Morgunblaðið - 14.07.2007, Side 22

Morgunblaðið - 14.07.2007, Side 22
|laugardagur|14. 7. 2007| mbl.is daglegtlíf Kvartbuxur verða áberandi á karlmönnum næsta sumar – a.m.k. ef tískuvikan í París slær rétta tóninn. » 24 tíska Það er heilmikil hugmyndafræði sem liggur að baki þessu skemmtilega húsi í Borgarfirð- inum. » 26 innlit Ég er búinn að vera að-alhirðfíflið hér und-anfarin átta ár,“ segirHolli, eða Hólm Dýrfjörð, sem er manna kátastur á árlegri garðhátíð Grundar og snýr döm- unum í dansinum. Hann er á tíræð- isaldri en sprækur sem lækur og rifjar upp þegar hann dansaði á síld- arplaninu árin sem hann tók þátt í síldarævintýrinu. „Þá var nú gaman og dansað fram á nótt, ýmist heima á Ísafirði, á Siglufirði, Vestmannaeyjum eða Raufarhöfn. Ég var líka útkastari á böllunum. Ég var ekki sjómaður en þeir slógust um að fá mig í fiskinn,“ segir Holli og hlær en hann er víð- förull maður sem fór að flakka um heiminn eftir sjötugt og hefur komið til Kína, Tíbet, Suður-Ameríku, Moskvu, Tyrklands, Bandaríkjanna og Kanada svo eitthvað sé nefnt. Þá heyrði ég vel og var ekki latur „Ég dansaði nú aðallega vals í gamla daga en ég var alltaf kúgaður til að setjast við píanóið þegar dans- inn dunaði af því ég kunni aðeins að glamra á það,“ segir Einar Péturs- son en langafi hans, Pétur Guðjóns- son, var fyrsti lærði organistinn á Ís- landi, svo músíkin er greinilega í blóðinu. En Einar er hógvær og seg- ist vera bölvaður ættleri. „Ég er svo merkilegur með mig, ég syng ekkert með núna. Ég er að spara röddina þar til eftir viku. En ég pantaði þetta góða veður í dag enda er ég umboðsmaður þeirra í háloftunum. Ég sendi þeim skeyti og bað um að hafa veðrið akkúrat svona.“ Kristján Reykdal, sem er alinn upp í Fljótunum í Skagafirði, segir margt gerast á langri leið og vísar þar til ævi sinnar. „Þegar ég var ungur maður reri ég á árabát með fóstra mínum. Þá heyrði ég nú vel og var ekki latur. Það var puðað dag og nótt, slegið og rakað á sumrin en hugsað um rollurnar á veturna. Við systkinin fórum ekki í skóla heldur lærðum heima en fengum samt hæstu einkunn þegar við vorum prófuð hjá skólastjóranum í Haga- nesvík.“ Komst upp á háa c-ið Auður dóttir Jónasar frá Hriflu var liðtæk í dansinum enda sagðist hún hafa dansað á laugardagskvöld- unum þegar hún var yngri. Hún var vandlát á dansherrana á sínum ung- dómsárum og sagði þá hafa verið misjafnlega góða í dansinum og ekki þóttu henni þeir allir fjallmyndar- legir. Hrafnhildur Laxdal var uppá- klædd og ánægð með lífið. „Andinn hér á Grund er góður og gott að vera hér og vel hugsað um fólkið. Mér finnst gaman að horfa á hina dansa þótt ég sé sjálf óflínk. Ég hef aftur á móti gaman af því að syngja, ég náði upp á háa c-ið þegar ég var yngri en missti röddina þegar söngstjóri nokkur gekk fram af mér og annarri stúlku í raddþjálfun.“ Mikil tilhlökkun hafði ríkt á Grund fyrir garðhátíðina og sumir borðuðu ekkert í hádeginu til að hafa nóg pláss fyrir grillmatinn og vínar- brauðið. Á Grund syngur fólk saman á hverjum einasta morgni, þar eru hattadagar, ferðalög og fleira skemmtilegt. Um tuttugu heim- ilismenn eru fyrrverandi starfsmenn á Grund, sem segir allt um það hversu vel fólkinu líður þar. Vafa- laust hafa margir sofnað í gærkvöldi með óminn af lögunum sem sungin voru um daginn í eyrunum. Hirðfíflið Hólm Dýrfjörð dansaði við Svölu djákna á Grund undir blaktandi íslenskum fánum. Morgunblaðið/Ásdís Músíkin í blóðinu Einar Pétursson pantaði góða veðrið en ákvað að spara röddina að þessu sinni. Kynslóðir mætast Ungviðið skemmti sér jafn vel og gamla fólkið. Tjúttað í sól- inni á Grund Sönggleði Þau Sig- rún, Jóhann og Sig- urður tóku öll hraust- lega undir í söngnum. Dekur Jóhanni og Gunnari fannst ekki leiðinlegt að láta unga stúlku bera á sig sólarvörn. Að stíga dans undir taktfastri tónlist og gæða sér á grillmat í góða veðrinu er nokkuð sem flestir kunna að njóta. Kristín Heiða Kristinsdóttir hitti káta karla og sprækar konur í sólinni í portinu á Grund í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.