Morgunblaðið - 14.07.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.07.2007, Blaðsíða 24
Eftir Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Gagnrýnendur í París voru missáttirer herratískan 2008 var kynnt þar íborg undir lok síðasta mánaðar.Eitthvað virtist skorta á stemningu í tískuborginni, hvort sem um er að kenna þeirri staðreynd að Hedi Slimane, yfirhönnuður herralínunnar hjá Dior, hefur sagt skilið við tískubransann eða bara almennri ládeyðu á tískupöllunum að þessu sinni. Engum meiri- háttar skandölum var þó til að dreifa heldur – bara stöngin inn hjá einum í bland við stöngina út hjá öðrum. Margir reyndu við þá þversögn að gera fötin afslöppuð en um leið undir áhrif- um frá spariklæðnaði, hatta má sjá hér og hvar og stuttbuxur í bland við stuttar buxur gat hvarvetna að líta. Eftirfarandi hönnuðir þóttu að flestra mati hitta í mark að þessu sinni. Hið fornfræga hátískumerki Lanvin hefur á skömmum tíma ratað úr glatkistunni og á heita reitinn, þökk sé yfirhönnuðinum Alber Elbaz. Lærlingur hans í herradeildinni, sá hollenski Lucas Ossendrijver, átti að flestra mati eina sterkustu herralínuna í París. Fötin voru al- mennt mjúk að sjá og blöktu sem silkináttföt á fyrirsætunum. Ekki einungis buxurnar voru lausar í sniðinu heldur skyrtur og jakkar líka, flaksandi frjálst allt saman. Litirnir voru líka langt í frá sjokkerandi hjá Lanvin – svartur, hvítur, ljósgrár og kremgulur voru allsráðandi og féllu litirnir vel að sniðum og efnum lín- unnar. Á tveimur fyrirsætum mátti svo sjá ein- kennistákn Alber Elbaz, þverslaufuna. Grein- arhöfundur fer ekki ofan af því að hún mun ryðja sér enn frekar til rúms sem sparihálstau á næstu misserum – á kostnað hálsbindisins. Hinn hábrezki Paul Smith hefur lengi sýnt föt sín handan Ermarsundsins í París. Brezk einkenni er þó alltaf að finna að einhverju leyti innan hverrar línu sem hann sendir frá sér. Í herralínu næsta vors er t.a.m. talsvert meira um staka blazerjakka við buxur í öðrum litum á kostnað jakkafata. Þó var engan uppskrúf- aðan tjallastíl að sjá, því víða blöstu við galsa- fengnir litir á sígildum sniðum, jafnvel rönd- óttir jakkafatajakkar og stórdoppóttar skyrtur. Ef liturinn var lágstemmdur á föt- unum – tökum sem dæmi ljósgrá jakkaföt – þá voru strigaskórnir skærbleikir! Líklegt má því telja að margir brjóti yfirvegaðan stíl sinn upp næsta vor með því að tefla saman íhaldssömum fötum og litsterkum skóm. Eins mátti sjá ofin þverklippt hálsbindi sem líkast til ná flugi sum- arið 2008 enda létt og mátulega kæruleysisleg. Lúxusmerkið Hermès heldur sig jafnan á öruggum siglingaleiðum er kemur að nýjum línum af tískufötum, enda yfirvegaður glamúr ær og kýr á þeim bæ. Aðalhönnuður herratísk- unnar hjá Hermès, Véronique Nichanian, var þar af leiðandi ekki að rugga þeim bátnum frekar en hefð er til. Litirnir voru í dekkri kantinum, grátt, dökkrautt og loks „char- treuse“-grænn. Helstu nýmæli á sýningunni voru þau að frk. Nichanian kaus í flestum til- fellum mittisjakka, ýmist úr leðri eða rúskinni, frekar en hefðbundna jakkafatajakka. Hvort stíllinn kemst á skrið næsta vor verður að koma í ljós. Eitt helsta tískuhús Parísarborgar, Yves Sa- int-Laurent, hefur dregið talsvert úr íhalds- semi í herratískunni. Það skrifast alfarið á yfir- hönnuð herralínunnar, hinn ítalska Stefano Pilati, hvort sem menn telja það kost eða löst. Hann hélt sig þó við dæmigerða YSL-liti að þessu sinni; svartan, hvítan, sand„beige“ og dimmbláan. Meðal djarfari útspila voru peysur með kvartermum, tvíhnepptir mittisjakkar og jakki með aflíðandi axlapúðum. Þá sendi Pilati frá sér stuttar og þröngar buxur í bland við skósíðar og flaksandi – hann hefur sjálfsagt ekki viljað setja öll eggin í sömu körfuna er brækurnar voru annars vegar. Hvort tveggja fórst honum vel úr hendi. Í bland við hálsbindi og þverslaufur gat svo að líta hnýtta hálsklúta innan við skyrtukragann, nokkuð sem hefur lítt sést síðan um 1990 – eru menn tilbúnir í það aftur? Spyrjum aftur að ári. Vor í París Fyrir skólastráka í sum- arfríi Jakkapeysa og stuttbuxur frá Lanvin. Undir áhrifum kjólfata Sparileg jakkaföt frá Emanuel Ungaro. Reuters 24 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Séð yfir að Indriðastöðum. Lóðir fyrir frístunda- hús verða í brekkunum fyrir ofan bæinn og við golfvöllinn sem verður á túnunum við enda Skorradalsvatns. tíska
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.