Morgunblaðið - 14.07.2007, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● NÆR engin breyting varð á Úrvals-
vísitölunni í Kauphöll OMX á Íslandi í
gær en lokagildi hennar var 8.758,4
stig. Gengi dollars fór niður fyrir 60
krónur í gær og hefur ekki verið
lægra síðan í nóvember 2005. Þá
hefur gengi evru aldrei verið jafnhátt
gagnvart dalnum.
Engin breyting
"# "# ?& @ @ $
$
"# #
&A
@ @ $
$
%&' (& )
*
?& &A @ @ $
$
+,-
%.#
>&A?A
&
@ @ $
$
"# //0
"# 012
&A
?&?
@ $
$
ÞETTA HELST ...
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
EKKI er talið útilokað, og sumir
segja að það sé jafnvel líklegt, að
þess sé að vænta að einhver náma-
félög muni leggja fram yfirtökutil-
boð í Alcoa, móðurfélag Fjarðaáls á
Reyðarfirði. Skrif í þessa veruna
fóru að birtast á vefmiðlum ýmissa
erlendra fjölmiðla svo til strax eftir
að Alcoa tilkynnti í fyrradag, að fé-
lagið hefði dregið til baka fjandsam-
legt yfirtökutilboð sitt í Alcan, móð-
urfélag álversins í Straumsvík. Um
það var tilkynnt í kjölfar þess að
stjórn Alcans mælti með 38 milljarða
dollara yfirtökutilboði ensk-ástr-
alska námafélagsins Rio Tinto.
Í frétt í New York Times er haft
eftir greiningaraðilum að stjórnend-
ur ýmissa stórra alþjóðlegra náma-
fyrirtækja hafi ekki farið leynt með
að þeir vilji auka umsvifin í áliðn-
aðinum. Ástralska fyrirtækið BHP
Billington, sem er stærsta námafyr-
irtæki heims, hefur verið nefnt.
Sanngjarnt verð
Verðið sem Rio Tinto býður fyrir
hlutabréfin í Alcan er um þriðjungi
hærra en það verð sem Alcoa hafði
boðið. Töldu sérfræðingar á fjár-
málamarkaði að það hefði reynst erf-
itt fyrir Alcoa að hækka tilboð sitt.
Það kemur heim og saman við það
sem haft er eftir Alain Belda, for-
stjóra Alcoa, til að mynda í NYT.
Hann segir þar að það verð sem Rio
Tinto hefur boðið fyrir hlutabréfin í
Alcan geri að verkum að ýmsir aðrir
kostir en kaup á því félagi geti verið
heppilegri fyrir Alcoa. Tom Alban-
ese, forstjóri Rio Tinto, sagði hins
vegar í útvarpsviðtali í Ástralíu í
gær, að verðið sem félagið hefur boð-
ið sé sanngjarnt, bæði fyrir Rio
Tinto og Alcan, sérstaklega þegar
haft sé í huga mikil væntanleg eft-
irspurn frá Kína og Indlandi.
Samkvæmt yfirlýsingu Rio Tinto
er gert ráð fyrir að Richard Evans,
forstjóri Alcans, verði áfram yfir
starfsemi félagsins Kanada. Hins
vegar segir í erlendum fjölmiðlum að
ýmsir í Kanada hafi áhyggjur af þró-
uninni, sérstaklega með hliðsjón af
því að Alcan hverfur af kanadískum
hlutabréfamarkaði ef Rio Tinto yf-
irtekur félagið og yfirstjórn þess
mun þá færast frá Kanada til Lond-
on.
Alcoa gæti orðið næst
Reuters
Tilboð Talið er líklegt að yfirtökutilboð berist í Alcoa innan tíðar. Alain
Belda, forstjóri Alcoa, hefur staðið í ströngu að undanförnu.
● „ENN er ótímabært að segja hver
niðurstaðan verður,“ segir Páll Harð-
arson, aðstoðarforstjóri Kauphallar
OMX á Íslandi, um niðurfellingu við-
skipa Teymis fyrr í vikunni sem greint
var frá í Morgunblaðinu í gær. „Rétt
eins og í sambærilegum málum
verður rætt við viðkomandi aðila og
ástæður greindar eftir ákveðnu ferli
eins og vera ber.“
Stundum segir Páll nauðsynlegt
að fara yfir verklag. Yfirleitt sé ekki
ástæða til frekari aðgerða, enda oft-
ast um mannleg mistök að ræða.
Framhaldið óvíst
FRÍTT Á LEIKINA Í BOÐI OR
Orkuveita Reykjavíkur vill bjóða alla velkomna á úrslitakeppni Evrópumóts
kvenna yngri en 19 ára sem haldin verður á Íslandi dagana 18. til 29. júlí.
Mótið er tilvalið til að efla áhuga ungra knattspyrnustúlkna á íþróttinni og
eru leikir mótsins öllum opnir. Komið og sjáið framtíð kvennafótboltans
etja kappi og hvetjið þær kröftuglega áfram.
Áfram stelpur!
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
O
R
K
3
81
51
0
7
/0
7