensku B-deildinni, skor-
aði fyrra mark skota. Steven Flet-
cher, leikmaður Hibernian, það
síðara. Indriði Sigurðsson jafn-
aði metin fyrir Ísland í upphafi
síðari hálfleiks en Fletcher skor-
aði sigurmark Skota aðeins tólf
mínútum síðar.
Margir áttu von á að leikur-
inn myndi byrja með látum enda
mikið í húfi fyrir bæði lið og þá
sér í lagi heimamenn. En það var
lítið um tæklingar og almenna bar-
áttu í upphafi leiks enda sárafáar
aukaspyrnur dæmdar á fyrsta
hálftímanum. Ísland byrjaði að
verjast mjög aftarlega og færði
sig svo framar eftir því sem leið
á hálfleikinn. Það gekk ágætlega
því Skotar gátu lítið gert í sínum
sóknum og íslensku leikmennirn-
ir áttu nokkrar efnilegar skyndi-
sóknir.
Þar til á 39. mínútu. Bakvörður-
inn Alan Hutton kom þá skeiðandi
upp hægri kantinn, labbaði fram
hjá Bjarna Ólafi Eiríkssyni eins og
hann væri ósýnilegur og náði að
renna boltanum út í teig. Þar var
Ross McCormack mættur, einn á
auðum sjó, og hafði nægan tíma til
að vanda til verka og skila knettin-
um í netið sem og hann gerði.
Flest mörk má skrifa á mistök
andstæðingsins en þetta voru ein-
staklega klaufaleg og óþörf mistök
af hálfu íslenska liðsins.
Þótt Ísland hafi átt fáar sóknir
voru þær afar illa nýttar. Sókn-
irnar voru sumar hverjar efnileg-
ar en allar runnu þær út í sand-
inn. Ísland átti nefnilega ekki eina
marktilraun í fyrri hálfleik.
Fyrstu marktilraunirnar hjá
íslenska liðinu áttu sér stað á 54.
mínútu. Einu sinni sem oftar var
íslenska liðið í vandræðum með
að byggja upp sókn en þá ákvað
Hermann Hreiðarsson að taka til
sinna mála og tók á rás upp miðj-
una. Hann kom boltanum á Pálma
Rafn sem gerði vel og stóð af sér
skoskan varnarmann. Hann átti
skot að marki sem hafnaði í stöng,
Indriði fylgdi á eftir og skoraði í
autt markið.
Sigurmark Skota kom eftir horn-
spyrnu. Fyrirliði þeirra, Stephen
McManus, skallaði boltann inn á
markteig þar sem Steven Fletcher
var mættur og skoraði af stuttu
færi. Fyrst og fremst óheppni en
nokkuð annað.
Það jákvæða er að Ísland neitaði
þó að gefast upp og freistaði þess
ítrekað að jafna leikinn á nýjan
leik. En rétt eins og í fyrri hálf-
leik gekk lítið að klára sóknirnar
með marktilraun. Slíkar sóknir
eru ekki líklegar til árangurs.
Það er lítið við leikskipulag
Ólafs Jóhannessonar að athuga.
Hann veðjaði á stífan varnarleik
og skyndisóknir. Þegar leið á leik-
inn átti sóknarþunginn að aukast
– sem og hann vissulega gerði. En
allar áætlanir voru gerðar ómerk-
ar með klaufalegum mistökum
og sér í lagi ódýru fyrra marki
Skota.
Óheppni Íslendinganna kom
eflaust best í ljós á lokamínútum
leiksins. Þá loksins dundu skotin
á skoska markinu og fékk Pálmi
Rafn draumafæri. Hann þrumaði
knettinum hátt yfir.
Enn ein sorgarsagan gegn Skotum
Ísland tapaði í gær fyrir Skotlandi á Hampden Park, 2-1, í undankeppni HM 2010. Ísland átti slæman dag
gegn miðlungsliði Skota þar sem ódýr mistök urðu liðinu að falli. Indriði Sigurðsson skoraði mark Íslands.
GRÁTI NÆST Landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson fékk tvö upplögð færi í leikn-
um í gær sem hann nýtti ekki. Hann var að vonum svekktur. NORDIC PHOTOS/AFP
SKOTLAND-ÍSLAND
EIRÍKUR STEFÁN ÁSGEIRSSON
skrifar frá Glasgow
eirikur@frettabladid.is
FÓTBOLTI „Ef ég vissi bara af hverju
við vinnum aldrei Skota í knatt-
spyrnu værum við örugglega
löngu hættir að tapa fyrir þeim,”
sagði Eiður Smári Guðjohnsen
eftir tapið í gær.
„Kannski að það spili sitt hlut-
verk að Skotar eiga lengri sögu í
knattspyrnunni. Þeir eiga auðveld-
ara með að takast á við pressuna
sem henni fylgir. Ég vil þó ekki
segja að við höfum bognað undir
pressunni. Það má ekki gleyma
hvar við vorum að spila en við
áttum meira skilið úr þessum
leik.“
Hann sagði það því eðlilegt að
vera svekktur eftir leikinn. „Það
var bæði svekkjandi að fá á okkur
þessi mörk og nýta ekki færin sem
við fengum síðustu 20 mínúturnar
í leiknum. Fyrri hálfleikurinn var
ekkert spes hjá báðum liðum en
þeir komust þó yfir. Við sýndum
karakter með því að jafna og koma
okkur aftur inn í leikinn.“
Eiður segir að þrátt fyrir allt
sé íslenska landsliðið á réttri leið.
„Ég held það. Í kvöld voru margir
ungir og óreyndir leikmenn í byrj-
unarliðinu sem voru að spila frá-
bærlega. Ég sé ekki annað en að
þetta sé á góðri leið.”
Gunnleifur Gunnleifsson er einn
þeirra reynsluminni í hópnum
þótt hann teljist varla í hóp þeirra
yngri. „Ég er svekktur. Þetta voru
gríðarleg vonbrigði,“ sagði Gunn-
leifur. „Við vorum búnir að undir-
búa okkur vel og lengi. Við ætluð-
um okkur að vinna þennan leik.“
- esá
Eiður Smári Guðjohnsen og markvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson voru ekkert mjög kátir eftir leik:
Íslenska knattspyrnulandsliðið er á réttri leið
Í BARÁTTUNNI Eiður Smári Guðjohnsen var lengi í gang en kom sterkur upp á loka-
sprettinum. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson lands-
liðsþjálfari lofaði frammistöðu
sinna manna í íslenska landsliðinu
eftir leikinn gegn Skotum í gær.
Ísland tapaði leiknum, 2-1.
„Ég er mjög ánægður með
frammistöðu leikmannanna en
auðvitað spældur yfir því að hafa
tapað leiknum,“ sagði Ólafur og
bætti við að sín áætlun fyrir leik-
inn hefði gengið að mestu upp.
„Við vissum að þeir kæmu vit-
lausir til leiks til þess að reyna að
ganga frá okkur sem allra fyrst.
Við lögðum upp með að halda þeim
frá okkur fyrstu 20 mínúturnar og
fyrst þá þora að halda boltanum
og skapa spil. Það gekk ágætlega.
Við gáfum ekki mörg færi á okkur
í þessum leik. En niðurstaðan er
þó engin stig.“
Hann sagði það eðlilegt að mörk
væru skoruð eftir mistök leik-
manna. „Ef ekki væru gerð mis-
tök í knattspyrnu gætum við tekið
mörkin og hent þeim út af vell-
inum. Auðvitað verða alltaf mis-
tök gerð og auðvitað er það alltaf
svekkjandi.“
Hann sagði heildarframmistöðu
leikmanna góða. „Í fyrri hálfleik
vorum við dálítið ragir á bolt-
ann en mér fannst við þó vinna
okkur vel inn í leikinn og spila
ágætlega.“
Aðspurður sagðist hann ánægð-
ur með frammistöðu Bjarna Ólafs
Eiríkssonar. „Ég var ekki óánægð-
ur með hann. Hann spilaði fínan
leik og það var í góðu lagi með
hann.“ - esá
Ólafur Jóhannesson var ánægður með frammistöðu íslenska liðsins í gær:
Gekk ágætlega en vantaði stigin
SIGURMARKIÐ Steven Fletcher stangar hér boltann í netið fram hjá Gunnleifi í mark-
inu. NORDIC PHOTOS/AFP