Morgunblaðið - 14.07.2007, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 14.07.2007, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2007 9                        Aukaafsláttur á útsölunni Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Bæjarlind 6 • sími 554 7030 Ný sending - Síð svört vesti Opið mán.-fös. kl. 10-18, laugard. opið í Bæjarlind kl. 10-15 en lokað í Eddufelli. Útsalan í fullum gangi Mikið úrval Mikil verðlækkun Kringlunni, sími 553 2888 ÚTSALA ÚTSALA Enn meiri afsláttur iðunn tískuverslun Laugavegi 51, s. 561 1680 Kringlunni, s. 588 1680 KAJAKRÆÐARARNIR Freya Hoffmeister og Greg Stamer luku hringróðri sínum umhverfis Ísland á miðvikudag og settu þar með nýtt hraðamet sem varla verður slegið í bráð. Þau reru hringinn á 33 dögum en þurftu að bíða af sér veður í samtals í rúma viku, þann- ig að dagar á sjó voru ekki nema 25. Vegalengdin sem þau lögðu að baki er 1.620 km og reru þau að meðaltali 65 km á dag. Fyrsti hluti leiðangursins var eftirminnilegur fyrir ýmissa hluta sakir. Þau hófu róðurinn við Garðskaga og reru fáheyrðar vegalengdir fyrstu tvo dagana, eða 200 km, og einnig urðu hnökrar í fjarskiptum til þess að víðtæk leit hófst að þeim. Það var hins vegar Ástþór Skúlason, bóndi á Melanesi á Rauðasandi, sem fann þau í góðu yfirlæti í tjaldi sínu og batt þar með enda á óviss- una um afdrif þeirra. Á heimasíðu sinni segir Freya að hringróðurinn hafi á köflum verið hinn strembnasti en samt hafi aldrei nein alvarleg tilvik komið upp. Meðal erlendra kajakræðara í fremstu röð hefur Ísland verið tal- in ein hinna miklu ögrana í heimi leiðangurskajakmennsku. Í fyrra reri ísraelska konan Rotem Ron ein síns liðs umhverfis landið á 50 dögum og má vænta þess að næsta sumar muni nýr leiðangur reyna sig við strandlengjuna. Ein ástæða þess að Freya og Greg reru á svo undraskömmum tíma í kringum landið var afar hagstætt veður á varhugaverðasta staðnum, sjálfri suðurströnd landsins, sem reyndist Rotem Ron erfiður ljár í þúfu í fyrra, þótt hún kæmist að lokum á leiðarenda með þolinmæð- inni. Reru hringinn á mettíma Ljósmynd/Þorsteinn Sigurlaugsson Hringpar Freya og Greg fagna áfanganum eftir velheppnaðan leiðangur. Þau reru hringinn á 33 dögum. ÁRVAKUR hefur gert samning við TM Software um hýsingu á hluta af hugbúnaðarkerfum Morgunblaðsins. Í fréttatilkynningu segir að um sé að ræða hýsingu á öllum tölvukerfum Morgunblaðsins sem keyra á IBM System i-miðlara, þar á meðal áskriftarkerfi og fjár- hagskerfi. Þetta eru umfangsmikil kerfi sem þurfa að vera aðgengileg allan sólarhringinn, allan ársins hring. „Við sáum marga kosti við að fara í hýsingu hjá TM Software. Það einfaldar okkar rekstur og losar okkur við mikið af daglegum áhyggjum,“ segir Björn Thors, tæknistjóri Árvakurs. TM Software fjárfesti nýlega í mjög afkastamikilli IBM System i-tölvu sem staðsett er í einu fullkomnasta kerfisrými landsins og sjá sérfræðingar TM Software um daglegan rekstur, eftirlit, afritun og öryggismál. Auk þess fær Árvakur aðgang að þjónustuborði TM Software sem er opið allan sólarhringinn, allan ársins hring. Með samnýtingu á búnaði TM Software næst hag- ræðing sem skilar sér í hagkvæmu verði fyrir við- skiptavini. Notendur losna við fjárfestingar og upp- færslur á tölvubúnaði, stýriskerfisuppfærslur og amstur og áhyggjur sem felast í rekstri tölvukerfa, ör- yggismálum, gagnaafritun o.fl. Samningur Á myndinni handsala þeir samninginn, Sig- urður Bergsveinsson, framkvæmdastjóri hjá TM Soft- ware, og Björn Thors, tæknistjóri Árvakurs. Árvakur í hýsingu hjá TM Software LÁTIN er í Reykjavík Gyða Sigvaldadóttir leikskólastjóri, 89 ára að aldri. Gyða fæddist á Brekkulæk, Miðfirði í Vestur-Húnavatns- sýslu 6. júní 1918. For- eldrar hennar voru Hólmfríður Þorvalds- dóttir húsmóðir og Sig- valdi Björnsson bóndi. Gyða lætur eftir sig eig- inmann, dóttur, fóstur- dóttur, barnabörn og barnabarnabarn. Gyða stundaði nám við Héraðsskól- ann á Laugum og Reykjaskóla í Hrútafirði 1935-1937. Hún lauk prófi frá Fósturskóla Íslands 1950. Gyða starfaði lengst af sem leik- skólakennari og leikskólastjóri hjá Barnavinafélaginu Sumargjöf árin 1950-1978, síðar hjá Leikskólum Reykjavíkur. Síðast sem leikskólastjóri á leik- skólanum Brákarborg en Gyða lét af störfum 70 ára að aldri árið 1988. Gyða starfaði einnig sem forstöðukona á barnaheimilinu á Sil- ungapolli árin 1955-1956 og sem forstöðukona á Vöggustofu Thorvald- sens 1970-1971. Gyða var fulltrúi í barnaverndarnefnd Reykjavíkur árin 1962- 1966. Á starfsferli sínum vann Gyða metnaðarfullt og óeigingjarnt starf í þágu barna og uppeldismála og þótti mikill frumkvöðull í leikskólastarfi. Gyða fékk hina íslensku fálkaorðu fyrir störf sín árið 1988. Hún andaðist á líknardeild Landa- kotsspítala. Gyða Sigvaldadóttir Andlát Af hverju að bíða og bíða eftir stóra vinningnum þegar þú getur unnið fyrir öllu sem þig langar að eignast? Það eina sem þú þarft að gera er að bera út blöð í 1-3 tíma á dag. Besta aukavinna sem þú getur fundið og góð hreyfing í þokkabót! Hringdu núna og sæktu um í síma 569 1440 eða á mbl.is! Sæktu um blaðberastarf – alvörupeningar í boði!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.