Morgunblaðið - 19.02.2007, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2007 5
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„Ég held að ég geti varla lýst því
hvernig mér og strákunum líður
núna. Byrjunin á Íslandsmótinu var
erfið en hópurinn hefur þjappað sér
saman. Við vissum að það yrði
breiddin í leikmannahópnum sem
myndi skila okkur alla leið. Ein-
kenni ÍR-liðsins er að það geta
margir leikmenn tekið af skarið
þegar á þarf að halda og ég held að
það sé mesti styrkur liðsins,“ sagði
Hreggviður Magnússon en hann hóf
að leika með ÍR á ný sl. haust eftir
þriggja ára dvöl í Bandaríkjunum
þar sem hann var við nám. „Ég hef
fengið að glíma við ýmis vandamál í
vetur. Kinnbeinsbrot, veikindi og
tognaða vöðva. Núna er ég búinn
með þennan pakka og ég hlakka til
þess að takast á við þau verkefni
sem bíða okkar í deildarkeppninni.
Við erum bikarmeistarar og við get-
um unnið öll lið á landinu á Íslands-
mótinu og ég er viss um að það
tekst,“ sagði Hreggviður.
Þjálfarinn hógvær
Jón Arnar Ingvarsson, þjálfari
ÍR, sagðist hreykinn af sínu liði og
þakkaði leikmönnum liðsins fyrir
árangurinn. „Ég er hluti af liðs-
heildinni og geri þetta ekki einn
þrátt fyrir að handbragð mitt sé far-
ið að sjást á leik liðsins. Við vissum
alveg út í hvað við vorum að fara.
Svæðisvörn Hamars/Selfoss kom
okkur alls ekki á óvart. Þetta var
mikil vinna hjá okkur, vörnin var
góð og margir leikmenn náðu að
sýna sitt besta þegar mest á reyndi.
Við erum með gott lið og það dugði
til þess að leggja gott lið að velli en
mér fannst Hamar/Selfoss leika
mjög vel í leiknum,“ sagði Jón Arn-
ar en þetta er í fyrsta sinn sem
hann fagnar sigri í bikarkeppninni
sem þjálfari. „Það er alltaf gaman
að heyra Queen-lagið „We are the
Champions“ í leikslok eftir svona
leik og vera hluti af sigurliðinu.
Þetta er alltaf jafn skemmtilegt,“
bætti þjálfarinn við. Í aðdraganda
leiksins sagði Pétur þjálfari Ham-
ars/Selfoss að Jón Arnar væri veik-
asti hlekkurinn í ÍR-liðinu. Góðlát-
legt grín hjá eldri bróðurnum en
Jón Arnar getur nú státað sig af
gullverðlaunum sem þjálfari í bik-
arúrslitum en Pétur á hins vegar
tvo silfurpeninga.
Byrd er sá þyngsti
„Núna er ég búinn að vinna bik-
arinn eftir að hafa tapað tvívegis í
úrslitaleik með KR. Mér líður því
gríðarlega vel og ég held að þessi
titill eigi eftir að efla okkar lið enn
frekar. Við getum gert hvað sem er
í hér eftir,“ sagði Keith Vassell leik-
maður ÍR í leikslok en hann hóf
leiktíðina sem þjálfari og leikmaður
Fjölnis en hætti þar störfum og
gekk í raðir ÍR. „Tímabilið er búið
að vera mjög sérstakt fyrir mig. Það
sem ég var að gera hjá Fjölni gekk
því miður ekki upp en mér líður vel
hjá ÍR og þessi titill gerir veruna
enn skemmtilegri,“ sagði Keith Vas-
sell en hann er íslenskur ríkisborg-
ari og varð Íslandsmeistari með KR
á sínum tíma. Vassell ætlar sér að
leika í nokkur ár til viðbótar en
hann er 35 ára gamall. Hann telur
að ferill hans yrði styttri en ella ef
hann léki gegn jafnþungum leik-
mönnum og George Byrd í hverjum
leik
„Það eru fáir eins erfiðir og hann
Byrd. Ég held að engum líki illa við
Byrd, hann er sannur íþróttamaður.
Hann er sá þyngsti sem ég hef glímt
við og hann kann svo sannarlega að
nota styrk sinn undir körfunni,“
sagði Vassell.
„Við vinnum tvo titla í ár“
„Jón Arnar Ingvarsson, þjálfari ÍR,
sagðist hreykinn af sínu liði og
þakkaði leikmönnum liðsins fyrir
árangurinn. „Ég er hluti af liðs-
heildinni og geri þetta ekki einn
þrátt fyrir að handbragð mitt sé
farið að sjást á leik liðsins. Við viss-
um alveg út í hvað við vorum að
fara,“ sagði Jón Arnar Ingvarsson
þjálfari ÍR
Samhæft frákast Ómar Sævarsson leikmaður ÍR í baráttu um frákast
gegn George Byrd og Marvini Valdimarssyni úr liði Hamars/Selfoss.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Áhorfendur voru lengi að tínast inn á
áhorfendabekki Laugardalshallar-
innar þar sem að afköstin í miðasöl-
unni voru ekki nógu mikil. Stemning-
in var hinsvegar góð og mun fleiri
áhorfendur mættu í Laugardalinn í
ár miðað við leikinn árið 2001 á milli
þessara liða.
Leikurinn var jafn og spennandi
frá upphafi til enda og leikmenn
Hamars/Selfoss náðu að snúa við
blaðinu eftir að hafa verið 10 stigum
undir í fyrri hálfleik, 29:19. Bojan
Bojovic lét mikið sér kveða í sókn-
arleiknum fyrir H/S á þessum kafla
en hann náði ekki að fylgja góðri
byrjun sinni eftir.
Hamar/Selfoss beitti svæðisvörn
megnið af leiknum og sagði Jón Arn-
ar Ingvarsson þjálfari ÍR að sú leik-
aðferð hefði alls ekki komið á óvart.
Jón Arnar hafði betur gegn eldri
bróður sínum, Pétri, sem varð öðru
sinni að sætta sig við silfurverðlaun
sem þjálfari Hamars/Selfoss í úrslita-
leik. Pétur tók tapinu af karlmennsku
og óskaði bróður sínum og ÍR til
hamingju með sigurinn.
„Ég ætla að byrja á því að óska ÍR
og Jóni Arnari bróður mínu til ham-
ingju með sigurinn. Við hefðum fagn-
að sigri ef vítanýtingin hefði verið í
lagi í þessum leik hjá okkur. Það fóru
12 víti forgörðum og það er einfald-
lega of mikið,“ sagði Pétur Ingvars-
son þjálfari Hamars/Selfoss eftir tap-
leikinn gegn ÍR í úrslitaleik
Lýsingarbikarkeppninnar.
„Við lékum eins og við lögðum upp
með. Við hægðum á leiknum og það
var spenna í lokin eins og við bjugg-
umst við.“ Pétur vildi ekki gera mikið
úr atviki sem átti sér stað rétt undir
lok leiksins er dæmd var villa á
bandaríska leikmanninn George
Byrd en stuðningsmenn Hamars/Sel-
foss töldu að dæma hefði átt ruðning
á Sveinbjörn Claessen, leikmann ÍR.
„Ef við hefðum hitt úr vítunum
okkar þá væru slík atvik ekki til um-
ræðu. Ég var á annarri skoðun en
dómararnir en þeir dæma leikinn –
ekki ég,“ sagði Pétur.
George Byrd leikmaður Hamars/
Selfoss var sammála þjálfaranum
hvað vítaskotin varðar en Byrd sagði
að leikmenn liðsins gætu verið
hreyknir af leik sínum. „Þetta gekk
ekki upp að þessu sinni. Vítaskotin
hjá mér og fleirum voru ekki nógu
góð og slík smáatriði skilja á milli. Ég
verð ekki lengi að jafna mig á þessu
tapi enda tapaði ég í úrslitum Ís-
landsmótsins í fyrra með Skalla-
grímsliðinu og þetta er einfaldlega
hluti af leiknum. Annað liðið tapar og
við verðum fljótir að vinna okkur út
úr þessu. Það er mikið eftir af tíma-
bilinu og ég held að við getum látið að
okkur kveða í úrslitakeppninni,“
sagði Byrd. Leikaðferð ÍR gekk út á
það brjóta sem oftast á Byrd undir
körfunni enda var vítanýting hans
slök en hann hitti aðeins úr 5 af alls 13
vítaskotum sínum í leiknum.
Byrd skoraði alls 24 stig, tók 15
fráköst og gaf 8 stoðsendingar en það
dugði ekki til. Eftir leikinn var Byrd
hrókur alls fagnaðar í búningsher-
bergjum ÍR og Hamars/Selfoss og
tók hann tapinu með bros á vör.
Brown tók af skarið
Nate Brown, bandaríski leikmað-
urinn í liði ÍR, tók af skarið í fjórða
leikhlutanum þegar mest á reyndi og
skoraði þar 12 af 17 stigum sínum í
leiknum. Auk þess náði hann þrívegis
að stela boltanum af leikmönnum H/S
á þessum kafla.
Sveinbjörn Claessen, leikmaður
ÍR, átti fínar rispur í leiknum og 23
sekúndum fyrir leikslok skoraði hann
mikilvæg stig í vítateignum og kom
ÍR fimm stigum yfir, 80:75.
Friðrik Hreinsson skotbakvörður
H/S var með ískalt blóð í æðum er
hann skaut þriggja stiga skoti þegar
18 sekúndur voru eftir. Þá munaði að-
eins 2 stigum á liðunum, 80:78. ÍR–
ingar voru á vítalínunni það sem eftir
lifði leiksins þar sem leikmenn H/S
brutu af sér við hvert tækifæri til
þess að stöðva leiktímann og freist-
uðu þess að jafna. Brown og Ólafur
Sigurðsson brugðust ekki á ögur-
stundu og ÍR–ingar fögnuðu sigri eft-
ir að Lárus Jónsson hafði skorað síð-
ustu stig leiksins fyrir H/S. Lið utan
Reykjavíkur eða Suðurnesja hafa
ekki enn náð að sigra í úrslitaleik bik-
arkeppninnar. KFÍ, ÍA, Snæfell og
Hamar/Selfoss hafa komist í úrslita-
leikinn og farið með silfrið heim úr
þeim leikjum.
Aldarafmælið byrjar vel
„ÍR getur ekki fengið betri afmæl-
isgjöf á 100 ára afmæli sínu. Til
hamingju ÍR,“ sagði Hreggviður
Magnússon leikmaður ÍR eftir
83:81 – sigur liðsins gegn Hamri/
Selfoss í úrslitum Lýsingarbik-
arkeppninnar í karlaflokki. Þetta
er í annað sinn sem ÍR sigrar í þess-
ari keppni en árið 2001 áttust sömu
lið við í úrslitum og þar hafði ÍR
einnig betur. ÍR er eina liðið úr
Reykjavík sem hefur unnið bik-
arkeppnina s.l. 16 ár og kannski er
gamla stórveldið úr Breiðholtinu að
vakna til lífsins á aldarafmæli sínu.
Morgunblaðið/Eggert
Kátt í höllinni Stuðningsmenn ÍR voru fjölmennir og líflegir á áhorfendabekkjum Laugardalshallarinnar, enda rík ástæða til þess að fagna.