Morgunblaðið - 30.05.2007, Side 39

Morgunblaðið - 30.05.2007, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 39 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30. Vinnustofan opin kl. 9–16.30. Postulínsmálun kl. 9. Gönguhópur kl. 11. Postulínsmálun kl. 13. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan í Gull- smára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10– 11.30. S. 554-1226. Skrifstofa FEBK í Gjábakka er opin á miðvikudögum kl. 13–14. S. 554-3438. Fé- lagsvist er spiluð í Gullsmára á mánudögum kl. 20.30, en í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hrólfar fara í létta göngu kl. 10. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin. Félagsvist kl. 13. Kynning kl. 15. Fyrirhuguð sumar- starfsemi Gjábakka og Gullsmára. FEBK og hópar kynna starfsemi í sumar, Helgi Þórhallsson kynnir tölvunámskeið, fastir liðir kynntir o.fl. Bobb kl. 17. Samkvæmisdans kl. 19, línudans kl. 20, Sigvaldi kennir. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 10 ganga, kl. 10–11 Kaupþing banki, kl. 11.40 leikfimi og hádegis- verður, kl. 13 kvennabrids. Hárgreiðslustofa og fóta- aðgerðarstofa í húsinu. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Kvenna- leikfimi og æfingar fyrir landsmót kl. 9 í Kirkjuhvoli. Vatnsleikfimi í Mýri kl. 9.50. Brids spilað í Garða- bergi kl. 13, opið til kl. 16.30. Gerðuberg, félagsstarf| Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar. Kl. 9.20 sund og leikfimiæfingar í Breiðholts- laug. Kl. 10.30 gamlir leikir og þjóðdansar. Frá há- degi spilasalur opinn. Á næstunni verður opnaður púttvöllur við Breiðholtslaug, hugsanlega boðin leiðsögn í pútti, skráning á staðnum og í s. 5757720. Hraunbær 105 | Kl. 9–16.30 postulín. Kl. 12–12.30 hádegismatur. Kl. 13–16.30 brids. Kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Línudans kl. 11. Glerbræðsla kl. 13. Saumar kl. 13. Pílukast kl. 13.30. Gaflarakórinn kl. 16.15. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa kl. 9–16 hjá Sigrúnu, silki- og glermálun. Jóga kl. 9–12, Sóley Erla. Samverustund kl. 10.30 lestur og spjall. Böðun fyrir hádegi. Hársnyrting. Hæðargarður 31 | Afmælishátíðin heldur áfram. Listamunasýning kl. 9–16. Svavar Knútur mætir með gítarinn, lesin upp ljóð úr nýútkominni ljóðabók „Skapandi skrifa“ í Hæðargarði og ljóð eftir Þórð Helgason, hljómsveitin Opinberun leikur nokkur lög. Kaffisala og kátt í höllinni til kl. 16. S. 568-3132. Sjá vef rvk. borg. Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun fimmtudag er keila í Keiluhöllinni kl. 10 og Listasmiðjan opnuð á Korpúlfsstöðum kl. 13. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkrunarfræðingur frá heilsugæslunni kl. 10, leikfimi f. byrjendur kl. 10, leikfimi í salnum kl. 11. Verslunarferð í Bónus kl. 12. Handverks- og bókastofa kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Uppl. í s. 552-4161. Allir velkomnir. Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði, kl. 9–12 leir, kl. 10 boccia, kl. 13–16 leir, kl. 9–16.30 opin vinnustofa. Handverks- sýning verður 3. júní og 4. júní kl. 14–17. Margt fal- legra muna. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla, fótaaðgerðir. Kl. 9–12 aðstoð v/böðun. Kl. 10–12 spænska, byrj- endur. Kl. 9.15–16 myndmennt-postulín. Kl. 10–12 sund. Kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 12.15–14 verslunarferð í Bónus. Kl. 13–14 spurt og spjallað. Kl. 13–16 tréskurður. Kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, handa- vinnustofan opin kl. 9–16.30, hárgreiðslu- og fóta- aðgerðastofur frá kl. 9, bókband kl. 9, verslunarferð kl. 12.30. Söngur og dans við undirleik Vitatorgs- bandsins kl. 14. Félagsmiðstöðin er opin fyrir alla, óháð aldri. Uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Kl. 9 handavinna. Kl. 13 opinn salurinn. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn á Eyrarvelli kl. 9.30–11.30. Sameiginleg grillveisla foreldra og barna í Akureyrarkirkju og Glerárkirkju. Pylsur, drykkir, sósur og steiktur laukur á staðnum. Athugið að ef illa viðrar færist grillveislan yfir á fimmtudag. Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, hug- vekja, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðar- heimili eftir stundina. Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Allir velkomnir. Kristniboðssalurinn | Samkoma verður í Kristni- boðssalnum Háaleitisbraut 58–60 í kvöld 30. maí kl. 20. „Fyrir sakir nafns míns“. Ræðumaður er sr. Kjartan Jónsson. Kaffi eftir samkomuna. Allir eru velkomnir. Laugarneskirkja | Kl. 10 mömmumorgunn, kaffi- spjall fyrir mæður, notaleg upplifun fyrir börn. Um- sjón Gerður Bolladóttir. Kl. 10.30 heldur gönguhóp- urinn Sólarmegin af stað frá kirkjudyrum undir fararstjórn Arnar Sigurgeirssonar. Öllum velkomið að slást í hópinn. Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson. Beðið er fyrir sjúkum og hverjum þeim sem þurfa á fyrirbæn að halda og getur fólk komið óskum þar um til presta eða starfsfólks safnaðarins. Einnig er altarisganga. 60ára. Í dag, 30 maí, erBragi Michaelsson, fv. bæjarfulltúi í Kópavogi, Loga- sölum 14, 201 Kópavogi, sex- tugur. Bragi mun fagna þess- um tímamótum síðar í sumar með ættingum og vinum. dagbók Í dag er miðvikudagur 30. maí, 150. dagur ársins 2007 Orð dagsins: En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni. (Jb. 36, 15.) Næstkomandi föstudag, 1.júní, taka gildi lög sembanna reykingar áskemmti- og mat- sölustöðum. Ásgeir R. Helgason er dós- ent í heilsusálfræði og lýðheilsufræðum við Karolinska lækningaháskólann í Stokkhólmi og Háskólann í Reykjavík og faglegur ráðgjafi íslenska Reyksím- ans 800 6030: „Samskonar lög hafa tek- ið gildi í Svíþjóð, Noregi, Írlandi, Kan- ada, Ástralíu og í mörgum ríkjum Bandaríkjanna. Alls staðar er reynslan sú sama; fólk skiptist í tvær fylkingar þar sem annars vegar er minnihluti reykingamanna sem kvartar og segir skemmtanalífið eyðilagt fyrir þeim, og hins vegar þeir sem fagna reykleysinu og botna ekki í öllum látunum,“ segir Ásgeir. „Eftir nokkra mánuði lægir öldurnar og reynist fólk þá upp til hópa jákvætt í garð reykingabanns á veit- inga- og skemmtistöðum og líta reyk- ingamenn á það sem jákvætt aðhald til að hjálpa fólki að reykja minna.“ Reyksíminn er ókeypis stuðnings- úrræði fyrir þá sem vilja losna úr fjötr- um tóbaksfíknar: „Við eigum von á að hér á Íslandi, eins og fordæmin hafa sýnt að gerist annars staðar, muni nýju lögin auka mjög eftirspurn eftir þjón- ustu Reyksímans. Margir nota þetta tækifæri til að sigrast á fíkninni, en hjá Reyksímanum starfa sérfróðir læknar og hjúkrunarfræðingar sem veita fag- lega leiðsögn sniðna að markmiðum og styrkleikum hvers og eins. Aðeins þarf að taka upp símtólið til að fá aðstoð.“ Reyksíminn 800 6030 býður ekki að- eins upp á ráðgjöf heldur einnig eft- irfylgni fyrir þá sem þess óska. „Starfs- menn Reyksímans hafa samband með jöfnu millibili til að hjálpa fólki í gegn- um fyrstu skrefin í reykleysinu og hef- ur það gefið mjög góða raun.“ Ásgeir segir reykingabann á veit- inga- og skemmtistöðum virðast hjálpa fólki að hætta reykingum: „Hjá sænska reyksímanum hefur orðið vart við mikla fækkun símtala frá fólki sem fall- ið hefur á reykbindindi þegar það fór út að skemmta sér. Það virðist auðvelt að falla í freistni þegar áfengi er haft um hönd og sígarettur eru innan seilingar og er þá hætta á að þeir sem áður hafa sagt skilið við reykingar falli aftur í sama farið.“ Nánari upplýsingar má fá í síma 800 6030 og á slóðinni www.8006030.is. Heilsa | Reyksíminn 800 6030 veitir ókeypis ráðgjöf gegn tóbaksfíkn Tækifæri til að hætta  Ásgeir R. Helga- son fæddist á Húsa- vík 1957. Hann lauk stúdentsprófi 1978 frá MH, BA- prófi í sálfræði frá HÍ og doktorsprófi í klínískri heilsusál- fræði frá Karol- inska lækningahá- skólanum 1997. Ásgeir starfaði hjá Krabbameinsfélaginu í 8 ár, var sál- fræðingur á krabbameinsdeild Karol- inska í 4 ár og hefur verið sálfræðingur við lýðheilsudeild síðan 1997. Sambýlis- kona Ásgeirs er Karen Erikson hjúkr- unarfræðingur og á Ásgeir tvo syni af fyrra hjónabandi. Tónlist Anima gallerí | Helga Laufey Finnbogadóttir á píanó, Guðjón Steinar Þorláksson á kontra- bassa og Birgir Baldursson á trommur flytja lög eftir m.a. John Coltrane, Carlos Gardel, Astor Pi- azzolla, Megas og Tólfta sept- ember. DOMO Bar | Minningartónleikar um Michael Brecker á Múlanum í kvöld. Jóel Páls, Snorri Sig, Eyþór Gunn, Jóhann Ásmunds og Einar Valur Scheving minnast hans. Múlinn er á Domo bar, 1.000 kr. inn. Uppákomur Stúdentakjallarinn | Í tilefni gild- istöku nýju reykingalaganna stendur Stéttarfélag ungskálda (SUS) fyrir síðasta reykmettaða ljóðakvöldi Íslandssögunnar fimmtudagskvöldið 31. maí. Kvöldið verður haldið á Stúd- entakjallaranum og hefst upp- lestur kl. 21. Fram koma skáldin Arngrímur Vídalín, Hildur Lillien- dahl, Jón Örn Loðmfjörð, Kári Páll Óskarsson, Kristin Svava Tómasdóttir, Steinar Bragi og Urður Snædal. Fyrirlestrar og fundir Krabbameinsfélagið | Stuðnings- hópur kvenna sem fengið hafa krabbamein í eggjastokka verður með rabbfund á Café Flórunni, Grasagarðinum í Laugardal, í dag, miðvikudaginn 30. maí, kl. 17. Konur sem fengið hafa krabbamein í eggjastokka eru hvattar til að mæta. Landsmennt | Landsmennt, fræðslusjóður Samtaka atvinnu- lífsins og aðildarfélaga Starfs- greinasambands Íslands á lands- byggðinni, stendur fyrir málþingi um starfsmenntun og almenna fræðslu í atvinnulífinu miðviku- daginn 30. maí. Málþingið verður haldið í Skíðaskálanum í Hvera- dölum og hefst kl. 11.30. Fréttir og tilkynningar Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður á Sauðárkróki við Skag- firðingabúð 30. maí kl. 9–11.30. Á Blönduósi á planinu hjá N1 30. maí kl. 14–17. Frístundir og námskeið Kópavogsdeild Rauða kross Ís- lands | Hópur sjálfboðaliða í Kópavogsdeild Rauða krossins prjónar og saumar fyrir börn í neyð. Hópurinn mun hittast í sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg 11 í dag, miðvikudaginn 30. maí, kl. 15.30–17.30. Allir áhugasamir velkomnir, kaffi og með því. Börn Elliðaárdalurinn | Í dag, 30. maí, kl. 18 sýnir Leikhópurinn Lotta barnaleikritið Dýrin í Hálsaskógi. Þar sem sýnt er utandyra er um að gera að klæða sig eftir veðri og taka með sér teppi. Miðapant- anir/uppl. í síma 699-3993 eða á www.123.is/dyrinihalsaskogi.5 UNGFRÚ Japan, Riyo Mori, var valin Ungfrú alheimur í Mexíkó í gær. Hún var undrandi á úrslitunum eins og feg- urðardrottninga er siður en ekki er að sjá að forvera henn- ar í starfi, Zuleyka Riveralooks (t.h.), hugnist val dóm- nefndar. Fegurst í heimi Reuters FRÉTTIR SÚ breyting hefur verið gerð á skráningu í Stað og stund að nú birtist skráningin á Netinu um leið og skrásetjari stað- festir hana. Skrásetjari getur nýtt sér þann möguleika að nota leið- réttingarforritið Púkann til að lesa yfir textann og gera nauðsynlegar breytingar. Einnig hefur verið gerð sú breyting að hægt er að skrá atburði í liði félagsstarfs og kirkjustarfs tvo mánuði fram í tímann. Allur texti sem birtist í Morg- unblaðinu er yfirlesinn. Breytingar á skráningu inn í Stað og stund MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyr- irvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dags- og mánudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynning- um og/ eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569- 1100, senda tilkynningu og mynd á netfangið ritstjorn- @mbl.is, eða senda tilkynn- ingu og mynd í gegnum vef- síðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn Senda inn efni". Einnig er hægt að senda vélritaða til- kynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. DR. Jürgen Molt- mann, prófessor í guðfræði frá Tübingen í Þýskalandi, verður gestur Skálholtsskóla dagana 31. maí til 4. júní. Óhætt er að fullyrða að þar sé á ferð einn af áhrifamestu guðfræðingum sam- tímans, segir í fréttatilkynningu. Hann hefur gefið út fjölda greina og bóka á sínu fagsviði. Sérstakt málþing verður haldið honum til heiðurs sem hefst kl. 18 föstudaginn 1. júní og því lýkur með hátíðarkvöldverði á laugar- dagskvöldi. Moltmann mun flytja þrjú erindi sem hann kallar „The Final Judg- ment. Sunrise of Christ’s Lifegiving Justice“, „The Presence of God’s Future. The Risen Christ“ og „The God of Hope. A Theology of Hope“. Þar að auki mun dr. Gunnar Krist- jánsson prófastur flytja erindi um vonina í verkum Moltmanns. „Hér er á ferðinni einstakt tæki- færi fyrir íslenska presta, guðfræð- inga, guðfræðinema og annað áhugafólk um guðfræði til að hitta einn af þekktustu guðfræðingum samtímans,“ segir í tilkynningunni. Nú þegar hafa fjölmargir skráð sig til þátttöku en enn er hægt að hafa samband í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor@skalholt.is Þess má geta að Moltmann mun flytja erindi í hátíðarsal Háskóla Ís- lands föstudaginn 1. júní kl. 12.10. Yfirskrift erindisins er „The Cruci- fied God. A Theology of the Cross“. Allir eru velkomnir. Þekktur guð- fræðingur heim- sækir Skálholt Jürgen Moltmann HINN árlegi Græni markaður Kvenfélags Álftaness verður hald- inn laugardaginn 2. júní frá kl. 11:00 til kl. 16:00 við Náttúruleik- skólann Krakkakot. Á boðstólum verður mikið og fjölbreytt úrval af sumarblómum, fjölærar plöntur, krúttrunnar, valin tré í útipotta, garðskraut, mat- og kryddjurtir, mold og áburður. Grænn markaður á Álftanesi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.