Morgunblaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 10. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ  ÍR er fyrsta félagið í landinu sem stofnað er um fimleika.  ÍR er fyrsta íþróttafélagið í land- inu sem beitir sér fyrir æfingum í frjálsíþróttum. Þær fóru fram á Landakotstúninu í byrjun júní 1907.  ÍR er fyrst félaga til þess að kaupa fullkomin frjálsíþróttaáhöld frá útlöndum – spjót, kringlu, kúlu og stöng. Það gerði félagið þegar á fyrsta ári, 1907.  ÍR átti fulltrúa í fyrstu ólympíu- sveit Íslendinga, Hallgrím Bene- diktsson og Sigurjón Pétursson. Þeir voru félagsmenn í ÍR og voru tveir af glímumönnunum sem sýndu íslenska glímu á leikunum í Lund- únum 1908. Sigurjón keppti að auki í grísk-rómverskri glímu og varð fjórði.  ÍR hélt fyrsta frjálsíþróttamótið sem fram fór í landinu, en það var háð 1.–2. ágúst 1909. Þar komu ÍR- ingar í fyrsta sinn fram til að keppa. Fyrri daginn fór fram einnar danskrar mílu hlaup, Árbæjar- hlaupið, og varð Einar Pétursson fjórði af 28 keppendum á 28:15 mín., 15 sekúndum á eftir sigurvegaran- um. Daginn eftir var keppt í 100 m, 1.000 m, hástökki og langstökki. Hlaupin fóru fram á Melunum á lík- um stað og íþróttavöllurinn stóð síð- ar, en stökkin á Landakotstúni. ÍR- ingar sigruðu í 100 m hlaupi (Helgi Jónasson frá Brennu), hástökki og langstökki (Kristinn Pétursson blikksmiður).  ÍR hélt fyrstu opinberu fimleika- sýninguna í Reykjavík á 20. öldinni en hún fór fram undir stjórn Andr- easar J. Bertelsens í Barnaskóla- portinu 5. júní 1910 og hófst kl. 2 e.h.  ÍR átti fyrsta keppanda Íslands í frjálsíþróttum á Ólympíuleikum en það var Jón Halldórsson, síðar rík- isféhirðir, sem keppti í 100 metra hlaupi í Stokkhólmi 1912. Jón Kal- dal, síðar formaður félagsins og annálaður ljósmyndari, keppti næstur Íslendinga í 5 km hlaupi í Antwerpen 1920 og síðan hefur fé- lagið átt mikinn fjölda keppenda á Ólympíuleikum.  ÍR-formaðurinn þáverandi, Benedikt G. Waage, vann eitt mesta íþróttaafrek samtímans, og e.t.v. seinni tíma líka, er hann synti úr Viðey til Reykjavíkur 6. september 1914. Hann lagði af stað frá höfðan- um vestanvert við Viðeyjarbúið og synti að Völundarbryggju. Er sú vegalengd 3,5 kílómetrar og var hann eina klst. og 56 mínútur á leið- inni. Kalt var í veðri og sjávarhiti aðeins 10,5 stig.  ÍR er fyrsta félagið sem fær út- lendan þjálfara hingað til lands gagngert til þess að kenna íþróttir. Þar er um að ræða Norðmanninn Reidar Tönsberg, 1922.  ÍR sendi árið 1922 fyrst félaga íþróttaflokk út á land er flokkur karlmanna fór til Vestur- og Norð- urlands til þess að sýna fimleika. Flokkurinn kom gangandi frá Ak- ureyri til Reykjavíkur um Kjöl.  ÍR fékk flesta vinninga á fyrsta Allsherjarmóti ÍSÍ, sem haldið var 1921, og hlaut farandbikar sam- bandsins. Það sigraði einnig á mótinu 1926 þótt aðeins kepptu þar 12 menn frá ÍR en 72 frá öðrum fé- lögum.  ÍR bar sigur úr býtum í fyrsta Fimleikamóti Íslands, flokka- keppni, sem fram fór 1924.  ÍR sendi 1925 tvo fimleikaflokka, karla og kvenna, kringum land til Reyðarfjarðar, er sýndu fimleika í öllum stærstu kauptúnum. Stúlk- urnar fóru með skipi til Reykjavík- ur, en karlmennirnir landveg frá Reyðarfirði um Fljótsdalshérað, yf- ir Skaftafellssýslur til Reykjavíkur. Stóran hluta fóru þeir gangandi um vegleysur!  ÍR hélt fyrsta innanfélagsmeist- aramót í frjálsíþróttum sem háð hefur verið á Íslandi, en það hélt fé- lagið haustið 1926.  ÍR átti fyrsta Íslandsmeistarann í fimleikum er Magnús Þorgeirs- son, kenndur við verslun sína Pfaff, sigraði árið 1927 á fyrsta Íslands- mótinu í einstaklingskeppni í fim- leikum. Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is Hann segir að forráðamenn félags- ins sjái nú fram á betri tíma og breytinga sé að vænta á allra næstu árum. „Það er verið að vinna í skipu- lagi svæðisins með Reykjavíkurborg og það mun gjörbreyta allri aðstöðu fyrir félagið þegar þær breytingar verða komnar í gagnið. Þarna á að byggja íþróttahús og það á að horfa til þess að Reykjavík- urborg byggi upp ýmsa aðra þjón- ustu sem þarf að vera í hverfinu, svo sem félagsmiðstöð og þjónustumið- stöð. Þannig verður ÍR-svæðið orðið allsherjar þjónustumiðstöð fyrir íbúana í hverfinu. Þannig sjáum við ÍR, eins og mörg íþróttafélög eru en þó ekki öll, með tvennum hætti. Ann- ars vegar sem þjónustuaðila fyrir alla íbúa í hverfinu hvað varðar íþróttastarf allra grunnskólabarna. Jafnframt erum við að vinna að af- reksstefnu fyrir félagið því það ligg- ur alveg ljóst fyrir að til þess að ungt fólk hafi mikinn áhuga á að taka þátt í íþróttum þarf það að hafa fyrir- myndir og afreksfólk er fyrirmynd. Það er því hluti af þessari uppbygg- ingu hjá okkur að byggja upp afreks- stefnu sem til lengri tíma litið á ekki bara að gera ÍR að stærsta félaginu hvað varðar fjölda greina og iðk- enda, heldur einnig að sigursælu fé- lagi,“ segir Úlfar. Hann segist vonast til að upp- byggingin sem fyrir höndum er verði á allra næstu árum. „Það var búið að skrifa undir samning við Reykjavík- urborg á síðasta ári en sá samningur hefði takmarkað mjög það sem hægt væri að gera á svæðinu. Við höfum því verið í viðræðum við nýjan meiri- hluta hjá Reykjavíkurborg hvað varðar þetta svæði og meirihlutinn hefur sýnt okkur mikinn vilja til að klára nú þessa aðstöðu fyrir félagið – og kannski ekki seinna vænna. Við erum því mjög bjartsýn á að aðstað- an verði orðin til fyrirmyndar eftir ekki svo mörg ár. Þetta er gríðarlega mikilvægt félagslega fyrir okkur. Þar sem öll starfsemin, eða nánast öll starfsemin, getur farið fram á sama svæðinu hittist fólk reglulega og ræðir um sitt félag og málefni tengd því. Núna er fótboltinn hérna, karfan í Seljaskóla og handboltinn í Austurbergi. Frjálsar eru í Laugar- dalshöllinni þar sem búið er að byggja gríðarlega myndarlega að- stöðu fyrir íþróttina. Svo erum við með júdó, dans og tækvondo í húsinu hjá okkur en mjög þröngt um þær greinar þannig að það verður algjör bylting þegar ný og bætt aðstaða kemur. Félagið er með mikið svæði til að byggja starfsemi sína á og ég held að það sé ekkert félag í Reykjavík sem hefur svona gott svæði. Það eru skemmtilegir tímar framundan hjá okkur og við trúum því að á næstu fimm árum verði hrein bylting á þessu hjá ÍR. Þetta yrði þá í fyrsta sinn í sögu félagsins þar sem stærstur hluti starfseminnar yrði kominn á einn og sama staðinn. ÍR kom upp í Breið- holt um 1970 en íþróttaaðstaða í hverfinu var ekki byggð upp samfara fólksfjölguninni. Ef við horfum til dæmis á Grafarvoginn þá er íþrótta- aðstaðan þar byggði upp með hverf- inu og þannig þarf þetta að vera, en það gerist ekki í Breiðholtinu,“ segir Úlfar og horfir björtum augum til framtíðar ÍR. Morgunblaðið/RAX Nýr völlur Úlfar Steindórsson, formaður Íþróttafélags Reykjavíkur, á nýja gervigrasvellinum í Mjódd. Úlfar Steindórsson, formaður Íþróttafélags Reykjavíkur ÍR á einn stað AÐDRAGANDI að stofnun Íþróttafélags Reykja- víkur 11. mars 1907 var ekki langur. Mörg félög höfðu verið stofnuð í bænum árin á undan en gefið jafnharðan upp öndina eftir stutta lífdaga. Sigurbjörn kaupmaður í Vísi segir í æviminn- ingum sínum, að ekkert félag hafi verið starf- andi í bænum þegar ÍR var stofnað. Því töldu menn að hér væri á ferðinni eitt félagið enn sem senn myndi sálast er forstjóri klæðaverksmiðj- unnar Iðunnar, Andreas J. Bertelsen, birti aug- lýsingu í blaðinu Ísafold miðvikudaginn 13. febr- úar 1907. „Leikfimis- og íþróttafélag. Félag til eflingar leikfimi og íþróttum er ætlast til að verði stofnað hér í bæ, ef nógu margir gefa sig fram. Þeir sem vilja sinna þessu máli eru beðnir að mæta á hótel Ísland á föstudaginn kemur kl. 9 síðdegis. A. Bertelsen.“ Þar var félaginu valin bráðabirgða- stjórn. Hófst hún handa um að útvega húsnæði til æfinga og þegar það var fengið í leikfimisal Barnaskólans boðaði hún til formlegs stofn- fundar ÍR mánudaginn 11. mars. Á hann mættu 90 menn sem allir gerðust félagar. Var Bertelsen kosinn formaður. Þótt ÍR fengi íþróttasal á leigu þremur dögum fyrir stofnun var félagið áratugum saman á hrakhólum hvað aðstöðu og félagssvæði varðar. Af þeim sökum m.a. hefur orðið að leggja niður íþróttadeildir í félaginu, þrátt fyrir mikla ásókn í þær. Til dæmis fimleikadeildina, greinina sem félagið var stofnað um. Gríðarleg breyting hefur orðið í starfsemi ÍR á einni öld. Nokkrar deildir hafa komið og farið á þessum tíma. Ein er þó sú íþrótt sem félagið hef- ur stundað samfellt í hundrað ár, frjálsíþróttir. Eftir flutninginn í Breiðholt hefur ÍR fest sig vel í sessi og orðið rótgróið hverfisfélag. Eru það mikil umskipti frá árum áður, þegar starfsemin fór fram víða vegar um Reykjavík. Ekki spáð löngum lífdaga FRÁ upphafi vega hafa 24 menn gegnt formennsku í Íþróttafélagi Reykjavíkur. Tveir þeirra, Helgi Jónasson frá Brennu og Haraldur Johannessen, hafa nokkrum sinnum verið formenn félagsins. Í seinna skiptið sem Andreas J. Bertelsen tók við formennsku entist honum ekki heilsa til starfans nema í mánuð og tók varaformað- urinn, Helgi frá Brennu, þá við. Var það í þriðja sinn sem hann fór fyrir félaginu en Haraldur gerði það fjórum sinnum. Lengst hefur setið á formannsstóli Þorbergur Halldórsson, eða í 13 ár, frá 1993–2006. Helgi frá Brennu sat ellefu ár og Þórir Lárusson í átta. Formenn félagsins hafa annars verið: Andreas J. Bertelsen, 1907–1911 og í einn mánuð 1934 Jón Halldórsson, 1911–1914 Benedikt G. Waage, 1914–1917 Helgi Jónasson frá Brennu, 1917–1925,1927–1929 og 1934–1935 Haraldur Johannessen, 1925–1927, 1929–1931,1939–1940 og 1943– 1944 Þorsteinn Sch. Thorsteinsson, 1931–1932 Sigurliði Kristjánsson, 1932–1934 Jón J. Kaldal, 1935–1939 Torfi Þórðarson, 1941–1943 Þorsteinn Bernharðsson, 1944–1945 Sigurpáll Jónsson, 1945–1948 Axel Konráðsson, 1948–1951 Gunnar Steindórsson, 1951–1953 Jakob Hafstein 1953–1958 Albert Guðmundsson, 1959–1961 Sigurjón Þórðarson, 1961–1962 Reynir Sigurðsson, 1962–1965 Sig. Gunnar Sigurðsson, 1965–1972 Ásgeir Guðlaugsson, 1972–1977 Þórir Lárusson, 1977–1985 Ágúst Ásgeirsson, 1985–1986 Hólmsteinn Sigurðsson, 1986–1993 Þorbergur Halldórsson, 1993–2006 Úlfar Steindórsson, frá 2006 Formenn Íþróttafélags Reykjavíkur Kl. 11.00. Formleg afhending á gervi- grasvelli frá Reykjavíkurborg til Íþróttafélags Reykjavíkur. Úlfar Steindórsson formaður ÍR opnar hátíðina og býður alla velkomna. Þeir Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson borgarstjóri, Óskar Bergsson formaður framkvæmdaráðs og Björn Ingi Hrafnsson formaður ÍTR segja nokkur orð, afhenda ÍR- ingum völlinn og innsigla það með skotum á mark þar sem markvörður frá ÍR mun standa á milli stanganna. Krakkar frá ÍR verða með stutta æfingu á nýjum velli félagsins. Í framhaldi verður skrifað undir samkomulag Íþrótta- félags Reykjavíkur og Reykja- víkurborgar um framtíðarupp- byggingu og skipulag á svæðinu í Suður-Mjódd. Eftir þessa athöfn býður Reykjvíkurborg og ÍR til léttra veitinga í sal uppi á 2. hæð í ÍR-heimilinu. Kl. 12.30. Heiðursviðurkenningar til þeirra sem hafa verið til- nefndir heiðursfélagar ÍR af aðalstjórn félagsins. Kl. 13.00. Veittar verða gull- og silfur- viðurkenningar til þeirra sem hafa verið tilnefndir af stjórn- um allra þeirra 9 deilda sem eru innan ÍR. Kl. 13.45. Afmæliskveðjur frá sér- samböndum og öðrum í tilefni af 100 ára afmæli félagsins. Kl. 14.00. Ágúst Ásgeirsson kynnir bók ÍR en hún spannar 100 ára sögu félagsins. Ágúst er jafn- framt höfundur bókarinnar. Eftir þessa kynningu verður Guðbrandur Benediktsson deildarstjóri miðlunar á Minja- safni Reykjavíkur með stutta kynningu á hátíð sem fram fer í sumar í tilefni af opnun sýn- ingar um ÍR í nýuppgerðu ÍR- húsi á Árbæjarsafni. Kl. 15.00. Formlegri dagskrá lýkur en húsið verður opið til kl. 16.30. Þess má geta að á veggjum verða myndir úr bók ÍR ásamt efni frá RÚV (gamalt og nýtt) sem verður varpað á breið- tjald. 100 ára afmæl- isdagskrá ÍR 11. mars 2007 „ÞAÐ sem þetta snýst um hjá okkur er að ÍR, sem verður hundrað ára á sunnudaginn, hefur búið við dálítið sérstakar aðstæður til langs tíma. Við höfum ekki átt möguleika á að vera með einn samastað fyrir allt félagið og nú viljum við bæta úr því á næstu árum,“ segir Úlfar Steindórsson, formaður Íþróttafélags Reykjavíkur, ÍR, en félagið fagnar 100 ára afmæli sínu nú um helgina – í dag og á afmælisdaginn 11. mars. „Ætli það séu ekki sextán eða sautján ár síðan félagsheimilið í Mjóddinni var byggt. Það hýsir í sjálfu sér mjög takmarkaðan hluta af starfseminni. Knattspyrnan er þarna, en hand- bolti, karfan og frjálsar hafa verið hér og þar í gegn um tíðina og það er að hluta til ákveðinn þröskuldur fyrir því að félag í svona gríðarlega stóru hverfi hafi náð að vaxa og þroskast eins og búast mætti við,“ segir Úlfar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.