Morgunblaðið - 14.07.2007, Síða 45

Morgunblaðið - 14.07.2007, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2007 45 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Dagsferð um höf- uðborgarsvæðið. Farið verður 19. júlí kl. 13.30 frá Aflagranda. Kaffiveit- ingar í Golfskála Oddfellow í Urriða- vatnsdölum. Verð 800 kr. Skráning í Aflagranda 40 og í síma 411-2700. Félag eldri borgara Kópavogi, ferða- nefnd | Hálendisferð FEBK í Veiði- vötn og virkjanir verður farin fimmtu- daginn 26. júlí. Brottför frá Gjábakka kl. 8 og Gullsmára kl. 8.15. Skráning- arlistar og ítarlegar ferðalýsingar eru í félagsmiðstöðvunum Gullsmára s. 564-5260 og Gjábakka s. 554-3400. Skráið ykkur sem fyrst. Félagsheimilið Gjábakki | Krumma- kaffi kl. 9 og Hana-nú-ganga kl. 10. 80ára afmæli. Anna Sigurkarls-dóttir, fyrrverandi kennari og forstöðumaður aldraðra í Kópavogi, er áttræð í dag. Afmælisbarnið verður á Austurlandi á afmælisdaginn. Brúðkaup | Gefin voru saman 7. júlí sl. í safnkirkju Árbæjar af sr. Ragn- heiði Jónsdóttur Anitha Sandstedt og Þorsteinn Magnússon. Þau eru búsett í Svíþjóð. dagbók Í dag er laugardagur 14. júlí, 195. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður. (Jh.. 15, 12.) ÁStöðvarfirði sker eitthúsið sig úr hópnum.Þeir sem leið eiga umbæinn taka eflaust eftir óvenjulega skrautlegum garðinum þar sem finna má steina af öllum stærðum og gerðum. Í húsinu Fjarðarbraut 21 er Steinasafn Petru, sem Petra Sveinsdóttir opnaði fyrir almenningi fyrir um þremur áratugum. „Eins og allir krakkar tók ég upp á því einhverju sinni að safna steinum. Ég lék mér mikið í fjöll- um og fjörum, og tók alltaf til hlið- ar það sem mér þótti fallegustu steinarnir, og geri enn í dag, því segja má að áráttan hafi ekki vax- ið af mér,“ segir Petra en þeir sem eru vel að sér um merkingu nafna myndu segja hún beri nafn sem hæfi vel slíkum steinasafnara. Að Petra skyldi opna safn gerð- ist fyrir hálfgerða hendingu: „Ég hafði raðað nokkrum steinum á steypta stétt kringum fánastöng í garðinum. Smám saman fóru fleiri og fleiri að staldra við og skoða steinana, og sumum var boðið inn í hús. Þetta vatt svo upp á sig þang- að til var látlaus straumur af fólki,“ segir Petra en á síðasta sumri komu um 20.000 gestir í safnið. Petra kveðst ekki geta slegið tölu á fjölda þeirra steina sem finna má í safninu: „Það er víst að garðurinn er stór, og rúmar marga steina, en safnið er ekki aðeins í garðinum heldur inni í húsi líka,“ segir Petra, og bætir við að ekki séu aðeins steinar í safninu, heldur megi þar líka finna fagrar skeljar, blóm og ýmislegt annað smálegt sem hún hefur sankað að sér. Spurð hvort einhver safngrip- urinn beri af öðrum, eða sé í meira uppáhaldi á Petra erfitt með svör. „Það má kannski nefna að í safn- inu á ég stóra bergkristalkúlu, en allir eru steinarnir í uppáhaldi því á bak við þá alla er einhver saga eða minning. Þannig fundum við bergkristalinn á sérlega skemmti- legum degi, þegar ég var uppi á fjalli með nokkra strákpatta með mér. Við fundum líka tófugreni þann dag og varð heldur en ekki uppi fótur og fit,“ segir Petra og neitar um leið að eiga galdra- steina, þó sumir sem komi í safnið þykist sjá álfa á ferð í garðinum. Steinasafn Petru er opið alla daga yfir sumartímann frá 9 til 18. Aðgangseyrir er kr. 400 en börn að 14 ára aldri fá aðgang ókeypis. Viðkomustaðir | Finna má óvenjulegt safn við Fjarðarbraut á Stöðvarfirði Steinar og minningar  Petra Sveins- dóttir fæddist á Bæjarstöðum við Stöðvarfjörð 1922. Hún stundaði nám við Kvennaskól- ann, en starfaði lengst af við fiskvinnslu. Hún hefur í um 30 ár starfrækt Steinasafn Petru í Stöðvarfirði. Petra er ekkja Jóns Ingimund- arsonar sjómanns, og átti með hon- um fjögur börn, og á fleiri barna- börn og barnabarnabörn en tölu verður á komið. Tónlist Hallgrímskirkja | Mario Duella, organisti frá Norður-Ítalíu, leikur á hádegistón- leikum, kl. 12. Á efnisskránni eru verk eftir Alexandre Guilmant, Oreste Ravanello, Costante Adolfo Bossi og Marco Enrico Bossi. Skálholtskirkja | Kl. 15. Kammertónleikar með verkum eftir austurrísku og íslensku tónskáldin Hubert Pöll, Áskel Másson, Frie- drich Cerha, Hannes Heher og Atla Heimi Sveinsson. Flytjendur: Graffe-strengja- kvartettinn og Einar Jóhannesson klarin- ettleikari. Ókeypis aðgangur. Skálholtskirkja | Kl. 17. Tónleikar með verkum eftir Jón Nordal, þ.á m. Óttu- söngvar á vori. Flytjendur: Hljómeyki, Hall- veig Rúnarsdóttir sópran, Sverrir Guð- jónsson kontratenór, Sigurður Halldórsson selló, Frank Aarnink slagverk, Steingrímur Þórhallsson orgel. Stjórnandi: Magnús Ragnarsson. Ókeypis aðgangur. Myndlist DaLí gallerí | Helgi Kistinsson opnar sýn- inguna Sound Orb kl. 17. Deiglan | Opnun á sýningu myndverka Unu Berglindar Þorleifsdóttur. Sýningin stendur til 29. júlí. Grafíksafn Íslands | Tryggvagötu 17, hafn- armegin. Finnska listakonan Anna Alapuro opnar sýningu á grafíkverkum í dag kl. 15. Sýningin er styrkt af FRAME og Menning- arsjóði Finnlands og Íslands. Opið fimm- tud.-sunnud. kl. 14-18. Sýningin stendur til 29. júlí. Ketilhúsið Listagili | Opnun á tveimur sýn- ingum: Í aðalsal opna Jóna Hlíf Halldórs- dóttir og Kristina Bengtson sýninguna „Make it big or keep it simple“. Á svölum opnar Bjargey Ingólfs sýninguna „Þræðir“. Sýningarnar standa til 29. júlí. Fyrirlestrar og fundir OA-samtökin | Laugardagsdeild OA- samtakanna er með fundi alla laugardaga á Tjarnargötu 20, kl. 11.30. Eina skilyrðið til þátttöku í OA er löngun til þess að hætta hömlulausu áti. Nýliðar eru hjartanlega velkomnir. Nánari upplýsingar er að finna á www.oa.is. Skálholtsskóli | Kl. 14. Helmut Neumann tónskáld fjallar um menningartengsl Ís- lands og Austurríkis á sviði tónlistar. Nán- ari upplýsingar á www.sumartonleikar.is. Ókeypis aðgangur. ÓLÍKT því sem virðist er þessi mynd ekki tekin í fjarlægu sólkerfi, heldur er þetta leikari klæddur sem Svarthöfði og stendur fyrir framan módel af Jabba the Hutt á sérstakri evrópskri Star Wars-hátíðarsýningu í Excel Centre í London í gær. Líklegt er að Jabba the Hutt hafi ekki verið ánægður með að Svart- höfði skyggði á hann enda eru þeir báðir alræmd illmenni. Reyndar gætu þeir líka verið með eitthvert vafasamt ráðabrugg í smíðum. Rauters Alræmd illmenni mætast FRÉTTIR HIÐ árlega aflraunamót Suður- landströllið fer fram í dag, laugar- daginn 14. júlí, og hefst keppni kl. 13.30 við Selfossbrúna. Keppt verður í trukkadrætti, drumbalyftu, bændagöngu og Hönd yfir hönd þar sem Toyota Hilux-bíll er dreginn. Keppni hefst við Eden í Hvera- gerði kl. 16. Þar verður keppt í axla- lyftu, uxagöngu og Húsafellshellu- burði. Keppendur eru Kristinn Óskar Haraldsson, Orri Geirsson, Heiðar Geirmundsson og Ólafur Guðjóns- son, auk þess sem von er á nokkrum í viðbót, segir í fréttatilkynningu. Suðurlands- tröllið krýnt HÁRGREIÐSLUSTOFAN Super- nova hefur flutt starfsemi sína úr Pósthússtræti 13 í Smáralind. Í fréttatilkynningu segir að ásamt allri alhliða hárþjónustu sé einnig boðið upp á airbrush-förðun og hár- lengingar, og til stendur í nánustu framtíð að bjóða upp á ásetningu gervinagla. Supernova er opin á af- greiðslutíma Smáralindar eða eins og hér segir: mánudaga til föstudaga kl. 11-19, fimmtudaga kl. 11-21, laug- ardaga kl. 11-18 og sunnudaga kl. 13- 18. Supernova hefur flutt í Smáralind FYRSTA BMW-kraftmílan verður haldin í dag, laugardaginn 14. júlí, á kvartmílubrautinni í Kaplahrauni. Keppnin hefst stundvíslega kl. 11. Með keppninni er fyrst og fremst verið að mynda öruggan og lögleg- an vettvang fyrir unga ökuþóra, segir í fréttatilkynningu. Skipuleggjendur keppninnar eru BMWKraftur, félag áhugafólks um BMW, og B&L, umboðsaðili BMW á Íslandi, og hafa um 30 BMW-bílar verið skráðir til þátttöku. Þar á meðal eru margir af þeim aflmestu hér á landi eins og BMW M5 (E60) sem er 507 hö. Af öðrum keppn- isbílum má nefna BMW M5 (E39), sportbílinn Z3 M Roadster og Alpina B3, sem er breyttur Alpina-þristur. Í fréttatilkynningu segir að þó að fyrirkomulag keppninnar byggist á hefðbundinni kvartmílu verði ekki um eiginlega keppni að ræða, held- ur er fyrst og fremst verið að gefa félagsmönnum í BMWKrafti kost á að sýna hvað í bílum þeirra býr á öruggan og löglegan hátt. Þeim tækifærum sem ungum ökuþórum gefast til þess má að mati skipu- leggjenda fjölga hér á landi og er BMW-kraftmílan viðleitni í þá veru. Jafnframt er kraftmílan hugsuð sem jákvæð hvatning til eigenda hrað- skreiðra bíla, að þeir takmarki hraðakstur við þar til gerðar braut- ir. Keppandi Meðal þeirra bíla sem taka þátt er M5, sem er 507 hestöfl. Fyrsta BMW-kraftmílan verður haldin í dag VEGNA frétta um stöðu rafmagns- öryggismála á fyrrum varnarsvæði á Keflavíkurflugvelli vilja SART, Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði, taka fram eftirfarandi: „Hafin er vinna við endurbætur á rafkerfi íbúða á svæðinu í samræmi við íslenskar reglur um rafmagnsör- yggi og fyrirmæli Neytendastofu. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar hefur nú þegar samið við nokkra lög- gilta rafverktaka varðandi fram- kvæmd fyrsta hluta verksins. Verkið felur m.a. í sér breytingu á spennu úr 110 í 230 volt, settar verða nýjar greinatöflur í íbúðir með sjálfvirkum varnarbúnaði og lekastraumsrofa- vörn, skipt verður um tengla og einnig ljósabúnað þar sem við á. Raf- verktakar munu venju samkvæmt tilkynna verk sín til Neytendastofu sem síðan mun láta framkvæma skoðun á þeim. Ljóst er að verkefni sem varða uppfærslu á rafkerfi Keflavíkurflugvallar eru af þeirri stærð að nauðsynlegt verður að áfangaskipta og forgangsraða verk- þáttum þannig að umbreytingin verði markviss, hagkvæm og örugg. Rafverktakar leggja ríka áherslu á að verkið verði unnið í náinni sam- vinnu við Neytendastofu og öryggis- fulltrúa Þróunarfélagsins sem skip- aður verður á næstu dögum. Þrátt fyrir það sem að framan greinir telja samtökin að ná hefði mátt markmið- um Þróunarfélagsins varðandi fram- kvæmdir á svæðinu í samvinnu við Neytendastofu án umdeildrar laga- setningar.“ Vinna hafin við raf- kerfið á Vellinum Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.