Morgunblaðið - 14.07.2007, Side 39

Morgunblaðið - 14.07.2007, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2007 39 Elsku Gagga, nú líður þér betur hjá Guði. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Við söknum þín. Konráð Karel, Ásta Lilja, Grétar Þór og Kristín Bára. HINSTA KVEÐJA ✝ Þökkum innilega auðsýndan hlýhug og samúð við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HÓLMFRÍÐAR INDRIÐADÓTTUR frá Skjaldfönn. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir alúð og umhyggju. Indriði Aðalsteinsson, Kristbjörg Lóa Árnadóttir, Kristín Aðalsteinsdóttir, Ólafur M. Håkansson, Jóhann Aðalsteinsson, Helga Þorvaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, HJÁLMARS SIGURJÓNS GUÐJÓNSSONAR bónda, Tunguhálsi II, Skagafirði. Sérstakar þakkir til Rökkurkórsfélaga og ferðafélaga í Skotlandsferðinni. Guð blessi ykkur öll. Þórey Helgadóttir, dætur, tengdasynir og barnabörn. ✝ Sendi þakkir öllum þeim sem sýnt hafa hlýhug og samúð við andlát elskulegrar móður minnar, BRYNHILDAR KJARTANSDÓTTUR fyrrum stærðfræðikennara, Skúlagötu 44, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 3N á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir alúð og hlýju í hennar garð. Erla Elín Hansdóttir. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓELS KR. JÓELSSONAR garðyrkjubónda, Reykjahlíð, Mosfellsdal. Sérstakar þakkir til þeirra sem önnuðust hann heima og lækna og starfsfólks sjúkrastofnana. Salome Þorkelsdóttir, Anna Jóelsdóttir, G. Thomas Fox, Jóel Kr. Jóelsson, Kristín Orradóttir, Þorkell Jóelsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför, FREYSTEINS JÓNSSONAR, Vagnbrekku, Mývatnssveit. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Seli, Akureyri, fyrir einstaka umönnun. Áslaug Freysteinsdóttir, Guðmundur Þórhallsson, Hjálmar Freysteinsson, Sigríður Þórðardóttir, Guðrún Freysteinsdóttir, Húnn Snædal, Egill Freysteinsson, Dagbjört Bjarnadóttir og fjölskyldur. ✝ Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐLAUGAR EINARSDÓTTUR frá Heylæk. Anna Sigurveig Sæmundsdóttir, Sæmundur Árnason, Guðlaug Sæmundsdóttir, G. Yngvi Þorsteinsson, Ingibjörg Sæmundsdóttir, Sigurður Sigurþórsson, Aðalheiður Sæmundsdóttir, Ásdís Sæmundsdóttir, Elín Kristín Sæmundsdóttir, Einar Þór Árnason, Eyrún Ósk Sæmundsdóttir, Guðfinnur Guðmannsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Lilja Jónsdóttirfæddist á Syðri Húsabakka 3. apríl 1924. Hún lést á Heilbrigðisstofn- uninni á Sauðár- króki sunnudaginn 1. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Emilía Kristín Sigurðardóttir, f. á Marbæli á Langholti 29.4. 1880, d. 7.5. 1971, og Jón Krist- inn Jónsson, f. á Skinþúfu, nú Valla- nesi í Vallhólmi 28.9. 1888, d. 6.9. 1966. Bróðir Lilju er Sigurður Árni Jónsson, f. á Syðri Húsa- bakka 21.8. 1921. Barnsmóðir hans var Jónína Guðný Jónsdóttir, f. í Skrapatungu í Laxárdal 6.10. 1908 , d. 16.12. 1980. Dóttir þeirra er Jónína Kristín Sigurðardóttir, f. á Syðri Húsabakka 28.1. 1946, gift Karel Sigurjónssyni, f. 10.3. 1957. Þau eru búsett á Syðri Húsa- bakka. Börn þeirra eru: 1) Þórey Sigurjóna, f. 25.8. 1975, maki Gísli Óskar Konráðsson, f. 6.11. 1971. fékk Húsabakkaheimilið að njóta góðs af því. Lilja stefndi að því að verða handavinnukennari, en sök- um vanheilsu móður sinnar varð hún kyrr heima og annaðist for- eldra sína af ástúð og umhyggju þar til yfir lauk. Árið 1982 keyptu þau systkinin, Lilja og Sigurður, efri hæð húss- ins á Lindargötu 3 (Tindastóll) og fluttu til Sauðárkróks. Vinnu- staður þeirra beggja var sút- unarverksmiðjan Loðskinn. Árið 1988 keyptu þau systkinin svo Freyjugötu 46 og var það heimili þeirra til ársins 2006, er heilsa þeirra þraut. Þau fóru þá bæði á deild 2 á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki. Á Króknum undi Lilja hag sín- um vel. Hún var mannblendin og vinamörg. Einnig naut hún þess að fegra heimili sitt og garðinn umhverfis það. Postulínsmálun varð hennar uppáhaldsiðja ásamt annarri handavinnu þegar aldur- inn færðist yfir. En þrátt fyrir fötlun á síðustu árum ævinnar missti hún aldrei tökin á því að gera eitthvað fallegt, til þess að gleðja fjölskyldu sína. Útför Lilju verður gerð frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Börn þeirra eru Kon- ráð Karel, f. 7.2. 2000, og Ásta Lilja, f. 16.7. 2003. Þau eru búsett á Sauðárkróki. 2) Sigurður Árni, f. 20.8. 1977, maki Hólmfríður Jóns- dóttir, f. 20.8. 1980. Sonur þeirra er Grét- ar Þór, f. 23.1. 2003. Þau eru búsett á Ak- ureyri. 3) Jón Guðni, f. 16.10. 1981, maki Rakel Sturludóttir, f. 18.10. 1981. Dóttir þeirra er Kristín Bára, f. 11.11. 2004. Þau eru búsett á Sauðár- króki. 4) Gunnar Karel, f. 13.5. 1988. Býr í foreldrahúsum. Lilja ólst upp í foreldrahúsum á Syðri Húsabakka við almenn sveitastörf. Hún hneigðist lítt til bústarfa, en hross voru hennar líf og yndi og átti hún góða hesta. Lilja fór í Kvennaskólann á Löngumýri veturinn 1945-1946, og kom þá vel í ljós hve listfeng hún var. Hannyrðir og fatasaum- ur léku í höndunum á henni og Elsku Gagga, okkur systkinin lang- ar að minnast þín í nokkrum orðum og þakka þér allar samverustundirn- ar. Þú eignaðist ekki mann eða börn. En mamma og pabbi voru alltaf eins og börnin þín og við þar af leiðandi þér sem barnabörn. Enda litum við alltaf á þig sem ömmu okkar. Þegar við systkinin vorum lítil bjugguð þið afi á Húsabakka ásamt mömmu, pabba og okkur. Seinna fluttuð þið á Krókinn en komuð oftast heim um helgar og í fríum. Við krakk- arnir biðum alltaf full tilhlökkunar eftir að þið kæmuð heim, því það var eins og eitthvað vantaði þegar þið voruð ekki þar. Þú hafðir alltaf nógan tíma til að spjalla og jafnvel bregða á leik. Þá var ósjaldan að þú klipptir út hesta, kindur og hunda úr cornflakes- pökkum handa okkur til að leika með. En það var eins með það og aðra handavinnu að það lék allt í höndun- um á þér. Ekki tók svo síðra við þegar við fór- um í Fjölbraut á Króknum og héldum til hjá ykkur afa á Freyjugötunni. Þá var stjanað við okkur á alla lund. Og alltaf beiðstu með heitan mat þegar við komum heim úr skólanum á kvöld- in. Við minnumst þín líka eins og þú varst síðustu árin. Sífellt brosandi og með eitthvað í höndunum sem þú svo gafst okkur, mömmu, pabba eða litlu grísunum okkar. Hvort sem það var útsaumaður púði eða málað postulín. Þrátt fyrir áfallið sem þú varðst fyrir, fyrir 10 árum, þá léstu það ekki stoppa þig og hélst ótrauð áfram þó hreyfigetan væri minni. Það var alltaf heitt á könnunni þegar við litum inn á Freyjugötunni og þið afi þotin af stað með það sama að taka til með kaffinu um leið og við rákum inn nefið. Fyrir rúmu ári reið nýtt áfall yfir og þú varst bundin hjólastól eftir það. Þrátt fyrir að hafa ekki getað tjáð þig með orðum gastu oftast, með brosinu þínu og bendingum, gert okkur skilj- anlegt hvað þú varst að hugsa. Bros- andi tókstu á móti okkur þegar við heimsóttum ykkur afa á ellideildina þetta síðasta ár. Margar góðar stundir áttum við líka með ykkur þegar þið komuð í sveitina eða heim til einhvers okkar í mat. Í dag kveðjum við þig elsku Gagga með söknuði en gleðjumst yfir að þú sért orðin frjáls. Við þökkum fyrir ástúð alla, indæl minning lifir kær. Nú mátt þú vina höfði halla, við herrans brjóst er hvíldin vær. Í sölum himins sólin skín við sendum kveðju upp til þín. (H.J.) Þórey, Sigurður (Iddi), Jón og Gunnar. Elsku Gagga. Við minnumst þín með söknuði og vonum að nú líði þér vel. Friðurinn sem var yfir þér þegar allt var yf- irstaðið var svo fallegur. Þú hefur fengið máttinn aftur til að gera allt sem þú gast ekki með höndina þína lamaða. Nú brosir þú með handavinn- una þína og vakir yfir okkur. Brosið þitt var alltaf svo hlýtt og gott. Við munum varðveita allt sem þú gafst okkur. Minning þín lifir. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Rakel og Hólmfríður Hóffý. Lilja Jónsdóttir Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upp- lýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hve- nær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvað- an útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Myndir | Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráð- legt að senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.