Morgunblaðið - 14.07.2007, Page 17

Morgunblaðið - 14.07.2007, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2007 17 BENEDIKT XVI hefur nýlega haf- ið sumarleyfi sitt. Yfirmaður kaþ- ólsku kirkjunnar hyggst kanna ítölsku alpana næstu tvær vikur, sér til hvíldar og heilsubótar. Þó hefur hann í hyggju að kom fram opinberlega tvisvar á tímabilinu. AP Lúinn Veitið úlpunni athygli. Páfinn fer í frí TALSMENN Alþjóðakjarnorku- málastofnunarinnar segjast hafa náð samkomulagi við stjórnvöld í Ír- an um eftirlit með kjarnorkuverum Írana. Munu stjórnvöld í Teheran gera IAEA kleift að senda eftirlits- menn í orkuverið í Arak og hyggjast fylgja tilmælum IAEA að því er varðar útbúnað í Natanz, en þar hefur úran verið auðgað. Bandaríkjamenn hafa sakað Ír- ana um að hafa uppi áform um að búa til kjarnorkuvopn en stjórnvöld í Teheran fullyrða að þau hyggist aðeins nota kjarnorkuna til frið- samlegra nota, þ.e. til framleiðslu á raforku. IAEA semur við Írana 37 ÁRA maður varð fyrir því óhappi að verða fyrir eldingu þegar hann var á skokki í þrumuveðri. Hann bar Ipod-tónhlöðu og hátal- ararnir í eyrum hans leiddu straum í gegnum höfuð hans og snúrurnar brenndu á honum brjóstið. Urðu meiðslin því mun verri en ella. Ipod hættulegur MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL- INN í Strassborg vísaði í gær frá máli norsku „stríðsbarnanna“ sem farið höfðu fram á bætur frá norska ríkinu vegna fordóma og mótlætis sem þau hafa mætt í lífinu. Um er að ræða börn norskra mæðra og þýskra nasista, sem búsettir voru í Noregi í síðari heimsstyrjöld, en nasistar höfðu uppi áform um að búa til hreinræktað aríakyn úr blöndunni. Dómstóllinn telur málið hins vegar koma fram of seint. Málinu vísað frá Peking. AFP. | Bao Xishun mælist 2,36 metrar og hefur verið staðfest af Heimsmetabók Guinness að hann sé hæsti maður heims. Í gær hitti hann aftur á móti hinn nítján ára gamla He Pingping, en sá er aðeins 73 sentimetrar á hæð og hefur hann leitað til Heimsmetabókar Guinness til að fá staðfestingu þess efnis að hann sé smávaxnasti maður heims. Greinilega fór vel á með stór- mennunum, sem hér sjást takast í hendur, en eins og flestir vita er margur knár þótt hann sé smár þannig að ekki kæmi á óvart þótt mennirnir væru jafnokar á öðrum sviðum en hæðarmælingum. Hinn hávaxni Xishun fann sér ný- lega brúði í heimabæ sínum, Xia Su- ijan, og er hún í meðallagi há, 1,68 sentimetrar, en auðvitað kemur hæð í sentimetrum ástinni ekkert við! Hávaxnasti maður heims hittir þann lágvaxnasta Gúlliver í Puta- landi AP Eftir Ástu Sóley Sigurðardóttur astasoley@mbl.is ÓVÆNT heimsókn Ceciliu Sarkozy, eiginkonu Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, til Líbýu síð- astliðinn fimmtudag gæti verið byrjunin á nýju pólitísku hlutverki forsetafrúarinnar, að sögn franskra fjölmiðla. Ekki var þó um opinbera heim- sókn að ræða og sagði forsetafrúin að eiginmaður sinn hefði sent sig til Líbýu sem móður sem gæti nálgast alnæmissmituð börn og fjölskyldur þeirra, sem búlgarskir hjúkrunarfræðingar og palest- ínskur læknir eru sökuð um að hafa smitað. Forsetaembættið lét hafa eftir sér fyrr í vikunni að eftir heimsókn frú Sarkozy til Líbýu, þar sem hún átti tvo fundi með Muammar Gaddafi, leiðtoga Líbýu, væru væntingar til þess að búlgörsku hjúkr- unarfræðingunum og palestínska lækninum yrði sleppt en þau eiga dauðarefsingu yfir höfði sér fyrir að hafa smitað 438 börn af HIV-veirunni með því að gefa þeim smitað blóð. Fjölskyldurnar tilbúnar að fyrirgefa Cecilia hitti einnig dóttur Gaddafi, Aicha, en hún er yfir málefnum og réttindum kvenna í landinu. Frú Sarkozy heimsótti spítalann í Benghazi þar sem alnæmissmituðu börnin eru í meðferð og hitti fjölskyldur barnanna en 56 þeirra hafa nú þegar dáið úr sjúkdómnum. Talskona fjölskyldna sýktu barnanna sagði að fjölskyldurnar væru opnar fyrir samningaviðræðum í samræmi við kennisetningar íslams sem boðaði fyrirgefningu og miskunn. Hún sagði forsetafrúna hafa lofað því að beita sér fyrir bestu læknisþjónustu og vegabréfsáritun til Frakk- lands fyrir þær fjölskyldur sem hefðu hug á því að koma börnum sínum í hendur franskra lækna Á mánudag mun koma í ljós hvort dauðadóm- urinn yfir búlgörsku hjúkrunarfræðingunum fimm og palestínska lækninum verður staðfestur af sér- stökum dómstól í Líbýu, sem breytt getur úrskurði hæstaréttar landsins. Langaði ekki að verða forsetafrú Forsetafrúin viðurkenndi í viðtali fyrir tveimur árum að henni leiddust viðteknar hugmyndin um hlutverk forsetafrúar. Samband hennar og forset- ans hefur verið umræðuefni fjölmiðla vegna erf- iðleika í hjónabandinu, en Cecilia var ekki áberandi í kosningabaráttu eiginmanns síns. Hún var fjöl- miðlaráðgjafi hans þegar hann var innanrík- isráðherra og studdi pólitískan frama hans dyggi- lega í þá tíð. Hún virðist nú hafa skipt um skoðun en fjöl- miðlar þar í Frakklandi segja að hún hafi nú ráðið diplómatískan ráðgjafa sem hafi það hlutverk að leiðbeina henni í hlutverki sínu sem forsetafrú. Ce- cilia Sarkozy hafi í hyggju að beina kröftum sínum að „kvenlegum“ málum svo sem hagsmunum barna og kvenna, mannúðarmálum, franska tungumálinu og menningu. Nýtt pólitískt hlutverk Eiginkona Nicolas Sarkozy heimsótti búlgarska hjúkrunarfræðinga sem bíða dauðadóms í Líbýu og nú ríkir bjartsýni í Frakklandi um að þeim verði hlíft Reuters Viðstödd Cecilia kom fyrst fram opinberlega með manni sínum á G8-fundi í Þýskalandi. Landið er fallegra á löglegum hraða    

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.