Morgunblaðið - 29.06.2007, Síða 22
Veitingahúsakeðjan
McDonald’s er að blása til
sóknar þessa dagana. Ný-
opnaður staður þeirra í
Wolfratshausen suður af
München í Þýskalandi er
ef til vill til marks um það
sem koma skal. Þar
stendur yfir tilrauna-
verkefni sem stangast al-
gjörlega á við þá ímynd
sem fólk hefur af þessari
skyndibitakeðju. Innrétt-
ingarnar eru vandaðar,
logandi eldur í arni, leð-
ursófar, viðargólf, blóm á
hverju borði og í miðju
staðarins kaffihús þar
sem til dæmis er hægt að
fá ítalska eftirréttinn ti-
ramisu og cappuccino í
postulínsbollum.
Takist þetta til-
raunaverkefni vel stend-
ur til að færa út kvíarnar.
Drukkið úr postulínsbollum á McDonald’s
Nýjung Gestir geta keypt sér hamborgara og franskar en þeir
geta líka gætt sér á gæðakaffi.
Reuters
Fágað Séð yfir nýja McDonalds staðinn í
Wolfratshausen í Þýskalandi.
Leikir Börn geta stytt sér stundir eftir matinn
og farið í tölvuleiki.
Þær taka sig vel út stöllurnar sem
mættu á konunglegu Ascot-kappreið-
arnar fyrir nokkrum dögum.
Hattarnir eru íburðarmiklir og
fjaðraskrautið mikilfenglegt.
Fuglar eða
fjaðrir
Reuters
|föstudagur|29. 6. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Ekki þýðir á næstunni að kaupa
sér iPhone í Bandaríkjunum og
ætla að virkja símann sinn hér á
Íslandi. » 25
tækni
Við fáum uppskriftir að ýmsum
réttum á Patsy’s í New York
sem var uppáhaldsveitinga-
staður Franks Sinatra. »24
matur
Helgarnar hjá Njáli geta vel veriðdæmigerðar því hann vinnur mik-ið, sérstaklega yfir sumarmán-uðina. Hann kennir á mótorhjól og
hefur áhuginn fyrir mótorhjólum aukist geysi-
lega síðustu ár eins og allir vita og eitt er víst
að það er engin vanþörf á góðri kennslu.
„Dæmigerð helgi hjá mér er vinna á laug-
ardögum og tími með fjölskyldunni á sunnu-
dögum. Ég eyði semsagt sunnudögunum með
fjölskyldunni og geta þeir verið fjölbreytilegir
því við reynum að gera eitthvað saman. Við
reynum til dæmis að kíkja í heimsókn til ætt-
ingjanna sem maður hefur vanrækt vegna
vinnunnar. En ég vil líka gjarnan ná að
skreppa eitthvað sjálfur og fara til dæmis á
klifurhjólið eða eitthvað í þeim dúrnum, og þá
alveg eins einn eða með félögunum. Ég fer líka
mikið á rúntinn með félögunum og þá er það
nú ekki bara að fara niður í bæ, nema kannski í
restina á ferðinni því miklu frekar kýs ég að
fara góðan hring út úr bænum, Þingvelli,
Djúpavatnsleið eða aðrar góðar leiðir í ná-
grenni Reykjavíkur. Á klifurhjólinu er líka
hægt að fara á svæði í nágrenninu sem leyfi-
legt er að nota það á.“
Konan sér um tónlistina á heimilinu
Njáll segir að eiginkona ráði tónlistinni á
heimilinu en hann hlusti helst á tónlist þegar
hann er að dútla úti í bílskúr. „Ég kveiki á tón-
list þegar ég er að dútla í mínum eigin hjólum
eða kennsluhjólunum. Ég er nýbúinn að gera
upp 1972-árgerð af BMW og nú tekur næsta
verkefni við,“ segir Njáll og á þar við fyrsta
BMW-mótorhjólið sem var flutt til Íslands og
notað af lögreglunni og er hann nýbúinn að
kaupa varahluti í það í Þýskalandi svo hann
geti byrjað uppgerðina.
Félagsfundur hjá BMW-klúbbnum
„Það var óformlegur stofnfundur haldinn
fyrir skömmu og formlegur stofnfundur verð-
ur haldinn þegar við erum búin að fá okkar eig-
ið merki og viðurkenningu frá BMW í Þýska-
landi. Fyrsti félagafundur er þá á morgun og
við ætlum að hittast á Litlu kaffistofunni
klukkan 20:00 og allir á BMW-mótorhjólum
ættu að mæta. Við ætlum aðallega að hittast og
svo skipuleggjum við okkur og hjólum saman,
líklega annars vegar á möl og hins vegar á mal-
biki,“ segir Njáll en í félagsskap sem þessum
hafa menn aðallega gaman af því að hittast og
skoða gripina hver hjá öðrum og ræða delluna.
Mótorhjól og aftur mótorhjól
Njáll hefur gaman af öllu sem tengist mót-
orhjólum og bílum sem er kannski ekki und-
arlegt þar sem fjölskyldan á hvorki meira né
minna en 16 mótorhjól og auðvitað bíla líka.
Hann lifir og hrærist í þessum heimi og kann
margar skemmtilegar sögur. „Fólk ætti að
prófa einhvern tímann að skella sér í Evr-
ópuferð á mótorhjóli því það er mjög sérstök
upplifun þótt við búum mjög vel hér á Íslandi
hvað mótorhjólaferðalög varðar. Þetta er eitt
það skemmtilegasta sem ég hef gert yfir æv-
ina,“ segir Njáll og leggur áherslu á að spjallið
hljómi nokkuð einhæft þar sem lítið komist að
hjá honum annað en mótorhjól.
Njáll er einn af vinsælustu ökukennurum
landsins, í það minnsta þegar að mótorhjólum
kemur. En Njáll skrifar einnig mikið, hefur
meðal annars skrifað kennslubók þá sem er
notuð við bóklegu kennsluna fyrir mótorhjóla-
prófin.
Hagsmunir mótorhjólafólks eru Njáli mik-
ilvægir og hefur hann því unnið ötullega að því
að bæta umferðarmenningu mótorhjólafólks
og áhuga á sportinu, meðal annars með þátt-
töku sinni í Sniglunum og með skrifum á bók
um sögu mótorhjólsins á Íslandi í 100 ár.
Fjölskyldan á sunnudögum
Morgunblaðið/G.Rúnar
Ólík Njáll Gunnlaugsson formaður BMW klúbbsins á Íslandi stendur við tvö ólík mótorhjól,
annars vegar nýtt BMW HP2 sem er líklega eitt öflugasta ferða og torfæru hjóla sem finnst og
hinsvegar fyrsta BMW mótorhjólið sem var flutt til Íslands.
Njáll Gunnlaugsson er ökukenn-
ari, ritstjóri og formaður ný-
stofnaðs BMW-mótorhjóla-
klúbbs á Íslandi. Njáll ræddi við
Ingvar Örn Ingvarsson um
bræðralag og mótorhjól.
Mótorhjólarúnturinn: Að aka með fjöl-
skyldunni eða félögunum einhverja
góða leið út úr bænum og enda svo á
rúntinum um miðbæ Reykjavíkur.
Bókin: Ég mæli með bókinni One Man
Caravan eftir Robert Edison Fulton
yngri en hann varð einn af þeim fyrstu
til að keyra hringinn í kringum hnöttinn
á mótorhjóli árið 1932 og það einn á
BSA-mótorhjóli. Fulton varð seinna for-
stjóri MAN-vörubílaverksmiðjunnar.
Ís: Fjölskyldan fer oft og fær sér ís í ís-
búðinni í Álfheimum og það getum við
gert gangandi.
Veiðin: Skella veiðistönginni á bakið
og fara í dagsferð í veiði snemma
morguns í Frostastaðavatni á mót-
orhólinu og ekki koma með meira heim
en mótorhjólið tekur.
Njáll mælir með