Fréttablaðið - 02.04.2009, Qupperneq 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Í dag er fimmtudagurinn 2. apríl,
92. dagur ársins.
6.42 13.31 20.22
6.23 13.16 20.11
Ég er að spá í að skella mér í sól-ina á Tortóla um páskana. Ég
hef heyrt svo margt fallegt um
þessa hitabeltisparadís. Eyjan er
55,7 ferkílómetrar að stærð, rúm-
lega fjórum sinnum stærri en
Heimaey. Þarna búa 24 þúsund
manns, aðalbærinn heitir Road
Town með um tíu þúsund hræðum.
TORTÓLA er stærsta eyja Bresku
Jómfrúreyjanna. Samtals er búið á
fimmtán þeirra svo kannski maður
skryppi í siglingu til næstu eyja.
Samt ekki til Necker-eyju sem
Richard Branson á. Hann yrði
örugglega brjálaður ef maður
mætti bara óboðinn. Samt gæti
maður kannski röflað sig út úr
því. Logið að maður væri aðdáandi
Tubular Bells og svona.
EINS og gefur að skilja er þetta
nokkuð ferðalag. Þrjú flug. Fyrst
til New York, þaðan til Púertó
Ríkó, sem er næsta verulega stóra
eyja, og svo loks til Beef-eyju þar
sem flugvöllurinn er. Beef-eyja
er tengd við Tortólu með Queen
Elizabeth II brúnni. Flugið frá
Íslandi tekur hálfan sólarhring og
maður væri mættur ferskur í sól-
ina á skírdagsmorgun. Kostar ekki
nema rúmlega hundrað þúsund
kall báðar leiðir.
ÞAÐ er auðvitað gullfallegt þarna.
Allt vaðandi í ljósbrúnum sand-
ströndum, sól og pálmatrjám. Allt
fljótandi í áfengi. Bjór og sætum
kokkteilum en þó aðallega rommi.
Maður myndi ekki skorast undan í
þeim efnum. Byrjaði kannski á Le
Cabanon barnum, eða „The Cab“
eins og innfæddir kalla pleisið,
þaðan á Bomba Shack og endaði
auðvitað í Leðurblökuhellinum,
The Bat Cave, sem eins og allir
vita er heitasti næturklúbburinn
á Tortólu.
ÞAÐ er fullt hægt að dedúa á
Tortólu. Maður tæki þynnkuna
úr sér með heimsókn í Callwood-
rommverksmiðjuna. Hæsta fjall-
ið á öllum Jómfrúreyjum er þarna,
heitir Sage og er 530 metra hátt.
Margar gönguleiðir upp á topp.
Dolphin Discovery fyrirtækið
er með eitt af sjö útibúum sínum
þarna. Það starfrækir aðstöðu til
að gera fólki kleift að synda með
höfrungum. Margir vilja meina að
það sé alveg meiriháttar. Ég léti
auðvitað reyna á það.
SVO kíkti maður á skrifstof-
una hjá Opal Global. Það er alltaf
gaman að hitta landa sína í útlönd-
um, sérstaklega duglega menn sem
hafa notað íslenskt skattfé til að
styrkja innviði glæsilegra partí-
eyja. Svo bara aftur á „The Cab“
í meira stuð. Skál!
Halló Tortóla,
hér kem ég!