Morgunblaðið - 10.03.2007, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.03.2007, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 10. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ  ÍR sá um framkvæmd fyrsta Meistaramóts Íslands í frjáls- íþróttum, sem fram fór 1927 í Reykjavík.  ÍR sendi 1927 úrvalsflokka karla og kvenna til Noregs og Svíþjóðar. Var það fyrsta utanför íþróttahópa á vegum félaga. Eftir að hafa sýnt fimleika víðsvegar í Noregi tóku stúlkurnar þátt í íþróttaviku í Gautaborg, sem haldin var til minningar um 150 ára afmæli íþróttafrömuðarins P.H. Ling.  ÍR sendi enn 1928 kvennaflokk sinn á alheimsmót í fimleikum, sem haldið var í Calais í Frakk- landi. Var flokkurinn talinn best- ur allra kvenflokka er þar sýndu.  ÍR eignaðist fyrst íþróttafélaga í landinu eigið íþróttahús, árið 1929. Fyrsti frumkvöðull að stofnun húsbyggingarsjóðs var sendiherra Íslands í Danmörku, Sveinn Björnsson [síðar fyrsti forseti lýðveldisins], sem var ÍR- ringur af lífi og sál. Formaður fé- lagsins og stjórnarmaður um langt árabil, Haraldur Johann- essen [faðir Matthíasar ritstjóra Morgunblaðsins], átti frumkvæðið að því að ÍR eignaðist gömlu Landakotskirkjuna sem breytt var í íþróttahús.  ÍR byrjaði fyrst allra félaga hér á landi iðkun badmintons, ár- ið 1933. Barst sú íþróttagrein til landsins frá Danmörku með tveimur ÍR-ingum, Jóni Kaldal og Jóni Jóhannessyni.  ÍR-ingarnir Friðrik Sigur- björnsson og Magnús Andrésson urðu fyrstir til þess að vinna til eignar verðlaunagrip sem keppt var um í tennis. Þeim áfanga náðu þeir er þeir unnu tvíliðaleik karla í 5. sinn, árið 1935. Bikarinn gaf Bergþóra Scheving Thor- steinsson á 20 ára afmæli ÍR 1927.  ÍR fékk verðmætustu gjöfina sem einstakur maður hafði gefið til eflingar íþróttum, er Ólafur Johnson konsúll gaf bíl sumarið 1938 til að nota í happdrætti vegna kaupanna á Kolviðarhóli.  ÍR-ingar komu upp fyrstu skíðalyftunni hérlendis árið 1938 í Hellisskarði á Þverfelli við Kol- viðarhól. Dráttarbraut þessi var 160 metra löng og knúði hana mótor úr Chevrolet árgerð 1929.  ÍR lék fyrsta leik fyrsta Ís- landsmótsins í handknattleik. Fór hann fram 30. mars 1940 í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við Lindargötu. Áttust við meist- araflokkar ÍR og Hauka í kvennaflokki og fór síðarnefnda liðið með sigur af hólmi, 22:14.  ÍR-ingar áttu lengi markamet í Íslandsmótinu í handknattleik. Jóel Sigurðsson, síðar Íslands- methafi í spjótkasti, skoraði 15 mörk er ÍR lagði Fram 26:6 í 2. flokki á Íslandsmótinu í leik sem háður var í Íþróttahúsi Jóns Þor- steinssonar sunnudaginn 7. apríl 1940. Met Jóels stóð í 18 ár eða þar til annar ÍR-ingur, Gunn- laugur Hjálmarsson, bætti það 1958. Skoraði hann 16 mörk í leik gegn Aftureldingu á Íslands- mótinu 1958 en leikinn unnu ÍR- ingar 40:23.  ÍR-ingurinn Finnbjörn Þor- valdsson varð fyrsti íslenski íþróttamaðurinn til að setja tíu Íslandsmet í íþróttum á einu og sama keppnistímabilinu. Það gerði hann í frjálsíþróttum árið 1946. Átti hann þá met í tólf greinum, þar af fimm boðhlaup- um.  ÍR-ingarnir Finnbjörn Þor- valdsson og Haukur Clausen urðu Norðurlandameistarar í 200 metra hlaupi, Haukur 1947 og Finnbjörn 1949 en þá vann hann 100 metra hlaupið líka.  ÍR-ingar háðu í Norðurlanda- förinni félagskeppnir við tvö sterk félög í Svíþjóð, Skuru IK í Stokkhólmi og Örebro SK í Örebro, og unnu báðar. Eru það fyrstu félagakeppnir Íslendinga við lið annarra þjóða í íþróttum. Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Hástökksatrennan hjá mér var þrjú skref í gamla ÍR-húsinu og þá varð að loka niður í kjallara til þess að maður dytti ekki niður,“ sagði Jón í samtali við Morgunblaðið í vikunni þegar hann var beðinn um að rifja upp gömlu og góðu árin. „Gamla ÍR-húsið, sem nú er verndað og komið á Árbæjarsafn, var ekki stórt, en það varð að nægja á þeim tíma þar sem önnur aðstaða var ekki fyrir hendi. En í þessu húsi setti ég Norð- urlandamet í hástökki innanhúss, 2,11 metra árið 1962,“ segir Jón en þess má geta að árangurinn var sá annar besti sem náðist í heiminum það árið og sá besti í Evrópu. Íslandsmetið stóð í 25 ár. „Við vorum alveg á kafi í atrennu- lausum stökkum á veturna, ÍR-ingarn- ir. Það gaf okkur gríðarlega aukna snerpu og styrk í fæturna. Þetta var ekkert annað en dúndurleikfimi. Það var svo takmarkað sem við gát- um gert í gamla ÍR-húsinu og því voru þessi atrennulausu langstökk, hástökk og þrístökk æfð alveg baki brotnu yfir vetrartímann,“ segir Jón sem átti um tíma Íslandsmet í langstökki og há- stökki án atrennu. Síðasta Íslandsmetið sem Jón setti í hástökki utanhúss var sett 15. maí 1965, 2,10 metrar og stóð það til ársins 1983. Jón keppti á tvennum Ólympíuleik- um, fyrst árið 1964 í Tókýó og aftur fjórum árum síðar í Mexíkó. Þá var hann einnig með á Evrópumeistara- mótinu í Belgrad 1962 og á ný fjórum árum síðar í Búdapest. Í hvorugt skipt- ið lánaðist Jóni að komast í úrslit. Þá var Jón meðal keppenda þegar Evr- ópumeistaramót innanhúss var í fyrsta sinn haldið árið 1966. „Þá varð ég í sjötta sæti,“ segir Jón. „Það er mjög eftirminnilegt að keppa á Ólympíuleikunum og mjög skemmtilegt, nokkuð sem maður gleymir aldrei. Mér gekk svona þokka- lega í bæði skiptin, fór yfir 2 metra í Tókýó og 2,06 í Mexíkó og var í kring- um miðja hóp keppenda.“ Var hættur en fór yfir 2 metra „Ég byrjaði að æfa frjálsíþróttir sex- tán ára gamall árið 1957 og æfði sleitu- laust fram til ársins 1970. Síðan tók ég þátt í bikarkeppni FRÍ með ÍR-ingum 1972, var beðinn um að hjálpa ÍR-ing- um við að vinna bikarinn. Þá fór ég yfir tvo metra alveg upp úr þurru.“ Jón segist ekki hafa stokkið hástökk síðustu tíu árin eða svo vegna óþæg- inda í ökkla en það hefur ekki komið í veg fyrir að hann taki þátt í öldunga- meistaramótum Íslands, bæði innan- húss og utan. „Ég keppi í kringlukasti fleiri greinum. Það er voðalega gaman að þessu.“ Melavöllurinn var ágætur Þegar Jón var upp á sitt besta var Melavöllurinn aðalkeppnisvöllur frjáls- íþrótta hér á landi og síðar Laugardals- völlur. Jón segir Melavöllinn hafa verið betri en Laugardalsvöll. „Melavöllur- inn var í sjálfu sér ágætur völlur. Það var ekkert hægt að kvarta yfir honum sem malarvelli. Laugardalsvöllur var hins vegar afleitur fyrir hástökk. Brautirnar voru byggðar upp af salla úr rauðamöl. Hann var þurr og gljúpur og lét undan við átök. Melavöllurinn var meira leirblandaður og þar var fastara undir fæti,“ segir Jón sem vann sín bestu afrek hér á landi á Melavelli. Stökk með grúfuaðferðinni Jón stökk með grúfuaðferðinni sem vart sést lengur eftir að Bandaríkja- maðurinn Dick Fosbury kom fram með Fosbury-stökkstílinn á síðari hluta sjö- unda áratugar síðustu aldar sem ein- göngu er stokkið eftir í dag. „Ég reyndi ekkert við Fosbury-stí inn enda var farið að síga á keppnisfe ilinn hjá mér þegar hann kom fram Hugsanlega hefði Fosbury-stílinn ge ið mér einhverja sentímetra til viðbó Hátt uppi Valbjörn Þorláksson var einn fremsti stangarstökkvari Evrópu á árunum 4,20 m á móti í Dresden á þessum árum og eins sjá má þá voru dýnur ekki komnar t að góðu að lenda í sandhrúgu auk þess stokkið var á stálstöng. Aðstaðan þætti ekki Það varð að loka niður í kj JÓN Þ. Ólafsson var einn fremsti hástökkvari Evrópu á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann keppti alla tíð undir merkjum ÍR og gerir reyndar enn þótt hann sé hættur að stökkva langstökk og farinn að snúa sér að öðrum greinum. Jón setti fjölmörg Íslandsmet í hástökki á sínum ferli auk ýmissa meta í atrennulausum stökkum sem talsvert var keppt í á sjötta og sjöunda áratugnum þar sem að- stæður til æfinga innandyra voru takmarkaðar, eins t.d. í gamla íþróttahúsi ÍR. Morgunblaðið/G.Rúnar Methafinn Jón Þ. Ólafsson. VALBJÖRN Þorláksson var í ÍR 28. ágúst 1962 þegar hann bætti 11 ára gamalt met Arnar Clausen á Mela- vellinum. Hlaut þá 6.983 stig en met Arnar var 6.889 stig, einnig sett á Melavelli. Met Arnar var á sínum tíma eitt besta íþróttaafrek Evrópu og athyglisvert þótti að Valbjörn sló það keppnislaust en honum tókst sérlega vel upp í flestum greinum. Valbjörn byrjaði keppnina með 10,8 sek. í 100 m hlaupi, sem var hans besta á árinu. Hann jók á möguleika sína með ágætu lang- stökki, 6,81 metra. Í kúluvarpi dalaði hann, varpaði 12,41 metra, en þetta bætti hann upp með 1,80 m í há- stökki. Lauk hann svo fyrri degi með 51,5 sek. í 400 m hlaupi. Var með 3.846 stig og hafði aldrei náð betri árangri fyrri dag og það gaf honum góðar vonir um met. Fyrsta grein seinni dags gerði eiginlega út um gamla metið því Valbjörn vann 110 m grind á ágætum tíma, 15,8 sek., langbesta tíma sem hann hafði náð. „Ég trúi þessu varla,“ sagði Val- björn er hann heyrði tímann. Hann fékk nú byr undir báða vængi og nýtt met blasti við ef ekkert færi úr- skeiðis. Hann náði ekki sínu besta í kringlunni, kastaði 39,04 m, en möguleikarnir voru enn miklir. Val- björn þurfti að bíða lengi eftir að komast að í stangarstökkinu. Loks er aðrir voru úr leik byrjaði hann á 3,80 m. Flaug yfir og hækkað var í 4,00 m sem voru engin hindrun held- ur. Sama gerði hann við 4,15 m en tvívegis felldi hann 4,30. Möguleik- arnir á meti voru ekki búnir, þótt hann hefði ekki þá hæð, en metið tryggt ef hann færi. Það varð því mikill fögnuður þegar hann smeygði sér yfir í síðustu tilraun. Spjótinu kastaði Valbjörn 55,54 m og ljóst var að met Arnar væri fallið. Hann leiddi 1.500 m hlaupið og vann það á 5.05,2 mín. og orðið var skuggsýnt og mjög napurt er þrautinni loks lauk. Árið áður setti Valbjörn Íslands- met í stangarstökki, 4,50 metra, sem var einn besti árangur í Evrópu á þeim tíma. Stóð það sem Íslandsmet í tvo áratugi þrátt fyrir miklar fram- farir og breytingar á stönginni, en Valbjörn setti met sitt á stálstöng sem nokkru síðar var hætt að keppa með eftir að fíberstangir fóru að ryðja sér til rúms. Valbjörn náði aldrei sömu tökum á fíberstönginni og fór hæst á henni yfir 4,40 metra. Valbjörn bætti met Arnar í tugþraut FINNBJÖRN Þorvaldsson var einn af afreksmönnum ÍR í frjáls- íþróttum á eftirstríðsárunum. Hann varð í sjötta sæti í 100 m hlaupi á Evrópumeistaramótinu í Ósló 1946 á 10,9 sekúndum eftir að hafa sett Íslandsmet í milli- riðlum, 10,8 sekúndur. Hann var yngstur keppenda í greininni á mótinu. Þá reyndi hann sig einn- ig í 200 m hlaupi en heltist úr lestinni í undanúrslitum. Finn- björn varð Norðurlandameistari í 100 og 200 m hlaupi árið 1949 í Stokkhólmi eftir að hafa keppt á Ólympíuleikunum í London árið á undan þegar Íslendingar sendu fjölmenna sveit til keppni. Finn- björn var einnig á meðal kepp- enda á EM í Brussel 1950 og komst í milliriðla í 100 m hlaupi. „Finnbjörn var frábær íþrótta- maður sem ekki einungis var góður í spretthlaupum heldur átti hann einnig um tíma Íslands- metið í langstökki,“ segir Jón Þ. Ólafsson, spurður um Finnbjörn. Finnbjörn setti Íslandsmet í langstökki 1947, 7,14 metra, og bætti það síðan um 2 sentimetra árið eftir. Honum var fleira til lista lagt og var m.a. í Íslands- meistaraliði ÍR í handknattleik árið 1948. „Finnbjörn var ásamt Clausen- bræðrum helsta stjarna ÍR-inga í frjálsíþróttum á árunum í kring- um 1950, stórskemmtilegur íþróttamaður,“ segir Jón Þ. Ólafsson, en hann þekkir frjáls- íþróttasögu ÍR betur en flestir aðrir. „Finnbjörn var frábær“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.