Morgunblaðið - 09.03.2007, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 9. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÞAÐ AÐ EIGA KÆRUSTU
HEFUR OPNAÐ HUGA MINN
FYRIR SVO MÖRGU NÝJU
ÉG ER BÚINN AÐ LÆRA
SVO MIKIÐ UM KONUR ÞYKIR
ÞAÐ LEITT
MÉR
LÍKA!
HANN ER
FRÁBÆR...
ALVEG
FRÁBÆR!
SÁSTU HVERNIG HANN
LÉT HANN FLJÚGA
SÍÐASTA SUMAR?
MAÐUR HEFUR EKKI SÉÐ
NEITT FYRR EN MAÐUR
HEFUR SÉÐ HANN NEGLA
HONUM Í SKEYTIN!
ÞEGAR MAÐUR GETUR
HLUTINA EKKI SJÁLFUR
ER ALLTAF GOTT AÐ TALA
UM FÓLK SEM GETUR ÞÁ
KALVIN,
HVAÐ ERTU AÐ
GERA?
ÉG ER BARA Á
KLÓSETTINU!
ER ALLT Í LAGI
HJÁ ÞÉR?
ÞAÐ ER
ALLT Í LAGI!
EKKI KOMA
HINGAÐ
INN!
MAMMA,
HEILSAÐU
AÐEINS UPP Á
HANN HRÓLF...
HANN ER BÚINN
AÐ VERA AÐ
UNDIRBÚA
HEIMSÓKNINA ÞÍNA
Í MARGAR VIKUR
!!
ÉG HEF HEYRT AÐ
ÞIÐ JACK RUSSEL
HUNDAR SÉUÐ
MJÖG FLJÓTIR...
EN ERUÐ ÞIÐ
JAFN FLJÓTIR OG
BÍLAR?
SJÁÐU!
ÞARNA ER
RÚTA! DRÍFÐU
ÞIG AÐ NÁ
HENNI!
HVAR ER
EIGINLEGA
KÁTUR?
MIÐAÐ VIÐ
ÁÆTLUNINA
ÆTTI HANN
AÐ VERA Á
BORGARNESI
RÚTU-ÁÆTLUN
VEISTU HVAÐ RAJIV
SAGÐI MÉR UM
FRÆNKU SÍNA?
LALLI, ÆTLUÐUM
VIÐ EKKI AÐ HÆTTA
AÐ SLÚÐRA?
VIÐ ERUM BÚIN AÐ
STANDA OKKUR SVO VEL...
ÉG VIL EKKI AÐ VIÐ BYRJUM
Á ÞESSU AFTUR
ERUM VIÐ AÐ
SLÚÐRA EF ÞETTA ER
MANNESKJA SEM VIÐ
ÞEKKJUM EKKI?
HMM... ÞAÐ ER
GÓÐ SPURNING
HVAÐ UM
ÞAÐ...
BYSSU-
MAÐURINN
HEFUR LAGT
Á FLÓTTA Í
STOLNUM
BÍL...
HLJÓMAR EINS OG
LÖGREGLUNNI VEITI
EKKI AF HJÁLP
HANN ER Á FLÓTTA
SUÐUR MEÐ LÖGREGLUNA
Á HÆLUNUM, STEFNANDI
VEGFARENDUM Í HÆTTU
ÉG GET
EKKI SETIÐ
HÉRNA
AÐGERÐA-
LAUS!
NÚ ER KOMIÐ AÐ
KÓNGULÓARMANNINUMLEIKARINN Peter O’Toole fer með
hlutverk leikarans Murice sem kom-
inn er af léttasta skeiði. Hann er far-
inn að hræðast dauðann og fellst því á
að ung frænka vinar hans flytji inn til
sín til að hafa auga með honum.
Sú heitir Jessie og reynist allt öðru-
vísi en Maurice hafði gert sér í hug-
arlund, drykkfelld og kjaftfor. Það
kemur honum því ekki síst á óvart
þegar hann finnur kvikna hjá sér til-
finningar til þessarar óhefluðu stúlku
sem er fimmtíu árum yngri en hann
sjálfur. O’Toole var tilnefndur til Ósk-
arsverðlauna á dögunum fyrir hlut-
verk sitt í myndinni.
Venus er frumsýnd í dag í Regn-
boganum á vegum Græna ljóssins.
Frumsýning | Venus
Venus Vegir ástarinnar eru órannsakanlegir.
Einkar óvenjuleg
ástarsaga
Erlendir dómar:
Metacritic: 82/100
The New York Times: 80/100
Empire: 80/100
Variety: 70/100
Allt skv. metacritic.com
Breiður hópur sýnenda tek-ur þátt í þessari stórsýn-ingu og sýnir nýjustuframfarir í rafrænum
samskiptum og þjónustu,“ segir
Margit Elva Einarsdóttir fram-
kvæmdastjóri sýningarinnar Tækni
og vit 2007 sem haldin er í Fífunni,
Smára til 11. mars.
Rösklega 100 fyrirtæki og stofn-
anir af öllum stærðum og gerðum
taka þátt í sýningunni: „Fyrstu
tveir dagar sýningarinnar eru opnir
fagaðilum, en um helgina er sýn-
ingin opin almenningi og ættu allir
að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi,“ segir Margit. „Af mörgu er
að taka, og má til dæmis nefna
kynningu á Playstation 3 leikjatölv-
unni sem kemur á markað hér á
landi um miðjan mánuðinn. Kvik-
myndafyrirtækið Caoz sem gerði
tölvuteiknuðu verðlaunamyndina
Anna og skapsveiflurnar verður
með bíó.“
Kappakstur og leikir
„Apple á Íslandi kynnir nýjustu
tölvur og hugbúnað, og Microsoft
kynnir einnig fjölda nýjunga. Þá
verður Formúla 1 með bás þar sem
gestir geta prófað kappakst-
urshermi sem atvinnuökuþórar nota
til að æfa sig fyrir keppni,“ segir
Margit, „Einnig má nefna sýningu
Orkuveitu Reykjavíkur á gróður-
húsaáhrifum en í sýningarbás OR
hefur verið reist sérstakt gróðurhús
sem sýnir þessi áhrif á spennandi
hátt. Þetta eru aðeins örfá dæmi um
það sem sýnendur hafa fram að
færa. Fjölbreytnin er mikil og seint
hægt að telja upp allt sem er í boði.“
Sýnendur verða með margskonar
viðburði um helgina, veitt verður
viðurkenning fyrir athyglisverðasta
básinn og bein útsending verður frá
sýningunni á Rás 2 á laugardag frá
1 til 4.
Meðal annarra viðburða sem
haldnir verða í tengslum við sýn-
inguna má nefna ráðstefnu Samtaka
iðnaðarins um samskipti frumkvöðla
og fjárfesta, sem haldin verður í
Salnum, Kópavogi 9. mars, og af-
hendingu Vaxtarsprotans í Gerð-
arsafni en Vaxtarsprotinn er við-
urkenning til þess sprotafyrirtækis
sem náð hefur bestum árangri und-
anfarin ár.
Sýningin Tækni og vit 2007 er
haldin í tengslum við Upplýsinga-
tæknidaginn, UT-daginn, sem for-
sætisráðuneytið og fjármálaráðu-
neytið standa að. Auk þessara
ráðuneyta eru samstarfsaðilar á
sýningunni iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytið, Samtök iðnaðar-
ins, Háskólinn í Reykjavík, Orku-
veita Reykjavíkur og TM Software.
Á UT-deginum var opnuð þjón-
ustugáttin www.island.is sem er
samstarfsverkefni ráðuneyta og
sveitarfélaga og á að gera alla
helstu þjónustu og upplýsingar að-
gengilegar almenningi á einfaldan
hátt gegnum netið.
Nánar má fræðast um dagskrá og
sýnendur Tækni og vit 2007 á slóð-
inni www.taekniogvit.is
Sýning | Rösklega 100 sýnendur á Tækni og
vit 2007 sem stendur til 11. mars í Fífunni
Nýjasta tækni og
rafræn þjónusta
Margit Elva
Einarsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 1963. Hún
lauk stúdents-
prófi frá MH
1983 og BS í fjöl-
miðlafræði frá
Ohio University
1990. Margit hef-
ur starfað við markaðs-, auglýs-
inga- og kynningarmál frá 1990.
Frá 2005 hefur Margit verið for-
stöðumaður viðburða hjá AP-
almannatengslum ehf. Margit er
gift Guðmundi Emil Jónssyni mat-
reiðslumeistara og eiga þau tvo
syni. Guðmundur á þrjú börn frá
fyrra hjónabandi.