Morgunblaðið - 29.06.2007, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AÐ hugsa sér hvað tíminn flýgur,
það eru heil 12 ár liðin síðan John
McClane (Willis) birtist síðast á
tjaldinu. Þá var annað árþúsund,
Hvalfjarðargöngin draumsýn, nýja
ofurtölvan mín ein fjögur gígabæt og
þegar rætt var um gróðurhúsaáhrif-
in hélt maður að það fyrirbrigði
hefði eitthvað að gera með vinsældir
framsóknarmanna á Suðurlandi.
En McClane er mættur aftur og
það af slíkum fítonskrafti að adr-
enalínið bogar af manni undir sýn-
ingunni. Willis er búinn að berjast
fyrir fjórða kaflanum í áraraðir og
það liggur ljóst fyrir að sú barátta
hefur borgað sig, að minnsta kosti
hvað skemmtanagildi viðvíkur.
Í takt við tímann fæst hin ódrep-
andi New York-lögga að þessu sinni
við snjalla tölvuþrjóta undir stjórn
Thomasar nokkurs Gabriels (Olyp-
hant), sem áður vann við að byggja
upp tölvuvarnir á vegum hins op-
inbera. Hann var rekinn og nið-
urlægður og í skjóli þekkingar sinn-
ar ætlar hann sér ekkert minna en
að lama Bandaríki Norður-Ameríku
– fái hann ekki kröfum sínum fram-
gengt.
Með leiðsögn tölvuhakkaranns
Farrells (Long) ræðst okkar maður
(sem sjálfsagt kann takmarkað á
slíkan tæknibúnað) einn gegn hinu
nútímalega glæpagengi sem hefur
undirbúið aðgerðirnar af mikilli ná-
kvæmni. Jafnt á yfirborðinu sem í
dularheimum alnetsins. Í bakgrunni
eru hátíðahöldin 4. júlí.
Þegar fyrsta og besta Die Hard-
myndin birtist á tjaldinu árið 1988
markaði hún tímamót, skapaði nýja
hliðargrein við hasarmyndina og var
endurunnin í óteljandi skipti út um
allar jarðir. Áreitið var ofboðslegt,
linnulausar sprengingar, hávaði,
slagsmál og spenna af áður óþekktri
stærðargráðu. Yfir öllu trónaði snar-
geggjaður lögreglumaðurinn sem
vílaði ekkert fyrir sér og það var
þesi stórfenglega bilun sem gerði
gæfumuninn, og hún er drifkraft-
urinn nú sem fyrr.
Ef einhver hefur verið smeykur
um að ellikerling hafi markað spor
sín um of á síðustu hasarmyndahetj-
una, þá er það misskilningur. Okkur
er að vísu blessunarlega hlíft við
rómantík, en Willis hefur sjaldan
verið brattari; afslappaður en hryss-
ingslegur heldur hann áhorfendum
við efnið í tvo tíma. Brellurnar eru
ótrúlegar og söguþráðurinn ámóta
gáfulegur og járnbent steinsteypa.
Þannig á það að vera, því Die Hard
4.0 hefur sama markmið og forver-
arnir; að skemmta gestum um
stundarsakir, og tekst það full-
komlega. Bíógestir viðstöðulaust
mataðir á hverju spennuatriðinu
öðru betra, unnu af fagmennsku, og
ekkert til sparað að sýningin verði
sem æsilegust fyrir þanin skilning-
arvitin.
Aukaleikararnir eru þéttir og hinn
ungi og efnilegi Wiseman leikstjóri
heldur manni límdum í rússíban-
anum og ekki að sjá að hann sé að
fást við sína fyrstu stórmynd eftir
hinar forvitnilegu Underworld-
myndir. Besta sumarmyndin til
þessa. (Vonandi á ég eftir að nota
þessa klisju oft næstu mánuðina!)
Einn og ódrepandi
KVIKMYNDIR
Háskólabíó, Smárabíó, Regn-
boginn, Laugarásbíó, Borgarbíó
Akureyri
Leikstjóri: Len Wiseman. Aðalleikarar:
Bruce Willis, Timothy Olyphant, Justin
Long, Cliff Curtis, Maggie Q. 130 mín.
Bandaríkin 2007.
Die Hard 4.0 Sígildur Willis veldur ekki vonbrigðum í fjórðu myndinni
um lögreglumanninn John McClane.
Sæbjörn Valdimarsson
NÁMSHESTURINN og bókaorm-
urinn Pamela Anderson á þann
draum heitastan að læra að tala
finnsku reiprennandi. Afi strand-
varðagellunnar fyrrverandi var
finnskur, en Pamela rak upp gleði-
óp af einskærum fögnuði er hún sér
til undrunar reyndist furðu sleip í
finnskunni meðan á nýlegri heim-
sókn hennar til Finnlands stóð.
Pamela, eða Pammie, eins og hún
er kölluð, sagði: „Ég undrast
hversu ört málið ruddist fram á
tungu mér í heimsókninni. Ég lærði
smáræði í finnsku með því að
spjalla við afa, en það var áður en
ég varð 10 ára. Ég ætla svo sann-
arlega að læra meira!“
Reuters
Tungulipur Mitä kuuluu?
(Hvernig hefurðu það?)
Pamela Anderson
talar finnsku