Morgunblaðið - 19.02.2007, Page 8
8 MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Friedel sýndi heimsklassa mark-
vörslu þegar honum tókst að verja
skot frá Thierry Henry á lokamín-
útunum. Justin Hoyte náði frákast-
inu og skaut að markinu en Friedel
var eins og köttur á milli stanganna
og varði skotið. Arsenal, sem fyrir
leikinn hafði skorað 81 mark á tíma-
bilinu, hafði umtalsverða yfirburði í
leiknum en tókst ekki finna leið
framhjá Bandaríkjamanninum.
Áttum að fá vítaspyrnu
,,Það vantaði einhvern neista í liðið
og leikur okkar var full flatur. Liðs-
menn Blackburn gerðu í því að drepa
leikinn niður og töfðu hann eins og
þeir gátu og þeim tókst ætlunarverk
sitt. Ég tel að við hefðum átt að fá
vítaspyrnu þegar Aliadiere var felld-
ur en dómarinn lokaði augunum fyr-
ir því. Við vildum svo sannarlega
komast áfram með því að vinna
þennan leik en við verðum bara að
gera það á Eawood Park,“ sagði Ar-
sene Wenger, stjóri Arsenal.
Áætlun okkar heppnaðist
,,Ég get ekki annað en hrósað
frammistöðu minna manna. Okkar
áætlanir heppnuðust. Við náðum að
halda leikmönnum Arsenal í skefjum
og urðum fyrsta enska liðið sem nær
að halda Arsenal frá því að skora á
Emirates,“ sagði Mark Hughes,
knattspyrnustjóri Arsenal.
Abramovich mætti á ný
Eins og við var búist áttu Eng-
landsmeistarar Chelsea greiða leið í
8-liða úrslitin en liðið sigraði 1. deild-
arlið Norwich á afar ljótum Stam-
ford Bridge velli. Roman Abramo-
vich eigandi Chelsea var mættur á
sinn stað eftir sex leikja fjarveru og
hann sá sína menn skora fjögur
mörk. Fyrsta markið lét þó standa
nokkuð á sér en Shaun Wright-Phil-
lips kom Englandsmeisturum í 1:0 á
39. mínútu og í seinni hálfleik bættu
þeir Didier Drogba, Michael Essien
og Andriy Shevchenko við þremur
mörkum en tvö síðustu mörkin komu
á lokamínútunni.
,,Þetta var nú kannski full stórt
tap fyrir Norwich. Liðið lék vel og
gerði okkur erfitt fyrir í fyrri hálf-
leik. Við höfðum heppni með okkur
að vera yfir eftir fyrri háfleikinn.
Eftir að við bættum við öðru mark-
inu var þetta aldrei spurning og ég
gat leyft mér að hvíla leikmenn og
hefja undirbúning fyrir leikinn gegn
Porto í Meistaradeildinni á miðviku-
daginn,“ sagði Jose Mourinho,
knattspyrnustjóri Chelsea.
Seigla í WBA
deildarlið WBA sýndi mikla seiglu
þegar því tókst að ná jöfnu, 2:2 gegn
Middlesbrough og það á Riverside.
Heimamönnum tókst í tvígang að
komast yfir í leiknum. Julio Arca og
Yakubu úr vítaspyrnu skoruðu
mörkin fyrir Middlesbrough en
Diomansy Kamara og gamla brýn-
ið Kevin Phillips jöfnuðu metin fyrir
gestina.
,,Það er greinilegt að mínir menn
eru hrifnir af endurteknum leikjum,“
sagði Gareth Southgate, knatt-
spyrnustjóri Middlesbrough en í
þriðja sinn í keppninni verður lið
hans að fara í endurtekinn bikarleik.
,,Það sat þreyta í okkur eftir leikinn
við Bristol í vikunni en lið WBA er
úrvalsdeildarlið að ölly leyti nema
nafninu til,“ sagði Southgate.
Friedel í banastuði
BRAD Friedel markvörður Blackburn sá til þess að lið hans fær annað
tækifæri gegn Arsenal í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar og það á
heimavelli. Friedel sýndi stórbrotna markvörslu á lokamínútum í við-
ureign Arsenal og Blackburn á Emirates Stadium en markalaust jafntefli
varð niðurstaðan og þurfa liðin að eigast við að nýju á Eawood Park þann
28. febrúar. Chelsea vann öruggan sigur Norwich en Middlesbrough og
WBA verða að mætast aftur og það á heimavelli 1. deildarliðsins.
Reuters
Svekktur Justin Hoyte leikmaður Arsenal sársvekktur eftir að hafa klúðrað dauðafæri undir lok leiksins.
Bandaríski markvörðurinn hetja Blackburn sem náði jöfnu gegn Arsenal á
Emirates Stadium - Chelsea fór létt í 8-liða úrslitin eftir stórsigur á Norwich
Sir AlexFerguson,
knattspyrnustjóri
Manchester Unit-
ed, segir að Steve
Coppell, stjóri
Reading, verð-
skuldi að verða
fyrir valinu sem
knattspyrnustjóri
ársins. ,,Árangur hans með liðið er
hreint frábær. Coppell hefur svo náð
því besta út úr leikmönnum sínum,“
segir Ferguson en margir spá því að
Ferguson verði fyrir valinu.
Hollenski landsliðsmaðurinnKhalid Boulahrouz, sem leik-
ur með Chelsea, varð fyrir því óláni
að fara úr axlarlið þegar Chelsea
burstaði Norwich, 4:0, í 16 liða úr-
slitum ensku bikarkeppninnar. Bou-
lahrouz verður frá keppni í langan
tíma en hann var að leika í dag sinn
fyrsta leik í sex vikur eða frá því
hann meiddist á hné í leik gegn
Aston Villa.
Plymouth hafði betur í baráttunnivið Derby, 2:0, í 5. umferð bik-
arkeppninnar en 1. deildar liðin átt-
ust við á heimavelli Plymouth. Ke-
vin Gallen úr vítaspyrnu og Scott
Sinclair skoruðu mörkin, sitt í hvor-
um hálfleik.
Darren Moore, varnarmaðurDerby, sem trónir á toppi 1.
deildarinnar, á ekki góðar minn-
ingar frá leiknum. Hann fékk dæmd-
ar á sig tvær vítaspyrnur í leiknum
og skoraði Gallen úr annarri þeirra
en misnotaði hina. Moore fékk svo
að líta sitt annað gula spjald á 65.
mínútu og var vikið af velli.
Eggert Magn-ússon,
stjórnarformaður
West Ham, gagn-
rýnir Alan Par-
dew, fyrrum
knattspyrnu-
stjóra félagsins, í
viðtali við breska
blaðið News of
the World í gær
en Eggert lét Pardew taka poka
sinn og réð Alan Curbishley í stað-
inn. Pardew tók við liði Charlton en
West Ham og Charlton mætast í
sannkölluðum fallbaráttuslag um
næstu helgi.
Úkraínski framherjinn AndrejVoronin mun ganga í raðir
Liverpool í sumar frá þýska liðinu
Bayer Leverkusen. Fjölmiðlar
greina frá því í dag að leikmaðurinn
hafi samþykkt að gera fjögurra ára
samning við Liverpool en hann kem-
ur til félagsins án greiðslu þar sem
samningur hans við Leverkusen
rennur út í sumar.
Iain Dowieverður í dag
útnefndur nýr
knattspyrnustjóri
hjá enska 1.
deildar liðinu
Coventry en
Adrian Heath
hefur stýrt liðinu
tímabundið eftir
að Micky Adams var vikið frá störf-
um í síðasta mánuði. Dowie fékk
reisupassann hjá Charlton í nóv-
ember en þar áður stýrði hann liðum
Oldham og Crystal Palace.
Joan Laporta forseti Barcelonasagði í viðtali við breska blaðið
Mail on Sunday í gær að félagið hafi
ekki gert tilboð í portúgalska lands-
liðsmanninn Cristiano Ronaldo,
leikmann Manchester United. ,,Við
erum ánæðir með leikmannahóp
okkar og höfum ekki gert tilboð í
neinn leikmann,“ sagði Laporta.
Fólk sport@mbl.is
DAMIEN Francis tryggði Watford,
botnliðinu í ensku úrvalsdeildinni,
farseðilinn í 8-liða úrslit ensku bik-
arkeppninnar þegar liðið lagði 1.
deildarlið Ipswich, 1:0, á Vicarage
Road. Francis skoraði eina mark
leiksins með skalla tveimur mín-
útum fyrir leikslok en heimamenn
léku manni fleiri allan seinni hálf-
leikinn en George O’Callaghan var
vikið af velli á lokamínútu fyrri
hálfleiks. Watford hafði heppnina
með sér því Ipswich átti tvö skot í
markastangirnar og mark var
dæmt af liðinu sem þótti mjög um-
deildur dómur.
,,Þetta var góður leikur en ég
verð að viðurkenna að Ipswich var
lengst af leiksins betra en við. En
það er frábært að vera komin í 8-
liða úrslitin,“ sagði Adrian Bo-
othroyd knattspyrnustjóri Watford
eftir leikinn en hans menn hafa ver-
ið að sækja í sig veðrið í und-
anförnum leikjum. ,,Í fótbolta líkt
og lífinu þá færðu ekki alltaf það
sem þú át skilið. Ég er búinn að sjá
markið sem við skoruðum og það
var fullkomlega löglegt og ég skil
ekki af hverju það var dæmt af og
heldur ekki hvers vegna okkar
maður var sendur útaf,“ sagði Jim
Magilton, stjóri Ipswich.
Watford
heppið
TVÖ mörk á síðustu sjö mínútunum
gegn Preston tryggðu Manchester
City sæti í 8 liða úrslitum ensku bik-
arkeppninnar í gær. City fagnaði
sigri, 3:1, á útivelli eftir að hafa lent
undir í upphafi leiksins.
David Nugent kom 1. deildar lið-
inu yfir á 6. mínútu en Michael Ball
jafnaði fyrir City tíu mínútum fyrir
leikhlé. Það stefndi allt í jafntefli og
annan leik á Manchester Stadium
en sjö mínútum fyrir leikslok skaut
Grikkinn Georgios Samaras bolt-
anum í varnarmann Preston og af
honum fór boltinn í netið og á loka-
mínútunni innsiglaði Stephen Irel-
and sigur gestanna með góðu
marki en írski landsliðsmaðurinn,
sem er 20 ára gamall, framlengdi
nýlega samning við Manchester
City.
Preston hefur ekki tekist að
leggja efstu deildar lið að velli í bik-
arnum síðan 1979 og engin breyt-
ing varð á því í gær.
Preston
stóð í City