Morgunblaðið - 30.05.2007, Síða 43

Morgunblaðið - 30.05.2007, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 43 Einangrun á veggi, loft, sökkul og undir plötu Takkamottur fyrir hitalögn í gólfi G Æ ÐA EINANG R U NÍS L E N S K F R AM LE IÐ S L A Góður styrkur • frábær einangrun EINANGRUNARPLAST OG TAKKAMOTTUR Afgreitt beint frá framleiðanda! Völuteigur 31, 270 Mosfellsbær, sími 561 2211, fax 561 4185, borgarplast@borgarplast.is Pöntunarsími 561 2254 Erum flutt í Mosfellsbæ Vottað gæðakerfi síðan 1993 VO TT A Ð U M H VE RFISSTJÓRN U N A R K ERFI Vottað umhverfisstjórnunarkerfi síðan 1999 Sérsmíði Fráveitubrunnar og sandföng Rotþrær, olíu- og fituskiljur Vegatálmar Jarðgerðarílát H N O T S K Ó G U R g r a fí s k h ö n n u n Þetta voru Celine Dion ogElvis Presley,“ sagði út-varpskynnirinn eftir að eitthver dúett hafði ómað í gegn- um viðtækið. Ég hrökk í kút. „Hvað í heitasta,“ hugsaði ég, „Elvis að syngja með Celine Dion, detti mér nú allar dauðar lýs úr höfði, var hann ekki fyrir löngu kominn undir græna torfu?“ spurði ég sjálfa mig, rauk til og fletti þeim upp á Netinu. Við nán- ari athugun kom í ljós að þetta var ekki Elvis upprisinn heldur hafði tæknin verið nýtt til að láta hann syngja dúett með Dion í lag- inu „If I can dream“ í einum Am- erican Idol-þættinum nýlega. Á Netinu má sjá brot af þessari uppákomu og þar ræður ameríski Idol-kynnirinn sér varla fyrir kæti þegar hann segir áhorfendum að undirbúa sig fyrir dúett sem þeir hafa talið ómögulegan hingað til. Síðan ganga Dion og Presley á sviðið, hlið við hlið, og syngja eins og sannar turtildúfur fyrir tilstilli einhvers konar þrívíddartækni og Elvis-eftirhermu … skilst mér. Þetta var voða flott og allur sjónvarpssalurinn ærðist eins og goðið væri lifandi komið enda sigraði hann Dion algjörlega í sviðssjarmakeppninni.    Það má nýta tæknina til ým-islegs en ég set samt spurn- ingarmerki við uppákomu sem þessa. Eitt er að fá leyfi til að nota lag látins listamanns eða herma eftir honum en annað er að „lífga hann við“ og draga upp á svið. Hver gefur leyfi fyrir slíku? Auðvitað þeir sem fara með rétt- inn að höfundarverki Elvis en mér finnst ekki rétt að koma öldu slíkrar „skemmtunar“ af stað, – verður kannski bráðum farið að selja inn á tónleika með Presley eða Janis Joplin þar sem þau syngja sjálf sín lög og eru sögð lif- andi komin? Mér finnst að það eigi að láta þá látnu í friði og ekki vera að gefa sér að þeir hefðu glaðir vilj- að gera hitt og þetta.    Svo er annað sem ég velti fyrirmér, hver segir að Elvis hefði viljað syngja dúett með Celine Dion? Ekki getur hann svarað fyr- ir sig. Í mínum huga var Elvis rokk- ari, ef hann væri uppi í dag þá væri hann í flottri rokksveit og gengi um í leðurklæðnaði frá toppi til táar. Hann var töffari síns tíma en Celine Dion hefur ekki verið gella neins tíma. Ég held að ef Elvis hefði haft eitthvað um þetta að segja þá hefði hann neitað að syngja með Dion, hún er ekki nógu töff fyrir hann. Hann var djúpraddað sjarmatröll en hún er skræk hor- rengla … já já nú koma bersýni- lega fordómar mínir gagnvart ást- arsöngvakyrjaranum Dion í ljós. Hún er ekki minn tebolli en ég fagna allri fjölbreytni á tónlist- arsviðinu og ber virðingu fyrir þeim sem hlusta á þessa gerð tón- listar á meðan þeir reyna ekki að fá mig til þess að hlusta á hana. En hvað veit ég svosem, kannski væru Presley og Dion par í dag ef karlinn hefði lifað! Presley er of töff fyrir Dion Dion og Presley Hefði kóngurinn, væri hann á lífi, tekið það í mál að syngja með Dion? AF LISTUM Ingveldur Geirsdóttir » Þetta var voða flottog allur sjónvarpssal- urinn ærðist eins og goðið væri lifandi komið enda sigraði hann Dion algjörlega í sviðs- sjarmakeppninni. Ingveldur@mbl.is APReuters

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.