Morgunblaðið - 29.06.2007, Page 25
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2007 25
og selja áfram til al-
mennings þær stöðvar
sem fólk hefur áhuga
á að sjá. Þá væri
mögulegt að kaupa
aðeins BBC Prime og
dönsku rásirnar DR1
og 2 án þess að fá
ítalska ríkissjónvarpið
Rai Uno „í kaupbæti“
því vel er hægt að
komast af án glam-
úrklæddu ítölsku
kynnanna og stöðugra
skemmtiþátta.
x x x
Sumir telja að karl-menn hafi meira
gaman af því að skipta um stöðvar
en konur. Endurspeglast þessi
skoðun í brandara sem kom fyrir í
hinum frábæru Seinfeld-gam-
anþáttum. Fer hann hér á eftir í
lauslegri þýðingu: „Konur hafa
gaman af því að horfa á sjón-
varpið. Karlar vilja bara vita hvað
annað er á dagskrá.“
x x x
Víkverji vildi gjarnan fá sérstafrænt sjónvarp heim. Gæð-
in eru greinilega mun meiri og
myndin sérlega skýr. Ætli hann
myndi ekki enda á að fá sér „allan
pakkann“? Það má varla minna
vera.
Víkverji komst ífeitt þegar hann
dvaldi helgarlangt á
heimili sem hefur að-
gang að öllum sjón-
varpspakkanum hjá
Skjánum. Úrvalið var
meira en nóg, stöðv-
arnar eru yfir sextíu
talsins, reyndar enn
fleiri ef plús-
stöðvarnar svokölluðu
eru taldar með. Vík-
verja finnst gaman að
skipta um stöð en
þetta er fullmikið af
því góða. Reyndar
höfðu húsráðendur
ekki hug á því að fá
sér svona margar stöðvar en þær
rásir sem þeir höfðu áhuga á voru
einungis saman í pakkanum sem
ber hið augljósa nafn Allt. Áhugi
var fyrir því að sjá norrænu sjón-
varpsstöðvarnar auk BBC Prime.
Síðastnefnda stöðin er hinsvegar
ekki í pakkanum sem kallast Evr-
ópa en hefði þó vel átt heima þar.
Síðast þegar Víkverji vissi var
Bretland allavega í Evrópu.
x x x
Víkverja hefur verið sagt frá þvíað í Svíþjóð sé hægt að kaupa
þjónustu fyrirtækja sem koma í
veg fyrir svona vandræði. Þau
kaupa aðgang að öllum pakkanum
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Skarpskyggn lesandi áttaði sig áþví að engin heilsugæsla væri á
Rauðasandi, eins og haldið var fram
í gamansamri frásögn Hallmundar
Kristinssonar af Jörundi Friðbergs-
syni nokkrum á Húsatóftum í Vest-
ari-Miðfirði fyrir nokkru. Um allar
staðhæfingar í þeirri frásögn segir
Hallmundur að ef einhver þeirra fái
staðist sé það einber tilviljun.
Torfi Ólafsson sendi Vísnahorn-
inu bréf undir fyrirsögninni
„Heilsugæslan á Rauðasandi“ og
furðar sig á þeirri þjónustu sem þar
er veitt:
Margvísleg undur oft ég sá
ævitíð mína hér á landi:
Teiknin heilög sem himni frá
horfðu niður í fínu standi.
Þó var mín undrun ekki smá,
af henni stafar nokkur vandi,
að hafi mig skort það helst að sjá
„heilsugæsluna“ á Rauðasandi.
Ólst ég þar upp sem enginn sá
eymd eða fár á neinum manni.
Sjúkdómar sóttu enga á
enda var sprækur hver einn svanni.
Öndvegis fæðu menn átu þá
allir og hver í sínum ranni,
enda var sjálfsögð hreysti hjá
hópnum öllum, og það með sanni.
En það er satt, ég aldrei sá
orð sem að hafði merking þessa,
enda virtist ég enga sjá
öðruvísi en káta’ og hressa.
Þá var landinu öllu á
allskonar fár og heilsuvandi.
Hinsvegar þurfti’ ekki að hafa þá:
Heilsugæslu á Rauðasandi.
VÍSNAHORNIÐ
Heilsugæslan
á Rauðasandi
pebl@mbl.is
Nú bíða menn í röðum fyrir utan
Apple-verslanir vestur í Bandaríkj-
unum til að fjárfesta í nýjustu græj-
unni sem Apple-risinn er að setja á
markað. Það er iPhone, síminn sem
sagður er geta allt. Íslendingum er þó
ráðlagt að flýta sér hægt því ef menn
láta freistast og fjárfesta í iPhone í
vestrinu er hann með öllu ónothæfur
hér á landi þar sem síminn er læstur
við bandarískt símafyrirtæki. Apple
samdi nefnilega við símafyrirtækið
AT&T um þjónustu og ganga kaup-
endur iPhone vestra þar með inn í
tveggja ára samning við símafyr-
irtækið í tengslum við netþjónustu.
Líklega samið við Vodafone
Sala hefst á símanum í Bandaríkj-
unum í dag, föstudag, og í Evrópu
síðar á árinu.Samkvæmt upplýs-
ingum frá Apple á Íslandi er gert ráð
fyrir að farið verði að selja
iPhone á Íslandi með haustinu og
líklegt er að Apple semji við símafyr-
irtækið Vodafone, sem hefur víðtæka
dreifingu í Evrópu og jafnvel annað
símafyrirtæki til viðbótar án þess að
það hafi verið staðfest endanlega, að
sögn Björgvins Björgvinssonar, sölu-
fulltrúa hjá Apple á Íslandi. Þá verð-
ur aðeins hægt að nota iPhone keypta
á Íslandi með íslensku númeri. Að
öðrum kosti yrði að notast við erlend
númer.
„En eins og staðan er í dag geta
menn ekki keypt sér iPhone í Banda-
ríkjunum og virkjað símann sinn
nema hafa bandaríska kennitölu þó
þeir geti notað kannski annað sem
síminn býður upp á, svo sem iPod-
inn,“ segir Björgvin.
Síminn sem getur allt
Tvær gerðir eru fáanlegar, önnur
með 4 Gb geymslurými og hin með 8
Gb. Þær koma til með að kosta vestra
499 dollara og 599 dollara sem gera
31 til 37 þúsund krónur, en sam-
kvæmt upplýsingum frá Apple á Ís-
landi má gera ráð fyrir að verðið hér-
lendis verði á bilinu frá 70 til 90
þúsund krónur.
Nýja tækið hefur verið kallað „sím-
inn sem getur allt“.
Í iPhone sameinast farsími, iPod-
spilari með breiðskjá og netsam-
skiptatæki, sem veitir aðgang að
tölvupósti og annarri netþjónustu.
Notendaviðmót iPhone notast við
nýja tækni, sem er svokallaður fjöl-
snertiskjár, en slíkur skjár getur
numið snertingu á mörgum stöðum
samtímis. Það þykir byltingarkennd-
asta notendaviðmót síðan músin kom
til sögunnar.
REUTERS
Bið Gert er ráð fyrir að farið verði að selja iPhone á Íslandi með haustinu.
iPhone nýtist enn
ekki á Íslandi
Íslendingum ráðlagt að flýta sér hægt
Einfalt viðvörunarkerfi getur
bjargað lífi þreyttra bílstjóra og
farþega þeirra. Kerfið sam-
anstendur af myndavél, ljósi og há-
talara sem varar bílstjórann við
þegar hann er við það að keyra út
af.
Kerfið nefnist Mobileye en að
sögn forskning.no hafa rannsóknir
norskra vísindamanna sýnt fram á
að það geti komið í veg fyrir alvar-
leg bílslys sem hljótast af því að
ökumaðurinn sofnar.
Í rannsókninni voru fimm ungir
bílstjórar fengnir til að setjast und-
ir stýri í aksturshermi, bæði útsofn-
ir og þreyttir. Í ljós kom að eftir
sólarhrings vöku versnuðu veru-
lega hæfileikar þeirra til að aka.
Tveir þeirra voru ekki langt frá því
að keyra út af og aðrir upplifðu of-
skynjanir og drauma meðan þeir
óku.
Ökumennirnir, sem voru á aldr-
inum 22 til 26 ára, voru látnir keyra
í tuttugu mínútur, einu sinni fyrir
vökunótt og tvisvar sinnum eftir. Í
annað af síðari skiptunum nýttu
þeir sér Mobileye. Kerfið skynjar
miðlínu vegarins, vegkantana og
fjarlægðina að næsta bíl og gefur
frá sér hljóð- og ljósmerki þegar
viðkomandi er á leiðinni út af veg-
inum. Í tilrauninni kom í ljós að
Mobileye vakti ökumanninn þegar
hann var við það að sofna og keyra
út af akstursbrautinni.
Vísindamennirnir segja rann-
sóknina sýna að hjálparmeðul á
borð við Mobileye geti dregið úr al-
varlegum bílslysum og vilja að það
verði staðalbúnaður í öllum nýjum
bílum. Þótt kerfið komi ekki í veg
fyrir að fólk sofni undir stýrið auki
það líkurnar á að það vakni áður en
slys hljótist af.
Vekur bílstjórann
þegar hann sofnar
Morgunblaðið/Jim Smart
Öryggi Kerfið samanstendur af myndavél, ljósi og hátalara sem varar bíl-
stjórann við þegar hann er við það að keyra út af.
Nánari upplýsingar á www.reykjavik.is
DAGSKRÁ LAUGARDAGINN 30. JÚNÍ
Kl. 11.00 Átakið hefst á fjórum stöðum: Við Álftamýrarskóla,
Hvassaleitisskóla, Breiðagerðisskóla og Fossvogsskóla.
Kl. 14.00 Samgleðjumst yfir góðum árangri á hreinsunardegi.
Grillveisla og skemmtiatriði við Breiðagerðisskóla.
Látum hendur
standa fram úr
ermum - hrein
hverfi og fögur borg
er metnaðarmál
okkar allra!