Morgunblaðið - 14.07.2007, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 14.07.2007, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2007 49 Um þessar mundir er unniðað viðamikilli endurnýjunRíkislistasafnsins í Amst- erdam í Hollandi og er stærstur hluti þess lokaður. Í þeim hluta sem opinn er almenningi eru til sýnis perlur úr safneigninni – nán- ar tiltekið frá 17. öld sem jafnan hefur verið nefnd gullöld hol- lenskrar myndlistar. Undir yf- irskriftinni „Meistaraverkin“ má sjá verk hollenskra meistara á borð við Rembrandt van Rijn, Johannes Vermeer, Frans Hals, Jan van Go- yen, Jacob van Ruisdael og Sal- omon van Ruysdael. Athygli vekur, í þessu samhengi hins listsögulega hefðarveldis, að til sýnis er einnig forláta dúkkuhús, kennt við Petro- nellu Oortman húsfrú, við hlið olíu- málverks Jacobs Appels af sama húsi.    Hollensk gullaldarmyndlist, einsog við sjáum í verkum Rem- brandts og félaga, endurspeglar sérstakar þjóðfélagsaðstæður. Myndverk voru þá í fyrsta sinn seld á opnum markaði og til varð ný sérhæfing í samræmi við áhuga borgaranna á daglegri og efn- islegri tilvist. Tegundarmálverkið blómstraði, til dæmis portrett, kyrralífsverk og landslagsmyndir, í verkum sem mörg hver end- urspegla hollenska hagsæld af nán- ast kortafræðilegri nákvæmni. Jafnvel dúkkuhús Petronellu – sem sjá má á vissan hátt sem kortlagn- ingu tilveru hennar – rataði á striga í verki Appels og telst lík- lega til „innimynda“ sem þá voru vinsæl tegund málverka.    Húsið sjálft er engin smásmíði,meira en mannhæðarhátt og þarf stiga til að sjá herbergin á efstu hæð. Petronella Oortman var auðug kaupmannsfrú sem pantaði húsið en kostnaðurinn við gerð þess mun hafa numið andvirði „al- vöruhúss“ við eitt af síkjum Amst- erdam, enda komu færustu hand- verksmenn að gerð þess. Húsið hefur líka öll einkenni rík- mannlegs alvöruhúss og hefur sem slíkt einstakt heimildagildi; það skiptist í níu sérhæfð rými og er húsbúnaður allur hinn glæsilegasti: sérpantað postulín frá Kína og fuglabúr í betra eldhúsinu, silki- tjöld og -púðar í barnaherberginu, spunarokkur og straujárn í línher- bergi, teketill úr silfri, vegg- og loftmálverk, innbundnar bækur (m.a. Biblían og kort af Afríku) og skápur með skeljasafni í betri stof- unum. Garður mun hafa fylgt hús- inu en hefur ekki varðveist. Dúkkuhúsið var ekkert barna- leikfang, heldur stáss húsfreyj- unnar sem gestum var sýnt sér- staklega. Dúkkuhúsið er raunar í sérhönn- uðum skáp sem lagður er pjátri og skjaldbökuskeljum. Slíkir dúkku- húsaskápar voru algengt tóm- stundagaman auðugra hollenskra kvenna á 17. öld og eiga sér sam- svörun í safnskápum herramanna – einkasöfnum þar sem þeir varð- veittu fágæta gripi, gjarnan graf- íkverk eða framandi hluti frá fjar- lægum löndum.    Aðeins hafa varðveist þrjúdúkkuhús. Kannski hafa skáp- ar kvennanna lent í höndum barna og tvístrast í tímans rás – að minnsta kosti hafa þeir ekki verið varðveittir og skráðir jafnrækilega á spjöld sögunnar og fágætissöfn karlanna sem jafnan eru talin for- veri og undirstaða ýmiss konar safna í nútímanum í samræmi við ráðandi sjónarhorn menningar- innar. Eða hvers vegna hafa dúkkuhús kvennanna – sem eru ekki síður merkileg – ekki verið nefnd í sömu andrá? Dúkkuhúsin eru staðsett á jaðr- inum í menningunni en þau voru miðlæg sem sýningargripir inni á heimilinu. Þeim er lýst sem tóm- stundaiðkun kvennanna en áhuga- mál kvenna á þessum tíma mótast auðvitað af því hlutverki sem kon- um var látið í té – af körlum. Nú- tímavæðingin var í örri þróun í siglinga- og verslunarveldinu Hol- landi á 17. öld samfara stækkun borga og tilurð heimsmarkaðar. Borgarastéttinni óx ásmegin og með henni varð til sérstök menn- ing, þ.á m. hið borgaralega, rök- lega skipulagða og niðurhólfaða heimili – sem jafnframt var einka- rýmið og staður konunnar og ein- staklingsrými hennar þegar best lét. Dúkkuskápurinn er smækkuð út- gáfa af lokaðri veröld konunnar – táknmynd fyrir smækkaða skápa- tilveru. Húsin voru stöðutákn en það skipti líka máli fyrir sjálfs- mynd kvennanna að hafa húsin fjölbreytt og glæsileg með tilvís- unum út í heim (svo sem með kín- versku postulíni). Ríkislistasafnið í Amsterdam minnir á að dúkku- húsin endurspegla heimsmynd ekki síður en hin alkunnu meistaraverk hollensku gullaldarmálaranna. Dúkkuhús í meistaraflokki »Húsbúnaður er allurhinn glæsilegasti: sérpantað postulín frá Kína og fuglabúr í betra eldhúsinu, silkitjöld og -púðar í barnaherberg- inu, spunarokkur og straujárn í línherbergi, teketill úr silfri, vegg- og loftmálverk, inn- bundnar bækur (m.a. Biblían og kort af Afr- íku) og skápur með skeljasafni í betri stof- unum. Glæsilegt „Húsið hefur líka öll einkenni ríkmannslegs alvöruhúss og hefur sem slíkt einstakt heimildagildi.“ annajoa@simnet.is AF LISTUM Anna Jóa Skápurinn Dúkkuhúsaskápar voru algengt tómstundagaman auðugra hol- lenskra kvenna á 17. öld og eiga sér samsvörun í safnskápum herramanna þar sem þeir varðveittu fágæta gripi. ÞAÐ MÁ vissulega deila um hvort um stórmerkan viðburð hafi verið að ræða þegar David og Victoria Beckham komu til Los Angeles í gær en um hitt verður ekki deilt að móttökurnar sem þau fengu verða þeim eflaust eftirminnilegar. Hjónakornin lentu í Kaliforníu í gærnótt en þar tóku á móti þeim öskrandi aðdáendur og her ljós- myndara og sjónvarpsvéla. Fyrrum fyrirliði enska landsliðsins brosti út að eyrum og var greinilega afar ánægður með móttökurnar. Mikill viðbúnaður var við komu hjónanna og höfðu öryggishlið verið sett upp. Beckham kom fram á blaðamannafundi í gær á vegum knattspyrnufélagsins LA Galaxy, sem hann ætlar að leika með. Gríðarleg spenna og eftirvænting hefur magnast upp fyrir komu Beckhams síðustu daga í Kali- forníu. Forráðamenn liðsins vonast til að enska fótboltastjarnan muni verða til þess að íþróttin fá meiri athygli meðal Bandaríkjamanna en áður. Hjónin eru greinilega tilbúin til að taka Bandaríkin með trompi en heimildarmynd um Victoríu þar sem hún undirbýr komuna til Bandaríkjanna, verður sýnd þar vestra í næstu viku. Beckham er lentur Reuters Kát Beckhamhjónin komin til LA. Fréttir á SMS                            AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 SÝNINGAR Á SÖGULOFTI MR. SKALLAGRIMSSON - höf. og leikari Benedikt Erlingsson 14/7 kl 15 Uppselt, 14/7 kl. 20 uppselt, 11/8 kl. 20 Uppselt, 12/8 kl. 15 laus sæti, 12/8 kl. 20 Uppselt, 18/8 kl. 20 Uppselt, 19/8 kl. 15 laus sæti, 19/8 kl. 20 Örfá sæti, 30/8 kl. 20 laus sæti, 31/8 kl. 20 Uppselt, 8/9 kl. 20 laus sæti, 9/9 kl. 20 laus sæti, 14/9 kl. 20 laus sæti, 15/9 kl. 20 laus sæti, 22/9 kl. 20 laus sæti, 23/9 kl. 20 laus sæti, 28/9 kl. 20 laus sæti, 29/9 kl. 20 laus sæti, Miðaverð kr. 2900 - ATH! Staðfesta þarf miða með greiðslu viku fyrir sýningu Leikhústilboð í mat: Súpa, fiskréttur og kaffi kr. 2600 Súpa, kjötréttur og kaffi kr. 3200 Miða- og borðapantanir í síma 437 1600 Nánari upplýsinar www.landnamssetur.is Sumartónleikar í Skálholtskirkju Laugardagur 14. júlí Kl. 14:00 Erindi í Skálholtsskóla: Ísland-Austurríki Helmut Neumann: Menningartengsl Íslands og Austurríkis á sviði tónlistar Kl. 15:00 Ísland-Austurríki: Kammertónleikar II Verk eftir Huber Pöll, Áskel Másson, Friedrich Cerha og Hannes Heher Graffe str.kvartettinn, Einar Jóhannesson klarinett Kl. 17:00 Óttusöngvar Verk eftir Jón Nordal Hljómeyki, Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Sverrir Guðjónsson kontratenór, Sigurður Halldórsson selló, Frank Aarnink slagverk, Steingrímur Þór- hallsson orgel. Stjórnandi: Magnús Ragnarsson. Sunnudagur 15. júlí Kl. 15:00 Bach og Bologna Verk eftir Laurenti, Torelli og J. S. Bach JaapSchröder fiðla, Sigurður Halldórsson selló Kl. 17:00 Guðsþjónusta Hljómeyki flytur verk eftir Jón Nordal Ókeypis aðgangur www.sumartonleikar.is Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 14. júlí kl. 12.00: Mario Duella, orgel 15. júlí kl. 20.00: Ítalski organistinn Mario Duelle leikur verk eftir Buxtehude, Bach, Mendelssohn, Guilmant og eftir ítalska höfunda. www.listvinafelag.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.