Morgunblaðið - 14.07.2007, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 14.07.2007, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2007 53 SPARBÍÓ 450kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA, AKUREYRI, KEFLAVÍK / AKUREYRI / KEFLAVÍK Evan hjálpi okkur Guð hefur stór áform ... en Evan þarf að framkvæma þau FRÁ LEIKSTJÓRA BRUCE ALMIGHTY FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS HARRY POTTER 5 kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ HARRY POTTER K. 2 - 5 - 8 - 11 B.i. 10 ára EVAN ALMIGHTY kl. 4 - 8 LEYFÐ SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 6 LEYFÐ DIE HARD 4 kl.10 B.i. 14 ára SÝND MEÐ ÍSLEN SKU OG EN SKU TALI "LÍFLEG SUMAR- SKEMMTUN" eee L.I.B. TOPP5.IS eee S.V. MBL. SHREK, FÍÓNA, ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTLEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA. tv - kvikmyndir.is eee LIB, Topp5.is STÆRSTA GRÍNMYND SUMARSINS eee L.I.B. - TOPP5.IS eee H.J. - MBL eeee KVIKMYNDIR.IS ÁSTIN ER BLIND HEFURÐU UPPLIFAÐ HIÐ FULLKOMNA STEFNUMÓT?STEFNUMÓTAMYND SUMARSINS WWW.SAMBIO.IS Á EFTIRTALDAR SÝNINGAR laugardag og sunnudag SparBíó 450kr SHREK 3 MEÐ ÍSLENSKU TALI KL. 2 Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG Á AKUREYRI www.SAMbio.is SHREK, Fíóna, Stígvélaði kötturinn og Asninn eru mætt aftur í skemmtilegasta ævintýri allra tíma EVAN ALMIGHTY KL. 2 Í ÁLFABAKKA OG KL. 4 Í KEFLAVÍK NÝRRI tónleikaröð verður hleypt af stokkunum annað kvöld á Kaffi Hljómalind á Laugavegi, ber hún heitið Sunnudagshressa-Tónleika- mezza og verður nokkur sunnudags- kvöld í röð á næstu misserum. Á fyrstu tónleikunum annað kvöld koma fram hljómsveitin <3 Svan- hvít!, sem mun spila margradda dans- og dillitónlist, og Markús Bjarnason, m.a. söngvari og hljóð- gervlaleikari hljómsveitarinnar Skáta, sem kynnir nýtt efni í bland við gamalt sólóefni. Hann spilar á gítar og syngur með. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og standa til kl. 22:30, aðgangseyrir er 500 kr. Léttar og einfaldar veitingar verða í boði. Þeir sem eru undir 18 ára aldri eru sérstaklega hvattir til að mæta þar sem Kaffi Hljómalind er einn af fáum stöðum í miðbænum þar sem sá aldurshópur getur mætt á tón- leika án þess að eiga á hættu að vera vísað frá. Tónlistarfólki og öðrum sem áhuga hafa á því að koma fram á þessum kvöldum er bent á að hafa samband við Kaffi Hljómalind. Morgunblaðið/Eggert Dillitónlist >3 Svanhvít á tónleikum á Seltjarnarnesi í sumar. Sunnudagshressa- Tónleikamezza SÖNGKONAN Britney Spears á ekki í ástarsambandi við lífvörðinn sinn eins og haldið hefur verið fram í slúðurblöðum víða um heim að und- anförnu. Spears, sem sást borða róm- antíska máltíð ásamt lífverðinum Daimon Shippen í síðustu viku, segir samband þeirra eingöngu atvinnu- tengt og að hann hugsi aðeins um að vernda hana og syni hennar tvo. Spears og Shippen hafa sést sam- an tvö ein nokkrum sinnum í mánuð- inum og því var dregin sú ályktun að þau væru að draga sig saman. Þau nutu kertaljósakvöldverðar í Los Angeles seinasta miðvikudag eftir að Shippen hafði dvalið nokkrar nætur í húsi Spears í Beverly Hills. Þau sáust einn- ig saman á söng- leiknum Wicked eftir að hafa feng- ið sér drykk á Los Angeles- hótelinu Chateau Marmont. Ship- pen fylgdi henni einnig til kirkju síðasta sunnudag ásamt sonunum tveimur. Spears hélt á Jayden en Shippen á Sean og huggaði hann þegar hann fór að gráta. Spears er ekki með barnfóstru og því hjálpar Shippen henni stundum að sögn heimildarmanns sem til þeirra þekkir. Ekki með lífverðinum Britney Spears LEIKKONAN Jessica Simpson hefur verið send í þjálfunarbúðir. Simpson mun gangast undir miklar andlegar og líkamlegar æf- ingar sem eru lið- ur í undirbúningi hennar fyrir næsta kvik- myndahlutverk þar sem hún mun leika atvinnu- lausa leikkonu sem gengur í herinn. Hún fór í búðirnar á miðvikudag- inn og verður þar í nokkra daga í herþjálfun. Í myndinni verður persóna Simp- son miður sín þegar hún kemur að kærastanum í rúminu með hár- greiðslukonunni hennar. Simpson sagði nýlega að hún ætl- að að leggja mikið á sig fyrir þetta hlutverk. „Ég vil komast í mjög gott form fyrir þessa mynd. Ég stefni að því að geta lyft lóðum í mjög hælaháum skóm,“ sagði hún. Sagt er að Simpson hafi þegar grennst um tvær fatastærðir á átta vikum. Enda hittir hún einkaþjálf- ara sinn fimm sinnum í viku og er á ströngu megrunarfæði. Simpson vill í form Jessica Simpson HAFDÍS HULD mun halda sína fyrstu tónleika hér á landi í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs, fimmtu- dagskvöldið 9. ágúst kl. 20.30. Söngkonan sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu, Dirty paper cup, á vegum Redgrape records fyrir síð- ustu jól. Þessi frumraun Hafdísar hlaut einróma lof gagnrýnenda bæði hér á landi og erlendis og var valin poppplata ársins á Íslensku tón- listarverðlaununum í janúar. Undanfarið ár hefur að mestu far- ið í tónleikaferðalög hjá Hafdísi og hljómsveit hennar, en auk sjálf- stæðra tónleika hafa þau einnig komið fram á mörgum frægustu tón- listarhátíðum Evrópu (Glastonbury, Hultsfred, Les femmes s’en melent, In the city) og hitað upp fyrir stjörn- ur eins og Mika og Paulo Nutini í Bretlandi og Frakklandi. Hljómsveitina skipa auk söngkon- unnar sjálfrar þau Alisdair Wright, Steve Ling og Sarah Croft. Miðasala er hafin hjá www.midi.is og www.salurinn.is og er miðaverð 2.000 kr. Hafdís Huld Söng- og tónlistarkonan heldur tónleika á Íslandi í ágúst. Hafdís Huld spilar á Íslandi www.hafdishuld.com www.myspace.com/hafdishuld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.