Morgunblaðið - 29.06.2007, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2007 29
UMRÆÐAN
✝ Erna Helgadótt-ir fæddist í
Reykjavík 16. júlí
1933. Hún andaðist
á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi í
Fossvogi 20. júní
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Ísleifur Helgi Sig-
urðsson trésmíða-
meistari, f. á Eyrar-
bakka 13.5. 1906, d.
18.4. 1969, og Hulda
Líney Magnúsdóttir
Blöndal, f. í Stykk-
ishólmi 17.8. 1907, d. 16.2. 1989.
Systkini Ernu eru Haukur Ormar,
f. 9.2. 1938, d. 11.6. 1940, drengur,
f. 21.8. 1941, d. 23.8. 1941, Sig-
urður Magnús, f. 24.2. 1944 og
Sesselja Guðný, f. 18.2. 1946.
Erna giftist 20.6. 1953 Reimari
Stefánssyni rafvirkjameistara, f.
26.2. 1932. Þau slitu samvistum.
Börn þeirra eru 1) Helgi Svavar, f.
31.3. 1955, maki Þorbjörg Guðna-
dóttur, f. 22.5. 1954. Börn þeirra
f. 1999, b) Alba Máney, f. 2003,
fyrir á Halldór Arnar, dótturina
Söru Ósk, f. 1987, barnsmóðir er
Hallfríður Böðvarsdóttir, f. 1969
og soninn Guðjón Örn, f. 1994,
barnsmóðir er Sóley B. Gunnars-
dóttir, f. 1971. 3) Haukur Hrafn, f.
5.11. 1972 maki Bjarney Oddrún
Hafsteinsdóttir, f. 13.1. 1975. Börn
þeirra eru: a) Daníel Ómar, f. 2002
b) Jón Arnar, f. 2004, fyrir á
Haukur Hrafn, dótturina Selmu
Dís, f. 1998, barnsmóðir er Guð-
rún Berglind Gunnarsdóttir, f.
1972.
Erna ólst upp í Reykjavík en
var sem barn og unglingur í sveit
á Árkvörn í Fljótshlíð. Hún lauk
fullnaðarprófi 1946 og dvaldist
sumarlangt í Danmörku. Erna
starfaði fyrst hjá Mjólkursamsöl-
unni og í versluninni Kron, síðar
starfaði hún hjá Pfaff, bæði í
versluninni og við kennslu á
sauma- og prjónavélar. Erna
stofnaði verslunina Saumasporið
1984 ásamt eftirlifandi eigin-
manni sínum og rak hana óslitið
síðan.
Erna verður jarðsungin frá
Digraneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
eru a) Íris Dögg, f.
1977, maki Kwaku
Kuma Asare, barn
þeirra er Nathan
Doku Helgi, f. 2006,
b) Birkir Freyr, f.
1987, og c) Fjóla
Björk, f. 1997. 2)
Guðný Hulda, f.
21.10. 1960, maki
Sverrir Tryggvason,
f. 12.7. 1959. Börn
þeirra eru Karen
Ósk, f. 1998 og Aron
Ingi, f. 1998. Erna
giftist 11.11. 1967
Halldóri Valgeirssyni, löggiltum
endurskoðanda, f. 1.12. 1937.
Börn þeirra eru: 1) Valgeir, f.
11.9. 1967, sambýliskona Karin
Gembert, f. 3.10. 1980, fyrir á Val-
geir dæturnar Kolbrúnu Ernu, f.
1986, og Stefaníu Kristínu, f.
1992, barnsmóðir er Ingibjörg
Ólafsdóttir, f. 1966. 2) Halldór
Arnar, f. 11.6. 1969, maki Sigríður
Ragna Birgisdóttir, f. 9.10. 1974.
Börn þeirra eru a) Halldór Almar,
Elsku mamma mín.
Hvernig gat þetta gerst? Við vor-
um fyrir stuttu að ræða um Guðna
tengdapabba sem lést fyrir mánuði.
Ekki hefði okkur grunað að þú værir
látin mánuði seinna. Þetta sýnir
okkur hvað lífið er brothætt og eng-
inn veit hver er næstur.
Það er erfitt að setjast niður og
skrifa niður minningarorð um þig
þegar mér finnst þetta varla vera
raunverulegt.
Ég átti góða æsku og naut þess að
vera elstur og hafa alla þína athygli
fyrstu árin. Ég á mikið af góðum
minningum um þig mamma mín og á
eftir að minnast þín um ókomna
framtíð.
Það sem einkenndi þitt líf var
dugnaður, léttleiki og bjartsýni. Þú
varst jákvæð, brosmild og hlátur-
mild með eindæmum.
Það er reyndar eitthvað sem ein-
kenndi þína móðurætt, þar sem þið
amma og Didda frænka voruð senni-
lega eitthvert mesta hláturtríó sem
til var.
Þú varst mikið fyrir börn og þeg-
ar þitt fyrsta barnabarn, Íris Dögg,
fæddist þá tókst þú hana í daggæslu
fyrir okkur og passaðir hana frá 4
mánaða aldri til tveggja og hálfs árs.
Þar mynduðust sterk tengsl á milli
Írisar og þín, Adda og Hauks sem
haldist hafa síðan.
Í gegnum árin hefur fjölskyldan
stækkað mikið og barnabörnum
fjölgað og svo loks komið barna-
barnabarn.
Þú hafðir mikinn áhuga á hvers
konar handverki, saumaskap og tón-
list, enda hefur þú setið ófáum
stundum við saumavélarnar niðri í
Saumaspori og við skemmtarann
heima hjá þér og spilað af hjartans
list. Þessu hefur þú meðal annars
miðlað til þinna barnabarna og hvatt
þau til að tileinka sér og stutt vel við
bakið á þeim.
Ég veit að þau sakna þín mikið og
við eigum öll eftir að átta okkur á því
sem gerst hefur.
Það verður undarlegt að keyra
fram hjá Saumasporinu og geta ekki
litið inn og fengið sér kaffibolla og
spjallað saman smá stund eins og við
gerðum því miður of sjaldan.
Ég veit að þú trúir því að það sé
beðið eftir okkur hinum megin og ég
vil líka trúa því að við eigum eftir að
hittast þar aftur þó síðar verði.
Þinn sonur,
Helgi.
Móðir mín og amma hefur kvatt
þennan heim tæplega 74 ára gömul.
Snöggt fráfall þitt var okkur mikið
áfall en lífskraftur þinn og jákvæðni
munu bera okkur áfram veginn.
Við kveðjum þig með erindi úr
ljóðinu „Þá var ég ungur“ eftir Örn
Arnarson, en líf þitt einkenndist af
þekkingarþrá og gleði þinni til að
miðla öðrum. Alltaf áttum við
öruggt skjól hjá þér ef eitthvað bját-
aði á og lífsgleði þín og jafnaðargeð
hjálpaði okkur alltaf að trúa á bjarta
framtíð.
Lonta í lækjarhyli,
lóan úti í móum,
grasið grænt um svörð
fiskifluga á þili,
fuglarnir á sjónum,
himinn, haf og jörð –
öll sú dásemd augu barnsins seiddi.
Ótal getum fávís hugur leiddi.
Spurði ég þig móðir mín,
og mildin þín
allar gátur greiddi.
(Örn Arnarson)
Þökkum fyrir samveruna og allar
gleðistundirnar sem við áttum sam-
an.
Þín dóttir,
Guðný og ömmubörnin
Aron Ingi og Karen Ósk.
Móðir mín, amma okkar og
tengdamóðir, Erna Helgadóttir, lést
á Landspítalanum í Fossvogi 20. júní
síðastliðinn, aðeins 73 ára að aldri.
Mamma lá veik á Landspítalanum
og ég fylgdist grannt með líðan
hennar frá heimili mínu í Kaup-
mannahöfn og var ýmist vonglaður
eða áhyggjufullur, allt eftir þeim
fréttum sem bárust. Mamma var svo
loksins að ná sér eftir veikindi og all-
ir önduðu léttara, þegar hún skyndi-
lega fór.
Mánudagsmorguninn 18. júní
mætti ég í vinnuna með ferðatösku
og afmælisgjöf sem ég keypti í Kína
handa henni, þegar ég fékk sím-
hringingu frá Íslandi um að ástandið
hefði versnað til muna. Ég fékk frí á
staðnum og var kominn til Íslands
sama dag.
Hún náði aldrei að sjá afmælis-
gjöfina sem ég kom með handa
henni.
Móðir mín var einstök, hláturmild,
gjafmild og elskaði börn sín og
barnabörn. Hún var lífsglöð fram til
síðasta dags og lét ekkert aftra sér.
Hún vann sína vinnu sem hún elsk-
aði fram til síðustu stundar. Mamma
trúði alltaf á mig og þrátt fyrir að líf
mitt hafi tekið margar óvæntar
stefnur get ég kvatt hana stoltur.
Hún var sælkeri á lífið, hafði húm-
or, gleði, smitandi hlátur og bjart-
sýni sem er engri lík enda var enginn
ósnortinn af persónuleika hennar og
fegurð.
Það er eins og lífið hafi staðnað og
allir áttað sig á því að ekkert mun
verða eins í framtíðinni. Hún var eini
tengiliður fjölskyldu minnar við
yngstu dóttur mína. Hlýja hennar og
hjálp í erfiðleikum hvers og eins, ást
hennar og sköpunargleði og lífsstíll
hennar hefur haft áhrif á alla sem
hana þekktu og umgengust.
Brottför mömmu úr þessum heimi
gefur okkur sem eftir sitjum tæki-
færi til að líta í eigin barm og er okk-
ur hvatning til að njóta þess tíma
sem við höfum. Brottför hennar sýn-
ir okkur hversu mikið hún hefur gef-
ið okkur í veganesti til að nota hér og
nú, því lífið getur verið svo óvænt.
Sem móðir, sem amma og sem
tengdamóðir hefur þú snert okkur
öll með lífsgleði þinni, ást og hrein-
skilni. Þú hefur mótað okkar per-
sónuleika og hæfni til að miðla áfram
til okkar nánustu og annarra sem
verða á leið okkar. Gjöf sem við njót-
um þar til okkar tími kemur og við
sameinumst sem fjölskylda á ný, án
eftirsjár.
Líkami þinn er farinn en sál þín og
persónuleiki mun fylgja okkur sem
þekktum þig og nutum samverunnar
við þig.
Vertu sæl. Við elskum þig, virðum
og varðveitum allar þær kæru minn-
ingar sem þú skilur eftir hjá okkur.
Valgeir Halldórsson,
Kolbrún Erna Valgeirsdóttir,
Stefanía Kristín Valgeirsdóttir
og Karin Gembert.
Elsku móðir mín, tengdamóðir og
amma.
Við viljum þakka fyrir allar sam-
verustundir okkar og þá hlýju sem
þú sýndir okkur öllum.
Þú varst frábær móðir og ég á
óteljandi góðar minningar frá æsku
minni og var alltaf svo ánægður þeg-
ar þú sagðist alltaf bara vera 39 ára
þrátt fyrir að börnin þín væru farin
að taka fram úr þér. En þú varðst
einmitt 39 ára sama ár og ég fæddist.
Okkur er minnisstæðast þegar þú
fórst með litlu skottunni okkar
Selmu Dís alltaf upp á loft í „gamla
herbergið“ mitt, þegar hún var 2-3
ára, og lékst við hana þar. Horfðir á
teiknimynd með Daníel Ómari og í
bíló með Jóni Arnari. Einnig þegar
þú spilaðir á orgelið með þeim eða
leyfðir þeim að glamra á hljómborð-
ið.
Jafnframt þær stundir sem öll
börnin fengu að hjálpa þér að
skreyta jólatréð og láta jólasveinana
syngja.
Þú varst líka alltaf tilbúin að hafa
eldri krakkana yfir allan daginn og
aðstoða (leika) í saumasporinu.
Daníel Ómar er búinn að vera að
hugsa mikið um að amma sé dáin og í
morgun sagði hann: „Nú er afi búinn
að missa drottninguna sína.“ Jón
Arnar segir: „Ég „ekka“ (elska)
Ernu ömmu.“
Hér eru kveðjuorð frá barnabörn-
um:
Elsku amma, nú vitum við að guð
og englarnir passa þig og við elskum
þig mikið. Núna ert þú engill með
vængi og passar okkur líka.
Með saknaðarkveðju, þinn sonur
Haukur Hrafn, Bjarney,
Selma Dís, Daníel Ómar
og Jón Arnar.
Elsku amma mín. Það er ótrúlega
skrítið að þú sért farin. Þú sem varst
svo full af lífi, hress og jákvæð. Ég
var svo heppin að fá að vinna með
þér seinasta árið. Það var alltaf svo
gaman hjá okkur. Ég gleymi aldrei
hlátrinum þínum og þinni skemmti-
legu aðferð við að segja frá. Hvernig
þú lifðir þig inn í sögurnar og varst
oft með heilu leikþættina á kaffistof-
unni. Ég gat alltaf talað við þig um
öll mín vandamál, hvort sem þau
tengdust skólanum, vinunum eða
bara hverju sem er, alltaf hafðir þú
eitthvert ráð og ef ekki, þá fórstu
bara og keyptir handa mér ís.
Ég lærði mikið af þér, bæði varð-
andi saumaskap og lífsviðhorf. Þú
varst alltaf svo jákvæð og yndislega
orkumikil. Þú gast aldrei setið og
gert ekki neitt. Ef þú sast fyrir fram-
an sjónvarpið braustu saman þvott
eða gerðir einhverja handavinnu á
meðan. Ef það var gott veður úti
dröslaðistu með straujárnið út á pall
og straujaðir á meðan þú varst í sól-
baði. En þrátt fyrir þitt iðjusama líf
gafstu þér alltaf nægan tíma fyrir öll
barnabörnin þín. Þú varst einstök
kona og þín verður mjög sárt sakn-
að. Ég finn ákveðna huggun í því að
þér líði vel hjá guði þínum og sért
ekki veik lengur.
Ástarkveðjur
Kolbrún Erna (Kobba).
Elsku amma,
Við færum þér fyllstu þakkir
fyrir að vera okkur góð amma.
Við færum Guði fyllstu þakkir
fyrir að hafa fengið að ferðast saman.
Einlæg og einstök ætíð þú varst
andaði af þér ylhýrum blæ.
Gleðina með þér og glauminn þú barst
og í guðlegri sálu okkar óx lítið fræ.
Söngur og spil, það var þitt líf
við sátum við þá iðju öll saman.
Dúkkurnar á hlýddu allar í stíl
og dreymdi um að hafa gaman.
Margt við segja viljum að lokum.
Vandasamt er úr minningum að velja.
Þær felum við því Guði í okkar bænum
þar sem þú munt nú hjá honum dvelja.
(Sigríður Ragna.)
Halldór Almar, Alba Máney,
Guðjón Örn og Sara Ósk.
Erna Helgadóttir
til ömmu.
Víst ertu farin frá mér
en þú munt alltaf vera í hjarta mér
Ef ég dey, eins og allar sálir
bara þú takir á móti mér
en nú kveð ég þig
og við hittumst kannski uppi.
Þín,
Karen Ósk.
HINSTA KVEÐJA
V i n n i n g a s k r á
9. útdráttur 28. júní 2007
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
3 7 3 5 5
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
1 0 3 1 2 2 0 3 3 4 2 2 1 9 3 4 2 6 2 3
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
35563 37279 43359 47770 57668 69691
36108 37700 43589 50305 67491 72169
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
1 0 2 9 0 1 5 1 9 1 4 6 2 9 6 3 1 3 9 0 8 0 4 4 1 8 1 5 9 2 4 2 7 1 1 7 7
9 8 5 9 1 0 9 2 0 8 4 6 3 1 2 6 8 3 9 0 8 1 4 4 5 7 6 5 9 8 4 2 7 1 2 1 8
1 6 9 6 1 0 5 2 1 2 1 1 6 8 3 1 6 3 6 3 9 5 2 8 4 5 0 9 0 6 1 2 2 3 7 1 7 4 3
3 2 2 7 1 0 8 2 4 2 1 1 8 5 3 1 6 5 7 3 9 9 2 2 4 7 6 5 5 6 2 4 8 0 7 4 5 5 7
4 8 6 6 1 1 2 7 1 2 2 7 2 8 3 1 7 8 0 3 9 9 5 1 4 7 7 9 6 6 3 3 7 2 7 5 1 2 7
4 9 1 6 1 2 4 1 3 2 2 8 5 9 3 3 1 6 9 3 9 9 5 9 4 7 8 0 0 6 4 8 2 0 7 5 7 0 7
5 2 0 7 1 2 6 0 5 2 3 7 9 9 3 3 9 3 6 4 0 2 4 2 4 9 8 8 6 6 5 4 8 8 7 6 3 8 4
6 0 3 7 1 3 0 2 4 2 4 0 6 5 3 4 8 8 9 4 0 6 7 3 5 0 1 8 2 6 5 4 9 4 7 7 2 0 9
6 0 8 9 1 3 2 1 8 2 5 8 0 9 3 5 5 9 6 4 0 8 1 7 5 4 0 4 5 6 7 5 0 6 7 7 2 5 2
6 1 7 0 1 3 9 2 6 2 6 1 4 3 3 6 1 0 2 4 1 8 1 9 5 4 2 2 3 6 8 3 5 4
6 2 1 8 1 4 4 9 1 2 6 7 7 2 3 7 3 9 3 4 2 2 0 3 5 6 8 7 4 7 0 1 4 1
8 0 0 7 1 4 5 1 1 2 7 5 2 1 3 7 4 8 6 4 3 1 5 8 5 8 2 2 9 7 0 7 5 9
8 4 8 1 1 8 8 7 5 2 9 3 3 8 3 8 2 4 0 4 4 1 5 3 5 9 0 5 5 7 0 8 6 7
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
8 2 3 1 0 6 4 7 1 9 6 4 8 2 6 8 8 5 3 7 6 6 2 5 0 8 0 4 5 9 2 5 6 6 7 4 8 0
1 0 6 1 1 1 1 9 5 1 9 7 5 2 2 7 2 3 0 3 8 0 5 2 5 0 9 2 1 5 9 7 4 8 6 8 4 2 7
1 0 8 0 1 2 1 5 3 1 9 7 6 5 2 7 4 9 8 3 8 0 7 1 5 0 9 2 5 5 9 9 0 4 7 0 0 9 1
1 1 9 7 1 2 2 3 3 2 0 3 2 8 2 7 6 0 4 3 8 1 5 0 5 1 1 8 4 6 0 1 2 7 7 0 1 6 2
1 2 8 0 1 2 6 7 4 2 0 6 7 9 2 8 1 9 9 3 9 4 6 3 5 1 2 8 3 6 0 1 9 1 7 0 9 9 1
1 6 5 8 1 2 6 8 3 2 0 7 0 4 2 9 3 9 0 3 9 9 9 7 5 1 3 7 6 6 0 2 5 8 7 1 2 8 0
1 8 7 7 1 2 8 8 0 2 0 9 0 4 3 0 1 8 0 4 0 0 9 3 5 1 9 0 1 6 0 5 2 5 7 1 3 1 2
2 2 1 9 1 3 3 1 7 2 0 9 3 9 3 0 4 4 4 4 0 6 2 9 5 1 9 9 0 6 0 6 2 9 7 1 9 2 5
2 5 2 4 1 3 4 5 2 2 1 7 6 3 3 0 6 7 0 4 1 1 7 4 5 2 2 1 8 6 0 7 7 1 7 2 1 1 9
2 5 9 1 1 4 0 1 0 2 1 9 7 5 3 0 9 2 6 4 1 6 0 5 5 2 5 2 1 6 0 9 3 0 7 2 3 8 9
2 9 2 1 1 4 1 4 6 2 2 1 2 7 3 1 4 0 9 4 2 1 2 3 5 2 6 1 2 6 1 4 5 6 7 2 8 7 2
2 9 3 1 1 4 2 9 7 2 2 1 6 5 3 1 8 7 1 4 2 1 6 0 5 2 7 4 5 6 1 4 8 4 7 2 9 5 7
3 1 8 4 1 4 6 0 1 2 2 3 6 1 3 2 0 8 5 4 3 0 1 6 5 3 3 5 1 6 1 5 1 5 7 3 0 5 1
3 6 3 2 1 4 6 5 5 2 2 4 1 4 3 2 3 5 3 4 3 8 6 9 5 3 6 2 9 6 1 7 5 8 7 3 3 8 7
4 7 5 4 1 4 7 0 3 2 2 5 4 5 3 2 7 3 7 4 4 4 9 1 5 3 6 9 3 6 1 9 1 0 7 3 8 3 5
4 8 0 5 1 4 7 5 1 2 2 5 7 5 3 3 2 0 5 4 5 8 3 4 5 3 9 7 7 6 1 9 1 1 7 5 1 9 1
5 2 4 8 1 5 4 5 2 2 2 7 3 7 3 3 2 8 4 4 6 3 6 7 5 4 4 4 3 6 2 3 2 3 7 5 4 9 4
5 3 6 3 1 5 6 0 3 2 2 8 0 7 3 3 4 2 2 4 6 5 4 0 5 4 5 0 9 6 2 5 6 1 7 5 7 1 4
5 8 4 1 1 6 2 8 5 2 3 6 5 4 3 3 9 4 4 4 6 8 0 0 5 4 5 3 8 6 3 5 4 8 7 5 7 2 4
6 6 4 9 1 6 9 3 2 2 3 7 3 5 3 4 0 4 4 4 6 8 6 6 5 5 9 4 4 6 3 6 7 9 7 6 3 0 2
6 7 2 5 1 6 9 9 8 2 4 0 2 7 3 4 1 0 7 4 7 0 6 6 5 6 0 7 8 6 4 6 5 2 7 7 8 1 2
6 7 5 4 1 7 2 1 1 2 4 4 2 3 3 4 6 3 5 4 7 7 4 2 5 6 2 3 8 6 5 2 9 3 7 8 4 0 7
7 8 1 9 1 7 3 3 5 2 4 6 0 7 3 4 9 1 8 4 7 7 6 0 5 6 3 4 1 6 5 3 8 7 7 8 7 0 0
7 8 7 5 1 7 5 5 0 2 4 6 2 1 3 5 0 6 2 4 8 6 1 9 5 6 5 7 5 6 5 9 8 0 7 9 3 7 6
8 0 2 3 1 7 7 3 8 2 4 8 2 8 3 5 5 5 7 4 8 8 0 3 5 7 1 1 1 6 6 1 4 3 7 9 5 1 7
8 2 5 0 1 7 8 5 9 2 4 9 3 0 3 6 1 3 9 4 8 8 5 9 5 7 6 6 5 6 6 1 5 2 7 9 6 7 8
8 5 6 2 1 8 5 0 0 2 5 0 6 7 3 6 6 8 7 4 9 1 9 3 5 7 9 3 1 6 6 2 7 3
9 4 2 6 1 8 6 4 6 2 5 1 0 9 3 6 7 4 9 4 9 6 5 9 5 8 2 7 5 6 6 9 5 0
9 4 8 2 1 9 0 6 7 2 5 5 4 7 3 6 7 9 6 5 0 2 4 3 5 8 3 6 8 6 7 0 7 2
9 9 1 0 1 9 0 9 0 2 5 9 9 2 3 6 9 1 9 5 0 3 8 7 5 8 5 2 2 6 7 0 8 9
1 0 3 6 3 1 9 1 2 7 2 6 2 7 5 3 7 0 3 8 5 0 5 9 7 5 8 7 1 7 6 7 2 2 8
1 0 4 2 6 1 9 2 0 4 2 6 2 8 9 3 7 0 8 5 5 0 6 3 4 5 8 8 6 9 6 7 3 1 8
Næstu útdrættir fara fram 5.júlí, 12. júlí, 19.júlí, 26. júlí,& 2. ágúst, 2007
Heimasíða á Interneti: www.das.is