Fréttablaðið - 02.04.2009, Side 78
54 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. gól, 6. frá, 8. kk nafn, 9. gaul, 11.
þófi, 12. iðja, 14. snjóhrúga, 16. tveir
eins, 17. sigti, 18. pípa, 20. skst., 21.
ármynni.
LÓÐRÉTT
1. dægurs, 3. samtök, 4. goðsagna-
vera, 5. gljúfur, 7. skemill, 10. yfir-
breiðsla, 13. fljótfærni, 15. land í asíu,
16. knæpa, 19. kyrrð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gagg, 6. af, 8. ari, 9. gól,
11. il, 12. starf, 14. skafl, 16. kk, 17.
sía, 18. rör, 20. no, 21. árós.
LÓÐRÉTT: 1. dags, 3. aa, 4. griffín, 5.
gil, 7. fótskör, 10. lak, 13. ras, 15. laos,
16. krá, 19. ró.
MORGUNMATURINN
„Best finnst mér að rista mér
brauð og fá mér cappuccino og
appelsínusafa með. Þó fæ ég
mér oftar hafragraut.“
Tinna Gunnarsdóttir iðnhönnuður
„Þetta var kannski of lítill tími til
að finna það á eigin skinni hvern-
ig það er að vera fangi en þetta er
samt ekki eitthvað sem ég myndi
vilja prófa,“ segir sjónvarps-
maðurinn Sverrir Þór Sverris-
son. Hann fór ásamt samstarfs-
félaga sínum Auðuni Blöndal á
Litla-Hraun og kynnti sér hvern-
ig lífið gengur sinn vanagang á
bak við lás og slá. „Ég hafði ekki
séð fangaklefa áður og þetta var
óneitanlega mjög sérstök upp-
lifun. Ég held samt að ég myndi
frekar þola þetta en Auðunn,“
bætir Sverrir við.
Sverrir og Auðunn fóru um
fangelsið í fylgd myndavéla og
tóku upp hálfgert „Innlit/Útlit“-
innslag um vistarverur fang-
anna. Sverrir lét meira að segja
loka sig inni í einangrunarklefa
og fór í sturtu, svo eitthvað sé
nefnt. Hann segir að lífið á Litla-
Hrauni sé töluvert frábrugðið því
sem hann hafði gert sér í hugar-
lund. „Maður er kannski eins og
flestir aðrir, heldur að fangels-
ið sé eitthvað í líkingu við Shaw-
shank eða Prison Break og sumar
spurningarnar urðu kannski svo-
lítið barnalegar fyrir vikið,“ segir
Sveppi og hlær. Jafnframt var
blásið til knattspyrnuleiks þar
sem hið víðfræga knattspyrnu-
lið Litla-Hrauns, Hrottarnir, atti
kappi við þjóðþekkta fjölmiðla-
menn. Sverrir segir að þeir hafi
verið ágætlega mannaðir en vill
lítið gefa upp um úrslit leiksins,
þau eigi þó eftir að koma á óvart.
„Við vorum með nokkra góða
og aðra ekki eins góða,“ segir
Sverrir en í síðarnefnda hópn-
um nefnir Sverrir sérstaklega
Loga Bergmann Eiðsson. „Hann
er stór og sterkur en hefði mátt
vera duglegri að mæta á æfing-
ar þar sem boltameðferðin var
lögð til grundvallar.“ Af öðrum
í sjónvarpsliðinu má nefna Þor-
stein J. Vilhjálmsson, Ara Edwald
og Atla Albertsson. Auk Auðuns
og Sverris. „Auðunn er mikill
keppnismaður og þolir ekki að
tapa, hann gleymdi þess vegna
stundum við hverja hann var að
spila.“
En ferðin var ekki eingöngu
grín og glens enda segir Sverr-
ir að ekki megi gleyma því að
menn eru á Litla-Hrauni af ein-
hverri ástæðu. „Þetta eru auð-
vitað dæmdir menn og þó svo að
menn geti verið léttir á því er það
nú samt alltaf þannig að klefun-
um er lokað klukkan tíu á kvöld-
in,“ útskýrir Sverrir en meðal
viðmælenda í þættinum á föstu-
dagskvöld er maður sem hefur
setið inni í tíu ár. „Hann er að
losna bráðum og sagði okkur frá
dvöl sinni á Litla-Hrauni, hann
kemur ekki fram undir nafni
enda er hann að hefja nýtt líf.“
freyrgigja@frettabladid.is
SVERRIR ÞÓR: GÆTI LIFAÐ LENGUR EN AUDDI Á BAK VIÐ LÁS OG SLÁ
Sveppi settur í einangrun-
arklefa á Litla-Hrauni
„Ég hef fullan skilning á þeirra reiði en ég vona
líka að þeir sýni okkar aðstæðum skilning. Við
vissum það, þegar ráðist var í þennan niður-
skurð, að þetta myndi lenda á einhverjum og
því miður bitnar þetta á þeim núna,“ segir Páll
Magnússon útvarpstjóri. Honum þykir miður
að geta ekki sýnt beint frá Söngkeppni fram-
haldsskólanna en bætir því við að menntskæl-
ingar séu ekki þeir einu sem þurfi að horfa á
eftir uppáhaldi sínu. „Íþróttahreyfingin hefur
líka orðið fyrir barðinu á þessum niðurskurði
enda höfum við þurft að draga mikið úr dýrum,
beinum útsendingum.“
Ekki hafði enn verið ákveðið hvort söng-
keppnin verður tekin upp þegar Fréttablað-
ið hafði samband við Þórhall Gunnarsson,
dagskrárstjóra RÚV.
Tæplega átta þúsund hafa skráð sig á Face-
book-síðuna þar sem skorað er á RÚV að sýna
beint frá Söngkeppni framhaldsskólanna. Fyrr-
verandi framkvæmdastjóri Samtaka íslenskra
framhaldsskólanema, Ásgeir Guðmundsson,
skrifaði menntamálaráðherra meðal annars
bréf þar sem hann hvatti hana til að leggja
sitt á vogarskálarnar og fá þessari ákvörðun
breytt. „Ég trúi því að þú látir ekki við sitja,
talir máli unga fólksins og komir Söngkeppni
framhaldsskólanna í sjónvarpið á ný. Valdið er
nú loksins í þínum höndum þó mögulega óbeint
í þessu tilviki en varla situr þú hjá og þegir,“
skrifar Ágúst í bréfi sem einnig var sent á
fjölmiðla.
Fjölmargir hafa lýst yfir óánægju sinni í
athugasemdakerfi Facebook-síðunnar. „Ég er
löngu búin með framhaldsskólann en er alveg
sammála um að þessi keppni eigi að vera á RÚV
– nóg er fyrir eldri kynslóðina. Skemmtileg
keppni sem ég horfi alltaf á,“ skrifar Elísabet
Guðjónsdóttir á Facebook-síðuna í gær.
- fgg
Átta þúsund mótmæla ákvörðun RÚV
UNDIR ÞRÝSTINGI Þórhallur Gunnars-
son, dagskrárstjóri RÚV, og Páll
Magnússon sjónvarpsstjóri eru ekki
vinsælustu mennirnir í framhaldsskól-
um landsins eftir að RÚV ákvað
að skera niður útsend-
ingu frá Söngkeppni
framhaldsskólanna.
Haukur Ingi snýr aftur á Anfield
STEVEN GERRARD Haukur ætlar
að hitta Steve Gerrard, fyrirliða
Liverpool, eftir leikinn.
Að vanda reyndu
fjölmiðlar að gabba
landsmenn í tilefni
1. apríl. Óvíst er þó
hvort baksíðufrétt
DV fellur í þann
flokk, en þar var
greint frá því að
enn væri allt á
huldu um hver
myndi hanna kjól Jóhönnu
Guðrúnar, Eurovision-fara okkar
Íslendinga. Töluvert er síðan Frétta-
blaðið greindi frá því að Margrét
Einarsdóttir og hönnunartvíeykið
Andersen & Lauth myndu hanna
kjólinn en hann er handsaumaður
á Indlandi og verður ævintýraleg-
ur eins og Margrét lýsti honum í
Fréttablaðinu.
Og áfram með
aprílgöbbin. Snorri
Ásmundsson lét sitt
ekki eftir liggja í þeim
efnum. Hann keypti
auglýsingu í Frétta-
blaðinu þar sem hann
var klæddur upp eins
og Karl Berndsen úr
þætti Skjáseins, Nýtt
útlit, og auglýsti keppni í snyrtingu
og öðrum útlitsþrautum. Einhverjir
bitu þó á agnið og meðal þeirra
var hinn nýi Eyjubloggari, fjölmiðla-
maðurinn Páll Ásgeir Ásgeirsson,
sem furðaði sig á því að hægt væri
að keppa í svona útlitskeppnum.
Eitt undarlegasta málið sem rak á
fjörur fjölmiðla var þó án nokkurs
vafa bréf sem barst frá fjöllista-
manninum Curver. Það leit í fyrstu
út fyrir að vera aprílgabb en er
það þó að líkindum ekki. Curver
vænir Atla skemmtanalöggu, Óla
Geir Jónsson og viðburðafyrirtækið
Agent.is um þjófnað á fyrirbæri
sem hann og DJ Kiki-OW hafa stað-
ið fyrir undanfarin ár undir heitinu
„90‘s kvöld“. Atli og Óli
Geir hafa að sögn
Curvers verið að
bóka „90‘s“ kvöld út
um allt og það þykir
honum miður enda
sé þetta hugarsmíð
hans og Kiki.
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Það verður gaman að koma á fornar slóðir,“ segir
knattspyrnukappinn Haukur Ingi Guðnason sem
snýr aftur á sinn gamla heimavöll Anfield Road um
páskana til að sjá fyrrum félaga sína í Liverpool
taka á móti Blackburn. Kærastan Ragnhildur
Steinunn Jónsdóttir verður með í för.
„Ég hef alltaf ætlað að reyna að fara
reglulega og halda sambandi við liðið
en ég hef ekki sjálfur komist í tæp
þrjú ár. Hún hefur ekki farið síðan ég
flutti heim 2001, þannig að það verð-
ur gaman fyrir hana að koma,“
segir Haukur Ingi. „Borgin er
mjög breytt. Hún var menning-
arborg Evrópu í fyrra og mið-
bærinn er gjörbreyttur.“
Margt hefur einnig breyst
í leikmannahópi Liverpool
síðan Haukur var í liðinu.
„Maður fer eflaust niður að
hitta strákana eftir leik en það eru ekki margir
eftir síðan ég var þarna, bara Hyypia, Gerrard og
Carragher. Síðan er allt fólkið í kringum þetta sem
er þarna ennþá sem verður gaman að hitta líka.“
Liverpool er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinn-
ar, aðeins einu stigi á eftir Manchester United og
vonast Haukur að sjálfsögðu eftir fyrsta meistara-
titli liðsins síðan 1990. „Maður hefur ekki verið
svona jákvæður í ansi mörg ár. Það er
einhver stemning yfir þeim sem er mjög
jákvæð en það er
rosalega erfitt
að segja. United
eru ansi sterkir
og eru ennþá
með þetta í hendi
sér. Þetta er svolítið
undir United komið hvort
þeir fara að misstíga sig
meira.“ - fb
HAUKUR OG RAGNHILDUR Haukur
Ingi og Ragnhildur Steinunn sjá
Liverpool taka á móti Blackburn á
Anfield Road um páskana.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Tómas Tómasson, eigandi
Hamborgarabúllunnar.
2 Birgir Ármannsson.
3 Kvenfélagasamband Íslands.
íslensk hönnun
og handverk
Strandgötu 43 | Hafnarfirði
Sími 565 5454 | www.fridaskart.is
Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is
G
ra
fí
ka
2
0
0
8
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
TEPPI Á STIGAGANGINN
Á LITLA-HRAUNI
Sveppi og Auddi kíktu á Litla-
Hraun í vikunni, gerðu „Inn-
lit/Útlit“-úttekt á vistarverunum
og spiluðu fótbolta við Hrottana,
knattspyrnufélag fangelsins. Þá
tóku þeir viðtal við mann
sem hefur setið inni
í tíu ár en er að
losna á næstu
dögum.