Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.2007, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.2007, Blaðsíða 13
ræða og endurhugsa reglulega til að þau verði ekki að enn einum óskráðu rústunum, enn ein leiðin sem enginn ratar um nema ref- urinn. Jónas Hallgrímsson segir í inngangi að þýðingu sinni á stjörnufræði dr. G.F. Ursin, en í þeirri þýðingu bjó hann til mörg nýyrði svo sem sjónarhorn, aðdráttarafl og raf- urmagn (sjá Aðdráttarafl, verk Kristínar Jónsdóttur í þakglugga Bogasalarins): Ég veit fullvel að mér hefir víða hvar farist verk mitt úr hendi ófimlegar en vera væri; tel ég mér það helst til afbötunar að ég hefi hlotið að búa til mjög mörg orð og eru þau ætíð leið í fyrstu þang- að til eyru vor fara að venjast þeim. Ég vonast einnig eftir að önnur betri komi bráðum í stað sumra þeirra og að þessi litla fjárgata er ég nú hefi lagt verði með tímalengdinni að breiðum og ruddum þjóðvegi. (Ritverk Jónasar Hallgríms- sonar, III. bindi, Haukur Hannesson, Páll Valsson og Sveinn Yngvi Egilsson (ritstj.), Svart á hvítu, Reykjavík, 1989, s. 314.) Leiðin á milli, það leiðir á milli Myndlistarkonurnar Guðbjörg Lind Jóns- dóttir, Guðrún Kristjánsdóttir og Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá höfðu úr mörgum áhugaverðum gripum að moða enda er safn- kosturinn ögrandi áskorun. Smátt og smátt kom í ljós að þær höfðu óafvitandi tekið upp þráð þeirra sem af ástríðu miðluðu til ann- arra og tókust á við álagadóm samtímans. Og þá voru allt í einu komnir gestir inn í sýning- arrýmið, fyrirferðar- og skapmiklir ein- staklingar og þar að auki skáld: Látra-Björg, Bólu-Hjálmar og Jónas, en öll voru þau mikið á ferðinni og auðsýndu þakklæti sitt með orð- um, í löngum ljóðabréfum, kvæðum, með út- skurði og uppfinningum. Þessi skáld búa yfir myndvísi svo magnaðri að sýn opnast á milli orða. Sú sýn er fengin að láni til að búa til einhvers konar hliðarsýn á fastasýningar safnsins. Myndlistarkonurnar fara á móts við goðsagnir um þessa einstaklinga og þá hluti sem tengjast þeim. Borðið hans Jónasar, út- skurður Hjálmars frá Bólu, ímyndaðir kaffi- bollar flakkara sem þáðu kaffi á ferðum um landið og von Látra-Bjargar um góðar mót- tökur. Á krossgötum eru lúnir ferðalangarnir boðnir velkomnir ímyndaða leið fram í tím- ann. Kannski er það algjör ófæra enn sem komið er en verður vonandi æ greiðari, á milli safnkosts og sköpunar, arfs og áfram- halds. Ein myndlistarkonan hlutgerir kaffispjallið og varpar ljósi á gildi gestakomunnar og á þunga biðarinnar eftir gesti eða pósti sem ekki skilar sér. Önnur myndlistarkona prjón- ar nýja sokka á blauta og bólgna fætur skálds. Hún minnir á mikilvægi nýorðasmíð- innar og smíðar líka borð, eftirmynd af skrif- borði Jónasar, handa þeim rannsakendum lands og orða sem þurfa á borði með langri skúffu að halda. Sú þriðja fylgir leiðinni á milli handverks og skáldskapar og minnir á nauðsyn þess að hleypa frjókornum frum- legrar hugsunar út úr forðageymslunni, út um glugga og inn um þá aftur, í eilífri hring- rás skáldaðrar hringhendu. Það má raunar segja að einkennandi fyrir þá leið sem mynd- listarkonurnar fetuðu, í fótspor skáldanna, sé ákveðin togstreita og þrá eftir hreyfingu, stundum í hring, örlítið skakkan, þráhyggju- lega endurtekinn eða leikandi hraðan út fyrir túngarða og mörk tímans. Vonandi geta þeir myndlistarmenn sem fá að vinna með Þjóðminjasafninu í framtíðinni eitthvað lært af reynslu þessara þriggja myndlistarkvenna. Því fyrir utan það að læra að rata um leynistigu geymslunnar þurftu þær að verða læsar á óskráðar reglur hinnar opinberu stofnunar. Þær þurftu að rökstyðja beiðni um að opna salinn, að taka hlera sem höfðu verið fyrir gluggunum í mörg ár í burtu og hleypa birtunni inn. Þær þurftu að prútta við forverðina um að hafa skúffuna á borði Jónasar opna og dyrnar á skáp Bólu- Hjálmars opnar og safngripina á gólfinu. Starfsmenn safnsins voru skilningsríkir en bundnir af settum reglum. Innri lögmálum stofnunar er vissulega ögrað þegar rökstuðn- ingurinn fyrir umbreytingu hennar er byggð- ur á innsæi frekar en skotheldri röksemda- færslu. Óhjákvæmilega myndast þá togstreita á milli varðveisluskyldu og miðl- unarmöguleika. Blásið í póstlúðra í anddyri safnsins Hluti af sýningunni Leiðin á milli er póst- kassi sem fenginn er að láni hjá Íslandspósti. Kassann mætti sjá sem ímynd þeirra tengsla sem safn vill hafa við samtíma sinn og sam- félag. Gestir sýningarinnar geta sest við eft- irgerð af borði Jónasar, skrifað á kort sem búin voru til af myndlistarkonunum og sent áfram út í heim. Þannig minnir gesturinn á mikilvægi þess að virkja leiðirnar á milli safnrýmisins og líðandi stundar einkarýma. Á morgun, sunnudag, klukkan 15 verður svo blásið í póstlúðra og haldin málstofa fyrir framan Bogasalinn, í gamla anddyri Þjóð- minjasafnsins, og eru allir velkomnir. Sýn- ingin Leiðin á milli stendur til 30. september. nun arfsins Ljósmynd/Ívar Brynjólfsson Tengsl „Hluti af sýningunni Leiðin á milli er póstkassi sem fenginn er að láni hjá Íslandspósti. Kassann mætti sjá sem ímynd þeirra tengsla sem safn vill hafa við samtíma sinn og samfélag.“ »En hvað er til ráða? Ég held að fyrsta skrefið sé að meta betur að verðleikum starf og sérfræðiþekkingu þeirra sem vinna á safnavett- vangi. Sú þekking og ekki síst sú reynsla hlýtur að teljast mikilvægur menningararfur. Og hugtakið menningararfur og yfirleitt öll þau hugtök sem liggja safnavettvanginum til grundvallar þarf að gagnrýna, ræða og endurhugsa reglulega til að þau verði ekki að enn einum óskráðu rústunum, enn ein leiðin sem enginn ratar um nema refurinn. Höfundur er sýningarstjóri Leiðarinnar á milli og er að skrifa doktorsritgerð í Frakklandi um þátttöku einstaklinga í tilurð opinberra minja- og skjalasafna. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 13 GUÐMUNDUR Páll Ólafsson hefur tekið sam- an merkilegt rit um Þjórsárver og sögu virkj- anaáforma sem ógna bæði tilvist þeirra og vist- fræðilegu hlutverki. Við fyrstu sýn er ritið raunar ekki árenni- legt, Guðmundur kýs að blanda öllu í einn pott: Hann fjallar um hálendi og öræfi almennt, hann upplýsir lesandann um jarðsögu og náttúrufar Þjórsárvera og ná- grennis, svo rekur hann sögu um- ræðna um virkjanir í Þjórsá og deilur um þær og loks veltir hann fyrir sér merkingu og inntaki um- hverfisverndar. Hann leggur sig ekki fram, að því er virðist, um að setja fram skýran eða einfaldan texta, útskýringar hans eru ekki alltaf ljósar og oft með vanga- veltubrag. Hann birtir langar til- vitnanir í ræður og greinar verk- fræðinga og stjórnmálamanna til að varpa ljósi á viðhorf og umræðu og ætlast iðulega til þess að lesandinn dragi sömu ályktanir og hann gerir sjálfur án þess að þær séu augljósar. Þetta gerir að verkum að bókin er ekki auðveld aflestrar vilji maður gera sér glögga mynd af efninu. En erfiðið er þess virði, því að í lokin tekst Guðmundi á sinn hátt að gera lesandanum ljóst á hvílíkum villigötum umræðan um þessi mál hefur iðulega verið. Og þrátt fyrir ofurlítið vandræðalegan skilning á hugtakinu nytjastefna eru lokakaflarnir sterk og einlæg röksemdafærsla fyrir mikilvægi þess að hugsa á annan hátt um verndun og varð- veislu náttúrunnar en menn hafa lengst af gert. Þegar Þjórsárver eru annars vegar ætti raunar ekki að þurfa langar eða flóknar rök- semdafærslur til að eyða öllu tali um virkjanir sem leitt geta til þess að þau fari undir vatn. Þjórsárver eru, eins og Guðmundur bendir á oftar en einu sinni í bókinni, einstök frá vist- fræðilegu sjónarmiði og gegna viðkvæmu hlut- verki í náttúrunni sem afar ólíklegt er að hægt sé að bæta upp. Það er í raun óskiljanlegt að jafnvel þó að þessi vitneskja hafi legið fyrir um langt skeið, skuli stjórnvöld samt þráast við og að áætlanir um virkjanir á þessu svæði haldi áfram. Það má segja að markmið Guðmundar með bókinni, eins og það blasir við lesandanum, sé að leggja drög að réttu verðmætamati, það er, draga fram allt það sem í húfi er og stríðir gegn hinni einföldu hugsun hag- fræðinganna um verð á kílówatt- stund. Bókina prýða margar myndir og kort og það er að mörgu leyti skemmtilegra að blaða í henni og fletta upp en að lesa hana frá upp- hafi til enda. Það er vafalaust mis- jafnt hvað fangar athygli lesandans öðru fremur í ritinu. Ég verð að við- urkenna að mest um verð fannst mér samantekt Guðmundar á um- ræðum um virkjanir og nauðsyn þeirra um miðbik bókarinnar. Þessi samantekt sýnir afskaplega vel að deilur dagsins í dag um virkjanir eru ekki nýjar af nálinni og að röksemdir sjö- unda áratugarins eru enn í umræðunni á fyrsta áratug nýrrar aldar. Þó hefði mátt ætla að á þeirri tæpu hálfu öld sem liðin er, hefðu viðhorf um margt breyst. Sjöundi áratugurinn er tíma- bil hinna glæstu tæknilegu, verkfræðilegu lausna, þegar mönnum datt til dæmis í hug í al- vöru að það væri ekkert mál að sökkva Þjórs- árverum, því að það mætti bara búa til eins svæði einhversstaðar annarsstaðar (157). Okkar áratugur er tími efasemda um mátt tækni og verkfræði. En það er eins og þeir sem með vald- ið fara telji enga ástæðu til að reyna að skilja eða tileinka sér ný viðhorf eða læra af reynsl- unni. Þeir tala enn eins og árið sé 1960. Af varpflutningum og öðrum frábær- um hugmyndum Jón Ólafsson Bækur Umhverfi og náttúra Eftir Guðmund Pál Ólafsson, Mál og menning, 2007, 288 bls. Hernaðurinn gegn landinu Þjórsárver hjarta landsins Guðmundur Páll Ólafsson NORSKI verðlaunahöfundurinn Lars Saabye Christensen sló rækilega í gegn með skáld- sögu sinni Hálfbróðurnum sem vann til Bók- menntaverðlauna Norð- urlandaráðs árið 2002 og kom út á íslensku ári síðar í mjög góðri þýðingu Sigrúnar Kr. Magn- úsdóttur. Síðan hefur Sigrún þýtt tvær aðrar skáldsögur sama höfundar; auk þeirrar sem hér um ræðir þýddi hún skáldsöguna Hermann sem kom út árið 2005. Módelið er nýjasta skáldverk Lars Saabye Christensens og hefur hlotið ákaflega góða dóma í heimalandinu og þykir höfundur með henni hafa sannað enn og aftur að hann er tvímælalaust meðal snjöllustu samtímahöf- unda á Norðurlöndum – og þótt víðar væri leitað. Módelið er að mörgu leyti að- gengilegra verk en Hálfbróðirinn þó ekki sé nema vegna þess að hún er mun styttri og með hnitmiðaðri sögufléttu. Hér er sagt af lítilli fjölskyldu; myndlistarmanninum Peter Wihl, konu hans Helene sem er leik- myndahönnuður og ungri dóttur þeirra, Kaiu. Þegar við kynnumst fjölskyldunni er Peter að undirbúa stóra sýningu í tilefni af fimmtugs- afmæli sínu og Helene vinnur að því að hanna leikmynd fyrir væntalega uppsetningu á Villi- öndinni eftir Henrik Ibsen. Hamingjuríkt líf þeirra er í föstum skorðum þegar áfallið dyn- ur yfir: Peter er sleginn blindu sem varir í fyrstunni í skamma stund í einu, en hann fær í kjölfarið þá greiningu að innan nokkurra mánaða muni hann missa sjónina fyrir fullt og allt. Hvað gerir maður sem þarf að reiða sig á sjónina við starf sitt við slíkar aðstæður? Hversu langt er hann tilbúinn að ganga til að sköpunargáfa hans fái að njóta sín áfram? Því verður ekki svarað hér en höfundur svarar þessum spurningum í skáldsögunni og skoðar um leið á áhrifamikinn hátt ýmsar áleitnar spurningar sem varða sið- ferðiskennd nútímafólks á tímum þegar allt er falt fyrir peninga og líf þeirra sem minna mega sín virðist einskis virði. Módelið er þó síður en svo bara snjöll skáldsaga um siðferðileg álitamál, um blindu og siðferð- isblindu, heldur býður hún upp á mörg fleiri merkingarsvið sem gaman er fyrir lesendur að upp- lifa. Hér er fjallað á næman hátt um samband hjóna, um samband föður og dóttur, um samband listamannsins við umhverfi sitt, og um samband miðaldra manns við fortíð sína, svo dæmi séu tekin. Og fyrir þá lesendur sem þekkja til Villiandar Ibsens hefur skáld- sagan enn víðari skírskotun því leikrit Ibsens er að mörgu leyti það „módel“ sem Lars Saa- bye Christensen byggir skáldsögu sína á, leynt og ljóst. Það er þó síður en svo nauðsyn- legt að vera Ibsen-fræðingur til að njóta sög- unnar því hér er einfaldlega um innihaldsríka nútímaskáldsögu að ræða sem áhugamenn um bókmenntir ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Blinda og siðferðisblinda Soffía Auður Birgisdóttir BÆKUR Skáldsaga (kilja) Eftir Lars Saabye Christensen. Íslensk þýðing: Sig- rún Kr. Magnúsdóttir. Mál og menning 2007, 288 bls. Módelið Lars Saabye Christensen

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.